Morgunblaðið - 24.05.1992, Síða 47
MORGUNBLAÐIÐ
ÚTVARP/SJÓNVARP
SUNNUÐAGUR 24. MAI 1992
Sjónvarpið:
Stanley og konumar
Sir Kingsley Amis höfundur sögunnar sem myndin byggir á liggur
yfirleitt ekki á skoðunum sínum, nema hvað varðar eigin fjölskyldu
Sir Kingsley Amis. Myndin er tekin árið 1986.
SJÓNVARPIÐ sýnir í kvöld
annan þáttinn af fjórum í
breska framhaldsmynda-
flokknum Stanley og konurnar
sem byggður er á metsölubók
eftir sir Kingsley Amis, einn
kunnasta rithöfund Bretlands,
sem nú er uppi. Æviminningar
hans, sem komu út fyrir rúmu
ári, vöktu verulega athygli fyr-
ir bersögli og vægðarleysi höf-
undarins við vini sína. Rithöf-
undurinn hefur aldrei legið á
skoðunum sínum um hvað sem
vera skal nema fjölskyldu sína.
í æviminningum sinum er hann
opinskár að vanda um þekkta
menn og óþekkta, sem hann
hefur mætt á lífsleiðinni, og
hlífir engum. Höfundurinn tal-
ar illa um nánast alla en þó eru
þar nokkrar undantekningar.
Ein þeirra er Margaret Thatch-
er, fyrrum forsætisráðherra,
sem hann segir einhverja feg-
urstu konu er hann hafi séð um
ævina. Það var einmitt Thatch-
er sem aðlaði sir Kingsley. Þá
vakti það mikla athygli þegar
hann tók afstöðu með Banda-
ríkjamönnum í Víetnamstríð-
inu.
Kingsley Amis fæddist árið
1922 í Bretlandi og var af
þeirri kynslóð sem nefndist „reiðu
ungu mennirnir". Þeir voru upp-
reisnargjarnir og gagnrýnir á það
sem feður þeirra höfðu gert og á
gömul gildi. Amis hefur skrifað
Qöldann allan af bókum og valið
sér fjölbreytt viðfangsefni; háðsk-
ar skáldsögur, njósnasögur, leið-
beiningarit um vín, ritgerðir um
bókmenntir og flest þar á milli.
Eftir lát rithöfundarins Ian Flem-
ings var hann einn þeirra sem
skrifaði skáldsögu um James
Bond. Á yngri árum var hann
einnig bókmenntagagnrýnandi.
Hann vakti fyrst athygli fyrir
skáldsögu sína Lucky Jim (1954).
Á seinni árum hafa skáldsögur
hans ögrað feminisma í æ ríkara
mæli og má þar t.d. nefna Jake’s
Thing (1978) og Stanley and the
Women (1984). Engar bækur
hans hafa verið þýddar á íslensku.
Varpar nýju ljósi á aldraða
í Bretlandi var nýlega tekin til
sýninga þriggja þátta mynd hans
The Old Devils, sem gerð er eftir
samnefndri bók, en hún kom út
árið 1984. Myndin varð tilefni
þess að Nicholas Bagnall, sem
skrifar í sjónvarpsblað The Daily
„í æviminningnm sín-
um er hann opinskár
að vanda um þekkta
menn og óþekkta, sem
hann hefur mætt á
lífsleiðinni, og hlífir
engum. Höfundurinn
talar illa um nánast
alla en þó eru þar
nokkrar undantekn-
ingar. Ein þeirra er
Margaret Thatcher.“
Telegraph — og segist vera á svip-
uðum aldri og Amis — fór að líta
eldra fólk öðrum augum en áður.
„Frá löngu liðinni tíð og þar til
nú hefur eldra fólk haft slæma
ímynd,“ segir Bagnall. „Nútíma
bókmenntir gera gys að eldra fólki
án lítillar miskunnar," og Bagnall
tekur dæmi um setningar sem
hafa birst í Spectator og Litla
húsinu í Allington: „Það eru svo
fáir sem eldast með glæsibrag,“
og „Ég er einungis gömul kona.“
Hann segir að The Old Devils sé
alls ekkert þessu líkt. Gömlu
mennirnir séu hrein óargadýr,
nöldrandi óargadýr, ruddalegir,
erfitt sé að gera þeim til hæfís.
Þeir ropi, leysi vind og séu með
hávaða og læti á bjórkránum.
