Morgunblaðið - 25.08.1992, Side 7

Morgunblaðið - 25.08.1992, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ IÞRÖI iJR ÞRIÐJUDAGUR 25. ÁGÚST 1992 € 7 KNATTSPYRNA / BIKARURSLITALEIKUR KARLA FOLK ■ LISTAMENN, listamenn, lista- menn, sungu Valsmenn um sjálfa sig eftir leikinn. Ástæðan er sú að eftir bikarsigur fyrir einhveijum árum lýsti Hermann Gunnarsson, þáverandi leikmaður Vals, því yfír að sigurinn væri framlag þeirra til listahátíðar, sem þá stóð yfír. ■ FÉLAGAR hans tóku hann á orðinu og kalla sig listamenn í hvert skipti sem þeir vinna í bikarkeppn- inni. ■ INGI Björn Albertsson reyndi hvað hann gat að sleppa við það að lenda í mjólkur- eða kampavíns- baði eins og flestir leikmenn fengu að reyna. Hann stóðst þó ekki mát- ið og fékk sér kampavínssopa úr bikamum inni í klefa eftir leikinn. Steinar Adólfsson rak sig þá í bik- arinn og þar með var draumur Inga um að koma þurr heim úr sögunni. ■ OIIMARR Örlygsson og Gunnar Már Másson skoruðu mörk KA manna í leiknum, en þeir eru ekki óvanir því að þenja net- möskvana í bikarúrslitaleikjum á Laugardalsvellinum. H ORMÁRR skoraði eitt mark í 5:0 sigri Fram á Víði í úrslitaleikn- um 1987, og Gunnar skoraði mark Vals í fyrri úrslitaleik Vals og FH í fyrra. Gunnar skoraði auk þess mark í vítaspymukeppni í úrslita- leik yals og KR fyrir tveimur ámm. ■ ÁRNI Þór Freysteinsson fór meiddur af velli á 65. mínútu. Hann fékk spark í lærið sem stífnaði við það upp. Arni Hermannsson kom inn á í hans stað. Sjö sekúndumar halda fyrir mér vöku - sagði OrnnaiT Örlygsson um lokasekúndurnar Eg er hrikalega svekktur svo ekki sé meira sagt. Við vomm betri í fyrri hálfleik en í síðari hálf- leik tóku Valsmenn áhættuna, sóttu meira og voru auk þess með vindinn í bakið. Við það vorum við á stund- um í nauðvörn og þeir gengu á lag- ið og heilladísimar vom með þeim en ekki okkur. Það vantaði kjark í okkur og ef til vill trúna á að við gætum klárað leikinn og orðið bik- armeistarar. Það er alveg á hreinu að maður man eftir þessum sjö sekúndum alla ævi og þær halda ömgglega vöku fyrir mér í nótt. En svona er nú einu sinni fótboltinn. Menn verða að klára leikinn — alveg,“ sagði Ormarr. Bökkuðum of mikið „Það var hræðilegt og niðurdrep- andi að fá jöfnnarmarkið á sig þeg- ar sjö sekúndur vora eftir. Við bökkuðum ef til vill helst til mikið í síðari hálfleik en Valsmenn settu fleiri fram og voru með vindinn í bakið þannig að við ekkert svar við leik þeirra. Þetta gekk upp hjá þeim,“ sagði Gunnar Gíslason þjálf- ari og leikmaður KA. Hrikalega svekkjandi „Ég er rosalega svekktur. Það var hræðilegt að fá jöfnunarmarkið í lok leiksins og þriðja mark þeirra var klaufaskapur minn. Ég ætlaði að grípa boltann en fékk hann í brjóstkassann og þaðan fór boltinn til þeirra. Það var hrikaleg svekkj- andi. Við bökkuðum of mikið í síð- ari hálfleik og náðum því ekki að gera neitt. Það var ekki nógu gott hjá okkur,“ sagði Haukur Bragason markvörður KA. FOLK ■ VALSMENN hafa ekki tapað bikarleik síðan 19. júlí 1989, þegar þeir töpuðu fyrir KR, í átta liða úrslitum keppninnar það ár. ■ ÞEIR unnu síðan Fram í fyrsta bikarleik sínum árið 1990 í mjög svo sögulegum leik, og hefur sigur- ganga þeirra verið óslitin síðan. Þeir hafa leikið samtals ijórtán bik- arleiki eftir það, sigrað tólf sinnum en gert jafntefli tvisvar, í