Morgunblaðið - 26.07.1992, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26. JÚLÍ 1992
stað víða í þróunarlöndum til að
lækka bamadauða og tryggja af-
komu og heilsu bama. Gore vitnar
m.a. í Julius Nyerere fv. forseta
Tanzaníu sem sagði: „Öflugasta
getnaðarvömin er sú þegar foreldr-
ar telja góðar líkur á að böm þeirra
muni komast af.“
c) Sjá til þess að getnaðarvamir
verði eins aðgengilegar og hvert og
eitt menningarsvæði leyfír.
Gore telur ýmsar stofnanir reiðu-
búnar að leggja slíkum áætlunum
lið af krafti, t.d. muni kaþólska
kirkjan styðja af heilum hug tvo lið-
ina þó hún reynist ófáanleg til að
leggja nafn sitt við þann þriðja.
2. Þróun og útbreiðsla vist-
rænnar tækni. Gore afneitar því
að vandamálin verði leyst með
tækninni einni saman. Slíkur hugs-
unarháttur sé einmitt hluti vandans.
Engu að síður séu tækninýjungar
mikilvægar. Gore leggur til að ýtt
verði úr vör stórfelldu þróunar- og
rannsóknarverkefni í stíl við stjörnu-
stríðsáætlun Reagans. Tillaga Gore
miðar hins vegar að þróun á vist-
rænni tækni í samhæfðu átaki ríkis-
valds og atvinnulífs en ekki að þró-
un hátækni til notkunar í hernaði.
í þessum þætti leggur Gore m.a.
áherslu á:
a) Skattaívilnanir til vistrænnar
tækni en skattaíþynging gagnvart
tækni sem er óhagstæð umhverfinu.
b) Sérstakar fjárveitingar til þró-
unar og rannsókna á vistrænni
tækni.
c) Stjómvöld geri sér far um að
kaupa inn vistrænar vömr til að
hjálpa iðnaði til að ná hagkvæmni
stærðarinnar og verða þ.a.l. sam-
keppnisfær. Hið opinbera er oft
stærsti einstaki viðskiptaaðili fyrir-
tækja og hefur því í hendi sér hvort
ný tækni nær að komast úr hreiðr-
inu.
d) Fýrirheit um mikinn ábata á
markaði sem þróist samhliða því að
gömul og óvistræn tækni er dæmd
úr leik.
e) Komið verði á ströngu, víð-
tæku og samhæfðu eftirliti og próf-
unum á nýrri tækni þar sem kostn-
aður/ábati hinnar nýju tækni sé
metinn bæði út frá efnahagslegum
og umhverfislegum forsendum.
Gore fullyrðir að þeirra bíði mik-
ill hagnaður sem treysti sér til að
ganga fram fyrir skjöldu í þessari
þróun. Því miður fyrir Bandaríkin
hafí Japanir náð forystu á sviði vist-
rænnar tækni. Það er hins vegar
kaldhæðnislegt að flestar ef ekki
allar þær uppgötvanir sem Japanir
séu nú að umbreyta í framleiðslu-
vöru, séu gerðar í Bandaríkjunum.
Ekki sé einleikið hvað Bandaríkja-
menn eru slakir við að nýta til fram-
leiðslu allar þær góðu hugmyndir
sem þar fæðast. Gore kennir
kreddufestu Bush og Reagan stjóm-
anna um að hluta. Hugmyndafræði
þeirra sé þó í hrópandi innra ósam-
ræmi. Þannig vilji repúblíkanar ekki
trufla markaðinn með afskiptum af
rannsóknum og þróun þegar um-
hverfismál eru annars vegar en ausi
hins vegar milljörðum á milljarða
ofan í vafasöm þróunarverkefni á
borð við hemaðartækni.
