Morgunblaðið - 24.05.1992, Síða 27
ekki alveg jafn tilbúin til að láta
punta mig eins og tíu árum áður,
en við skemmtum okkur samt við
að rifja upp gömlu góðu dagana.
Eftir að mamma komst að því
að Dúdda væri veik, ákvað hún að
heimsækja hana og veita henni fé-
lagsskap. í þessari ferð kynntu þau
Dúdda og Emil mömmu fyrir Bigga
og stend ég ávallt í þakkarskuld
við þau fyrir það. Eftir að mamma
flutti til Lúxemborgar gat hún ver-
ið nær Dúddu og stutt hana í gegn-
um alla erfiðleikana sem að sjúk-
dómurinn hafði í för með sér. Ég
var fegin að við gátum gert eitt-
hvað fyrir Dúddu, sem gerði svo
mikið fyrir okkur. Ég verð alltaf
þakklát fyrir að hafa fengið tæki-
færi á að heimsækja Dúddu og njóta
þess að sitja og rabba við hana um
allt milli himins og jarðar í þetta
síðasta skipti um jólin.
Guð veit að ég á eftir að sakna
Dúddu og mér finnst Lúxemborg
aldrei sú sama án hennar. En ég
er viss um að pabbi hefur tekið vel
á móti henni hinum megin og er
fegin að_ vita að kvalir hennar eru
á enda. Ég vona bara að góður Guð
gefi þér styrk Emil minn til að yfir-
stíjga söknuðinn. Ég verð alltaf litla
prinsessan ykkar.
Ragna Árný Lárusdóttir.
Okkur brá þegar við fréttum sl.
sunnudag að Dúdda, eins og hún
var oftst kölluð af fjölskyldunni og
nánum vinum, væri látin. Við fjöl-
skyldan höfðum örfáum dögum áð-
ur eytt með þeim kvöldstund, en
einmitt þá vorum við að tala um
hvað hún væri hress og liti vel út.
Við höfðum ekki séð hana í nokkra
mánuði.
Okkur Iangar, með örfáum Qi'ð-
unt, tí! að kveðja mágkonu mípa
Qg vinkonu okkar sem við þárum
rrtikla virðingu fyrir og áttum marg-
ar góðar stundir með. Við Dúdda
ræddum oft heimsmálin í eldhúsjnu
hjá henni í Lúxemborg.
Dúdda hafði mjög ákveðnar
skoðanir á hlutum og var ekki
freimin við að láta þær í ljós, en
jafnframt hafði hún mjög jákvæð
áhrif á fólk, jafnt vini sem aðra.
Sem drengur umgekkst ég
Dúddu mjög mikið, en það var samt
ekki fyrr en þau hjónin fluttust
búferlum til Lúxemborgar, sem við
fórum að umgangast þau mikið.
Það var alltaf yndislegt að koma
við hjá Dúddu, margar nætur gist-
um við hjá þeim og alltaf var mað-
ur hjartanlega velkominn.
Andlegur styrkur, og sá mikli
vilji til að lifa jákvæðu lífi, kom svo
mjög í ljós þegar Dúdda veiktist
af þeim slæma sjúkdómi sem loks
tók völdin að fuliu. Þessi ár mátti
aldrei vorkenna henni, né vildi hún
láta hafa of mikið fyrir sér og má
segja að þetta hafi hjálpað henni
mikið í veikindunum.
Við eigum góðar endurminningar
og eigum eftir að sakna þeirra
stunda þegar við sátum í eldhúsinu
hjá henni í Lúxemborg og ræddum
heimspekilega um allt mögulegt.
Dúdda verður með okkur áfram
og megi sá styrkur, sem hún hafði,
hjálpa bróður mínum og dætrum í
gegnum erfitt tímabil sem framund-
an er.
Sigmar og fjölskylda .
BLOM
SEGJA ALIT
Mikið úrval
blómaskreytinga
fyrir öll tækifæri.
Opið alla daga frá kl. 9-22.
Sími 689070.
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR
SUNNUDAGUR 24. MAI 1992
Hún Dúdda okkar er dáin.
Það var svo freistandi að trúa
því að hún hefði sigur í þetta sinn.
