Morgunblaðið - 26.08.1992, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ AFLABRÖGÐ MIÐVIKUDAGUR 26. ÁGÚST 1992
B 5
Okkur veitir ekki af bjartsýni
Þórólfur Jóhannsson
á Höfn kaupir nýjan
Gáska 800 krókaleyfisbát
„ÉG ER bjartsýnn á
framtíðina. Það hafa
komið fiskileysisár
áður og alltaf hefur
ástandið lagazt aft-
ur. Okkur veitir ekki
af bjartsýni í dag og
ekki kemur hún frá þeim, sem sljórna landinu. Þaðan kemur ekk-
ert nema svartsýniskjaftæði og það er allt annað, sem þjóðin þarf,“
sagði Þórólfur Jóhannsson, trillukarl á Höfn, þegar Verið sló á þráð-
inn til hans.
Þórólfur fór til Reykjavíkur fyrir
rúmri viku til að sækja nýjan bát,
Rán SF 56. Það er Gáski 800 frá
Mótun hf., 5,9 tonna krókaleyfis-
bátur, og verður Þórólfur með hann
á línu og handfærum. Einar, bróðir
Þórólfs er að fá sams konar bát á
næstunni. Þeir bræður gerðu áður
úr 20 tonn bát, Árnýju, sem nú
gerð út frá Grímsey.
Bíð eftir veðri
„Mér gekk bærilega með bátinn
austur, var um 17 tíma með stoppi
í Eyjum og keyrði þó engin ósköp.
Síðan hef ég aðeins komizt tvisvar
á sjó fyrir brælu og það gekk í sjálfu
sér vel, nema það var lítið um fisk.
Ég var aðallega að þreifa mig
áfram eins og maður gerir, þegar
maður er með nýja hluti í höndun-
um. Ég bíð því bara eftir veðri og
er bjartsýnn á framhaldið þó það
séu árabil á þessu eins og öðru,“
segir Þórólfur.
Þórólfur byijaði að róa 1962 frá
Höfn, en réri einnig nokkur ár frá
Vestmannaeyjum. Hann er því bú-
inn að vera í 30 ára á sjónum.
„Mér finnst þetta ekki langur tími,“
segir hann. „Það er ekkert tímabil
langt, líki manni það, sem maður
er að gera og mér líkar vel á sjón-
um.“
Með Koden-línuna og
heimasmíðað línuspil
Þórólfur er með Koden-tæki í
bátnum, radar, plotter, GPS og
dýptarmæli og talstöð frá Sailor.
Hann er með þijár DNG-færavind-
ur af nýjustu gerð, en línuspilið og
beitutrektin er smíðuð af völundin-
um Jóni Stefánssyni á Höfn. „Mér
er því ekkert að vanbúnaði. Nú er
bara að bíða eftir veðri og drífa sig
á sjó. Fiskurinn lætur sjá sig,“ seg-
ir Þórólfur.
Gríski flotimi úreltur
GRÍSKI úthafsflotinn, sem telur um 50 skip, er orðinn úr sér genginn
og verður vart gerður út lengur án tafarlausrar viðgerðar og end-
urnýjunar. Þessi skip stunda aðallega veiðar á Persaflóa, við Vestur-
Afríku og Falklandseyjar. Árið 1977 skilaði úthafsfloti Grikkja 26.500
tonnum af fiski á land, en nú hefur afli þeirra fallið niður í 10.480
tonn af fiski og 3.500 tonn af rækju á ári. Samdráttur í afla í Atlants-
hafi er meðal annars talinn stafa af rányrkju á ákveðnum miðum,
átökum í sumum ríkjum Vestur-Afríku og erfiðleikum í að öðlast
veiðileyfi. Hins vegar hefur gengið vel að selja aflann.
Samkvæmt áliti stjórnenada Bún-
aðarbankans í Grikklandi, munu
úthafsveiðar Grikkja leggjast af,
verði flotinn ekki endurbættur og
endurnýjaður. Leggja verður
áherzlu á veiðar nýrra fiskitegunda
og leita nýrra tækifæra til veiða
annars staðar við Vestur-Afríku og
í Mið-Austurlöndum.
Grikkir stunda veiðar sínar að
mestu í Miðjarðarhafi, meðal annars
í samvinnu við Lybíu. Árið 1990
voru grísk fiskiskip talin 16.944.
Um 16.000 þeirra stunduðu veiðar
á grunnsævi, 14 togarar voru að
veiðum á Miðjarðarhafi, 410 og 404
töldust togarar og netabátar, sem
stunduðu veiðar innan grísku lög-
sögunnar, 31 rækjuskip stundaði
veiðar í Atlantshafi, 46 fiskiskip
önnur stunduðu veiðar á svipuðum
slóðum og að auku töldust til flot-
ans fimm kæli- og frystiskip til fisk-
flutninga.