3. Nýtt vinnulag við alþjóða
efnahagsmál og útreikning hag-
stærða. Gore fer hér m.a. í smiðju
Hermans Daly hagfræðings hjá Al-
þjóðabankanum, en Daly þessi hefur
lengi haft uppi gagnrýni á vinnu-
brögð hagfræðinnar út frá sjónarm-
iðum umhverfisvemdar. Gore legg-
ur hér m.a. til:
a) Skilgreining þjóðartekna
(GNP) verði endurskoðuð í því skyni
að taka inn umhverfískostnað og
umhverfísábata.
b) Skilgreining á framleiðni verði
endurskoðuð á sama hátt til að end-
urspegla áhrif efnahagsstarfsem-
innar á umhverfið.
c) Niðurgreiðslum á hvers konar
óvistrænni starfsemi verði hætt.
d) Átak til að bæta og auka upp-
lýsingar um umhverfísáhrif fram-
leiðslu og koma þeim upplýsingum
óbjöguðum til neytenda.
e) Inn í alþjóðasamninga um við-
skipti m.a. þarf að koma inn ákvæð-
um um umhverfisstaðla.
f) Skuldir þróunarríkja verði í
auknum mæli afskrifaðar gegn því
að þróunarríkin geri átak til verndar
vistkerfum eins og t.d. regnskógum.
Gore fullyrðir að Bandaríkin hafí
hér skyldum að gegna sem forystu-
ríki hins frjálsa markaðsskipulags.
Heimsbyggðin horfír til Banda-
ríkjamanna í von um frumkvæði við
að koma á leiðum til að láta mark-
aðsöflin vinna umhverfinu gagn í
stað þess að spilla því. Það sé ekki
nóg að benda á hruninn kommún-
isma og umhverfisspjöllin þar eftir
misheppnað efnahagskerfí heldur
verði Bandaríkjamenn og aðrir
fylgjendur ftjáls hagkerfís að viður-
kenna að markaðskerfíð í núverandi
formi geti ekki leyst þennan hnút.
Gore leggur m.a. til að í heimalandi
sínu verði stofnaður sjóður (Envir-
onmental Security Trust Fund) sem
í verði greitt í hlutfalli við losun
C02 út í andrúmsloftið, sem í raun
er kolefnisskattur. Féð verði notað
til að greiða niður vistræna fram-
leiðslu. Hann leggur einnig til að
sérstakt frumvinnslugjald verði lagt
á öll hráefni sem koma beint frá
náttúruauðlindum sem hvati fyrir
hvers kyns endurvinnslu.
4. Nýir alþjóðasamningar um
umhverfismál.
Gore telur ða Montreal skjalið um
verndun ósonlagsins geti virkað sem
fyrirmynd að öðrum samningum um
hnattræn umhverfísvandamál. Gore
telur að hér verði Bandaríkin að
fara úr hlutverki úrtöluaðilans og
verði leiðandi.
5. Ný alheimsstaða um mikil-
vægi umhverfismála.
Gore viðurkennir að þetta sé e.t.v.
erfíðasti en jafnframt mikilvægasti
þátturinn í Marshall áætlun sinni.
Gore leggur áherslu á að auka
menntun um umhverfismál, að
æskulýðurinn sé virkjaður strax í
grunnskóla við söfnun upplýsinga
um umhverfismál sem notaðar verði
í samræmdu átaki þjóða heims um
söfnun og túlkun upplýsinga.
Gore telur að Sameinuðu þjóðirn-
ar séu, þrátt fyir allt, hentugasti
aðilinn til að hafa yfirumsjón með
áætlun af þessu tagi. Hann stingur
upp á því að stofnað verði Vistráð
Sameinuðu þjóðanna sem hafí svip-
að hlutverk varðandi umhverfismál
og Öryggisráðið hefur varðandi
ófrið í heiminum.
Sigla eftir stjörnunum
Kostnaður bandarískra skatt-
greiðenda af Marshall áætluninni á
árunum 1948 til 1951 var u.þ.b. 2%
af vergum þjóðartekjum. Sama hlut-
fall í dag svarar til 100 milljarða á
ári. Heildar þróunaraðstoð Banda-
ríkjamanna í dag er um 15 milljarð-
ar á ári og er þá hernaðaraðstoð
ekki tekin með í reikningin. Gore
gerir sér engar gyllivonir um að
auðvelt verði að ná samstöðu um
áætlun af þessu tagi. Marshall áætl-
unin hafí á sínum tíma einnig verið
umdeild áður en aðstæðurnar sköp-
uðu um hana víðtæka samstöðu.
