Morgunblaðið - 13.06.1992, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 13.06.1992, Blaðsíða 38
38 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. JÚNÍ 1992 Björg Sæmunds- dóttir - Minning Fædd 24. júlí 1920 Dáin 7. júni 1992 Kvödd er í dag hinstu kveöju kær vinkona okkar Björg Sæmundsdótt- ir iðnverkakona, en hún verður jarð- sungin að Stóra-Vatnshomi í Haukadal og lögð til hvíldar við hlið manns síns, Sigurðar Jóhannesson- ar sem hún missti árið 1947, þegar hún var 27 ára og litla dóttir þeirra Sigurbjörg aðeins 2 ára. Björg hefur búið lengi á Grettis- götu og Vitastíg hér í borg, og þar af í mörg ár á Grettisgötu 57a í húsi með Guðbjörgu móður minni. Eftir að móðir mín lést og Björg fluttist í eigin íbúð hafa tengslin haldist, einkum vegna náinnar vin- áttu Bjargar og Oddnýjar Maríu Gunnarsdóttur og sonar míns Sturlu Þórs, sem bjuggu lengi á næstu hæð við hana. Björg var fædd að Austari-Hóli, Flókadal í Fljótum norður, 24. júlí 1920, dóttir hjónanna Salbjargar Helgu Þorleifsdóttur frá Búðarhóli í Ólafsfirði og Sæmundar Jónssonar frá Austari-Hóli. 17 ára fer hún til Siglufjarðar í síldarævintýrið er þar til 1941 er hún flyst til Keflavíkur. Árið 1942 kynnist hún Sigurði Jóhannessyni frá Giljalandi í Haukadal, en hann hafði gerst kaupfélagsstjóri í Haganesvík. Þau giftust árið 1944 og 21. mal árið 1945 eignuðust þau dóttur, sem skírð var Sigurbjörg. Sigurður fór sama ár til framhaldsnáms í Sví- þjóð, en Björg og dóttirin unga dvöldust hjá foreldrum Sigurðar á Giljalandi. Sumarið 1946 liggur leið þeirra til Siglufjarðar, þar sem Sig- urður fæst við sfldarútveg, en næsta vetur flytjast þau til Stykkishólms, þar sem Sigurður starfar við kaup- félagið. Við skyndilegt fráfall Sigurðar árið 1947, lá ieið Bjargar aftur til norðurlandsins, þar sem hún starf- aði við matsölu í síldarverksmiðju Rauðku á Siglufirði og síðar við ýmis önnur störf þar og í Ólafs- firði. Á þessum árum var dóttirin Sigurbjörg í umsjá móðurömmu og afa í Ólafsfirði á vetrum, en hjá föðurforeldrum á Giljalandi á sum- rum. Árið 1960 flytur Björg með dóttur sína til Reykjavíkur og gerist iðnverkakona við spunavélar hjá ullarverksmiðjunni Framtíðinni á Frakkastíg í 12 ár og þaðan lá leið- in að Álafossi í 18 ár eða þar til hún kenndi þess sjúkdóms á sl. ári, sem hún bar lægri hlut fyrir. Björg andaðist á Landspítalanum að morgni hvítasunnudags 7. júní sl. Dóttir Bjargar, Sigurbjörg, giftist enskum manni Barry Weaving árið 1966 og eiga þau 4 böm: Helgu 21 árs, Oliviu 20 ára, Timothy Sigurð 18 ára og Sæmund 14 ára. Þau em búsett í London. Björg bar hag þeirra alla tíð mjög fyrir brjósti og vildi mikið á sig leggja til þess að fá þau í heimsókn- ir til íslands. Björg var lengst af iðnverkakona og hetja sem aldrei bugaðist. Hún var grönn kona, skarpleit með glaðlegt andlit og mjög létt á sér. Hún var með falleg augu, hreinskiptin og hafði ríka kímnigáfu og var oft erfítt að átta sig á hvort hún talaði í alvöru eða gríni, því að oft'var hún beinskeytt og virtist vilja komast að kjama málsins, en sneri svo öllu í léttara hjal og vildi gera málstað allra góð- an. Hun vann oft langan vinnudag og ákvæðisvinnu, hún var oft þreytt, hún kvartaði aldrei og talaði yfír- leitt vel um verkstjóra sína og vinnu- veitendur. Það var lærdómsríkt að heyra hvað hún gat séð skoplegar hliðar á öllu erfiðinu og hvað hún gat notið þess að takast á við erfíð- leika lífsbaráttunnar. Já hún var sannkölluð hversdagshetja, sem við vinir hennar þökkum fyrir að hafa fengið að umgangast og læra af. Að leiðarlokum biðjum við einka- dóttur Bjargar, tengdasyni og böm- um þeirra, sem hún elskaði svo inni- lega Guðs blessunar, svo og föður, systkinum og öðmm ættingjum og vinum. Megi líf og starf Bjargar vera okkur leiðarljós og áminning um æðmleysi. Við þökkum Björgu fyrir einlæga vináttu. Guðmundur Snorrason. „Fáir njóta eldanna, sem fyrstir kveikja þá.