Morgunblaðið - 25.08.1992, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 25.08.1992, Blaðsíða 6
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR ÞRIÐJUDAGUR 25. AGUST 1992 lega ekki eins sterk og áður og það væri kannski skýrningin að 1. deild- arsætið væri nú þegar gulltryggt þegar þijár umferðir eru eftir. „Fylk- ir hefur sýnt meiri stöðugleika en önnur lið í deildinni í sumar. Þó svo að við höfum verið að spila illa höfum náð að sigra. Það er mikið sem býr í þessu liði og það hefur alla bruði til að öðlast stöðugleika í fyrstu deild. Við erum með þijá leikmenn sem spila með U-21 árs landsliðinu og einn A-landsliðsmann og ef ekki er hægt að búa til gott lið í kringum þessa stráka þá er það aldrei hægt,“ sagði Magnús. Hann sagði að ekki væri búið að ákveða hvort hann yrði áfram með liðið næsta ár. „Ég gerði aðeins samning til eins árs í fyrra." Grind- víkingar eiga von Með ágætum sigri á Stjörnunni eygja Grindvíkingar enn von til að spila í 1. deild að ári en þó því aðeins að Keflvíkingar tapi í síð- ustu þremur umferð- Frímann um og þeir vinni alla Ólafsson sína leiki. Það blés skrífar þó ekki byrlega fyrir heimamönnum því Stjömumenn náðu forystunni eftir tæpar 2 mínút- ur er Ólafur Ólafsson varð fyrir bolt- anum eftir fyrirgjöf Kristins Lár- ussonar og setti hann í eigið mark. Hvorugu liðinu tókst að byggja upp spil eftir þessa óvæntu byijun þann- ig að Ieikurinn var lítið fyrir augað. Jöfnunarmark Grindvíkinga var af svipuðum toga og Stjörnumarkið, vamarmaður Stjömunnar hugðist gefa til baka á Jón Otta Jónsson en Guðlaugur Jónsson UMFG stóð fyrir framan hann í markinu og fékk knöttinn, renndi honum út til Ólafs Ingólfssonar sem renndi honum i markið á 27. mínútu. Eftir markið náðu Grindvíkingar góðum tökum á leiknum og gerðu harða hríð að marki gestanna. Það voru þó Stjörnumenn sem náðu forystunni á nýjan leik með marki Sigurðar Más Harðarsonar á 33. mínútu eftir klaufagang í óör- uggri vörn Grindvíkinga. Gestur Gylfason UMFG var á ferðinni skömmu síðar með glæsilegt mark, hann vann boltann á miðjunni lék í átt að Stjömumarkinu og lét skot ríða af fyrir utan vítateig sem virðist hafa komið Jóni í markinu á óvart og hann kom engum vömum við. Heimamenn réðu gangi leiksins í seinni hálfleik og það var alveg eftir gangi leiksins að Guðlaugur Jonsson náði forystunni á 66. mínútu. Stjömumenn vom þó ekki búnir að segja sitt síðasta orð og jöfnuðu á 82. mínútu. Magnús Gylfason fékk boltann um 35 metra frá markinu og sá að Þorsteinn Bjarnason hafði tiætt sér of framarlega og skoraði með bogaskoti yfir hann. Þorsteinn skoraði síðan sigurmarkið úr víta- spymu þremur mínútum fyrir leiksk- lok eftir að Ragnari Eðvarðssyni var hrint í vítateig Stjörnumanna. FYLKISMENN tryggðu sér sæti í fyrstu deild að ári með því að leggja ÍR-inga að velli 1:2, í Mjóddinni á laugardaginn. ÍR- ingar aftur á móti eru nú komn- ir í mjög erfiða stöðu í botnbar- áttu deildarinnar. Magnús Jóna- tansson, þjálfari Fylkis, sagðist vilja þakka þennan árangur fyrst og fremst góðu starfi sem búið er vinna í Arbænum undanfarin ár. „Ég man ekki eftir að hafa starfað áður hjá félagi þar sem allir hlutir eru í jafn góðu lagi, utan vallar sem innan,“ sagði Magnús. Leikurinn fór frekar rólega af stað og voru ÍR-ingar nokkuð sprækir, en náðu þó ekki að skapa sér nein vemleg færi. Á 30.mín var dæmd vítaspyma á ÍR eftir að Kristni Tómassyni var bmgðið af mark- verði þeirra ÍR-inga. Kristinn tók vítaspymuna sjálfur og skoraði af Ólafur Már Sigurösson