Morgunblaðið - 25.08.1992, Qupperneq 8
8 C MORGUNBLAÐIÐ iÞRorrm ÞRIÐJUDAGUR 25. ÁGÚST 1992
MORGUNBLAÐIÐ
BÞROTTIR ÞRIÐJUDAGUR
25. AGUST 1992
C 9
KNATTSPYRNA / MJOLKURBIKARKEPPNIN
Morgunblaðið/Bjarni
SJÖ sekúndur eftlr! Anthony Karl Gregory jafnar fyrir Valsmenn með glæsilegri bakfallsspyrnu þegar aðeins sjö sekúndur voru eftir af leiknum. Það reyndist mikilvægt
mark því í framlengingu sigruðu Valsmenn nokkuð örugglega.
„Við vorum ekki með í fyrri hálf-
leik, það var bara eitt lið á vellinum.
En við vorum vaktir í hálfleik með
reiðilestri og fórum út á völlinn
ákveðnir í að standa saman,“ sagði
Einar Páll Tómasson varnarmaður
hjá Val. „Við höfðum trú á því allan
síðari hálfleikinn að við gætum þetta,
og jafnvel einnig á síðustu mínútun-
um. Þegar maður nær svona pressu
og fær færi þá tekur það enga stund
að gera eitt mark eða tvö. Ég er
mjög ánægður með hvað við börð-
umst rosalega vel, það kom nýtt lið
Morgunblaðið/Bjami
Þaö tókst! Ingi Björn Albertsson þjálfari Vals fagnar þeim Antony Karl Gregory og Baldri Bragasyni sem gerðu fjögur
af fimm mörkum Vals í leiknum.
inn á í síðari hálfleik,11 sagði Einar.
Hann sagði að þeir hefðu eytt rosa-
legum krafti í að jafna, eins og sést
hafi í byrjun framlengingarinnar, en
náð aftur tökum á leiknum. „Tilfinn-
ingunni að jafna þegar nokkrar sek-
úndur eru til leiksloka er ekki hægt
að lýsa, og þetta verður lengi í minn-
um haft,“ sagði Einar.
Ekki bara skemmtilegt
„Þetta var ekki bara skemmtileg,
þetta var frábært. Við vorum greini-
lega í mun betri æfingu en þeir,
höfðum mun meira úthald, og það
sýndi sig að góðar og skemmtilegar
æfingar Inga [Bjöms Albertssonar]
hafa skilað sér. En við vorum mjög
slakir í fyrri hálfleik. Ég hef enga
skýringu á því, við vissum að þetta
var úrslitaleikur og áttum því ekki
að leika svona illa. En það var hrist
upp í okkur í hálfleik og við vissum
að við gætum klárað dæmið," sagði
Izudin Dervic, annar Bosníumann-
anna í Val, og bætti við að þetta
væri fyrsti bikarinn sem hann ynni,
og tilfmningin væri hreint frábær.
Valur meistari—
en tæpt var það
Valurjafnaði sjö sekúndum fyrir leikslok og gerði síðan þrjú mörk íframlengingunni
VALSMENN urðu á sunnudaginn bikarmeistarar þriðja árið í röð
er þeir unnu KA 5:3 íframlengdum leik, en óskaplega stóð það
tæpt að þessu sinni. Leikurinn var vel leikinn. Hann var hraður,
spennandi og mjög dramatískur enda voru aðeins sjö sekúndum
eftir þegar Valsmenn jöfnuðu 2:2 og tryggðu framlengingu gegn
KA-mönnum frá Akureyri. í framlengingunni voru Valsmenn sterk-
ari, gerðu þrjú mörk og sigruðu 5:2. Sigurinn var sanngjarn, en
eðlilegt að KA-menn séu sárir og svekktir því það munaði svo
sáralitlu að þeirfæru með bikarinn norður. Bara sjö sekúndum!
Valsmenn hófu leikinn og strax
frá fyrstu mínútu var mikill
hraði og bæði lið léku af mikilli festu.
