Morgunblaðið - 26.07.1992, Side 1
72 SÍÐUR B/C
168. tbl. 80. árg.
SUNNUDAGUR 26. JULI 1992
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
SELTIRNINGAR AÐ LEIK
Morgunblaðið/Bjarni
Var Kristur frá-
skilinn faðir?
MARÍA var ekki óspjölluð mær og Jes-
ús Kristur dó ekki á krossinum, hann
missti meðvitund og aliir héldu hann
látinn. Lærisveinarnir lífguðu hann við
og hann náði sér á þriðja degi, síðar
kvæntist hann Maríu Magðalenu og
átti með henni þrjú börn en María yfir-
gaf eiginmanninn árið 44. Jesús kvænt-
ist á ný og að þessu sinni Lýdíu nokk-
urri er gegndi biskupsembætti og var
af grískum ættum. Þannig túlkar ástr-
alskur fræðimaður, dr. Barbara Thier-
ing við Sydney-háskóla, ýmislegt sem
hún segist hafa rekist á við 20 ára rann-
sóknir á Dauðahafsrollunum svo-
nefndu. Ýmsir virtir guðfræðingar eru
sagðir rífa hár sitt og skegg í örvænt-
ingu og munu þurfa að bíta á jaxlinn
til að halda geðró sinni þegar þeir eru
spurðir álits á niðurstöðunum. Thiering
hefur ritað bók um rannsóknir sínar
og selst hún nú eins og heitar lummur
í heimalandinu og Bandaríkjunum.
*
Oþekktur mað-
ur í fangelsi
MAÐUR sem kallaður er Daniel X hef-
ur verið dæmdur í tíu mánaða fangelsi
af dómstóli í Stokkhólmi fyrir rúðubrot
og ofbeldi. Enginn veit frá hvaða landi
hann kemur og kennitala hans er
000000. Þetta er í annað skipti á stutt-
um tíma sem hann fær á sig dóm í
Svíþjóð en þar sem hann hefur misst
minnið og veit því ekki sjálfur hver
hann er, er ekki hægt að vísa honum
úr landi. Ekkert land tekur við óþekkt-
um mönnum. Það eina sem hr. X hefur
gefið upp sem nálgast það að vera fast
heimilisfang er að hann segist oft sofa
í strætisvagni númer 94 á nóttunni.
Líklegt er talið að hann sé 23 eða 24
ára gamall og af arabískum uppruna
en hann talar jafnt arabísku sem
frönsku.
Farið skal að
settum reglum
Dyravörður Park-hótelsins í London,
Tony Calef, var rekinn er hann braut
reglur og lét eftir sér að reykja vindl-
ing á gangstéttinni við aðaldyr hótels-
ins þar sem bifreiðum gesta er lagt.
Calef hafði starfað hjá hótelinu í tutt-
ugu ár en stjórn þess segir að dyravörð-
urinn sé eins konar „sendiherra" fyrir-
tækisins og því mikilvægt að h°nn hagi
sér óaðfinnanlega. Dómstóll I.efur nú
kveðið upp þann úrskurð að brottrekst-
urinn hafi verið ranglátur, Calef hefði
fyrst átt að fá stranga viðvörun, en
eftir er að ákvarða skaðabæturnar.
Pablo Escobar greinir á segulbandi frá ástæðum flótta síns:
Vill að SÞ tryggi ör-
yggi sitt í fangelsinu
Bogota. The Daily Telegraph.
PABLO Escobar, eiturlyfjabaróninn alræmdi frá borginni Medellin í Kólumbíu,
sem strauk úr fangelsi fyrr í vikunni, hefur sent kólumbískri útvarpsstöð segul-
bandsspólu þar sem hann greinir frá ástæðum þess að hann flúði. Escobar seg-
ir þar meginskýringuna á flóttanum vera að yfirvöld hafi ekki staðið við loforð
sín um að tryggja öryggi hans í Envigado-fangelsinu. Hann sagðist vera stadd-
ur „einhversstaðar í frumskógum Kólumbíu" og lofaði að hefja ekki aftur vopn-
aða herferð gegn stjórnvöldum „eins og er“.
Pablo Escobar hafði setið í fangelsi í rúmt
ár en þann 19. júní í fyrra gaf hann sig
sjálfviljugur fram við yfirvöld gegn því að
hann fengi allt að helming fangelsisdóms
síns felldan niður og að hann yrði ekki fram-
seldur Bandaríkjamönnum. Gustavo de
Greiff, ríkissaksóknari Kólumbíu, sagði &
föstudag að Escobar hefðu orðið á alvarleg
mistök. Hann myndi missa rétt sinn á væg-
ari refsingu og þar að auki hefði hann get-
að náð enn vægari dómi með því að játa
sök sína. Það að saksóknari og hinn ákærði
sættist á vægari refsingu, gegn því að allar
sakargiftir séu játaðar, er eitt af meginatrið-
um nýrrar kólumbískrar refsilöggjafar, sem
tók gildi 1. júlí.
Á sjöunda hundrað sérsveitarmenn fín-
kembdu á föstudag Envigado-fangelsið í
leit að göngum sem Escobar og níu meðreið-
arsveinar hans kynnu að hafa flúið út um.
Einn talsmanna Escobars, sem kallar sig
„Dakota", sagði hins vegar að fulltrúum
hersins í fangelsinu hefði verið mútað og
að eiturlyfjabaróninn og félagar hans hefðu
ekið út um aðalinngang fangelsisins í sjúkra-
bíl. Mútuféð sagði hann hafa numið um 100
milljónum íslenskra króna.
Escobar sagðist á fyrrnefndu segulbandi
einungis vera reiðubúinn að gefa sig fram
ásamt mönnum sínum á ný ef þeir fengju
ttyggingu fyrir því að fá að vera áfram í
Envigado-fangelsinu og að öryggi þeirra
yrði tryggt af sérstökum sveitum frá Sam-
einuðu þjóðunum. Lögfræðingar hans segja
hann einnig vilja að sömu fangaverðir verði
starfandi og voru við upphaf fangelsisvistar
hans en þeir voru reknir þar sem stjórnvöld
grunuðu þá um að vera á mála hjá Escobar.
Forstöðumaður og aðstoðarforstöðumað-
ur fangelsisins hafa verið reknir í kjölfar
flóttans og allir fangaverðir leystir frá störf-
um. Þá hefur yfirmaður kólumbíska flug-
hersins þurft að segja af sér embætti í kjöl-
far ásakana um að tafir á loftflutningum
sérsveita til fangelsisins sem áttu að tryggja
öryggi þéss hefðu orðið til að auðvelda flótt-
ann. Talið er að Escobar hafíst enn við í
Antioquia-héraðinu þar sem fangelsið er og
taka um þúsund lögreglumenn og hermenn
þátt í umfangsmikilli leit að honum þar.
10
Opið
bréf til
dómsmála-
ráðherra
ALLIR Í
STRÆTÓ
Þann 15. ágústtekur
við nýft leiðakerfi
strætisvagna á höfuó-
borgarsvæóinu
UMHVERFISMÁL
í ÖNDVEGI
20
ÚTSÝW
AFTUR j
ÍSALDIR
C blaó
MINKABANINN