Morgunblaðið - 26.07.1992, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIR/YFIRLIT
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26. JÚLÍ 1992
ERLEIMT
IIMNLENT
VIKAN 19/7-25/7
865 þús. tonn
umfram af
þorski undan-
farin 14 ár
Þorskveiði Islendinga undanfar-
in 14 ár hefur verið 865 þúsund
tonn umfram tillögur Hafrann-
sóknastofnunar. Þetta jafngildir að
veiddur hafi verið að meðaltali
24,5% meiri þorskur á ári en stofn-
unin lagði til, eða um 62 þúsund
tonna umframveiði á ári. Þetta eru
upplýsingar úr útreikningum Birgis
Þórs Runólfssonar, hagfræðilektors
við Háskóla íslands. Alþjóðaha-
frannsóknastofnun mælir með um
150 þúsund tonna þorskafla á
næsta ári, en tillögur Hafrann-
sóknastofnunar fe]a í sér veiði á
175 þúsund tonnum. Sjávarútvegs-
ráðherra hefur lagt til að þorsk-
skerðingin verði bætt upp með auk-
inni veiði vannýttra físktegunda en
forsætisráðherra hefur mælt með
minni skerðingu þorskkvóta. Einn-
ig hafa verið uppi hugmyndir um
að misskipta kvótaskerðingu milli
byggðalaga eða notá kvóta Ha-
græðingarsjóðs til jöfnunar.
Betri afkoma ríkissjóðs
Afkoma ríkissjóðs var mun betri
á fyrri hluta þessa árs en á sama
tíma í fyrra. Allt stefnir þó í meiri
halla á síðari hluta ársins, meðal
annars vegna efnahagskreppu, að
því er segir í greinargerð fjármála-
ráðuneytisins. Þá hefur áformaður
spamaður í heilbrigðis- og mennta-
kerfinu ekki skilað sér sem skyldi
og stefnir í 8 milljarða króna halla
á fjárlögum verði ekkert að gert.
Þau voru samþykkt méð 4 milljarða
halla.
ERLENT
Irökum
settir úr-
slitakostir
SPENNA í garð íraka hefur magn-
ast á Vesturlöndum síðustu daga
og segja bandarísk stjómvöld
mögulegt að beitt verði hervaldi til
að knýja þá til að fara að vopna-
hlésskilmálum Sameinuðu þjóð-
anna. Eftirlitsmönnum SÞ var
harðneitað um inngöngu í landbún-
aðarráðuneytið í Bagdad, sem talið
er að geymi upplýsingar um írösk
hertól. Hópurinn frá SÞ hörfaði
undan æstum manngrúa við ráðu-
neytið á miðvikudag og yfirgaf írak
tveim dögum síðar.
Talið er líklegt að Öryggisráð
SÞ setji írökum úrslitakosti, þeir
fái örfáa daga til að fara að skilmál-
unum en taki ella aivarlegum af-
leiðingum. Við Persaflóa eru nú
24 herskip í eigu Bandaríkjamanna
og sennilegt þykir að ef látið verði
til skarar skríða gegn írökum verði
um loftárásir af þeim að ræða.
Friðarhorfur skána í
Miðausturlöndum
ÚTLIT er fyrir að viðræður um
frið í Miðausturlöndum fari af stað
á ný og hefur
James Baker ut-
anríkisráðherra
Bandaríkjanna
lagt til að fundir
hefjist í næsta
mánuði í Was-
hington. Yitzhak
Rabin forsætis-
ráðherra ísraels
bannaði í vikunni
vinnu við flestar
nýbyggingar landnema á hertekn-
um svæðum og hætti útgáfu bygg-
ingarleyfa. Þetta greiðir fyrir friða-
rumleitunum og möguleika á því
að Bandaríkin veiti ísrael láns-
ábyrgð sem nemur 550 milljörðum
Prestafélagið stefnir
ríkisstjórninni
Sr. Geir Waage, fprmaður stjóm-
ar Prestafélags íslands, hefur
ákveðið að stefna ríkisstjóminni
fyrir dóm. Krafíst er ógildingar
bráðabirgðalagasetningar um
karadóm, sem leiddi til þess að
horfið var frá því að hækka laun
presta umtalsvert. Prestafélagið
telur bráðabirgðalögin bijóta
stjómarskrána.
Sjávárafurðir lækka í verði
íslenskar sjávarafurðir hafa
lækkaði í verði erlendis á fyrri hluta
ársins. Verðlækkunin nam 2,4% á
fyrstu 6 mánuðum ársins miðað við
meðalverð ársins áður, og þýðir það
um 1,7 milljarða skerðingu útflutn-
ingstekna, samkvæmt upplýsingum
frá Þjóðhagsstofnun. Meginástæða
verðlækkananna er taiin vera
minnkandi eftirspurn vegna of 'hás
verðlags sjávarafurða í fyrra.