Hún hafði áður glímt við ólæknandi
sjúkdóm og farið með sigur af
hólmi. Sýndi þá að hennar mesti
styrkur fólst í því að sigra veikleika
sinn. Því hún var sterk. Skapstór,
tilfinningarík, ákveðin, stolt og
sterk. Í grannvöxnum, liðugum lík-
ama þessarar konu leyndist meiri
styrkur en í mörgum okkar til sam-
ans. Hafði hetjulund og kjark sem
sérhver karlmaður væri fullsæmdur
af. Hún lifði með reisn og dó með
þeirri reisn sem henni hæfði.
Það eru bjartir dagar í minning-
unni þegar mótun okkar litla þjóðfé-
lags hófst fyrir tuttugu árum. Flest
okkkar ung að árum að hefja bú-
skap í ókunnu landi fjarri vinum
og vandamönnum. Þó búslóðin væri
fátækleg var nóg af bjartsýni æsku-
mannsins í farteskinu. En kjölfest-
una vantaði og Emil og Dúdda ívið
eldri en við hin þóttu sjálfkjörnir
fulltrúar til að ganga okkur í for-
eldrastað og í beinu framhaldi af
því afi og amma barnanna okkar.
Þau gegndu því hlutverki af sinni
alkunnu alúð og eignuðust vísan
samastað í hjörtum þeirra. Fylgdust
með þeim og þeirra högum af ein-
lægum áhuga til síðasta dags. Ótal-
in eru barnaafmælin sem þau þóttu
jafn ómissandi í og afmælistertan
sjálf.
Emil og Dúdda.
Samstæð heild, en samt svo ólík-
ir einstaklingar. Samtaka í því að
láta gott af sér leiða í okkar litla
samfélagi. Hún eins og stöðuvatn,
kyrrt, rólegt og botnlaust. Hann
eins og syngjandi lækur, glaður og
hlýr. Heimilið var gestkvæmt og
þau tóku öllum opnum örmum.
ÁvalLt reiðubúin að veita liðsinni
sitt þar sem þess var þörf. Ótelj-
andi kaffibollar, ófá tár og mýmörg
leyndarmál fóru um eldhúsið henn-
ar Dúddu, því fáir gátu hlustað
betur og skilið margslungið eðli
mannanna barna.
En vei þeim, sem reyndi að sigla
undir fölsku flaggi sjálfsréttlæting-
ar inn í landhelgi hennar. Þá ská-
skaut hún fram hökunni og lét álit
sitt í ljós, rólega af öryggi og festu.
Því hún var alltaf heil og sönn.
Fram hjá alsjáandi stórum augum
hennar var engin undankomuleið.
Þessi alsjáandi augu hennar virt-
ust sjá og skynja flest með meira
27
innsæi dýpt og vídd en við hin vor-
um fær um. Hversdagslegustu hlut-
ir og fólk öðluðust meira líf og lit
þegar Dúdda var búin að sýna okk-
ur það í sínu ljósi. Gerði allt jafn
vel og vandlega sem hún snerti á.
Valdi hvert orð af sömu kostgæfni
og hárgreiðsluna, háhæluðu skóna,
bílana. Tók sér tíma. Allt þurfti
sinnar athugunar við.
Samfylgdin við hana hefur verið
okkur ómetanleg. Við munum alltaf
búa að því sem hún miðlaði okkur
og fyrir það erum við þakklát.
Elsku Emil, dætur og aðrir að-
standendur. Við vottum ykkur inni-
lega samúð. Guð blessi ykkur.
F.h. Félags Islendinga
í Lúxemborg,
Þorbjörg Jónsdóttir.
t
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi,
HAFSTEINN ORMAR HANNESSON
frá (safirði,
til heimilis á Grandavegi 47,
Reykjavík,
verðúr jarðsunginn frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 26. maí kl.
13.30. Þeim sem vildu minnast hins látna er vinsamlegast bent
á hjálparsveit skáta á ísafirði.
Kristfn Bárðardóttir,
Bárður Hafsteinsson, Edda Gunnarsdóttir,
Guðrún K. Hafsteinsdóttir, Einar Pétursson,
Hannes Hafsteinsson, Soffia Jóhannsdóttir
og barnabörn.
t
Elskulegur bróðir og móðurbróðir okkar,
KÁRI GÍSLASON,
Skipasundi70r
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 26. maí kl.
15.00.