“ Þeir sem vinna hin hljóðlátu störf alþýðunnar njóta þess sjaldan sjálfir nema að takmörkuðu leyti, þótt þeir leysi störf sín trúlega af hendi. Störf þeirra em sem hlekkir í keðju lífsins og þjóðfélagið nýtur góðs af verkum þeirra, en þeir sjálfir hljóta litla umbun fyrir. Þetta kemur mér fyrst í hug er ég minnist Bubbu frænku minnar, sem lést hinn 7. júní sl. á Landspítalanum eftir þunga sjúkdómslegu. Björg var fædd að Austari-Hólum í Flókadal norður, dóttir hjónanna Salbjargar Helgu Þorleifsdóttur frá Búðarhóli í Ólafsfirði og hagleiks- mannsins Sæmundar Jónssonar frá Austari-Hóli. Bubba hleypti heimdraganum sautján ára að aldri og hélt til Siglu- fjarðar. Hún tók þátt í síldarævin- týrinu mikla og oft var gaman að heyra hana og móður mína rifja upp gamlar endurminningar frá þeim ámm. Árið 1942 kynntist hún Sigurði Jóhannessyni frá Giljalandi í Haukadal, sem þá var kaupfélags- stjóri í Haganesvík og giftust þau árið 1944. Vorið eftir eignuðust þau dóttur sem hlaut nafnið Sigurbjörg eftir móður Sigurðar. Ég kynntist Bubbu fyrst að ráði þetta sama sumar, en þá var ég vikastelpa á sumardvalarheimili bama á Barði í Fljótum. Ég minnist þess er ég skondraði með léttvagn í togi hina dijúgu leið niður í Haga- nesvík, að sækja vömr í Kaupfélag- ið og pakka sem komið höfðu með bátnum frá Siglufírði. Skammt fyrir ofan þorpið var lítið tveggja hæða grátt steinhús. Við gluggann stóð smávaxin, flngerð kona, með hrafn- Þessir drengir söfnuðu til Rauða krossins tæpl. 1.600 kr. með því að halda hlutaveltu. Strákarnir heita Skarphéðinn Ársælsson, Hafl- iði Samúelsson og Fáfnir Árnason. svart hár niður á herðar, með hvít- voðung i fangi. Hún opnaði gluggann og kallaði „frænka, komdu við í bakaleiðinni og fáðu þér bita“. Og hvem einasta dag þetta sumar naut ég góðgerða hjá Bubbu frænku, sém var svo fln, í fallegum kjól, með stífstraujaða svuntu og í háhæluðum skóm. Við ræddum margt um lífið og tilver- una. Mér líkaði vel hreinskilni henn- ar, þó mér fyndist hún á stundum nokkuð dómhörð. Um haustið skildu leiðir. Ég flutti suður og fór í skóla og naut þess að vera til, en Bubba mín fékk alltof snemma að finna fyrir harðneskju lífsins. Sigurður maður hennar lést langt fyrir aldur fram eftir aðeins þriggja ára hjóna- band og hafði það mikil og djúpstæð áhrif á lff Bubbu upp frá því. En hún lét ekki bugast. Foreldrar henn- ar tóku að sér umsjá Sillu litlu, en Bubba vann við ýmis störf norðan- lands. Eftir fermingu Sillu fluttu þær mæðgur til Akraness og þaðan til Reykjavíkur þar sem Siila stund- aði framhaldsnám, en hún hafði góða námshæfileika. Árið 1966 gift- Fædd 8. febrúar 1904 Dáin 9. júní 1992 Elskuleg föðursystir mín Kristín Guðmundsdóttir, Stína, er látin. Þrátt fyrir mikil veikindi síðustu árin var eins og hún væri að bíða eftir að hennar ástkæri eiginmaður Sigurður Óli ólafsson fyrrv. alþing- ismaður, nýlátinn, færi á undan sér. Þannig var hún gerð, alltaf að hugsa um sína nánustu. Þótt gestkvæmt væri oft á heim- ili þeirra Sigurðar Óla í Hafnar- túni, Selfossi og einnig í Safamýr- inni, Reykjavík þá voru það dætum- ar tvær, Obba