skrífar miklu öryggi, 0:1. Annað markið kom síðan tveimur mínútum síðar; það var eftir nokkuð góða fyrirgjöf frá Baldri Þór Bjamasyni að Indriði Ein- arsson skallaði boltann glæsilega í netið hjá ÍR-ingum, 0:2 og þannig var staðan í hálfleik. Síðari hálfleikur var frekar daufur og fátt markvert gerðist framan af og virtust liðin vera búin að sætta sig við orðinn hlut. Það var svo ekki fyrr en á 85. mín. að það kom að því að ÍR-ingar náðu að minnka muninn með skaliamarki Ágúts Ól- afssonar. ÍR-ingar virtust hressast svolítið við markið og vom mun nær því að jafna leikinn en Fylkismenn að bæta við. Eftir á að hyggja var sigur Fylkis sanngjarn þó að í sumar hafi þeir oft sýnt betri og yfirvegaðri leik. Þórhallur D. Jóhannsson stóð sig einna best í annars jöfnu liði Fylkis og Kristófer Ómarsson átti góða spretti í liði ÍR. Magnús þjálfari sagði að með fullri virðingu fyrir 2. deild væri hún lík- Morgunblaðið/Björn Blöndal Kjartan Elnarsson og Óll Þór Magnússon framheijar Keflavíkurliðsins hafa verið atkvæðamiklur við að skora í sumar. Selfyssingar með 6 mörk á bakinu Selfyssingar riöu ekki feitum hesti frá viðureign sinni gegn Keflvíkingum f Keflavík á laug- ardaginn og máttu sættu sig við að fara heim með 6 mörk á bak- inu án þess að geta svarað fyrir sig. Yfirburðir heimamanna sem tefldu fram nokkrum ungum og efnilegum leikmönnum að þessu sinni voru miklir og skor- aði Kjartan Einarsson 4 mörk í leiknum. Nú skortir ÍBK aðeins eitt stig í þrem síðustu leikjun- um til að gulltryggja 1. deildar- sætið. | arkakóngar Keflavíkurliðsins, þeir Kjartan Einarsson og Óli Þór Magnússon voru þó aðal- ■■■■■■ mennimir að þessu Bjöm sinni og léku þeir Blöndal félagar Selfossvöm- skrifarfrá ina 0ft grátt. Kefl- Keflavik víkingar fengu óska- byijun því þeir fengu dæmda víta- spymu strax á 5. mínútu eftir að Óla Þór hafði verið brugðið innan vítateigs og úr vítasymunni skoraði Kjartan örugglega. Markið virkaði á Selfyssinga sem rothögg og voru þeir lengstum í vamarhlutverkinu. Keflvíkingar gerðu raunar út um leikin strax í fyrri hálfleik með því að bæta 3 mörkum við fyrst skoraði Kjartan tvívegis með stuttu millibili og síðan Óli'Þór eftir mikið harðfylgi. í síðari hálfleik var ekki eins mik- ill broddur í sóknum heimamanna sem þá létu sér næja að skora tvíveg- is þegar nokkuð var liðið á Ieikinn. Fyrra markið skoraði Kjartan og síð- ara markið setti Róbert Ólafur Sig- urðsson sem kom inná sem varamað- ur í síðari hálfleik. „Þetta var vel ieikinn leikur af okkar hálfu og við erum að ná settu marki að vinna sæti í 1. deild. Okkur vantar nú aðeins eitt stig til að svo megi verða og ég trúi ekki öðru en það mark náist í einum af þremur síðustu leikjunum," sagði Kjartan Másson þjálfari ÍBK. Hafa gert 29 mörkfyrir ÍBK Framheijarnir í liði ÍBK, þeir Kjartan Einarsson inni náði Kjartan að setja 11 mörk, en Óli Þór sem og Óli Þór Magnússon hafa verið að gera góða þá átti við meiðsli að stríða missti af leikjum en hluti með iiði sínu í sumar og allt stefnir nú í ein- setti samt 3 mörk. ______ vígi þeirra í millum um markakóngs- Til gamans má geta þess að Keflavíkuriiðið hefur Bj0rn titilinn í 2. deild. óli Þór hefur nú skorað 36 mörk í 2. deild og af þeim hafa þeir félag- Biöndai skorað 15 mörk í deildinni en Kjartan ar sett 29 mörk - ekki ónýtt að hafa siíka framheija. skrífar er kominn með 14 mörk. í bikarkeppn- KNATTSPYRNA / 2. DEILD Fylkir í 1. deild Fylkir hefur alla bruði til að öðlast stöðugleika ífyrstu deild, segir Magnús