Morgunblaðið - 24.05.1992, Blaðsíða 32
MORGUNBLAÐIÐ
ATVII\II\IA/RAÐ/SMÁ sunnudagur
24. MAI 1992
Tannlæknastofa
Aðstoð óskast á tannlæknastofu í miðbæn-
um til áramóta.
Vinnutími mánudaga-fimmtudaga kl. 8-14.
Umsóknir, er greini aldur, menntun og fyrri
störf, sendist auglýsingadeild Mbl. fyrir
þriðjudagskvöld merktar: „Rösk - 10307.“
Sólvallaskóla,
Selfossi
Við Sólvallaskóla á Selfossi eru nokkrar
kennarastöður lausar til umsóknar.
Meðal kennslugreina eru íþróttir, sérkennsla
(6.-10. bekkjar), myndmennt, samfélags- og
raungreinar.
Nánari upplýsingar gefur skólastjóri í símum
98-21256 og 98-21178.
Tónlistarskóli
Njarðvíkur
Tónlistarkennara vantar í eftirtaldar greinar
næsta skólaár:
Slagverk, málmblásturshljóðfæri, píanó (til
1. febrúar 1993) og bóklegar tónlistargreinar.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um menntun
og fyrri störf, sendistTónlistarskóla Njarðvík-
ur, Þórustíg 7, 260 Njarðvík.
Umsóknarfrestur rennur út þriðjudaginn
2. júní.
Upplýsingar veitir undirritaður í síma
92-12903 á kvöldin.
Skólastjóri.
Atvinnurekendur
athugið!
Atvinnumiðlun námsmanna hefur hafið starf-
semi sína. Fjöldi námsmanna er á skrá með
margvíslega menntun og starfsreynslu að baki.
Skrifstofan er opin frá kl. 9-18 alla daga.
Vanti ykkur starfskrafta í sumar, þá eru þeir
hjá okkur!
ATVINNUMIÐLUN NÁMSMANNA,
Stúdentaheimilinu v/Hringbraut,
símar 621080 og 621081.
il
ST. JÓSEFSSPÍTALI
LANDAKOTI
Barnadeild
Hjúkrunarfræðingar
Hefur þú áhuga á að starfa með börnum og
foreldrum? Við á barnadeild Landakotsspít-
ala þurfum á fleiri hjúkrunarfræðingum að
halda til að vinna með okkur að umönnun
barnanna. Hjúkrunarsvið deildarinnar er
bæði sértækt og fjölbreytilegt. Við bjóðum
upp á 3ja mánaða starfsaðlögun og leggjum
áherslu á símenntun með stöðugri fræðslu-
starfsemi á vegum deildarinnar.
Deildin sinnir bráðavöktum.
Upplýsingar gefur Auður Ragnarsdóttir,
hjúkrunarforstjóri, í síma 604326.
„Au pair“ - Svíþjóð
Óskum eftir barngóðri og ábyrgri manneskju
til að gæta tveggja barna, 4ra og 11/2 árs.
Við erum staðsett rétt fyrir utan Gautaborg.
Sveigjanlegur vinnutími, frí um helgar. Létt
heimilisstörf, sérherbergi með sérinngangi
og baði. Viðkomandi verður sem einn af fjöl-
skyldunni. Þarf að geta byrjað í ágúst ’92
og geta talað eitt Norðurlandamál eða ensku.
Vinsamlegast skrifið til:
Christina Bruce,
Fasonstigen 3, 44332 Lerum, Svíþjóð.
Innkaupa- og
birgðastýring
Eitt stærsta tölvufyrirtæki landsins óskar
eftir að ráða starfsmann í „Logistick".
Starfssvið:
- Pantanir frá innlendum og erlendum
birgjum
- Miðlun upplýsinga til sölumanna
- Eftirlit með verði
- Úrvinnsla upplýsinga (statistik)
- Eftirlit með reglulegum lagertalningum
- Vinna eftir markmiðum um öryggisbirgðir
- Sjá um öll samskipti við toll
- Halda utan um skuldir við erlenda birgja
- Samræma og sjá um innkaup fyrir stærri
verkefni
Hæfniskröfur eru að viðkomandi hafi góða
menntun, sé talnaglöggur, nákvæmur og
hafi gott vald á ensku.
Góð laun í boði fyrir réttan aðila.
Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem
fyrst.
Umsóknarfrestur er til og með 27. maí nk.
Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar
á skrifstofunni frá kl. 9-15.
Afleysinga- og ráðningaþjónusta
Lidsauki hf.