„Þeir hafa alls ekkert breyst und-
anfarin 40 ár og eru haldnir sömu
ástríðum og þá. Það er þetta sem
mér fínnst skipta máli,“ segir
Nicholas Bagnall.
Þáttaröðin í Sjónvarpinu
I fyrsta þættinum um Stanley
komst hann að því að Steve sonur
hans er veikur á geði. í þættinum
í kvöld fær hann að heyra skýring-
ar geðlæknis á orsökum sjúk-
dómsins og þær eru honum síst
að skapi. Vandræðin í einkalífínu
eru farin að bitna á vinnunni en
þó er barátta hans við kvenfólkið
rétt að hefjast. í hlutverki Stan-
leys er John Thaw en með önnur
helstu hlutverk fara Geraldine
James, Sheila Gish, Penny
Downie, Sian Thomas, Michael
Aldridge og Michael Elphick. Þýð-
andi er Gauti Kristmannsson.
Þátturinn hefst kl. 22.00.
Gárur
eftir Elínu Pálmadóttur
Maður án ábyrgðar
NÆTURUTVARPID
1.00 Sunnudagsmorgunn með Svavari Gests.
(Endurtekinn þáttur.)
2.00 Fréttir. Þáttur Svavars heldur áfram.
3.00 í dagsins önn. Mótorhjól í umferðinni. Um-
sjón: Gestur Einar Jónasson. (Frá Akureyri.) (End-
urtekinn þáttur frá deginum áður á Rás 1.)
3.30 Glefsur. Úrdægurmálaútvarpi mánudagsins.
4.00 Næturlög.
4.30 Veðurfregnir. Næturlögin halda áfram.
5.00 Fréttir af veðri, færð og flugsamgöngum.
5.05 Landið og miðin. Sigurður Pétur Harðarson
leikur íslenska tónlist, flutta af íslendingum. (End-
urtekið úrval frá kvöldinu áður.)
6.00 Fréttir af veðri, færð og flugsamgöngum.
6.01 Morguntónar. Ljúf lög í morgunsárið,
LANDSHLUTAÚTVARP Á RÁS 2
8.10-8.30 og 18.35-19.00 Útvarp Norðurland.
AÐALSTÖÐIN
FM 90,9 / 103,2
7.05 Morgunútvarpið. Umsjón Guðmundur Bene-
diktsson og Ingibjörg Gunnarsdóttir. islenskt
mál, hollustu- og heilbrigðismál, matargerð. o.fl.
12.30 Aðalportið. Flóamarkaður.
13.00 Hjólin snúast. Umsjón Jón Atli Jónasson og
Sigmar Guðmundsson.
18.00 Islandsdeildin. [slensk dægurlög.
19.00 Kvöldverðartónar.
20.00 í sæluvimu á sumarkvöldi. Óskalög, afmælis-
kveðjur o.fl.
22.00 Blár mánudagur. UmsjónPéturTyrfingsson.
Fréttirkl.8,9,10, II. 12,13,14,15,16og 17.
STJARNAN
FM 102,2
7.00 Morgunútvarp. Umsjón Ásgeir Páll. Morgun-
korn kL.7.45.-.8.45 i umsjón Gunnars Þor-
steinss.
9.00 Jódis Konráðsdóttir.
13.00 Ásgeir Páll.
17.00 Morgunkorn, endurtekið frá morgni.
17.05 Ólafur Haukur,
19.05 Ævintýraferð i Odyssey.
19.35 Vinsældalisti, 20 efstu sætin.
20.35 Richard Perinchief prédikar.
21.05 Vinsældalistinn ... framhald.
22.05 Fræðsluþáttur um fjölskylduna. Umsjón: dr.
James Dobson.
24.00 Dagskrárlok.
Bænastund kl. 9.30,13.30,17.30,22.45 og'23.50.
Bænalínan er opin kl. 7 - 24.
BYLGJAN
FM 98,9
7.00 Morgunútvarp Bylgjunnar. Eirikur Jónsson,
Guðrún Þóra. Fréttir kl. 7, 8 og 9.
9.05 Tveir með öllu. Jón Axel Ólafsson og Gunn-
laugur Helgason. Fréttir kl. 10, 11 og 12.
12.15 Rokk og rólegheit. Anna Björk Birgisdóttir.
Iþróttafréttir, Bibbao.fi. Fréttirkl. 14,15 og 16.
16.05 Reykjavík siðdegis. Steingrímur Ólafsson.
Fréttir kl. 17 og 18.
