Morgunblaðið - 26.08.1992, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 26.08.1992, Qupperneq 2
2 B MORGUNBLAÐIÐ FRETTIR MIÐVIKUDAGUR 26. ÁGÚST 1992 Fréttir vikunnar Föndrað úr karfahreistri ■ RAUNVfSINDASTOFN- UN Háskólans hefur unnið föndurvðrur úr karfahreistri, en það hefur verið verðlaust tiJ þessa. Eftir hreinsun og þurrkun hreistursins er það litað með lífrænum litarefn- um og því svo pakkað og það selt. Hreisturflögnnum svipar til mosaikflaga og er því upp- lagt til myndrænnar listsköp- unar. Hreistrið hefur á tiJ- raunastigi verið framleitt í 10 litum. í annan stað hefur verið gerð svokölluð orkusjá, sem er glerstautur, holur að innan. Þar eru í örsmáir krist- allar í vökvaformi og er vök- vinn unninn úr gljáa sfldar- hreisturs. Hreistrið og orku- sjáin verða sett á markað hérlendis og í frihöfninni í Keflavík. ----------- 10% minni aflakvóti ■ SAMKVÆMT útreikning- um Handsals hf. minnkar heildaraflakvóti á næsta ári um 7,6% og úthlutað afla- magn miðað við slægðan botnfisk um 10,5%. Mestur er samdrátturinn hjá Síldar- vinnslunni i Neskaupstað, 10,9%. Kvóti Árness í Þorláks- höfn minnkar um 3,6%, Granda í Reykjavík um 5,6%, Haraldar Böðvarssonar á Akranesi um 9,4%, Skag- strendings um 8,4%, Útgerð- arfélags Akureyringa um 8,8% og Sjóla hf í Hafnarfirði um 6,9%. ----------- Dönsk skip ná ISO-9002 stöðlunum FJÖGUR dönsk nótaveiðiskip eru fyrstu fiskipin í heiminum, samkvæmt upplýsingum RF í Danmörku, til að fá viðurkenn- ingu samkvæmt ISO-9002 stöðl- unum, sem taka yfir meðferð afla um borð. Viðurkenningunni var náð með samvinnu við Rann- sóknastofnun danska fisk- iðanaðarins í Hirtshals og voru skipin tekin út af Det Norske Veritas. Talið er að dönsk fisk- vinnslufyrirtæki verði þau fyrstu í heiminum til að fá sam- bærilega viðurkenningu. Viðurkenningin þýðir í raun að ákveðnir gæðaþættir og meðferð eru tryggðir samkvæmt ISO-9000 stöðlunum, (ISO-9001, ISO-9002 og ISO-9003). Hvað skipin varðar nær ISO-9002 yfir meðferð afla um borð, en viðurkenning sam- kvæmt ISO-9003 þýddi ábyrgð á gæðum aflans eftir löndun. Fulltrúar hinnar dönsku RF telja viðurkenningu samkvæmt gæða- stöðlum af þessu tagi verða æ mikilvægari, sérlega í ljósi þess að fisksala um íjarskipti fari stöðugt vaxandi. Fiskurinn er þá seldur kaupanda í landi meðan skipið er á sjó. Upplýsingum um magn og tegundir er komið um fjarskipti inn á markaðinn og viðurkenning skipsins samkvæmt ISO-stöðlun- um er trygging kaupanda fyrir góðri meðferð og gæðum aflans. Enga EB-aðild fyrir Islendinga og Norðmenn meðan þeir veiða hvali REIUNT MILLI SKIPS OG BRYGGJU Morgunblaöið/J6n Páll Ásgeirsson Hann er vænn ufsinn, sem Heimir Sverrisson dró við bryggjuna í Siglufirði. Það þætti kannski ekki öllum liklegt til árangurs að renna milli skips og bryggju en pollarnir í Siglufirði kunna sitt fag greinilega og verða líklega fiskimenn framtiðarinnar. Hausafarmur í uppnámi ■ FARMUR18 gáma með hertum hausum liggur nú á hafnarbakkanum í Hamborg, en þaðan átti farmurinn að fara til Nígeríu á miðvikudag. Við