Gore vitnar í Omar Bradley hers-
höfðingja frá eftirstríðsárunum sem
sagði í hita umræðunnar þá að
„kominn er tími til þess að við sigl-
um eftir stjörnunum en ekki eftir
siglingaljósum annarra skipa“. Gore
telur slíka siglingafræði afar tíma-
bæra einnig í dag þegar margir
stýra eftir ljósum næstu skipa eins
og t.d. skoðanakönnunum.
Það verður að segjast eins og er
að boðskapur A1 Gore kemur á
óvart. Bók hans hefði getað verið
skrifuð af einhvetjum framústefnu-
manni fyrir nokkrum árum og feng-
ið þá dóma að vera athyglisverð og
skrifuð af miklu ímyndunarafli en
a^skrifuð sem óraunsæ og útópísk.
Hér er það verðandi varaforseti
Bandaríkjanna sem sendir frá sér
róttækan boðskap um ný viðhorf á
flestum sviðum til að sporna við
kreppu nútímans. Það kemur einnig
á óvart hversu vel ígrunduð bók
hans er að flestu leyti. Gore reynir
óvíða að komast ódýrt frá hlutunum,
t.d. talar hann hvergi um gáfaða
hvali eða fallega seli. Fyrir þá sem
telja umhverfismál mikilvægustu
mál samtímans er frami A1 Gore í
stjómmálum mikið fagnaðarefni.
Fyrir þá vilja upplýstan og víðsýnan
mann í eitt valdamesta embætti
heims væri varaforsetinn A1 Gore
hreinasti hvalreki.
Höfundur er umh verfisfræðingur.
15T
SUMARTILBOÐ
Valhúsgögn, Reykjavík
Vörubær, Akureyri
Glæsilegt leðursófasett í mörgum litum
og leðurflokkum.
Verö frá kr. 153.000stgr.
VALHÚSGÖGN,
Ármúla 8,
Reykjavík,
sími 812275
VÖRUBÆR,
Tryggvabraut 24,
Akureyri,
sími 96-21410
Visa - Euro raðgreiöslur
V E R S L U N
Lágmúla 9 sími 3 88 20
RAFSTÖÐVAR
ALLT AÐ 30% LÆKKUN
0,67 kw 49*114 stgr.
1,90 kw 62.627 stgr.
2,15 kw 55.456 stgr.
3,00 kw 80.741 stgr.
3,40 kw 1 fasa 3,80 kw 3 tasa 115.446 stgr.
1987
ELSKOM
ALLA
1992
ÞJÓNOM
ÓLLVM
AFMÆLISVEISLA
í dagkl. 16-19
OKEYPIS
UTITONLEIKAR
OKEYPIS
Þeir sem koma fram: Sálin hans Jóns míns, Síóan skein sól, Testimony,
Ný dönsk, Stjórnin, Sléttuúlfarnir, Bogomil, Júdas, Silfurtónar,
Laddi, Tveir m/öllu Jón og Gulli.
VTIGRILL:
,Big Túri“ stjórnar: Hamborgari og Coke kr. 300,
Frostpinni kr. 50,-
Allur ágóói af útigrilli rennur til þroskaheftra.
TEYGJUHOPP - “Bungeejump
Stokkió veróur úr 55 meÍra hæó.
cc
Tommi stekkur í fyrsta stökkinu milli kl. 17-18. Síóan stökkva
hinir ýmsu aóilar t.d. Helgi Björns í Síóan skein sól,
Sigtryggur Sykurmoli höfuópaur Bogomil o.fl o.fl.
VELIIOMIN A HARD ROCK
SÍMI689888
L
“Love alI Serve all" “You can’tbeat the feeling“
J