18.05 Landssíminn. Bjarni Dagur Jónsson.
19.00 Flóamarkaður Bylgjunnar.
19.19 Fréttir.
20.00 Kristófer Helgason. Óskalög.
24.00 Næturvaktin.
EFFEMM
FM 95,7
7.00 í morgunsárið. Sverrir Hreiðarsson.
9.00 Morgunþáttur. Ágúst Héðinsson.
12.00 Hádegisfréttir.
12.10 Valdis Gunnarsdóttir. Tónlist og getraunir.
15.00 ivar Guðmundsson. Stafaruglið.
18.00 Kvöldfréttir.
18.10 Gullsafnið, Ragnar Bjarnason.
19.00 Halldór Backman. Kvöldmatartónlistin.
22.00 Ragnar Már Vilhjálmsson.
1.05 Haraldur Jóhannsson.
5.00 Náttfari.
HUÓÐBYLGJAN
Akureyri
FM 101,8
17.00-19.00 Pálmi Guðmundsson. Tekið á móti
óskalögum og afmæliskveðjum. Fréttir frá frétta-
stofu Bylgjunnar/Stöð 2 kl. 18.00.
HITTNÍU SEX
FM 96,6
7.00 Morgunþáttur. Umsjón Arnar Albertsson.
10.00 Klemens Arnarson.
13.00 Arnar Bjarnason.
16.00 Jóhann Jóhannesson.
19.00 Karl Lúðviksson.
22.00 Rokkhjartað. Umsjón Sigurjón Skæringsson.
1.00 Næturvaktin.
SÓLIN
FM 100,6
8.00 Morgunþáttur. Haraldur Kristjánsson.
10.00 Jóna de Groot. Fyrirtækjaleikur o.fl.
13.00 Björn Markús.
17.00 Steinn Kári. Óskalög.
19.00 Hvað er að gerast?
21.00 Hulda Tómasína Skjaldardóttir.
1.00 Næturdagskrá.
ÚTRÁS
FM 97,7
16.00 Iðnskólinn i Reykjavík.
18.00 FB.
20.00 Kvennaskólinn.
22.00 í öftustu röð. Ottó Geir Borg og isak Jónsson.
1.00 Dagskrárlok.
Hvað er að vera maður?
Stundum hefur það verið skil-
greint sem svo að munurinn á
manninum og öðrum skepnum
jarðarinnar sé sá, að maðurinn
hafí minni, geti lært af reynsl-
unni og beri ábyrgð á því sem
hann gerir. Eitthvað vefst það
nú samt fyrir okkur í verald-
arvolkinu hvort maður beri yfír-
leitt nokkra ábyrgð á verkum
sínum, jafnvel sá sem skelfíleg-
ast hefur brotið gegn náungan-
um, drepið og nauðgað. Alls
staðar frá berast nú frásagnir
af voðavérkum á því sem kallað
er átakasvæði, þar sem saklaust
fólk er pyndað og myrt — og það
oft úr launsátri — í krafti ein-
hverrar sannfæringar.
Jafnframt er í fréttum sagt
frá umræðum um persónulega
ábyrgð einstaklinga, sem fyrrum
hafa framið voðaverk í skjóli
slíkra aðstæðna og upp kemst.
Þeir sem lásu í síðasta sunnu-
dagsblaði átakanlega sanna sögu
Króatans Ivica og fjölskyldu
hans, sem í átökunum í Júgóslav-
íu urðu réttdræp fyrir að búa á
svæði þar sem Serbar urðu ofan
á, hafa kannski spurt sig hvort
Serbinn æskuvinur hans beri
ekki persónulega ábyrgð á því
að segja til hans og leiða sam-
starfsmenn hans til að drepa
hann, soninn og aldraða foreldra.
