Morgunblaðið - 24.05.1992, Page 39
MORGUNBLAÐIÐ
ATVIIMNA/RAÐ/SMA
SUNNUDAGUR 24, MAÍ 1992
39
Morgunblaðið/Júlíus
Stúdentar í FB setja upp húfurnar.
Fjölbrautaskóli Breiðholts:
151 brautskráður
með stúdentspróf
FJÖLBRAUTASKÓLA Breiðholts var slitið sl. föstudag og voru
alls 243 nemendur brautskráðir frá hinum ýmsu deildum skólans,
þar á meðal 151 með stúdentspróf. Um 1.500 nemendur stunduðu
nám í dagskóla á vormisseri, en um 900 í kvöldskóla. Fór athöfnin
fram í íþróttahúsi skólans við Austurberg.
Við skólaslitin hélt Kristín Arn-
alds skólameistari ræðu og kór
skólans söng undir stjórn Ernu
Guðmundsdóttur. Alis störfuðu
152 kennarar við skólann á vor-
önn, þar af 105 við kvöldskólann.
Sjö erlendir skiptinemar stunduðu
nám við skólann á árinu, og tóku
þeir virkan þátt í skólastarfinu.
Tveir þeirra léku auk þess í einu
leikrita Þjóðleikhússins.
tClXVÍ-lt/W. A .......
Sjö nemendur luku prófi á eins
árs grunnnámsbraut matvælasviðs
og 25 luku almennu tveggja ára
verslunarprófi af viðskiptasviði.
Af þriggja ára brautum luku 58
nemendur sjúkraliðaprófi, fjórir
luku snyrtifræðiprófi, einn nem-
andi lauk námi á matartæknisviði
og 40 luku burtfararprófi af tækni-
sviði.
Nemendur sem luku stúdents-
prófi skiptust þannig milli deilda:
42 luku prófi af bóknámssviði, 12
af listasviði, 44 af viðskiptasviði,
14 af heilbrigðissviði, 3 af mat-
vælasviði og 36 af félagsgreina-
sviði.
Bestum árangri á stúdentsprófi
náðu Eva Vilhjálmsdóttir af félags-
fræðibraut, Þorsteinn Berghreins-
son af listasviði dagskóla og Krist-
ín Kristinsdóttir af viðskiptasviði
kvöldskóla. Auk þess hlaut Davíð
Logi Sigurðsson viðurkenningu
Rotarykiúbbs Breiðholts og Eva
Erlendsdóttir hlaut viðurkenningu
Soroptimista.
Fjölbrautaskóli Breiðholts var
stofnaður árið 1975, og er fyrsti
fjölbrautaskóli á landinu.
Eðli málsins samkvæmt
Kvikmyndir
Arnaldur Indriðason
Ógnareðli („Basic Instinct").
Sýnd í Regnboganum. Leik-
stíjóri: Paul Verhoeven. Hand-
rit: Joe Eszterhas. Aðalhlut-
verk: Michael Douglas, Sharon
Stone, George Dzundza, Janne
Tripplethorn. Carolco og Canal
Plus. 1992.
Engin óbreytt spennumynd hef-
ur hlotið eins mikið umtal eða vak-
ið jafnmiklar deilur og Ógnareðli
eftir Paul Verhoeven, sem nú hefur
verið frumsýnd í Regnboganum.
Samkynhneigðir hafa mótmælt því
sem þeir nefna neikvæða lýsingu
á samkynhneigðum konum í mynd-
inni, Verhoeven lenti í klípu með
bandaríska kvikmyndaeftirlitið
vegna full bersöglislegra kynlífs-
atriða og myndin hefur rokið upp
vinsældaiistann vestra. Um hvað
snýst svo allur titringurinn? Góðan,
hraðan, ofbeldisfulian og „sexí“
„þriller" með heilmikið skemmti-
gildi en galla í frásögn og endi sem
varla er hægt að segja að veiti
neina fullnægingu.