Heildarafli Grikkja árið 1991 var
153.611 tonn að fiskeldi meðtöldu,
en það var rúmum 7.000 tonnum
minna en árið áður. Aðeins varð um
aukingu að ræða í fiskeldinu, sem
jókst úr 7.546 tonnum 1990 í 19.199
tonn árið eftir. Viðskipahaili Grikkja
vegna fiskkaupa og -sölu var 73
milljónir Bandaríkjadala, um 4 millj-
arðar króna árið 1990.
1 RÆKJUBÁ TAR
Nafn Stærft Afli Sjóferðir Londunarst.
! SÆFARIAK ZO£ m 16 1 Akranos
ÓLAFUR BJARNASON SH 137 104 7.2 1 Ólafsvík
HRÖNNSH21 ɧ 4,8 1 Olaísvik j|
GARÐARIISH 164 142 7.5 1 Ólafsvík
IÓHANNES ÍVAR K£ 70 7,1 1 Ólafsvik lilj
JÓN FREYR SH 115 102 8,9 1 Stykkishólmur
SVANUR SH 111 88 7,9 1 Stytaúshólrnur i
PÓRSNESSH 108 163 8,0 1 Stykkishólmur
! ÞÓRSNESIISH09 146 11,6 1 Stykkishólmur .
ORRIIS 19 259 24 1 Súðavík
SIGH. BJARNASON VE$1 370 30 1 Súöavik j
FLOSIIS 15 204 12 ~ ... . 1 Bolungarvík
GUNNBJÓRNIS30Í 57 ö 2 Bolungarvik "1
GEYSIRBA 140 186 12 1 ísafjörður
[LÁTRAVÍKBAee 231 30 1 TsafjörÓur j
BÁRÁ is 66 25 2 1 (safjöröur
[gIslijúi isse: 69 $ Tsafjörður ]
STEINUNNSH 167 135 11 1 ísafjörður
[SÆBORGRE20 233 11 i ÍBafjörður ~j
GA UKURGK660 181 ‘ 12 1 ísafjörður
; VÍKURBERG GK 1 314 1 20 i ísafjorður
ALBERTGK31 316 1 22 1 ísafjöröur
\huginnvess .í*? 1 18 1 ísafjörður j
BJARNIHU 13 51 12,0 2 Hvammstangi
SIGGISVEINS1$ 39 104 14.2 2 Hvammstangí j
KAMBAVÍK SU24 26 1.2 1 Hvammstangi
i GEIRSH2I7 m i 14,2 1 Hvammstangi j
ARFARIHF 18 2 • 230 9.2 1 Hvammstangi
OAGFARIPH 70 299 1$r5 1 Blönduós
INGIMUNDUR GAMLIHU 65 ÓIAFURMAGNÚSS.HUS4 103 10,2 1 Blönduós
571 3,8 ' 1 ' Skaoastfönó
HÖFRUNGURII GK 27 179 17,0 1 Skagaströnd
HAFRÚNHU 12 2,6 1 Skagaströnd !
NÖKKVIHU 15 283 27,0 l‘ Skagaströnd
! ÖGMUNDUR RE 94 187 18,6 1 Siglufjoröur j
HELGA RE 49 199 “23,9 ’ i Sigíufjörður
197 166 1 SiflÍufjÖrÖur " j
BJÖRG JÓNSD. UPH320 ““‘273 23,6 1 Húsavík
KRISTEY ÞH 44 50 7,3 1 Husavfk
KRISTBJÖRGIIÞH 244 192 18,7 1 Husavik
ISBORG BA 477 55 7,1 1 Húsavik
SIGÞÓRÞH 100 169 15,2 1 Húsavík
j HAFBJÖRG EA 23 87 11,4 1 HúMVlk : J
RÆKJUBA TAR
Nafn GUÐRÚN BJÖRG ÞH 60 Stærft 57 Afli 6,3 Sjóferftlr 2 Löndunarst. Húsavík
1 ÞORLEIFUR EA 88 51 13,7 2 Húsavik
j<Sn KJARTÁNSSON SU11 775 27,0 1 Eskifjörður
! GUEJRÚNÞORKELSD. SV2II 365 28.0 lllifil EskltjörOur
ÞÓRIR SF77 125 12,0 1 Eskifjörður
STJÖRNUTINDURSÚ 1S9 138 10,0 Eakifiörður
ELDHAMAR GK 13 38 4,7 3 Grindavík
! FENGSÆU.GK162 22 3,2 2 Grindavík
KÁRIGK 146 36 2,7 2 Grindaviic
l MÁNIGK2B7 72 2.4 wmm mm Grindavik
ÓLAFURGK33 36 4,8 3 Grindavík
SVALURKF90 38 2,5 2 Grindavik
VÖRÐUFELL GK20S 30 1.1 1 Grindavík
GUDFINNURKEIB 30 6,3 4 Sandgerðí
SVEINNGUÐM.SS. GK315 21 4,2 4 Sandgerði
: ÞORSTEINNKE 10 28 4,2 4 Sandgerði
VÁLÁÖF2 30 2,6 3 Sandgerði
j GEIR GOÐIGK 220 160 11 1 Santígerðí
HAFBORG KE 12 26 3,3 3 Sandgeröi
\ERLINGKE140 278 11.5 1 Kaflavik
LOÐNUSKIP
SKELFISKBA TAR
NYJASTA UPPFINNING
NORÐURFISKS
NORÐURFISKUR hf. hefur unnið við þróun á vinnslu fiskaf-
ganga til að auka nýtingu í sjávarútvegi en fyrirtækið er í eigu
Islenska járnblendifélagsins og nokkurra einstaklinga. Nýjasta
uppfinning Norðurfísks, sem hér sést, er vinnslulina og vinnsluað-
ferð til að nýta fisk af hryggjum frá flökun en þessi fiskur er
saltaður og selst allur fyrir gott verð. Auðvelt er að ná fiskinum
frá hryggnum, vinnslubúnaðurinn er einfaldur og nýtingin eykst
um 3,75%, rniðað við óslægðan fisk með haus, að sögn Olafs Sig-
urðssonar hjá Norðurfiski. Fyrirtækið hefur selt hérlendis fjórar
vinnslulínur, sem vinna fisk af hryggjum frá flatningu og þijár,
sem vinna fisk af hryggjum frá fíökun.