Innsetning flugvéla Odin Air
Að kröfu þrotabús danska fyr-
irtækisins J. M. Aviation, sem er í
eigu hjónanna Helga og Jytte Jóns-
son, hefur verið lagt hald á fiugvél-
ar flugfélagsins Odin Air, Þá hefur
danski bankinn Bikuben krafist
kyrrsetningar eigna hjónanna
vegna 140 milljóna króna skuldar.
Samkvæmt upplýsingum frá félag-.
inu hyggst það halda áfram áætlun-
arfiugi sínu miili Reykjavíkur og
Grænlands.
Kópavogur skuldar 2,7
milljarða
Heildarskuldir Kópavogsbæjar
vom 2,7 milljarðar króna um ára-
mót, samkvæmt ársreikningi 1991.
Logi Kristjánsson, skoðunarmaður
minnihluta bæjarstjórnar, segir að
peningaleg staða bæjarins hafi
versnað um 30% á árinu og sé nú
neikvæð um sem nemi 106% af
skatttekjum. Gunnar Birgisson,
formaður bæjarráðs, segir að hér
sé um tímabundna skuldaaukningu
að ræða vegna framkvæmda.
ÍSK. Rabin hitti Hosni Mubarak
forseta Egyptalands á fyrsta fundi
leiðtoga landanna í sex ár og vill
að Egyptar hafí milligöngu um við-
ræður Israela við grannríki.
Flóttamenn streyma frá
bardagasvæðum í Bosníu
BARDAGAR standa enn í Bosníu-
Herzegóvínu og segir leiðtogi
Serba að múslimar komi í veg fyr-
ir að vopnahlé frá síðustu helgi sé
virt, það sé hvorki sök hans fólks
né Króata. Utanríkisráðherrar Evr-
ópubandalagsins fóru í vikubyijun
fram á að „Júgóslavíu" (Serbíu og
Svartfjallalandi) yrði vikið úr Sam-
einuðu þjóðunum og öðrum al-
þjóðasamtökum.
Flóttamannahjálp SÞ reynir nú
að aðstoða 2,5 milljónir manna sem
hrakist hafa frá heimilum sínum á
átakasvæðunum og óttast er að
milljón flóttamenn bætist við í vet-
ur. Talið er að fólki sé viljandi
stökkt á fiótta í „þjóðarhreinsun-
um“ stríðaaðila. Carrington lávarð-
ur, sáttasemjari Evrópubandalags-
ins, hefur hvatt til framhalds frið-
arviðræðna í Lundúnum.
Lögregla og almenningur á
Italíu gegn mafíunni
MIKIL reiði hefur brotist út meðal
almennings á Ítaiíu í kjölfar mafíu-
morða á dómur-
um á Sikiley.
Fjöldamótmæli
brutust út þegar
lífverðir dómar-
ans Paolos Bors-
ellino voru jarð-
settir í vikunni,
fólk kennir spillt-
um stjórnmála-
mönnum um hve
illa gengur í baráttu gegn maf-
íunni. Þúsundir manna fylgdu
Borsellino til grafar á föstudag og
ítalska þingið samykkti að auka
mjög athafnafrelsi lögreglu. Henni
er nú meðal annars heimilt að gera
húsleit án úrskurðar dómara.
Margir íbúar Palermo hafa rofíð
þagnarhefðina, „ornerta", um
starfsemi mafíunnar.
Þjóðernisstefnu vex ásmegin í Rússlandi:
„Látum aldrei í minni
pokann fyrir neinumu
-segir einn af nánustu ráðgjöfum Jeltsíns forseta og
vill milliveg kapítalisma og kommúnisma
EFTIR síðustu kvöldfréttir á
sjónvarpsrás tvö í Moskvu hefst
þáttur sem nær allir virðast
horfa á með. undarlegri áfergju.
Þá er stjörnuspáin á dagskrá.
Eitt kvöldið var þessi dæmi-
gerða spá lesin upp. „Morgun-
dagurinn mun valda þér énda-
lausum vonbrigðum. Þú lendir
í klandri í vinnunni, á heimavíg-
stöðvunum i hörkurifrildi. Opn-
aðu ekki póstinn þinn því að þar
bíður þín eitthvað óskemmti-
legt. Farðu alls ekki út á götu
því að þú gætir lent undir bíl“.