Sumsé, fastir liðir eins og venju-
lega en með auknum þunga á of-
beldi og kynlíf. Það mátti etida
búast við því frá Verhoeven („Tot-
al Recall", „RoboCop"), sem er
hollenskur og sérstaklega leikinn
í að kvikmynda hrátt og afdrátta-
laust ofbeldi, og gerði sinn fyrsta
þriller í Hollywood eftirminnilegan.
Hann hefur stigið skrefi lengra
með formúluna, hann hefur berað
stórstjörnurnar meira en þekkist,
bakhlutinn á Michael Douglas er
Úr myndinni Ógnareðli.
mjög til sýnis, og þótt hörkulegt
kynlífið virðist allt hannað ná-
kvæmlega með reiknistokk - lík-
amar slást mikið utaní veggi af
einhveijum gæjalegum ástæðum -
er það bullandi heitt og verulega
tælandi. Því má ekki síst þakka
nýjustu kunbombunni í Hollywood,
Sharon Stone.
Þó fer besta kynlífsatriðið og
það eina virkilega snilldarlega sem
fínna má í myndinni fram í öllum
fötum. Það er fyrsta yfirheyrslan.
Morðingi gengur laus. Böndin ber-
ast að tvíkynhneigðum kvenmanni
sem Stone leikur að sönnu eins og
kyntákn í akkorði. Hún er kölluð
til yfirheyrslu frammi fyrir nokkr-
um harðhausum í löggunni og til
að auka á spennuna fá áhorfendur
að vita að hún er í engum undir-
buxum. Þetta er sérstaklega gam-
ansöm og erótísk sena sem rústar
öllu því karlmannlega sem löggur
í þessum myndum belgja sig út af.
Myndin er gerð eftir metsölu-
handriti Joe Eszterhas er framleið-
endurnir keyptu fyrir peninga-
summu sem átti sér fá fordæmi
(180.000.000). Orðbragðið er klúrt
en samtölin kómísk og oft snjöll.
Hetjurnar eru hvorki sléttar og
félldar svo það er erfitt að finna
samúð með einum eða neinum.
Sem dæmi má nefna að Douglas
leikur löggu sem siðanefnd lög-
reglunnar hefur á skrá því áður
notaði hann dóp og skaut tvo sak-
lausa túrista í eltingarleik við bóf-
ana. Hann fær nýjasta morðmálið
í hendur, kvenmaður gengur laus
sem drepur karlmenn á blóðugan
hátt með litlum járnfleyg. Hann
grunar helst Stone, sem síðast
sást með nýjasta fórnarlambinu,
en á í mestum brösum með að
falla ekki fyrir henni enda gerir
hún í því að hræra í hausnum á
honum.
Verhoeven heldur vel á spöðun-
um. Hann nær strax upp þraða í
frásögninni og byggir upp spennu
sem liggur ekkert síður í hinu and-
lega og líkamlega sambandi á milli
Douglas og Stone en í morðmál-
inu. Hann leggur áherslu á dökkt
og ískalt útlit sem er í fullkomnu
samræmi við persónugerðirnar og
tónlist Jerry Goldsmith á ekki síst-
an þátt í að magna upp andrúms-
loft spennu og óhugnaðar. Hér eru
handverksmenn sem kunna vel til
verka þegar kemur að því að gera
vandaða afþreyingu og þótt morð-
sagansjálf sé glompótt og endirinn
leiðinlega tvöfaldur í roðinu veitir
myndin fína skemmtun aðdáend-
um góðra spennumynda.
Minningargjöf um séra Bjarna
Sigurðsson frá Mosfelli afhent
MINNINGARGJÖF um séra Bjarna Sigurðsson frá Mosfelli, sem
lést síðastliðið haust, var afhent safnaðarheimili Lágafellssóknar
á þriðjudag, á 72. ártíð séra Bjarna.
Séra Bjarni Sigurðsson var
fæddur þann 19. maí árið 1920,
og þjónaði Mosfellsprestakalli um
22 ára skeið á árunum 1954-
1976. Þá hvarf hann til kennslu-
starfa við guðfræðideild Háskóla
íslands, og kenndi þar í 15 ár.