Skólavörðustig 1a - 101 Reykjavlk - Slmi 621355
VINNUEFTIRLIT RIKISINS
Administration of occupational safety and health
Bíldshöföa 16 • Pósthólf 12220 • 132 Reykjavík
Vinnueftirlit ríkisins auglýsir laus til
umsóknar eftirtalin störf:
Skrifstofustarf hjá umdæmisskrif-
stofu Suðurnesja f Keflavík
Um er að ræða 50% starf sem felst m.a. í
símavörslu, vélritun og tölvufærslu. Starfið
hentar jafnt konum sem körlum.
Æskilegt er að umsækjendur hafi nokkra
reynslu af tölvunotkun og hafi góða kunnáttu
í íslensku. Enskukunnátta æskileg.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Gestur
Friðjónsson, umdæmisstjóri, í síma
92-11002 eða aðalskrifstofan í síma
91-672500.
Skrifstofustarf hjá umdæmisskrif-
stofu Suðurlands f Hveragerði
Um er að ræða 50% starf sem felst m.a. í
símavörslu, vélritun og tölvufærslu. Starfið
hentar jafnt konum sem körlum.
Æskilegt er að umsækjendur hafi nokkra
reynslu af tölvunotkun og hafi góða kunnáttu
í íslensku.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Gísli
Rúnar Sveinsson, umdæmisstjóri, í síma
98-34660 eða aðalskrifstofan í síma
91-672500.
Laun eru samkvæmt launakerfi opinberra
starfsmanna. Umsóknum, ásamt upplýsing-
um um menntun og fyrri störf, skal skila til
Vinnueftirlits ríkisins, Bíldshöfða 16, fyrir
14. júní 1992.
Rafeindavirki
Rafeindavirki óskast á rafeindaverkstæði.
Umsóknir skilist á auglýsingadeild Mbl.,
merktar: „Raf - 3479".
„Au pair“ - London
íslensk fjölskylda með tvö börn, ársgamlan
dreng og 3ja ára stúlku, sem búa í einbýlis-
húsi í rólegu úthverfi London, óska eftir barn-
góðri „au pair" frá 1. september 1992 til 1.
september 1993.
Aðeins mjög ábyrgur, samviskusamur og
barngóður einstaklingur, sem hefur áhuga á
börnum og rólegu fjölskyldulífi, kemur til
greina. Óskað er eftir einstaklingi eldri en
18 ára sem reykir ekki.
Þeir sem áhuga hafa sendi umsóknir ásamt
persónulegum upplýsingum á auglýsinga-
deild Mbl. merktar: „L - 9691“ fyrir 1. júní
1992. Öllum umsóknum verður svarað fyrir
15. júní 1992.
Starfsmaður
- þjónustudeild
Stórt þjónustufyrirtæki vill ráða starfsmann
í þjónustudeild strax. Viðkomandi þarf að
vera á aldrinum 23-30 ára, duglegur, sam-
vinnuþýður og hafa þjónustulund. Haldgóð
menntun er áskilin ásamt því að vera „tæki-
færissinnaður“.
Starfið felst í viðhaldi og uppsetningu á sér-
hæfðum búnaði. Gott framtíðarstarf.
Umsóknarfrestur er til 28. maí nk.
Guðniíónsson
RAÐCjÖF &RADNINCARÞJONUSTA
TJARNARGÖTU 14. 101 REYKJAVÍK, SÍMI62 13 22
Fjármálastjóri
Óskum að ráða í stöðu fjármála- og skrif-
stofustjóra hjá Kaupfélagi Austur-Skaftfell-
inga (KASK), Höfn, Hornafirði.
Starfssvið fjármálastjóra:
★ Dagleg fjármála- og skrifstofustjórn.
★ Gerð rekstrar- og greiðsluáætlana.
★ Yfirumsjón ,og ábyrgð á fjárreiðum og
bókhaldi.
★ Rekstrareftirlit og innri endurskoðun.
★ Samningagerð við viðskiptavini og lána-
stofnanir.
★ Uppgjör og úrvinnsla upplýsinga úr bók-
haldi og skýrslugerð.
★ Umsjón með ársuppgjöri og gerð árs-
reiknings.
★ Stefnumótun, markmiðasetning og stjórn-
un í samráði við aðra stjórnendur.
★ Fjármálastjóri er staðgengill kaupfélags-
stjóra.
Víð leitum að viðskiptafræðingi eða manni
með aðra haldgóða viðskipta/verslunar-
menntun. Haldgóð þekking á bókhaldi og
reynsla af fjármálastjórnun nauðsynleg.
Nánari upplýsingar veitir Þórir Þorvarðarson.
Vinsamlega sendið skriflegar umsóknir til
Ráðningarþjónustu Hagvangs hf., merktar
„Fjármálastjóri KASK" fyrir 1. júní nk.
Hagva ngurhf
" w' Skeifunni 19 Reykjavík Sími 813666 Ráðningarþjónusta Rekstrarráðgjöf Skoðanakannanir