Spáin átti við öll merkin í dýra-
hringnum. Hvað er það sem
veldur því að Rússar virðast
velta sér svo mjög upp úr þján-
ingum, raunverulegum og
ímynduðum? Skýringin vefst
fyrir mönnum en saga Rússa
skýrir margt; örlögin hafa verið
óblíð við rússneskan almenning
um aldaraðir. Kjör flestra hafa
versnað allra síðustu árin og
glæpum fjölgað, í Pétursborg
einni ráfa um hundruð unglinga
án samastaðar og lifa á betli og
þjófnaði; ástandið í fangelsum
er skelfilegt. Óðaverðbólgan
færist stöðugt í aukana.
Stuðningsmenn kommúnista hrópa slagorð gegn stjórn Borís Jelts-
íns á fjöldafundi í Moskvu. Samkvæmt skoðanakönnunum njóta
kommúnistar lítils fylgis og fáir búast við að flokkurinn verði endur-
reistur í sinni gömlu mynd. Meiri hætta stafar af háttsettum emb-
ættismönnum sem allir voru flokksmenn og eru enn við völd. Þeir
þvælast fyrir öllum breytingum á kerfinu. Auk þess misnota þeir
aðstöðu sína blygðunarlaust til að auðgast með mútum og hvers
kyns fjárplógsstarfsemi.
Hrörnunin er enn augljósari en
ella vegna opinskárrar um-
íjöllunar í fijálsum fjölmiðlum, áður
óþekktu fyrirbæri í sögu landsins.
Togstreita ríkir auk þess í hugum
margra sem vilja umbætur en sætta
sig jafnframt illa við margt sem
þeim hefur fylgt, einkum efna-
hagsóreiðuna og glæpafárið.
Ovíða birtist árekstur nýrra og
gamalla viðhorfa, vestrænna lífs-
hátta og sovétvaldsins, betur en á
sjálfu Rauða torginu. Ekki hefur
enn náðst samkomulag um að fjar-
lægja smurt lík Leníns úr grafhýs-
inu við torgið en margt er þó
breytt. Lögreglumenn æpa ekki
lengur upp yfír sig þegar þeir sjá
einhvern dirfast að kveikja sér í
vindlingi í
grennd við ________________________
helgireitinn.
Undanfarnar
vikur hefur
sprottið upp
Ijöldi lítilla
búða á torginu
þar sem skipt
er útlendum gjaldeyri. Skammt
undan bjóða falar konur þjónustu
sína, rétt hjá sjálfum Kremlarmúr-
unum. Margir formæla þessu
ástandi en hvað sem á dynur í
stjómmálunum verður þó varla aft-
ur snúið frá ýmsum breytingum
sem sjást glöggt á lífsmunstrinu í
borgunum. Sportbílar, einkareknar
verslanir, ítalskir veitingastaðir,
aragrúi útvarpsstöðva sem helga
sig rokktónlist, sápur í sjónvarpinu,
alit verður þetta áfram á boðstólum.
Úrslitin í þeirri valdabaráttu
sem nú fer fram munu ráðast að
nokkru af því hvernig Borís Jeltsín
forseta tekst til, hvernig efnahag-
urinn þróast. Mikilvægast af öllu
er þó hvemig almenningi tekst að
sætta sig við þær skyldur sem
vestrænt lýðræði og einstakljngs-
frelsi leggja mönnum á herðar,
ekki síður en fólk vill njóta ýmissa
réttinda, þæginda og munaðar sem
em nú einnig í seilingarfæri fyrir
marga. Tekjumunur stingur meira
í augu nú en á dögum kommúnista-
stjórnarinnar. Þá var helst ekki
ijallað um slík feimnismál í fjöl-
miðlum. Öfundin í garð nýríkra er
líka söm við sig í Rússlandi sem
annars staðar í heiminum. Ekki
bætir úr skák að menn í valdastöð-
um misnota purrkunarlaust að-
stöðu sína til að þiggja mútur úr
BAKSVIÐ
eftir Kristján Jónsson
lófa útlendinga sem vilja hefja við-
skipti á samvinnugrundvelli. Al-
mennu siðferði hefur hrakað, lög-
gæsla er í molum, sóðaleg klámrit
eru seld á götuhornum í Moskvu
og fatafellur sýna listir sínar í
reykfylltum veitingahúsum þar
sem innlendir smáglæpamenn og
hröslulegir útlendingar á höttunum
eftir viðskiptum sitja í svitakófínu
á kvöldin.
