Morgunblaðið - 14.06.1992, Page 15

Morgunblaðið - 14.06.1992, Page 15
borgar hefur þegar veitt samþykki sitt fyrir þessari byggingu, en um- sóknin á eftir að fara fyrir borgar- ráð og byggingarnefnd. Þegar sam- þykki þessara aðila er fengið, verð- ur byrjað á framkvæmdum sem fyrst, væntanlega síðar á þessu ári og þá ættu íbúðirnar að verða til- búnar eftir tvö ár það er á síðari hluta árs 1994. Byggingin verður boðin út og íbúðunum verður skilað fullbúnum með frágenginni lóð. — Til þessa hefur margt eldra fólk, sem átt hefur myndarlegar eignir, farið beint úr þeim í þjón- ustuíbúðir fyrir aldraða og þá gjarn- an verið komið nokkuð við aldur, segir Guðmundur. — Það hefur hins vegar ekkert verið til þama á milli. Þessum íbúðum er hins vegar ætlað að brúa þetta bil. Mjög margir hafa sýnt þessum íbúðum áhuga og þeg- ar er búið að staðfesta kaup á yfir 20 íbúðum. Þeir sem kaupa vilja íbúðir þarna, þurfa að selja þær fasteignir, sem þeir eiga fyrir og það getur að sjálfsögðu tekið sinn tíma. Því er ekki heldur að neita, að þessar framkvæmdir væru komnar lengra, ef fasteignamark- aðurinn hefði verið líflegri að und- anförnu. Einangrað að utan Húsið verður væntanlega byggt á hefðbundinn hátt úr steinsteypu en þó einangrað að utan. — Reynt verður að hafa húsið sem við- haldsminnst með því að klæða það að utan með varanlegu efni t.d. steinplötum, segir Guðmundur. — Slík hús eru eitthvað dýrari í upp- hafi, en mun ódýrari í viðhaldi, þegar fram í sækir. Til þess eru vítin að varast þau. Alls staðar blasa við steinhús, sem eru að grotna niður vegna lélegrar steypu og viðhaldsleysis og svo gæti farið að klæða verði flest þeirra í ein- hvers konar vatnskápu. Guðmundur hefur mikla reynslu af byggingum fyrir aldraða. Eitt af fyrstu verkefnum hans sem sjálf- stæðs arkitekts var að hanna íbúðir fyrir aldraða við Norðurbrún í Reykjavík. Síðan hefur hann átt þátt í að hanna íbúðir fyrir aldraða við Dalbraut og Furugerði. — Það er ekki rétt að safna öllum saman í blokkir, sem eru orðnir sjötugir, segir hann. — Hér er verið að taka skref í rétta átt með því að lækka aldursmörkin verulega og mér finnst að það mætti lækka þau enn meira. Fólk ætti að eiga kost á íbúð- um af þessu tagi allt frá fimmtugu, þannig að það verði ekki bara 70 ára og eldri, sem búi í þeim. Með því yrði líka meiri hreyfing á þess- um íbúðum, þar sem markaðurinn yrði stærri. Að mati Guðmundar þarf meiri fjölbreytni og vandaðri fjölbýlishús. — Þessar íbúðir verða það vandað- ar, að þær ættu að geta komið í staðinn fyrir einbýlishús, segir hann. — Fólk er þá laust við stóra garða, sem geta bara verið kvöð. Það hlýtur að vera ódýrara, bæði fyrir það fólk, sem er að byggja og þjóðfélagið í heild að reisa íbúð- ir af þessu tagi í stað dreifðra ein- býlishúsa, sem sum hver eru byggð af vanefnum. Þau eru þá ekki ann- að en einnota hús, sem afskrifa ætti á fimmtíu árum. I staðinn á að byggja vandaðar íbúðir, sem duga lengur. Guðmundur telur, að til þessa hafi ekki tekizt að byggja nægilega varanleg hús hér á landi og segir: — Sú ofurtrú, sem allir höfðu á steinsteypunni, hefur komið okkur í koll og þess vegna er nú unnið að því að fínna