Krístín Gísladóttir,
Guðrún B. Árnadóttir,
inga B. Árnadóttir.
t
Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
FRIÐRIK JÓNSSON
frá Hvestu, Arnarfirði,
Drápuhlið 46,
Reykjavik,
andaðist á Hrafnistu í Reykjavík 21. maí.
Jarðsungið verður frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 27. maí nk.
kl. 15.00.
t
Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi,
JENS V. MARTEINSSON,
Marklandi 4,
lést fimmtudaginn 21. maí.
Gerða Guðnadóttir,
börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn.
t
Eiginmaður minn og faðir okkar,
ÞÓRÐUR ÓLAFUR ÞORVALDSSON,
Arnarhrauni 21,
Hafnarflrði,
verður jarðsunginr) frá Hafnarfjarðarkirkju rpánudaginp 25. mal
kl. 15.00.
Karólípa Þóra Ágústsdóttir,
Sigurlfna Kristín Þórðardóttir,
Ágúst Helgi Þórðarson,
Katrin Guðmunda Þórðardóttir.
t
Ástkærfaðir minn, fósturfaðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
PÁLLÞÓRÐARSON,
Dvalarheimilinu Hlíð,
Akureyri,
er andaðist 19. maí, verður jarðsunginn frá Akureyrarkirkju mið-
vikudaginn 27. maí kl. 13.30.
Guðjón Pálsson, Sigríður Jónsdóttir,
Margrét Sturlaugsdóttir,
Geir Guðgeirsson, Guðný Jónsdóttir,
Páll Kristjánsson, Kristín Hannesdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Kristín Friðriksdóttir, Valdimar Hergeirsson,
Þórður Friðriksson, Sólborg Pétursdóttir,
Sesselja Friðriksdóttir, Sigurjón Antonsson,
Guðrún Friðriksdóttir, Auðunn Jónsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Innilegar þakkir fyrir samúð og hlýjan hug við andlát og útför,
KARÓLÍNU SOFFÍU JÓNSDÓTTUR
frá Fossi.
Reynir Aðalsteinsson, Jónína Hlfðar,
Viðar Aðalsteinsson, Helga Sigurðardóttir,
íris Grefa Valberg, Trausti Guðlaugsson
og barnabörn.
Innilegar þakkir til allra þeirra, sem
sýndu okkur samúð og hlýhug við and-
lát og útför dóttur okkar, systur, mág-
konu og frænku,
MARGRÉTAR VÖLU EMILSDÓTTUR
tölvunarfræðings.
Sérstakar þakkir viljum við færa lækn-
um og hjúkrunarfólki heimahlynningar
Krabbameinsfélagsins, starfsfólki
geisladeildar Landspítalans og starfs-
fólki hjá Sjóvá-Almennum.
Jóna Vestmann, Emil Guðmundsson,
Emil Emilsson, «.
Ellen Emilsdóttir, Steinar Jónsson,
og systursynir.
+
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og
langalangamma,
SIGRÍÐUR INGIBJÖRG SVEINSDÓTTIR
frá Seljanesi, Reykhólasveit,
lést föstudaginn 22. maí.
Páll Jónsson,
Sveinn Jónsson,
Magnús Jónsson,
Sesselja Jónsdóttir,
Jón Hjálmar Jónsson,
Unnur Stefánsdóttir,
Wiví Hassing,
Dagbjört Hafsteinsdóttir,
Dagný Stefánsdóttir,
Svala Sigurvinsdóttir,
barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabarn.
+
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
ÓLÖF HELGA FERTRAMSDÓTTIR
frá Nesi í Grunnavík,
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju
miðvikudaginn 27. maí kl. 13.30.
Þeir, sem vildu minnast hennar, eru
beðnir að láta Slysavarnafélag íslands
njóta þess.
Guðbjörg Halidórsdóttir,
Gunnar Halldórsson,
Ólafur Halldórsson,
Ingólfur Halldórsson,
Margrét Halldórsdóttir,
Ragnheiður Halldórsdóttir,
Pétur Pétursson,
Álfhildur Friðriksdóttir,
Margrét Reimarsdóttir,
Anna Dóra Ágústsdóttir,
Gústaf Gústafsson,
Ingólfur Konráðsson,
Guðrún Björnsdóttir,
barnabörn og fjölskyldur þeirra.
*