Jónatansson, þjálfari Fylkismenn höfðu ástæðu til að fagna eftir leikinn gegn ÍR á laugardaginn enda tryggði liðið sér sæti í 1. deild að ári. Hér eru þeir Zoran Micovic og Indriði Einarsson, sem gerði síðara mark Fylkis í leiknum. ísfirðingar uppi! ÍSFIRÐINGAR tryggðu sér áframhaldandi veru í 2. deild á næsta ári er lið þeirra sigraði Þrótt 1:2 í Reykjavík. BÍ gerði mörkin með tveggja mínútna miliibili í síðari hálfleik eftir að Þróttur hafði náð forystu um miðjan fyrri hálfleik. Þetta var jafnframt fyrsti útisigur BÍ í deildinni í ár. Bí hefur ekki tapað síðustu átta leikjum sínum, eða síðan liðið tapaði fyrir Fram 1:4 í bikarkeppn- inni. Ámundi Sig- mundsson, þjálfari og leikmaður BÍ, sagði að mikill stígandi hafi verið í liðinu að und- anförnu. „Helsta skýringin á slöku gengi okkar í fyrri hluta mótsins er aðstöðuleysið sem við búum við á vorin. Nú erum við komnir á gott skrið og liðið bætir sig í hvetjum leik. Þessi sigur var mjög mikilvægur og nú erum við endanlega sloppnir við fall,“ sagði Ámundi. Þróttur byijaði leikinn betur og það var ekki gegn gangi leiksins er Sig- fús Kárason skoraði á 25. mínútu. Hann fékk sendingu innfyrir vörn ValurB. Jónatansson skrifar BÍ og sendi boltann í markhornið fjær. Skömmu síðar skall hurð nærri hælum við mark BÍ er Ingvar Ólason komst í gegn en Jakob Tryggvason, markvörður, sá við honum og varði meistarlega. Fyrri hálfleikur var ekki áferðafallegur hjá liðunum en Þrótt- arar þó öllu skárri. Síðari hálfleikur var líflegri en sá fyrri. ísfirðingar gerðu breytingar á liði sínu, tóku Örn Torfason úr vörn- inni og settu á miðjuna og Jóhann Ævarsson kom inná í stöðu sóknar- manns. Við þetta varð leikur BÍ allt annar og betri. Gunnar Björgvinsson jafnaði leikinn eftir undirbúning Arn- ar Torfasonar á 64. mínútu og Örn bætti marki við úr þröngu færi tveim- ur mínútum síðar og reyndist það sigurmarkið. Þróttur sótti án afláts síðustu mínútur leiksins en inn vildi boltinn ekki. Örn Torfason var yfirburðamaður á vellinum. Geysilega sterkur og út- sjónasamur leikmaður sem myndi sóma sér vel í 1. deildinni. Jakob Tryggvason markvörður, Helgi Helgason og Sigurður Sighvatsson léku einnig vel fyrir BÍ. Haukur Magnússon og Serbinn Dragan Manjlovic voru bestir Þróttara. Enn tapar Víðir Benjarp/n Jósepsson skrifar frá Ólafsfiröi Staða Víðis í botnbaráttu 2. deild- ar er orðin mjög slæm. Á laugar- daginn fór liðið til Ólafsfjarðar og mátti sætta sig við áttunda tapið í deiidinni. Leiftur vann 2:0. Pétur Mar- teinsson kom heima- mönnum yfir á 9. mínútu. Hann skor- aði með skalla eftir fyrirgjöf og þann- ig var staðan í hálfleik. Leiftursmenn gerðu endalega út um vonir Víðis er þeir gerðu annað markið á 52. mínútu. Pétur Marteinsson einiék upp völl- inn og sendi boltann inní teiginn á Þorlák Ámason sem renndi út á Gunnlaug Sigursveinsson sem koma á fullri ferð og hamraði í netið. Und- ir lok hálfleiksins 'áttu Víðismenn skot í slá. Leiftursmenn sköpuðu sér mun fleiri færi og var sigurinn síst of stór. Friðgeir Einarsson fékk besta færi leiksins í fyrri hálfleik er hann fékk stungusendingu innfyrir vörn Víðis og var einn og óvaldaður á mark- teig, lyfti yfír markvörð Víðis en boltinn fór einnig jrfir markið. Mikil barátta einkenndi leikinn og eiga Víðismenn hrós skilið fyrir að gefast aldrei upp þó á móti hafí blás- ið. Pétur Marteinsson var besti leik- maður vallarins og Mark Duffield barðist einnig vel. Hjá Víði var meðalmennskan allsráðandi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.