Gamlar lausnir
Hinir nýríku flagga auðæfum
sínum oft á ósmekklegan hátt. Það
er lítil huggun fyrir hina þegar
þeim er sagt að allt þetta athæfí
sé óhjákvæmilegur fylgifiskur
nauðsynlegrar umbyltingar í hug-
arfari þjóðar-
innar. „Hætt-
■■■■■■■■ um nú þessu
verslunarst-
ússi og snúum
okkur að fram-
leiðslunni,"
segir margt
eldra fólk.
Sumir af ráðgjöfum Jeltsíns taka
undir þetta og ákveðið hefur verið
að komið skuli í veg fyrir atvinnu-
leysi, sem enn er sáralítið sam-
kvæmt skýrslum, hvað sem það
kostar. Atvinnubótastefnu Sovét-
stjórnarinnar skal haldið áfram og
ekkert skeytt um það hvort eitt-
hvert gagn sé.að stritinu. Yfirvöld
í sveitum hafa víða þurft að veija
eignir bænda sem keypt hafa jarð-
ir sínar og stunda einkarekstur;
nágrannarnir reyna að brenna ofan
af þeim. 70 ára innræting verður
ekki afmáð í skyndi; flestir Rússar
líta á gróða sem glæp og skilja
ekki alla þessa nýbreytni, finnst
hún eintómt siðleysi. Margir láta
hugfallast vegna þess hve um-
skiptin eru sársaukafull, sumir
leggjast í þunglyndi og vodka-
þamb, bölvandi stjórnmálamönn-
um sem eigi sök á þessu öllu.
Hvar er „Sterki maðurinn“?
Tækifærissinnar og lýðskrum-
arar reyna margir að fiska í grugg-
ugu vatni, nú þegar vonleysi og
reiði ná tökum á sífellt fleira fólki.
Það sem er uggvænlegast er eins
konar samúðar- og hagsmuna-
bandalag gamalla kommúnistafor-
kólfa og rússneskra þjóðernis-
sinna. Oflugir einstaklingar úr
hergagnaiðnaðinum og yfirstjórn
hersins eru þar fremstir í flokki.
Varaforseti Jeltsíns, Aleksander
Rútskoi, hefur róið mjög á þessi
mið og öflugasta fylkingin á þingi
hefur innan sinna- vébanda fólk
með þessi viðhorf. Þjóðernissinnar
eiga að ýmsu leyti auðvelt um vik
í áróðursstríðinu.
Aðeins eitilharðir kommúnistar
sem enn trúa á boðskapinn vilja
taka á ný upp rauða fánann með
hamri og sigð. Hættan á aftur-
hvarfi til einræðis stafar síður af
brölti þeirra en áróðri nýju þjóðern-
issinnanna. Hinir síðarnefndu eru
sumir reiðubúnir að setja skorður
við frelsi fjölmiðla eða senda her
til nágrannalýðveldanna „í nafni
hins heilaga Rússlands" til að veija
hagsmuni þess.
Gott dæmi um stjórnmálamann
sem snúist hefur frá vestrænni
umbótastefnu er Sergej Stanke-
vitsj, einn af helstu ráðgjöfum
Jeltsíns um langt skeið. Nú segist
Stankevitsj vilja „þriðju leiðina“
svonefndu, málamiðlun milli kap-
ítalisma og kommúnisma, og talar
mjög á nótum þjóðemissinna. For-
sætisráðherra Tékka, hægrimað-
urinn Vaclav Klaus, hefur sagt að
þriðja leiðin sé fljótlegasta leiðin
til þriðja heimsins en Stankevitsj
er á öðru máli. „Þið Vesturlanda-
menn misskiljið Rússa. Þið hélduð
að allt sem þyrfti til væru menn
með silkibindi, hvítar og fallegar
tennur og þjálfun í að umgangast
fjölmiðla, þá myndi allt ganga
upp. McDonalds og Pizza Hut-
skyndibitastaði á nokkra staði og
þá yrðum við samheijar ykkar.
En Rússland verður alltaf öðru-
vísi, það verður alltaf stórveldi og
við látum aldrei í minni pokann
fyrir neinum".
Stankevitsj ræðir um nauðsyn
þess að vernda minnihlutahópa
Rússa í Eystrasaltsríkjunum og
fleiri fyrrverandi Sovétlýðveldum
„með öllum hugsanlegum ráðum.“
Hann gerir lítið úr skoðunum
þeirra sem vilja að ríkisvaldið hafi
sem minnst afskipti af efnahags-
málum Hann vill að sterkur leið-
togi stjórni landinu. Stankevitsj
varð ekki hrifinn er honum var
bent á að fordæmi væru fyrir þjóð-
ernisrembu og miðstýringartrú af
því tagi sem hann boðar — í Þýska-
landi nasismans.
(Heimildir: The Dnily Te-
legraph, The Economist o.fl.)