athugun á farminum kom í Ijós raki í pakkningunum, en verið er að kanna hvort hausarnir hafi skemmzt af þessura sökum. Einnig er í athugun hvort rakinn sé sök- um þess að hausarnir hafi ekki verið nógu þurrir, þegar þeir voru settir í gáminn eða hvort um sé að kenna ónógri loftræstingu í gámunum. Svipað tilvik kom upp í Ham- borg fyrir um mánuði. Ames tapar ■ TAP útgerðarfélagsins Árness hf. í Þorlákshöfn af reglulegri starfsemi þess á fyrri helmingi ársins reyndist 42 railljónir króna. Örlítill hagnaður varð af útgerð fé- lagsins, en verulegttap á vinnslunni að því er segir i skýrslu framkvæmdastjóra. Velta fyrirtækisins fyrstu 6 mánuði þessa árs nam 787 milljónum króna og svarar tap af reglulegum rekstri því til um 5% af veltu. ♦ ♦ ♦-- Frumvarp um aflaheimildir ■ LAGT hefur verið fram á Alþingi frumvarp 8 fram- sóknarmanna þess efnis að aflaheimildum Hagræðing- arsjóðs verði úthlutað án end- urgjalds til þeirra skipa, sem fyrir mestri þorskskerðingu verði á nýju kvótaári. WOLFGANG von Geld- ern, fyrrum sjávarút- vegsmálaráðherra Þýskalands og núver- andi formaður umhverf- isnefndar þýska Sam- bandsþingsins, ritar Þýski þingmaðurinn von Geldern harðorður í garð hvalveiðiþjóða mjög harðorða grein um hvalveiðar í ágústhefti Fisch-Magazin. Vill hann stöðva alla „slátrun" og „morð“ á hvölum þegar í stað, hvort sem er í hagnaðar- eða vísindaskyni. Telur hann EB-aðiId ekki koma til greina fyrir Norðmenn eða íslendinga meðan þeir stunda hvalveiðar. ingarhættu. Einstaklingar af öðr- um tegundum séu einhveijar tug- þúsundir og sé því haldið fram að það sé nægjanlegur fjöldi. í raun œttl að vernda alla hvall „í raun ætti að vemda alla hvali í höfunum, menn ættu ekki að drepa þá heldur leyfa þeim að lifa,“ Von Geldern segir í grein sinni að hvalir hafi frá örófi alda orðið mönnum yrkisefni og talist mjög sérstæðar lífverur. Verið „vinir mannanna á einhvern dularfullan hátt“ eins og hann orðar það. Áður hafi hvalir í höfum veraldar skipt milljónum en nú séu hins vegar nokkrar tegundir í útrým- segir von Geldern. „Einasti mark- aðurinn í heiminum fyrir hvalkjöt er í Japan. Enginn hefur áhuga á hvalkjöti annars staðar í heimin- um. Það verður því að svelta jap- anska markaðinn í hel! Sælkerarn- ir í Tókýó sem borga háar upphæð- ir fyrir að njóta þessa framandi góðmetis verða að breyta smekk sínum þannig að hvalirnir megi lifa.“ Þingmaðurinn rifjar upp að ný- lega heimsótti Helmut Kohl kansl- ari Noreg og Richard von Weiszác- ker Þýskalandsforseti ísland. „Báðir voru þeir í þeim einu lönd- um sem hafa lýst því yfir að þau hyggist taka upp hvalveiðar að nýju, einungis fyrir Japansmarkað og einvörðungu í hagnaðarskyni. Og þó að Norðmenn og íslending- ar beri fyrir sig vísindaleg sjónar- mið af einhveiju tagi: Málið snýst ekki um neitt annað en gróðann af hvalveiðunum, sem í ljósi stað- reynda er óforsvaranlegur.“ Hann segir flokka kristilegra demókrata (CDU/CSU) og Green- peace þurfa hér að standa sameig- inlega vörð um mikilvæga hefð nefnilega að hvalveiðar verði stöðvaðar um allan heim og að engar hvalveiðar verði stundaðar í vísindaskyni. „Hætta verður slátrun og morðum í gróðaskyni!