betri lausnir. Þar koma bæði verkfræðingar, arkitekt- ar og aðrir við sögu. Ein aðferðin er að einangra og klæðá húsin að utan. Hvernigtil tekst, verður fram- tíðin að segja fyrir um. En það eru ekki bara íslendingar, sem hafa orðið fyrir áföllum að því er varðar steinsteypuna. Slíkt hefur gerzt út um allan heim. Fyrir tæpum 20 árum fórum við arkitektar og byggingamenn í nokkurs konar pílagrímsferðir til útlanda til þess að kynna okkur MORGUNBLÁÐIÐ FASTEIGIMIR SL'NNODAGUR 14. JÚNÍ .1992 B ÍÍr Horft til norðurs meðfram Suðurgötunni. Væntanleg íbúðarbygging sést til vinstri rétt fyrir neðan miðju á myndinni en ofar eru hjóna- garðar stúdenta og fleiri háskólabyggingar. byggingar úr steinsteypu og áttum varla orð til að lýsa því, hvað þær voru fallegar. Nú eru þessar sömu byggingar á síðasta snúningi og líta út eins og holdsveikissjúklingar. Þar má m. a. nefna hina þekktu við- skipta- og menningarmiðstöð Barbican Center í London. Bygg- ingar þar hafa látið afskaplega mikið á sjá. En er þá ekki hætt við því, að eins fari fyrir hinu glæsilega ráð- húsi Reykvíkinga? — Auðvitað er hægt að halda þessum byggingum fallegum með góðu viðhaldi, en þá verður að gera ráð fyrir því fyrir- fram og sjá tl þess að fjármunir séu jafnan fyrir hendi, segir Guðmund- ur. — Margar opinberar byggingar hér á landi eru einmitt þesu marki brenndar. Þær voru vissulega fal- legar í upphafi. En viðhald á þeim hefur verið algerlega vanrækt og þess vegna eru þær margar hveijar nánast ónýtar nú. Allri orkunni og öllum fjármunum hefur verið varið í að byggja nýtt. Þetta á eftir að koma okkur í koll. Verðum að byggja betri hús — Sum af þeim húsum, sem við íslendingar höfum byggt á undan- förnum áratugum, eru ekki betur byggð en svo, að þau eiga ekki eftir að duga í nema í eins og 50 ár, segir Guðmundur að lokum. — Ef húsin eiga að endast lengur, verða þau að vera vandaðri í upp- hafi og jafnframt verður að gæta þess að halda þeim við. Með nýjum aðferðum ætti að vera unnt að fá hér fram betri og vandaðri bygging- ar, en hér hafa almennt þekkzt áður. Ef klæða á hús með plötum eftir á, þá fer upphaflegt steinsteypuút- lit þeirra forgörðum. Ef gert er ráð fyrir slíkri hlífðarkápu frá upphafi, þá miðast hönnunin við það og húsið fær á sig samsvarandi útlit. Nú er verið að klæða fjölmörg fjöl- býlishús, sem byggð voru eftir 1955, með einhverri hlífðarkápu. Að mínu áliti líta þau út eins og umskiptingar af þessum sökum. HAGSTÆÐ KAUP - AKRANES Til sölu endurnýjað steinhús ca 110 fm á besta stað í bænum ásamt 46 fm bílskúr. Nýjar innréttingar. Verð 5,4 millj. Áhv. 3,5 millj. góð lán frá húsnæðisstjórn o.fl. VAGW JÓNSSON FASTilGNASALA Skúlagötu 30 AHi Vagnsson hdl. SÍMI61 44 33 ° FAX 61 44 50 ...... ■ * Hafnarfjörður - Þórsberg Til sölu óvenju skemmtileg og vel skipulögð 236,4 fm steinsteypt einbhús á frábærum útsýnisstað. íbhæðin er 157,5 fm og skiptist m.a. í 4 svefnherb., sjónvarps- hol, baðherb. og snyrtingu, eldhús með borðkrók og góða stofu. í kjallara er 78,9 fm bílskúr. Stór lóð. Bein sala eða skipti á 3ja-4ra herb. fbúð. Verð kr. 16,7 millj. rf= ASBYRGI Borgartúni 33, 105 Reykjavík. INGILEIFUR EINARSSON, lögg. fastsali. SÖLUMAÐUR: Örn Stefánsson. •s? 623444 EIGNASALAIM REYKJAVIK SAMTBNGD SÖLUSKRÁ ÁSBYRGI UGMASALAM Símar 19540 - 19191 Yfir 30 ára reynsla tryggir öryggi þjónustunnar Opið í dag kl. 12-14 ÓDÝR V/GRETTISG. Lftil einstaklingsíb. i kj. Mjög snyrtil. eign. Sérinng. Sérhiti. Laus. V. 2,5 m. ÓDÝR V/LAUGAVEG Mjög snyrtil. 