Var séra Bjarni farsæll prestur
í Mosfellssveit, og mörg af hans
gömlu sóknarbörnum voru við-
stödd afhendinguna, en eldri borg-
arar í Mosfellsbæ hafa hist á
þriðjudögum í vetur í Safnaðar-
heimilinu.
Bjarki Bjarnason afhenti minn-
ingargjöfina fyrir hönd gefenda,
og séra Jón Þorsteinsson, sóknar-
prestur, veitti henni viðtöku.
Gjöfin er vasi, unninn í steinleir
af tengdadóttur séra Bjarna, Þóru
Sigurþórsdóttur, leirlistakonu.
Morgunblaðið/Ingvar
Við afliendingu minningargjafarinnar. Frá vinstri: Jón Þorsteinsson,
sóknarprestur Lágafellssóknar, Bjarni Bjarkason, Bjarki Bjarnason,
Þóra Sigurþórsdóttir, Vilborg Bjarkadóttir, Sigurður Hreiðar Hreið-
ai-sson, Aðalbjörg Sigríður Guðmundsdóttir, ekkja séra Bjarna Sig-
urðssonar, Steingerður Sigurðardóttir og Sif Bjarnadóttir með Hilmi
Ibsson. Gjöfin er vasi úr steinleir, og er hann fyrir miðri mynd.
FEROAFELAG
ÍSLANDS
MÖRKINNI 6 • SÍMI 682533
Sunnudagur 24. maí
kl. 13
Raðgangan1992,3.
áfangi
A. Fjallahringurinn: Eyrarfjall
(476 m.y.s). Gott útsýni yfir Kjós-
ina og víðar.
B. Strönd og láglendi: Hval-
fjarðareyri - Hálshólar. Fjöl-
breytt strandganga meðfram
Laxvogi. Verð. 1.100.- kr., frítt
fyrir börn með fullorðnum.
Brottför frá Umferðarmiðstöð-
inni, austanmegin (stansað við
Mörkina 6). Verið með ( sem
flestum raðgönguferðunum um
Hvalfjörð og nágrenni. Gengið
er í 10 áföngum á hálfsmánaðar-
fresti frá Kjalarnesi í Borgarnes.
Göngudagur Ferðafélagsins
verður sunnudaginn 31. maí
Hann er tileinkaður flutningi
skrifstofu F.í. i nýja félagsheimil-
ið. Tvaer ferðir: A. Kl. 11 Heið-
mörk - Elliðaárdalur - Mörkin.
10 km ganga. B. Kl. 13 Fjöl-
skylduganga frá Mörkinni í Ell-
iðaárdal. Brottför frá Mörkinni 6
(austast við Suðurlandsbraut).
Ekkert þátttökugjald.
Helgarferð til Vestmanna-
eyja 29.-31. maí
Munið hvítasunnuferðirnar
5.-8. júnf:
1. Afmælisferð á Snæfellsnes
og Snæfellsjökul (60 ár frá fyrstu
Ferðafélagsferðinni). 2. Öræfa-
jökull - Skaftafell. 3. Skaftafell -
Öræfasveit. 4. Þórsmörk -
Langidalur.
Upplýsingar og farmiðar á nýju
skrifstofunni Mörkinni 6, 108
Reykjavík. Ný númer: Sími
682533, fax 682535.
Ferðafélag islands.
KROSSÍNl
Sunnudagur:
Samkoma í dag kl. 16.30.
Þriðjudagur:
Bibliulestur kl. 20.30.
Laugardagur:
Unglingasamkoma kl. 20.30.
ÚTIVIST
Hallveigarstíg 1, sími 14606
Dagsferðir sunnud. 24. maí
Kl. 10.30 Fjallganga nr. 2,
Ingólfsfjall (551 m).
Kl. 10.30 Klóarvegur.
Kl. 13.00 Strandganga í land-
námi Ingólfs.
