Morgunblaðið - 24.05.1992, Qupperneq 2
2 FRÉTTIR/ENIMLENT
MÓR'GUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24. MÁÍ 1992
EFNI
Þrír ættliðir útskrifast
Morgunblaðið/KGA
Sá óvenjulegi atburður gerist á þessu vori að þrír ættliðir útskrifast með stúdentspróf. Þórdís Kristinsdóttir og dætur hennar tvær, Steinunn
María Benediktsdóttir og Svava Björk Benediktsdóttir, Þórdís Sverrisdóttir dótturdóttir og Rakel Kristinsdóttir sonardóttir Þórdísar útskrifast.
Þórdís, Steinunn María og Þórdís yngri frá Flensborgarskóla, Svava Björk frá Fjölbrautaskólanum í Breiðholti og Rakel frá Verslunarskólan-
um. „Þetta eí fimmfaldur sigur,“ sagði Þórdís eldri, en hún hefur verið fimm ár í námi með fullri vinnu. Á myndinni eru frá vinstri Þórdís
eldri, Steinunn, Þórdís yngri, Svava Björk og Rakel.
Forsljóri St. Louis Colddrawn um verksmiðju Isl. stálfélgsins:
Ákvörðun um kaup getur
legið fyrir í lok vikunnar
Framkvæmdasljóri Hamburger Stahlwerke von-
ast til að ge ta lagt fram tilboð fyrir miðjan júní
WOLF-DIETRICH Grosse, framkvæmdastjóri þýska stálfyrirtækis-
ins Hamburger Stahlwerke, segir að fyrirtæki hans hafi því að-
eins áhuga á að kaupa eignir þrotabús íslenska stálfélagsins að
leyfi fáist til að stækka verksmiðjuna, samkomulag takist um orku-
verð og um trygga afhendingu raforku. Hann segist vonast til að
fyrirtækið muni geta lagt fram tilboð í verksmiðjuna sem fyrst og
í síðasta lagi í fyrri hluta júní. William McNair, forstjóri banda-
ríska stáliðjuversins St. Louis Colddrawn, staðfesti í samtali við
Morgunblaðið að fyrirtækið hefði áhuga á verksmiðju Stálfélags-
ins þó eftir væri að kanna margar hliðar þess máls. Hann segist
ekki hafa hug á að auka framleiðslugetu verksmiðjunnar frá því
sem nú er en bæta þyrfti við tækjabúnaði til að vinna meira úr
stálinu. Sagðist hann eiga von á að niðurstaða um hvort fyrirtæk-
ið gerir tilboð í eignirnar geti legið fyrir í lok vikunnar.
Á fundi banka sem eiga veð- ræður við St. Louis Colddrawn
kröfur í eignir íslenska stálfélags-
ins í Amsterdam sl. þriðjudag
var ákveðið að hefja beinar við-
Gipsy Kings:
Mikilásókn í
tónleikamiða
MIKIL ásókn er í aðgöngumiða
að tónleikum hljómsveitarinnar
Gipsy Kings sem verða haldnir í
Laugardalshöllinni nk. miðviku-
dagskvöld.
Tónleikarnir eru fyrsti liður í
Listahátíð 1992, og samkvæmt
upplýsingum miðasölu Listahátíðar
hefur mikið selst af miðum og mik-
ið er spurst fyrir um tónleikana.
„Við viljum hvetja fólk til þess að
draga ekki fram á síðasta dag að
kaupa miða því það stefnir í að
verða uppselt," sagði starfsmaður
miðasölunnar.
Sjá viðtal við Gipsy Kings á
bls. 22.
um hugsanleg kaup fyrirtækis-
ins á verksmiðjunni. Var hol-
lenska bankanum Bank Mees &
Hope falið að stjóma viðræðun-
um og kveðst William McNair
hitta fulltrúa bankans að máli í
dag. Þá segist hann koma til
íslands 27. maí til viðræðna við
aðila hérlendis og til að skoða
verksmiðjuna.
Aðspurður um ástæður fyrir
áhuga hans á verksmiðjunni sagði
McNair að fyrirtækið stefndi að
því að færa umsvif sín út til Evr-
ópu og lega íslands á milli mark-
aða í Bandaríkjunum og Evrópu
gerði þetta ákjósanlegt.
St. Louis Colddrawn rekur tvö
stáliðjuver í Bandaríkjunum og
eitt í Kanada sem framleiða úr
hrástáli sem keypt er frá oðrum
stálbræðslum en McNair sagði að
ef af kaupum á Stálfélaginu yrði
gæti fyrirtækið sjálft hafið brota-
járnsvinnslu. Hann sagði ljóst að
framboð brotamálma á íslandi
væri engan veginn nægilegt og
ef fyrirtækið hæfi framleiðslu á
íslandi þyrfti að flytja hráefni til
landsins frá Bandaríkjunum og
Evrópu en því fylgdi mikill flutn-
ingskostnaður. Hins vegar væri
lágt orkuverð á íslandi mikill kost-
ur.
Hann sagði einnig að fyrirtækið
hygðist vinna meira úr stálbörrun-
um sem unnir eru úr brotamál-
munum en núverandi tæki verk-
smiðjunnar gæfu kost á og því
þyrfti að setja upp sérstakan bún-
að til að valsa stálið.