og Sigga Ragna, sem ávallt skipuðu öndvegi í hjarta hennar. Ég votta þeim frænkum mínum og vinkonum, mökum þeirra, böm- um, bamabömum og eftirlifandi systkinum, mínar innilegustu sam- úðarkveðjur. Minning um góða móður mun lifa. Helga Guðmundsdóttir. Þegar íslensk náttúra skartar sínu fegursta og veröldin er nátt- laus kvaddi elskuleg móðursystir okkar, Kristín Guðmundsdóttir þessa jarðvist. Stína frænka, eins og við kölluðum hana, var einstak- lega ljúf og góð manneskja. Hún var eins og sumarið sem nú heilsar okkur — björt og hlý. Þegar við systkinin lítum til baka hrannast upp minningar um okkar góðu frænku. Hæst stendur minn- ing um jólaboðin skemmtilegu sem hún og maður hennar, Sigurður Óli, héldu. Það var fastur punktur í jólahaldinu að fara á jóladag til Stínu frænku og Sigurðar Óla og okkur systkinunum mikið tilhlökk- unarefni. Frænka okkar var mikil húsmóð- ir. Kom það sér vel, þar sem maður ist hún enskum manni að nafni Barry Weaving. Eiga þau fjögur þom, Helgu, Oliviu, Timothy Sigurð og Sæmund. Hafa þau búið erlendis alla tíð, en komið hingað heim í fríum. Hugur Bubbu var ætíð hjá Sillu og fyölskyldu hennar, því að þau voru henni öll mjög kær. Hún sýndi okkur myndir af þeim hreykin á svip og sagði með stolti frá náms- árangri bamanna og hæfileikum þeirra. Hennar heitasta þrá var að sjá Sillu áður en yflr lyki og með óbugandi viljakrafti tókst henni að halda meðvitund þar til dóttir henn- ar var komin og þær höfðu kvaðst. Þegar þær mæðgur fluttu suður tengdust böndin milli okkar á ný, ekki síst vegna þess að Bubba og móðir mín vom vinkonur. Bubba var mjög einráð og lét engan segja sér fyrir verkum. Og þar sem að móðir mín var einnig þó nokkuð stíf á meiningunni voru þær nú ekki alltaf sammála blessaðar. En þótt slettist upp á vinskapinn öðm hvom þájafn- aðist það fljótt og þær töluðu út um hlutina. Tvisvar sinnum fóm Bubba og mamma í ferðalag til útlanda og höfðu mikla ánægju af. Þegar móð- ir mín lést fyrir tæpum tólf ámm saknaði Bubba hennar mjög, en vin- semd hennar íminn garð varð enn meiri en áður. Á merkisdögum innan fjölskyldu minnar kom hún með gjafir eða blóm og sagði „Þetta er frá okkur mömmu þinni, ég kem bara með það.“ Þegar Bubba var komin hingað suður hóf hún starf við spunavélar í Ullarverksmiðjunni Framtíðinni, og starfaði þar í tólf ár. En þegar sú verksmiðja var lögð niður var henni boðið samskonar starf á Ála- fossi og vann hún þar til starfsloka, eða í átján ár. Bubba var dugnaðarforkur. Það var sama að hverju hún gekk, hún sannaði eftirminnilega að vand- virkni og mikil afköst geta farið saman. Það var ógleymanlegt að sjá hana vinna við spunavélina, hún var svo handfljót að til þess var tekið. Mér fannst Bubba frænka alltaf hennar var lengi oddviti Selfoss- hrepps og síðar þingmaður Sunn- lendinga um árabil, en þessum störfum fylgdi mikill erill og gesta- gangur. Var ekki í kot vísað þar sem Stína frænka stóð við stjómvöl- in, brosmild og elskuleg og töfraði fram ljúffenga rétti og kökur á sínu fallega heimili. Við kveðjum frænku okkar í hinsta sinn í dag. Megi hún njóta friðar og hvfldar á landi eilífðarinn- ar umvafín ástvinum sem á undan eru gengnir. Einlægar samúðarkveðjur til Obbu, Siggu Rögnu og fjölskyldu. F.h. okkar systkinanna, Ella. Fyrir tæpum þremur mánuðum ritaði ég minningu um afa minn, Sigurð Óla Ólafsson, er lést 15. mars sl. í niðurlagi greinarinnar gat ég þess að hann myndi taka vel á móti konu sinni þegar hún hyrfl yflr móðuna miklu. Nú er amma mín, Kristín