^— Marktækifærin 'létu
Skúli Unnar reyndar aðeins á sér
Sveinsson standa, en ekki lengi.
skrifar KA-menn náðu fljót-
iega undirtökunum
og voru miklu betri aðilinn í fyrri
hálfleik. Þeir voru fljótari í boltann
og baráttan var gríðarieg.
Ekki bætti úr skák hjá Valsmönn-
um að fyrirliði þeirra, Sævar Jóns-
son, varð að fara meiddur af leik-
velli eftir stundarfjórðung. Raunar
var Steingrímur Birgisson, vamar-
maður KA, einnig meiddur og haltr-
aði löngum í leiknum. Hann lét sig
þó hafa það að ljúka leiknum.
KA komst yfir eftir hálfa klukku-
stund og þá hafði markið legið lengi
í loftinu. Strákamir frá Akureyri létu
ekki þar við sitja heldur bættu við
öðru marki aðeins fjórum mínútum
síðar og töldu þá margir ljóst að sig-
urganga Vals í bikarkeppninni væri
á enda.
Ingi Björn Albertsson þjálfari
Valsmanna var greinilega á öðru
máli því þeir rauðklæddu voru eins
og allt annað lið þegar þeir mættu
til síðari hálfleiks og léku þá undan
vindinum sem hafði aðeins hert. Bik-
armeistaramir voru þó heppnir að
fá ekki á sig þriðja markið strax í
upphafi síðari hálfleiks þegar Pavel
Vandas átti skot í stöngina.
Valsmenn fengu þijú færi áður
en þeim tókst að minnka muninn á
64. mínútu. Anthony Karl átti bak-
fallsspymu rétt yfir, Porca skallaði
í stöngina og Arnljótur skaut í hlið-
ametið. Valsmenn héldu uppteknum
hætti og sóttu og sóttu og eftir því
sem leið á hálfleikinn urðu sóknimar
þyngri.
Flestir voru búnir að afskrifa Vals-
menn. En leikur er ekki búinn fyrr
en dómarinn hefur flautað til leiks-
loka. Þegar Valur jafnar sýndi klukk-
an á vellinum að 48 mínútur og 32
sekúndur vom liðnar síðan flautað
var til síðari hálfleiks. En þar sem
fjögurra mínútna tafir höfðu orðið á
síðari hálfleik vegna meiðsla og inná-
skiptinga hafði dómarinn stöðvað
klukku sína og tímatakan var hár-
rétt. KA-menn byijuðu á miðju og
leikurinn var úti. Þeir vom sjö sek-
úndur, hugsið ykkur, aðeins sjö sek-
úndur frá því að verða bikarmeistar-
ar.
KA-menn vora ekki búnir að gefa
upp alla von. Þeir byijuðu betur í
framlengingunni og fengu tvö
þokkaleg færi og eitt mjög gott.
Ámi Hermannsson komst einn inn
fyrir vöm Vals eftir sendingu Orm-
ars en Bjami bjargaði meistaralega
með úthlaupi. Ámi hefði betur rennt
út í þessu færi því félagar hans vom
í enn betra færi fyrir miðju marki.
Hinum megin varði Haukur mjög
vel er Dervic geystist upp vinstri
kantinn og skaut. Hann hefði, eins
og Ámi hinum megin, átt að renna
knettinum fyrir markið þar sem tveir
félagar hans biðu. Færin gerast ekki
betri því Valsmenn vom þrír á móti
Hauki markverði.
Þriðja mark Vals gerði Anthony
skömmu síðar og kom það eftir að
Haukur missti knöttinn klaufalega
frá sér. Tvö síðustu mörk þessa
skemmtilega leiks komu í síðari hálf-
leik framlengingar og gerði Anthony
Morgunblaðið/Kristinn
Barátta. Gunnar Már Másson og Einar Páll Tómasson í harðri baráttu
um knöttinn. Þeir félagar gerðu eitt mark hvor í leiknum.