2ja herto, íb. i bakh: Sérinng. V. 3,3-3,5 millj. Laus. SNORRABRAUT 2ja herb. snyrtil. kjíb. V. 3,9 m. HÓLMGARÐUR ZJA 2ja herb. 65 fm göð íb. á 1. haeð. Sérlnng. Sórhltl. V. 5,5 m. 3ja herb. RÁNARGATA M/RISI 3ja herb. tæpl. 80 fm íb. á efri hæð í þríb. Risið yfir allri íb. fylg- ir með. Sórinng. Sérhiti. V. 6,2 m. FREYJUGATA - 3JA Mjög góö 3ja herb. risib. í steinh. rétt viö mifib. Ahv. um 2,3 millj. í veðd. Göð eign á eftirsóttum atað. í VESTURBORGINNI Sérlega skemmtil. innr. 3ja herb. risíb. í steinh. Suðursv. Mikið útsýni. ÖLDUGATA HAGSTÆÐ LÁN 3ja herb. göð ib. á 1. hæð (steinh. Mikið endum. eign. Verð 5,7-5,9 m. Áhv. um 2,9 m. i veðd. HAMRABORG - 3JA 3ja herb. góö íb. á hæð i fjölb. Bilskýli. RAUÐARÁRSTfGUR 3ja herb. ib. á 1. hæö. Göð eign. Stutt í 8trœtisv. Verð 6,3 m. HRAUNBÆR - SKIPTI 3ja herb. rúmg. skemmtil. ib. á hæð i flölb. Tvennar svalir. Bein saia eða skipti á góöri 2ja herb. íb. 4ra—5 herb. 4RA HERB. HAGSTÆTT VERÐ 4ra herb. ib. é 2. hæð í steinh. í næsta négr. v/Hlemm. 3 svefn- herb. og stofa m.m. Verð liðl, 5,0 mlllj. Laus. STÓRAGERÐI - 4RA MEÐ BÍLSKÚR 4ra herb. tæpl. 100 fmf góð íb. ó 1. hæð í fjölb. Nýl. bilsk. fylgir. Gó eign á eftirsóttum stað. V. 8,5 m. NEÐRA BREIÐH. 4RA 4ra hert). góð (b. á 2. hæð i fjötb. Tvennar svalir. Herb. ( kj. fyigir. Ákv. sala. Hagst. verð 6,9 m. BRAGAGATA - 4RA 4rá herb. rúmg. 100 fm ib. á 1. hæð í steinh. Sérhiti. Parket á gólfum. Hagst. lén. Góð eign. REYKÁS - GÓÐ LÁN 152 fm mjög skemmtil. íb. á tveím- ur hæðum. Stórar svuðursv. Mikið útsýni. Áhv um 3,3 milfj. í hagst langtímalánum. í AUSTURBORGINNI 4ra herb. mikið endurn. risíb. í steinh. Nýtt parket. Nýl. innr. Nýl. járn á þaki. Laus fljótl. ef þörf er. Við höfum lykil og getum sýnt íb. f VESTURBORGINNl Efri hæð og ris í þríb. alls um 123,4 fm. Allt f góðu ástandl, suðursv. á báðum hæðum. Út- sýnl. 46 fm bílsk. Til afh. strax. EINBYLI — RAÐHUS GRJÓTASEL - TVfB. Húseign á tveimur hæðum, hvor um 200 fm. Rúmg. 2ja herb. íb. é jarðh. Tvöf. bílsk. NJÁLSGATA Járnki. tímburh. sem er kj., hæð og ri8, alls um 164 fm. Blisk. fyig- ir. Mögul, að taka minni eign uppf kaupin. STEKKJARHV. - HF. Mjög gott nýl. 210 fm raðh. á tveimur hæðum. Innb. bilsk. Sérl. skemmtil. lóð. Verð 16,5 millj. Minni eign gæti gengið uppí kaupin. NORÐURVANGUR Um 140 fm einb. á góðum stað. 4 svefnherb. og saml. stofur m.m. Tvöf. bílsk. Mögul. að taka minnl eign uppí kaupln. Góð aign á eftireóttum stað. SUMARBÚSTAÐUR 40 fm skemmtil. bústaður é góð- um stað í Eilífsdal. Mynd á skrifst. ÓSKAST í HAFNARF. Höfum fjársterkan kaupanda að einbýlish. eða raðh. í hafnarf. Má kosta 10-\2 millj. Traustur kaupandi. EIGIMASALAIM REYKJAVIK i Ingólfsstræti 8 jft Sími 19540 og 19191 11 Magnús Einarsson, lögg. fastsali, Eggert Eliasson, hs. 77789, Svavar Jónsson, hs. 657596.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.