Kvöldganga miöd. 27. maí kl. 20
Um næstu helgi:
28. maf-31. maí (4 d).
Básar á Goöalandi:
Gist í skála félagsins.
Skipulagðar gönguferðir.
Fimmvörðuháls frá Básum:
Gengið úr Básum á Fimmvörðu-
háls og gist í Fimmvörðuskála.
Farið á gönguskíðum um ná-
grenni skálans.
Upplýsingar og miðasala á skrif-
stofunni, Hallveigarstíg 1.
Dagsferðir sunnud. 31. ma(
Kl. 9.15 Kirkjugangan 11. áfangi.
Kl. 13.00 Kræklingafjöruferð.
Sjáumst!
Útivist.
Kristniboðsfélag karla,
Reykjavík
Fundur verður í Kristniboðssaln-
um, Háaleitisbraut 58-60,
mánudagskvöldið 25. maí kl.
20.30. Benedikt Arnkelsson hef-
ur biblíulestur.
Allir karlmenn velkomnir.
Stjórnin.
Frá Sálarrannsókna-
félagi íslands
Bresku miðlarnir Coral Polge og
Bill Landis halda skyggnilýsingar-
fund á vegum félagsins mánu-
daginn 25. maí kl. 20.30 á Soga-
vegi 69 á vegum félagsins. Coral
Polge, psychic artist, teiknar og
Bill Landis lýsir. Nánari upplýs-
ingar fást á skrifstofu félagsins,
Garðastræti 8, 2. hæð, opið frá
13-17, sími 18130.
Stjórnin.
Hörgshlíð 12
Boöun fagnaðarerindisins.
Almenn samkoma í kvöld
kl. 20.00.
Hjálpræðis-
herinn
Kirkjustræti 2
Útisamkoma á Lækjartorgi kl.
16.00. Hjáipræðissamkoma kl.
20.00. Ingibjörg Jónsdóttir talar.
Jóhannes Ingimarsson syngur
einsöng og Óskar Einarsson
stjórnar. Hermannavígsla.
Fimmtudagur kl. 20.30: Hátiðar-
samkoma. Allir velkomnir.
ÍKFUK
KFUM
Almenn samkoma í kvöld
kl. 20.30 á Háaleitisbraut 58.
Ræðumaður: Ragnar Gunnars
son.
Allir velkomnir.
Z
Orð lífsins,
Grensásvegi 8
Vakningarsamkoma í kvöld
kl. 20.30.
Allir hjartanlega velkomnir.
VEGURINN
Kristið samfélag
Smiðjuvegi 5, Kóp.
Fjölskyldu samvera kl. 11.00.
Guðni Þorvaldsson prédikar.
Almenn samkoma kl. 20.30. Einar
Gautur Steingrímsson prédikar.
Almenn samkoma kl. 20.30.
Björn Ingi Stefánsson prédikar.
Allir velkomnir.
„Náð sé með yður og friður fró
Guði föður vorum og Drottni
Jesú Kristi."
Hvítasunnukirkjan
Fíladeifía
Almenn samkoma kl. 16.30.
Ræðumaöur Hafliði Kristinsson.
Allir hjartanlega velkomnir.
fÍMnhjólp
Aimenn samkoma í Þríbúöum,
Hverfisgötu 42 i dag kl. 16.00.
Dorkas-konur annast samkom-
una með söng og vitnisburðum.
Barnagæsla. Stjórnandi Ásta
Jónsdóttir. Kaffi að lokinni sam-
komu. Allir velkomnir.
Samhjálp.
Kanntu að vélrita?
Vélritun er undirstaða tölvu-
vinnslu. Kennum blindskrift og
alm. uppsetningar á nýjar, full-
komnar rafeindavélar.
Síðustu námskeið á þessu vori
byrja 4. júní.
Innritun í s. 28040 og 36112.
Ath.: VR og BSRB styrkja félaga
sina á námskeiðum skólans.
Vélritunarskólinn.