fyrri úr- slitaleikjunum árin 1990 og 1991. Samtals hafa þeir því leikið í 1470 mínútur í Mjólkurbikarkeppninni án þess að bíða lægri hlut. ■ LEIKURINN við Fram árið 1990 var mjög svo sögulegur eins og áður sagði. Framarar komust í 0:2 á heimavelli Valsmanna, en á sjö mínútna kafla í seinni hálfleik náðu Valsmenn að jafna og knýja fram framlengingu. I henni komust Framarar aftur yfír en Sævar Jónsson jafnaði úr vítaspymu sem Gunnar Már Másson fískaði. Vals- menn unnu síðan í vítaspymu- keppni. ■ ELLERT Sölvason eða Lolli í Val, fagnaði innilega með sínum mönnum þegar jöfnunarmarkið kom á síðustu mínútu venjulegs leiktíma. Þegar Anthony Karl skoraði síðasta mark leiksins hljóp hann til hans og fagnaði með hon- um og öðmm leikmönnum Vals. ■ VALSARAR sungu og trölluðu af miklum móð inni í búningsklefa sínum eftir leikinn, og vættu kverk- amar með mjólk og kampavíni sem og hvem annan. Salih Porca sagði að það væri verst að hann kynni ekki að syngja, en það væri í lagi, hann hoppaði bara með. Stórkostlegt Petta var alveg rosalegt. Ég gleymi þessu aldrei, og ég held að þetta sé stórkostlegasti leikur sem ég hef verið með í. Ég verð þó að viðurkenna að ég var búinn að gefa upp á bátinn að við næðum að sigra. Við fengum samt færi allan síðari hálfleikinn og það hlaut að koma að því að við skoruðum. Það var allt brjálað í hálfleik. Við vomm 2:0 undir og höfuðm leikið illa. Ingi Bjöm lét okkur líka heyra það og minnti okkur á að 1990 vor-, um við 2:0 undir á móti Fram í bik- amum en unnum. Hann lét okkur fá trúna á að við gætum sigrað og því var hugarfarið í síðari hálfleik allt annað en í þeim fyrri,“ sagði Anthony Karl Gregory sem gerði þijú mörk í leiknum. Jöfnnarmarkið gerði hann með glæsilegri bakfallsspyrnu þegar sjö sekúndur vom eftir. „Ég var búinn að reyna tvær hjólhestaspyrnur áður þannig að það hlaut að koma að því að ég skoraði," sagði Anthony bros- andi. „Ég sá boltann koma inní teig- inn og tveir KA-menn fóm í hann þannig að ég ákvað að bíða. Þegar boltinn kom var ekki um annað að gera en að reyna hjólhestinn," sagði hetja Valsmanna. Morgunblaðið/Bjami Mjólk er góð! Valsmenn sungu af kæti eftir sigurinn í bikamum og skvettu mjólk í allar áttir. Hér er það Anthony Karl Greg- ory sem hefur fengið væna gusu yfir sig enda vom félagar hans viljugir að skvetta á hann og þakka honum þar með fyrir að gera þijú mörk í bikam- um. Fyrsta mark sitt gerði hann sjö sekúndum fyrir leikslok og var það stórglæsilegt. Hann skoraði með fastri bakfallsspymu og átti Haukur Braga- son markvörður KA ekki möguleika á að veija. Haukur stóð samt fyrir sínu og á myndinni hér að neðan er hann að slá knöttinn frá marki sínu en Baldur Bragason sækir að honum. Bikarmeistarar Vals Bikarmeistarar Vals. Aftari röð frá vinstri. Ólafur Magnússon, Ólafur Már Sigurðsson, Izudin Dervic, Arn- ljótur Davíðsson, Jón S. Helgason, Jón G. Jónsson, Anthony Karl Greg- ory, Salih Porca, Gunnlaugur Ein- arsson, Flosi Helgason, Þorsteinn Ólafs, Sævar Hjálmarsson, Ámi Ámason og Guðmundur Kjartans- son. Fremri röð frá vinstri. Hörður Magnússon, Sigurbjöm Hreiðarsson, Sævar Gylfason, Sævar Jónsson, Bjarni Sigurðsson, Einar Páll Tóm- asson, Baldur Bragason, Steinar Adólfssón, Ágúst Gylfason og Ingi Bjöm Albertsson.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.