Karl annað þeirra og þar með sitt
þriðja mark í leiknum. Hitt gerði
vamarmaðurinn Einar Páll Tómas-
son. En KA-menn áttu einnig tvö
færi þá, Bjarni varði glæsilega skot
frá Vandas og frá Sigþóri.
Bæði lið léku ágætis knattspyrnu,
mikið var um marktækifæri og sjö
mörk. Bæði lið geta vel við unað
hvað varðar leikinn en KA-menn eru
örugglega ekki sáttir við úrslitin.
Þeir geta að hluta til kennt sjálfum
sér um því þeir bökkuðu fullmikið í
síðari hálfleik og þá komust Vals-
menn meira inn í leikinn. Einnig virt-
ust Valsmenn í betra líkamlegu
ástandi og þá sérstaklega Dervic sem
var einstaklega duglegur.
Anthony Karl Gregory er hetja
leiksins. Hann gerði þijú mörk og
var sífellt ógnandi í framlínunni.
Izudin Dervic átti einnig mjög góðan
leik og Porca var góður í síðari hálf-
leik eftir dapran fyrri hálfleik. Ekki
má gleyma Bjama í markinu sem
varði mjög vel. Annars áttu allir
Valsmenn ágætan dag, sérstaklega
í síðari hálfleik.
Hjá KA var Ormarr sterkur á
hægri kantinum og hinn ungi ívar
Bjarklind var geysilega duglegur á
miðjunni og Gunnar Gíslason var
sterkur í vörninni. Haukur Bragason
varði vel í marki KA en fékk á sig eitt
klaufamark.
Morgunblaðið/Bjarni
Valsmenn minnka muninn.
Baldur Bragason gerði fyrsta mark Vals í bikarúrslitaleiknum. Hann stökk
upp, en henti sér eiginlega um leið fram, og skallaði í netið. Á myndinni
hér fyrir ofan er hann búinn að skalla knöttinn og fylgist spenntur með fram-
haldinu um leið og hann horfir á eftir knettinum sem er á leið í mark KA.
Norðanmennirnir Gunnar Gíslason og Haukur Bragason em greinilega ekki
eins sáttir við þróun mála. Valsmenn sóttu mikið í síðari hálfleik en markið
lét þó standa á sér og jöfnunar makið gerðu þeir ekki fyrr en sjö sekúndur
voru eftir af leiknum, en þá voru liðnar tæpar 50 mínútur frá því flautað var
til síðari hálfleiks.
Hélt við væmm búnir
að missa af bikamum
- sagði Ingi Björn Albertsson þjálfari Vals og aðrirtóku í sama streng
Eg hélt að þetta væri farið. Það
munaði líka bara sjö sekúndum
að KA-menn tækju þennan titil, og
þetta er auðvitað sárt fyrir þá. Okk-
ur gekk illa í fyrri hálfleik, en börð-
um okkur á bijóst í leikhléi og ætluð-
um okkur að klára þetta dæmi. Hug-
arfarið breyttist líka til hins betra.
Ég hef í höndunum gott lið sem hef-
ur vilja til að vinna,“ sagði Ingi Bjöm
Albertsson þjálfari Vals eftir leikinn.
Allt brjálað í leikhléi
„Það var hörmung að sjá þetta
hjá okkur í fyrri hálfleik, enda var
allt bijálað í leikhléi. Það hafði líka
sín áhrif, og þó að þetta hafi verið
tæpt í lokin var það samt nóg, sjö
sekúndur er nóg til að gera út um
leik, sagði Sævar Jónsson fyrirliði
Vals.
Höfðum trú á að við gætum
þetta
■ ÞEGAR þjóðsöngurinn var leik-
inn við upphaf úrslitaleiksins í
Mjólkurbikarkeppninni sneru allir
leikmenn í átt að áhorfendum í
stúkunni, nema einn. Valsarinn
Steinar Adólfsson sneri í átt að
íslenska fánanum, sem blakti við
hún sunnan vallarins.
