Morgunblaðið - 24.05.1992, Síða 30
30
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
SUNNUDAGUR 24. MAI 1992
CLASSICA
Gróðurhús fyrir íslenska veðráttu.
Formfagurt - sterkbyggt - dönsk hönnun.
Heildverslunin SMIÐSHUS - E. Sigurjónsdóttir,
Smiðshús, 225 Bessastaðahreppi, sími 650800.
Umboðsmaðurá Egilsstöðum: Guðrún Sigurðardóttir,
Tómstundaiðjan, Selási 1.
STEINAR WAAGE
SKÓVERSLUN
Satín brúðarskór
BRUNO MAGLI
Höfum eínnig margar tegundir af hvítum leðurskóm.
Póstsendum samdægurs. 5% staðgreiðsluafsláttur.
Domus Medica,
Egilsgötu 3,
sími 18519
Kringlunni,
Kringlunni 8-12,
sími 689212
Gunnþóra Bjöms-
dóttír - Minning
Fædd 23. sept. 1910
Dáin 18. maí 1992
Á morgun fer fram frá kirkju
Hvítasunnusafnaðarins í Reykjavík
útför Gunnþóru Björnsdóttur, sem
lést á Sólvangi í Hafnarfirði 18.
þ.m.
Gunnþóra var fædd í Reykjavík
23. september 1910, dóttir hjón-
anna Bjöms Bogasonar bókbindara
í Reykjavík, sem fæddur var á
Brennistöðum í Borgarhreppi í
Mýrarsýslu og Elínar Klemensdótt-
ur, sem fædd var og ættuð úr Vog-
um á Vatnsleysuströnd. Börn þeirra
Björns og Elínar voru sjö. Fjögur
þeirra dóu ung, en auk Gunnþóru
komust tvö þeirra, Klemens og
Kristín, til fullorðinsára. Lifir nú
Kristín ein þeirra systkina, en hún
er búsett í Reykjavík.
Árið 1941 giftist Gunnþóra
Kristjáni Gamalíelssyni frá Hafnar-
fírði, en hann var móðurbróðir þess
sem þetta ritar. Kristján var þá
verkamaður, en stundaði síðar ýmis
afgreiðslustörf og var síðast í mörg
ár starfsmaður á pósthúsinu í Hafn-
arfirði. Hann lést 1986. Þau Gunn-
þóra og Kristján stofnuðu sitt heim-
ili í Hafnarfírði og áttu þar æ síðan
heima, lengst að Selvogsgötu 17.
Þau voru barnlaus.
Blómastofa
Friófinns
Suðurlandsbraut 10
108 Reykjavík. Sími 31099
Opiðöllkvöld
til kl. 22,- einnig um helgar.
STUDENTAFAGNAÐUR
Nemendasambands Menntaskólans í Reykjavík
verður haldinn föstudaginn 29. maí á Hótel íslandi og hefst kl. 19.00.
Nýstúdentar og allir afmælisárgangar eru hvattir til þess að fjölmenna.
Miðasala verður á Hótel íslandi (anddyri skemmtistaðarins) miðvikudaginn 27. og
fimmtudaginn 28. maí kl. 16-19 báða dagana.
Samkvæmisklæðnaður.
Stjórnin.
V!SA%
Gunnþóra fékk heilablóðfall
1982, en komst til nokkrar heilsu
aftur, enda þótt hún næði sér aldr-
ei að fullu eftir það. Síðustu árin
var hún vistmaður á Sólvangi í
Hafnarfirði, þar sem hún naut góðr-
ar umönnunar, sem hún var inni-
lega þakklát fyrir.
Gunnþóra var ein af þessum
hljóðlátu lindum, kona sem ekki fór
mikið fyrir í lífinu, en innti sín verk
af hendi af hógværð og samvisku-
semi. Hún var nægjusöm og þolin-
móð, en umfram allt greiðvikin og
góðviljuð í annarra garð. Þau Stjáni
og Þóra, eins og þau voru nefnd
af öllum sem þau þekktu, voru mjög
samrýmd hjón. Þau reyndust ein-
staklega trygg vinum sínum og
skyldmennum. Á heimili þeirra
dvöldu um árabil foreldrar Kristjáns
og bróðir Þóru átti þar heimili síð-
ustu árin sem hann lifði, þá farinn
að heilsu. Sjálfur dvaldi ég á heim-
ili þeirra Stjána og Þóru í Hafnar-
firði, fímm vetur á námsárum mín-
um. Naut ég þar umhyggju og hlýju
þeirra beggja. Vil ég að leiðarlokum
færa þeim hjónum, sem bæði voru
mér afar kær, hjartans þakkir fyrir
alla góðsemi þeirra í minn garð og
fjölskyldu minnar.
