Morgunblaðið - 26.07.1992, Side 6
6 FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26. JÚLÍ 1992
EINVÍGI ALDARINNAR í REYKJAVÍK
Þegar einfarinn særði Sovétveldið
holundarsári í Laugardalshöll
Ljósmyndarar við Laugardagshöll gera harða hríð að Fischer
er hann mætir til leiks í fyrstu skákinni. Fjöldi erlendra frétta-
manna fylgdist með einvíginu.
Fischer stígur út úr bíl sem
hann fékk að láni. í baksýn
Sæmundur Pálsson lögreglu-
þjónn en hann vann hylli
Bandaríkjamannsins.
Áhorfendur fylgjast spenntir með stöðunni á sjónvarpsskjám sem komið var fyrir á göngum
hallarinnar. Ljóst er að Spasskí á leik því að ofarlega á miðri mynd sjást þeir saman,
Fischer og Guðmundur G. Þórarinsson.
Spasskí á gönguferð í grennd við
Hótel Sögu þar sem hann bjó. Fischer
hreiðraði um sig á Hótel Loftleiðum
en síðar fengu þeir félagar sitt einbýl-
ishúsið hvor til að geta haft meira
næði. Fischer kom nokkrum sinnum í
Laugardalshöllina að næturlagi til at-
huga hvort farið hefði verið að fyrir-
mælum hans um breytingar og lagfær-
ingar. Eitt sinn skrapp hann í ökuferð
upp í sveit og lék sér við lömbin.
EINHVER óvæntustu tíðindi í skáksögunni bárust á
föstudag er það var staðfest að Bandaríkjamaðurinn
Robert Fischer hefði loks ákveðið að koma út úr skel-
inni eftir 20 ár og tefla opinberlega á ný. Ekki dregur
það úr eftirvæntingunni að hann vill endurtaka leikinn
frá 1972 er hann keppti við Borís Spasskí, þáverandi
heimsmeistara, um titilinn í Reykjavík. Spasskí var
þá sovéskur ríkisborgari og Sovétmenn höfðu haldið
titlinum óslitið frá því skömmu eftir síðari heimsstyrj-
öld. Einvígið varð sögulegt í mörgum skilningi.
[^Targra vikna togstreita
**■'-*- varð um það hvar einvíg-
ið skyldi fara fram. Fischer,
sem hafði ekki ríkisrekna ská-
kvél Sovétmanna á bak við sig,
lagði áherslu á að verðlaunaféð
yrði sem hæst. Duttlungar hans
svokallaðir og endalausar kröf-
ur um breytingar á smáum sem
stórum atriðum voru í margra
augum ekkert annað en snjöll
tilraun til að vekja athygli
umheimsins á einvíginu. Það
tókst. Hólmgangan komst á
forsíður Newsweek og Time.
Þetta var sumarið þegar eftir-
lætislagið í útvarpsstöðvum var
„Sylvias rnother" með Dr.
Hook, jafnvel Fischer raulaði
með. íslenska skáksambandinu
undir forystu Guðmundar G.
Þórarinssonar þótti takast
snilldarlega að sigla fram hjá
óteljandi skeijum. Og loks byrj-
aði ballið. Spasskí vann fyrstu
skákina er Fischer seildist of
langt og hirti „eitraða“ peðið.
Annarri skákinni lauk með því
að klukka Bandaríkjamannsins
féll. Fischer mætti nefnilega
ekki til leiks í skákinni til að
mótmæla einhveiju sem allir
voru búnir að steingleyma
nokkrum dögum síðar. En á
endanum lagði hann Spasskí.
Sovéska skákvélin var iengi í
sárum og Spasskí var aldrei
fyrirgefið á bænum þeim.
Ljósmyndir/Morgunblaðið
Loksins! Bobby Fischer kemur til Keflavíkurflugvallar sumar-
ið 1972 eftir að óvissa hafði ríkt vikum saman um það hvort
nokkuð yrði úr einvíginu. Sagt var að Henry Kissinger, er
þá var utanríkisráðherra Bandaríkjanna, hefði hringt í Fisc-
her og sagt honurn að þjóðarsómi risaveldisins lægi við; hann
yrði að mæta í Reykjavík og sigra rússneska björninn. Með
Fischer á myndinni eru þeir Sigurður Magnússon fulltrúi og
Freysteinn Þorbergsson skákmeistari (að baki Fischer) sem
m.a. tefldi hraðskák við Fischer í flugvélinni á leiðinni austur
um haf til íslands.
Larissa Spasskí, eigin-
kona sovéska heims-
meistarans, í golfi.
Fischer glaður í bragði á
blaðamannafundi.