Guð- mundsóttir frá Selfossi, dáin, en hún lést á Sjúkrahúsinu á Selfossi 9. júní sl. 88 ára að aldri eflr langa sjúkdómslegu. Það er táknrænt fyrir einstakt hjónaband tveggja heiðurspersóna sem gengið hafa sömu götu í hart- nær 67 ár, að þær skuli kveðja þennan heim með svo stuttu milli- bili. Amma Kristín, eins og við köll- uðum hana, var mér ávallt sérstak- lega góð og umhyggjusöm, en ég dvaldist mörgum stundum á heimili þeirra á bemskuárum. Hún sá um „litla strákinn“ jafnvel og góð móð- ir gætir bama sinna. í ömmu bjó mikið ástríki og kærleikur gagnvart fjölskyldu sinni og afkomendum. Hún annaðist heimili þeirra afa af mikilli kostgæfni, allar götur þar til heilsa hennar brast fyrir nokkr- dálítið sérstök kona. Hún var mjög sjálfstæð í skoðunum og í lífí sínu og vildi vera sem mest óháð öðrum. Hún var skaprík og stolt. Þó að líf- ið hafí á stundum farið um hana ómjúkum höndum þá þoldi hún enga meðaumkun. Gjafmild var hún með afbrigðum og gestrisni í blóð borin. Með því síðasta sem að hún sagði við mig er ég sat við banabeð henn- ar var: „Gógó mín hefurðu fengið nokkuð að borða.“ Þannig var Bubba, hugsaði ætíð fyrst um aðra. Hún var ekki fyrir að flíka tilfinn- ingum sínum, né heldur að segja öðrum frá góðgjörðum sínum. En mörgum gerði hún gott og marga gladdi hún. Lífsvilji hennar og óbilandi kjark- ur í hinum erfíðu veikindum var ólýsanlegur og vakti aðdáun allra er til þekktu. Nokkrum vikum fyrir andlát sitt fór hún með mér austur að Kumbaravogi að heimsækja frænku okkar níræða að aldri. Hún vildi kveðja hana. Þó að Bubba væri svo kvalin að hún gæti vart gengið lét hún ekki á neinu bera og þær frænkur áttu góða stund saman. Bubba átti marga góða vini, en þeir sem reyndust henni best sein- ustu árin voru þau hjónin Valva Ámadóttir og Karl Benediktsson, en þau bjuggu nokkur ár í sama húsi og hún. Bubba dáði þau bæði og sagði Kalla vera töframann sem gæti allt. Hann lagfærði fyrir hana ýmsa hluti og hjálpaði henni á marg- an hátt, en Valva hlúði að henni og kom til hennar á hveijum degi. Bubba kunni vel að meta vináttu þeirra og umhyggju og var þakklát fyrir allt það góða sem þau auð- sýndu henni. Ég og synir mínir sendum öllum aðstandendum Bubbu frænku inni- legar samúðarkveðjur. Henni sjálfri þökkum við samfylgdina, allar góðu og skemmtilegu stundirnar sem við áttum með henni og óskum henni velfamaðar á nýjum leiðum. Kristjana Heiðberg Guðmundsdóttir. um árum, en þá sneri afí dæminu við og annaðist hana eins og honum var einum lagið. Mér er minnisstætt hversu sam- rýndir við afí vorum og töluðum mikið saman um heima og geima. Amma komst oft ekki að fyrir okk- ur kjaftöskum en alltaf stóð hún sína vakt á bakvið og sá til þess að öllum liði vel og skorti ekkert. Samverustundimar í Safamýri koma enn upp í hugann, þar kynnt- ist ég fólki sem var einstakt í minn garð, þau voru mér svo góð. Á kveðjustundu minnist ég elsku- legrar konu, sem markað hefur djúp spor í líf mitt, mér og mínum til eftirbreytni. Amma var gott dæmi um einstakling sem þótti sælla að gefa en þiggja. Edda, Eva Katrín og litla Andrea Þorbjörg, sem staddar era í Noregi um þessar mundir, hugsa hlýtt til hennar í dag með þakklæti fyrir stutt en dýrmæt og ánægjuleg kynni. Amma Kristín verður jarð- sett á Selfossi í dag, við hlið bónda síns. Þar finnur líkur líkan. Megi Guðs blessun fylgja góðri konu inn á veg nýrra heima. Sigurður Kristinn Kolbeinsson. Kristin Guðmunds- dóttir - Minning

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.