Gunnþóra og Kristján voru bæði
trúhneigð. Þau gengu í Hvítasunnu-
söfnuðinn fyrir mörgum árum og
störfuðu þar af einlægum huga.
Söng Kristján meðal annars lengi
með kór safnaðarins. Innan safnað-
arins eignuðust þau marga vini og
veitti starfið þar þeim mikla lífsfyll-
ingu. Hvorug kviðu þau þeirri för
sem allra bíður. Trú þeirra var ekki
bara málefni sunnudagsins, heldur
líka hversdagsins. Þannig var líf
þeirra beggja.
Guð blessi minningu Gunnþóru
Björnsdóttur.
Árni Grétar Finnsson.
Valgerður Benedikts-
dóttir — Kveðjuorð
Fædd 17. júlí 1943
Dáin 12. maí 1992
Það er ávallt erfitt að sætta sig
við dauðann, sérstaklega þegar fólk
í blóma lífsins fellur frá, eins og
Valla frænka. Valla hefur alltaf átt
sérstakan stað í hjarta okkar og
þegar við fengum þessar sorgar-
fréttir- riljuðust upp margar
ánægjustundir með henni.
Hugljúfustu minningarnar með
Völlu eru frá barnæsku okkar. Og
fyrstu minningarnar eru þegar
Valla og Matta komu til okkar þeg-
ar gosið var í Eyjum árið 1973, en
þær dvöldu hjá okkur nokkra daga
áður en þær héldu áfram til Hólma-
víkur. Minningin er svo sterk hjá
okkur um þær mæðgur er þær
komu í þetta sinn, því okkur fannst
þær hafa upplifað það sem var í
okkar barnshuga svo stórkostlegur
atburður. Síðar fluttu þær aftur út
til Eyja en komu oft upp á land og
gistu þá oft hjá okkur. Þegar við
vissum að von var á Völlu, Möttu
og Pálma ríkti viss stemmning hjá
okkur, því Valla var alltaf svo barn-
góð og hún veitti okkur svo mikla
athygli og eftir því sem við vorum
yngri því meiri athygli fengum við.
Það var allt svo sgennandi sem
Valla gerði með okkur, hvort sem
það var að fara í bæinn, fara í heim-
sóknir eða vera bara heima á Álf-
hólsveginum.
Það var okkar einlæga ósk að fá
að fara til Vestmannaeyja og heim-
sækja Völlu. Sú ósk rættist og var
það í fyrsta skipti sem við fórum
eitthvað án foreldra okkar. Þó að
heimþrá hafi gert vart við sig var
sá leiði fljótur að hverfa vegna þess
að það var svo gaman. Ef við eigum
eftir að fara aftur til Vestmanna-
eyja verður minningin um Völlu
ofarlega í huga okkar.
. Elsku Matta, Elva Dögg, Thelma
Ýr, Pálmi, Þórólfur, Matta og
Bensi, ykkur vottum við dýpstu
samúð og biðjum Guð að styrkja
ykkur í sorginni.
Blessuð sé minning Valgerðar
Benediktsdóttur.
Kristín Lilja, Ragnhildur
og Sólrún Þorsteinsdætur.
Legsteinar
Framleiðum altar staerðir og gerðir af legsteinum.
Veitum fúslega upplýsingar og ráðgjöf
umi
S.HELGASON NF
SKEMMUVEGI 48'SlMI 7B677
27. og 28. maí til Bmfdomi
2eða Svifeur - Verð ftú kr. 38.750.-*
m
8 sæti laus — Viðbötargísting á Lavante Club.
Pantaðu strax!
‘Miðast við 2 fullorðna og 2 börn i íbúð.
FERÐASKRIFSTOFA
REYKJAVÍKUR
AÐALSTRÆTI 16 - SÍMI 91-62149