Svona dæmi eru nú komin upp
um alla Austur-Evrópu, þá að
sjálfsögðu með mönnum sem
ekki vilja bera ábyrgð á illvirkj-
um sínum. Líka víðar um heims-
byggðina. í Frakklandi er nú
fyrir rétti arabinn Fuel Ali Sala,
sem sakaður er um að hafa varp-
að sprengjunni í Tate-versl-
unarmiðstöðinni í Rue de Rennes
í París haustdaginn 1987 þegar
efnalitlir foreldrar flykktust að
venju með börn sín til að kaupa
á þau skólafötin. Og tætti það
saklausa fólk. Eigum við sjón-
varpsáhorfendur, sem fengum
þessa skelfíngu með blóðslettun-
um á skjáinn hjá okkur af því
að sjónvarpsvélar voru þar af
tilviljun að mynda, að gleyma
þeirri sýn og segja eins og tals-
menn Alis Sala, að hann eigi
ekkert að bera persónulega
ábyrgð á því sem hann gerði,
af því að illa sé farið með landa
hans annars staðar? Maðurinn
beri ekki ábyrgð á sínum gerð-
um? Dæmin eru fjölmörg. Stellan
Skarsgard, sem leikur Ralf Wall-
enberg í mynd sem er að koma
í Háskólabíói, sagði mér að hann
væri ekki enn búinn að ná sér
eftir að hafa fyrst staðið við
kvikmyndatökuna andspænis
leifunum af gyðingunum sem
upplifðu útrýmingu nasista og
uppgötva svo hve hatrið á gyð-
ingum lifir enn í Búdapest, þar
sem fólk tekur ekki á sig ábyrgð-
ina á því sem það gerði þá. Get-
ur þar af leiðandi ekkert af því
lært. Um það snýst málið, að
taka eða láta menn taka á sig
ábyrgð, svo þeir sjálfír og aðrir
megi nokkuð af því læra.
Þessi spurning um persónu-
lega ábyrgð á eigin gerðum og
sekt er sífellt að skjóta upp koll-
inum. Sá sem yfírleitt hefur
nokkra afstöðu til mála kemst
ekki hjá því að hafa á þessu
skoðun. Kristilegu kærleiks-
blómin spretta kringum hitt og
þetta, eins og skáldið sagði. En
ekki hefur nú tekist betur til
með þennan skrifara, þrátt fyrir
kristilegt uppeldi, að þegar rifj-
ast upp raunveruleg dæmi sem
maður hefur upplifað, þá verða
kristilegu kærleikblómin að visn-
um stráum. Ef ég fengi nú t.d.
vitneskju um hvaða rauður
khmeri í Kambódíu hefði rist á
kvið ungbörnin í þorpinu á landa-
mærunum við Tæland haustið
1977 eftir að hafa brennt og
drepið fullorðna fólkið, er ég viss
um að ég vildi ekki strika yfir
það, hversu langt sem er síðan
hann framdi verknaðinn. Þessu
er ekki hægt að gleyma í 100
ár. Hann einn getur borið ábyrgð
á þessum gerðum sínum. Og þá
líklega líka Ivo, æskuvinur hans
Ivica í Júgóslavíu, sem sagt var
frá í síðasta sunnudagsblaði.
En hvern þann, sem að hrellir mest og
blekkir,
heldur fólkið jafnan beztan mann
sagði hann Vilhjálmur í Skál-
holti í ljóðinu Jesús Kristur og
ég. Á maðurinn kannski aðeins
að bera ábyrgð á gerðum sínum
ef um einhverjar smásyndir gegn
náunganum er að ræða? Mörgum
finnst bera æði mikið á því við-
horfi í íslenskri löggjöf. Saman-
ber meðferð nauðgunarmála. Og
oft fjármála, þar sem alltaf má
kasta öllum syndum sínum bak
við sig og sjá þær aldrei meir —
né þá sem komið var á kaldan
klaka. Fá löglega aflausn og
byija jafnharðan upp á nýtt við
stjórn nýs eða endurreists fyrir-
tækis — aftur og aftur til ell-
iára. Hafa þannig misst af þessu
einkenni manneskjunnar um-
fram hinar skepnurnar á jarð-
kringlunni að muna og læra.
Væri ekki ófróðlegt að taka þetta
upp í þeim miklu umræðum og
áhuga sem nú virðist vaknaður
á siðfræði í þessu landi og kem-
ur fram í troðfullum fyrirlestra-
sölum og fjölmiðlaumræðu.
En hvað er þá orðið um mann-
inn — þennan sem skilur sig frá
dýrunum með hæfileikanum til
að muna, læra af reynslunni og
bera ábyrgð? Kannski vill hann
bara vera maður án ábyrgðar,
semsagt hver önnur skepna jarð-
ar. E.t.v. verður maður bara
grimmari eftir að hafa nokkrum
sinnum sjálfur séð á átakasvæð-
um og í flóttamannabúðum með-
ferðina sem einstaklingar hafa
orðið fyrir af öðrum einstakling-
um í skjóli þess að þeir séu í
ábyrgðarlausu samfélagi? Að
aldrei komist upp um eða um
það fengist hver raunverulega
gerði það. Fórnarlömbin verði
bara að bera ábygð á sinni eigin
ólukku.