■ SÆVAR Jónsson fyrirliði Vals
þurfti að fara af leikvelli snemma
í leiknum vegna meiðsla í baki. '
Hann var með boltann, gaf hann
frá sér og steig um leið skref til
baka með þeim afleiðingum að hann
læstist í bakinu. Jón S. Helgason
kom inn á í hans stað.
■ SÆVAR tók þrátt fyrir allt við
bikarnum sem fyrirliði í leikslok,
en var ekki í takkaskóm eins og
aðrir heldur inniskóm. Voru menn
á því að þetta væri líklega í fyrsta
skipti sem tekið væri á móti þessum
bikar af manni í inniskóm.
■ FLESTIR ef ekki allir voru
búnir að bóka sigur KA undir lok
venjulegs leiktíma, jafnvel hörðustu
stuðningsmenn Vals og meira að
segja þjálfarinn. Rétt rúmri hálfri ,
mínútu áður en Anthony Karl
skoraði jöfnunarmarkið gekk Ingi
Björn Álbertsson, þjálfari Vals,
að aðstoðarþjálfara sínum Ólafi
Magnússyni, strauk hendinni í
gegnum hárið og sagði lágt: „Þetta
er búið.“
■ ÓLAFUR kinkaði kolli, og Arn-
ljótur Davíðsson sem sat á vara-
mannabekknum grúfði andlitið í
höndum sér. Þeir gáfu sér þó tíma
til að fylgjast með síðustu sókn
leiksins, að því að þeir héldu, og
trúðu ekki sínum eigin augum þeg-
ar jöfnunarmarkið kom. Fögnuður
þeirra sem og annarra Valsmanna
var líka í samræmi við það.
n
jSSfc
Om Æ Gunnar Gíslason þjálfari KA sendi knöttinn inn í vítateig
■ I Vals á 30. mínútu. Þar áttust við Árni Freysteinsson úr Þór
og Einar Páll Tómasson úr Val og enduðu viðskipti þeirra með þvi að
knötturinn barst til Gunnars Más Mássonar sem skoraði af öryggi.
Oa ^jFjórum mínútum síðar var Árni Freysteinsson aftur á ferð-
mmminni en nú tók hann langt innkast á móts við vítateigshomið
vinstra megin. Gunnar Már skallaði aftur fyrir sig og út á vítateigs-
línuna þar sem Ormarr Örlygsson spymti viðstöðulaust í bláhornið á
marki Vals. Glæsilegt mark.
1a ^^Valsmenn fengu aukaspymu á 64. mínútu, hægra megin út
■ émmvið hliðarlínu. Salih Porca spyrnti inn í markteig KA þar sem
Baldur Bragason stakk sér fram fyrir vamarmenn KA, stökk upp og
skallaði I netið. Baldur varð reyndar að beygja sig fram i uppstökkinu
til að ná að skalla.
2a^%Sjö sekúndum fyrir leikslok lyfti Porca knettinum inní víta-
■ á&teiginn eftir að tveimur varnarmönnum KA hafði mistekist
að skalla frá marki. Jón Grétar Jónsson náði til knattarins og kom
honum lengra inn í vítateiginn. Anthony Karl Gregory var mættur á
réttan stað og tók þriðju bakfallsspymuna í leiknum og nú tókst hún.
3a ^fcValsmenn náðu forystunni á 102. mínútu. Izudin Dervic skaut
■ fÉfcföstu skoti frá vítateigshomi og virtist Haukur Bragason
hafa knöttinn en, fékk hann í bijóstkassann og missti boitann frá sér.
Antony Karl fylgdi vel á eftir og skoraði auðveldlega.
4a 113. mínútu geystust Valsmenn í sókn og Porca, Dervic
mmmog Baldur léku laglega í gegn. Baldur gaf síðan á Einar
Pál Tómasson sem lék á Hauk í markinu og skoraði.
5m Síðasta markið gerðu bikarmeistararnir á 118. mínútu. Ág-
■ áCiúst Gylfason spólaði sig þá í gegn hægra megin og í stað
þess að skjóta renndi hann á Anthony Karl sem var í enn betra færi
og gerði þriðja mark sitt í leiknum.