“. Að lokum segir von Geldern: „Á meðan íslendingar og Norðmenn taka ekki skýra afstöðu í þessu máli eiga þeir ekki heldur að fá aðild að Evrópubandalaginu. Þetta mál verður að taka upp í aðildar- viðræðum." Framleiðsla fískimjöls í heiminum jókst mest í Suður-Ameríku í fyrra ■ FRAMLEIÐSLA ' fiskmjöls í helstu 1 útflutningsríkjun- um nam 2,95 mil(j- ónum tonna á síð- asta ári og jókst um 10% frá árinu áður. Var aukningin langmest í Suður-Ameríkuríkjunum en á fyrstu mánuðum þessa árs var veið- in lítil í Perú og Norður-Chile enda veiðibann um tíma. Varð það til að þoka verðinu nokkuð upp á við. Ovissa um framleiðsluna Chíle og Perú á þessu ári Vegna mikilla efnahagserfið- leika í Perú var framleitt mikið af fiskmjöli til útflutnings á síðasta ári og nam framleiðslan þá 1,25 milljónum tonna,^ 100.000 tonnum meira en 1990. Atti þessi aukning sér aðallega stað á fyrra misseri ársins en verr gekk á því síðara. Fór helmingur útflutningsins til Kína, 625.000 tonn, og 200.000 tonn til Þýskalands. Vel fiskaðist við Suður-Chile í fyrra og þá jókst fískmjölsframleiðsla um 16% frá árinu áður og var alls 1,16 millj. tonn. Var ein milljón tonna flutt út en hitt fór til laxeldisins í land- inu, sem er mjög vaxandi. Chfleskt fiskmjöl er betra að gæðum en það perúska og verðið því hærra. Fiskmjölsframleiðsla í Evrópu var í minna lagi 1990 en jókst í fyrra, um 20% í Noregi og Dan- mörku. Á íslandi dróst hún hins vegar verulega saman vegna lítillar loðnuveiði. Verð á fiskmjöli var til jafnaðar 16% hærra í fyrra en 1990 en verð á sojabaunamjöli, sem er miklu ódýrara en fískmjöl, lækkaði verulega, aðallega vegna minni eftirspurnar í samveldislönd- unum eða Sovétríkjunum, sem áður voru. Þetta olli því, að marg- ir kaupendur hurfu frá fiskmjölinu yfir í sojabaunamjölið. Erfitt er að spá fyrir um fisk- mjölsframleiðsluna á þessu ári en hún ræðst að sjálfsögðu mikið af því hvemig gengur í Chfle og Perú. Þegar E1 Nino, heiti sjávarstraum- urinn undan Kyrrahafsströnd Suð- ur-Ameríku, nær sér verulega á strik minnkar veiðin þar og í vor var einnig óttast, að hann gæti valdið þurrkum í Bandaríkjunum og þar með minni sojabaunaupp- skeru. Hefur straumurinn mikil áhrif á veðrakerfin víða um heim eins og sést á því, að talið er hugs- anlegt, að horfur á góðri ansjósu- veiði við Suður-Afríku megi rekja til hans. Helgi Laxdal varaformaður ■ HELGI Laxdal. formaður Vélastjórafélags lslands hefur verið kjörinn varaformaður NoiTæna vélstjórasambands- ins, NMF, en árlegri ráðstefnu þess lauk í Færeyjum í síðustu viku. Færeyingurinn EH Davidsen var kjörinn formað- ur sambandsins. Norræna vél- stjórasambandið er myndað af vélstjórafélögum á öllum Norðurlöndunum og telur um 20.000 vélstjóra, sem starfa bæði á sjó og f landi. Hlutverk NMF er að samræma málefni er varða fagið, félagsmál, vinnu og menntun, og eru meðlimunum sameiginleg hagsmunamál.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.