Wolf-Dietrich Grosse sagði að
Hamburger Stahlwerke áfonnaði
að auka framleiðslugetu stálverk-
smiðju á íslandi ef af yrði að lág-
marki í 400 til 500 þúsund tonn
á ári og slík verksmiðja veitti
a.m.k. 200 manns störf. Hann
sagði að afla þyrfti nýs starfsleyf-
is til að stækka verksmiðjuna en
miðað við núverandi afkastagetu
hennar væri hún ekki sam-
keppnishæf við aðrar stálbræðslur
í Evrópu.
Dómsmálaráðherra:
Málum verði hrað-
að fyrir Hæstarétti
Vestmannaeyjum.
í RÆÐU við setningu ráðstefnu lögmanna og dómara um Hæsta-
rétt sl. föstudag gerði Þorsteinn Pálsson dómsmálaráðherra að
umræðuefni hinn mikla vanda sem Hæstiréttur stendur frammi
fyrir vegna þess að mál hrannast þar upp og einnig fjallaði hann
um húsnæðismál réttarins.
í samtali við. Morgunblaðið
sagði Þorsteinn að þrátt fyrir veru-
lega afkastaaukningu réttarins
hrönnuðust mál þar upp og í dag
væri tveggja og hálfs árs bið í að
fá dómsniðurstöðu og fyrirsjáan-
legt væri að ef ekkert yrði að
gert yrði sú bið komin í fjögur ár
að tveimur árum liðnum. Það væri
því augljóst að það samrýmdist
ekki kröfum réttarríkis að láta
mál þróast með þessum hætti.
Hann sagði að við þessu yrði að
bregðast. Nokkrar hugmyndir í
því efni hefðu verið reyfaðar og
hann hafi ákveðið að feia réttar-
farsnefnd að vinna að útfærslu
hugmynda um hvernig eðlilegast
væri að bregðast við þessum
vanda.
Þorsteinn sagði einnig að rík-
ið stæði frammi fyrir byggingu
húss fyrir hæstarétt og þeirri
hugmynd hafi verið hreyft inn-
an ríkisstjómarinnar að minn-
ast 50 ára afmælis lýðveldisins
1994 með því að reisa hús yfír
réttinn. Þar væri ekki verið að
tala um hallarbyggingu eða
minnisvarða, heldur hentugt og
myndarlegt hús.
- Grímur
Breyttur
fíkniefnaheimur
► Svo virðist sem hassneysla hafi
færst í vöxt meðal nemenda í
grunnskólum að sögn fíkniefnaiög-
reglu,en talið er að álíka auðveit
sé fyrir unglingana að verða sér
úti um hass og áfengi. /10
IMorræni sjónaukinn á
Kanaríeyjum
►Eftir margra ára fræðilegar
rannsóknir finnst íslenskum
stjarnvísindamönnum kominn tími
til að færa út kvíarnar og byrja
að stunda athuganir. /14
Atvinnuþáttaka
aldraðra sjálfsögð
mannréttindi
►Kannanir sem fram hafa farið
nýlega sýna að yfirgnæfandi meiri-
hluti aldraðs fólks vili fá að vinna
. lengur en að hinu tiltekna, fast-
setta aldursári sem því er gert að
hætta störfum. Þessi skoðun kem-
ur einnig fram hjá yngra fólki. /18
Suðriðandar
►Hingað til lands eru væntanleg-
ir sígunakonungar, hljómsveitin
Gipsy Kings. Ríki þeirra er tónlist-
in og aðalsmerki þeirra suðræn
lífsgleði./22
B
HEIMILI/
FASTEIGNIR
► l-32
Af íbúðum aidraðra
►Þjóðhagslega hagkvæmt að
byggja nýjar íbúðir fyrir aldraða,"
segja þeir Gylfi Héðinsson og
Gunnar Þorláksson hjá BYGG. /14
► l-32
í fuglaheimi
►Dýraríki íslands hefur átt allan
hug Brians Pilkingtons teiknara
og lýsir hann því í myndum í nýút-
kominni bók. Hér er rætt við lista-
manninn. /1 og4-5
Með varðskipi tii
fermingar
► í Mjóafirði var eitt barn fermt
í ár. Þangað eru erfiðar samgöng-
ur landleiðina yfir vetrartímann
og því var leitað aðstoðar Land-
helgisgæsiunnar til að flytja prest,
organista, kirkjukórog ættingja
og vini fermingarbarnsins frá
Norðfirði./2
Eitt tónskáld var einu
tónskáldi of mikið
►Rætt við Magnús Blöndal Jó-
hannsson um lífið og tilveruna í
meðbyr og mótbyr./lO
Af japönskum
vettvangi
► Bragi Ásgeirsson myndlistar-
maður skrifar um menningu og
manniíf í Japan./12
Af spjöldum
giæpasögunnar
►Morðin í mýrlendinu./14
Jass er á sem rennur
stöðugt fram
► Rætt við jasssöngvarann Jon
Hendricks, frumkvöðul í að semja
og syngja texta við sólóa jass-
meistaranna. /15
Skoðun
Leiðari
Helgispjall
Reykjavíkurb
Minningar
Iþróttir
Útvarp/sjónv:
Gárur
Mannlífsstr.
IR ÞÆTTIR
/bak Kvikmyndir 19c
23 Fólk I fréttum 22c
24 Myndasögur 24c
24 Brids 24c
24 Stjömuspá 24c
26 Skák 24c
42 Bíó/dans 25c
44 Bréf til blaðsins 28c
47 Velvakandi 28c
6c Samsafnið 30c
18c
INNLENDAR FRÉTTIR-
2-6-BAK
ERLENDAR FRÉTTIR:
1-4