Nafn Staerft Afll Sjóferðlr Lóndunerst.
SÚLANEA300 391 íjSZ - 1 Raufarhöfn
HÁBF.RG GK 299 366 1,344 ‘ 3 Raufarhöfn
[ SJÁ VÁRBÖRG GK60 ihi 634 :f i Raufarhöfn
BERGURVE44 266 738 2 Raufarhöfn
| SVÁNURRE4B "■ ÍHiÍ: 633 1 Raufarhöfn
HILMIR SU 171 642 277 1 Raufarhöfn
\HILMIRSU 171 642 482 1 Nmskoupstaöurl
Nafn Starft Afll SJóferftlr Lftndunarst.
ARNFINNURSH3 117 54,7 5 Stykkishólmur j
ÁRSÆLLSHBB 103 50,4 5 Stykkishólmur
GRETTIR SH 104 148 46 5 Stykkishólmur ]
gIsuGÍNNARSSON íl SH 85 18 25 5 Stykkishólmur
ALDANIS47 29 6,5 4 (safjöröur j
Trjónukrabbabréf
Steinólfs í Fagradal
STEINÓLFUR Lárusson, bóndi í Fagradal, sendi Pétri Þorsteinssyni,
sýslumanni í Dalasýslu, bréf árið 1984 til að vekja athygli á furðu-
skepnunni tijónukrabba og hvort ekki mætti hugsa sér að veiða dýr-
ið og nýta. Efni bréfsins bar á góma á sýslunefndarfundi og málið
komst á rannsóknarstig virtra stofnana í Reykjavík. Enn eru vísinda-
menn að kanna umrædda skepnu, stofnstærð hennar og annað álíka
en alvöru veiðiskapur er enn óhafínn. Bréf Steinólfs má því enn verða
mönnum hvöt til að kanna þessi mál til hlítar. Þetta kemur fram í
nýjasta hefti tímaritsins Úrvals. Verið birtir hér umrætt bréf Stein-
ólfs til yfirvaldsins í Dalasýslu og er stafsetning Steinólfs látin halda
sér í hvívetna, enda er hann að eigin sögn lítill ufsilonsvinur. Glöggir
lesendur greina einnig að Steinólfur sólundar ekki stórum stöfum í
neina vitleysu.
Afskrifað tveim dögum firir Mikjálsmessu 1984. Herra Pétur Þorsteins-
son sýslumaður.
Ein sérkennileg sjóklnd
Alúðar heilsan óskir bestu. Þar sem ég hef sannspurt að þú sért áhuga-
maður um sjávargagn og aðra aðskiljanlega náttúru, á, og hér framundan
þessum veraldarinnar útnára sem Dalasýsla teljast má vil ég vekja athigli
þína á eftirfarandi. Hér framundan láðinu bír ein sérkennileg sjókind bæði
djúpt og grunnt, og virðist vera af stjarnfræðilegri stofnstærð
en meðal stærð þessa kvikindis sem einstaklings er svipuð og eitt hand-
sápustikki, sava de París, en þó fram mjókkandi og endar í tijónu búkur-
inn, augu á stilkum svo sem Marsbúar hafa og getur dýrið horft aftur firir
sig og fram, og haft ifirsín fyrir báða sína enda jafntímis, leikur frammsókn-
armönnum mjög öfund til þessa hæfileika dírsins
tvær tennur hefur dírið sína í hvoru munnviki og bítur saman tönnum
frá hlið, tennur þessar eru ekki umluktar vörum heldur nokkurskonar fálmur-
um og brosir dírið þar af leiðandi sífelldlega, og þó heldur kalt
til að bera sig um, hefur skepnan 10 fætur og ber kné mjög hærra en
kviðinn, það er mjög krikagleitt líkt og hestamenn sem lengi hafa riðið feitu
Einna líkast skíriífisbeltum
Ævinlega gengur dírið útá hlið ímist til hægri eða vinstri og virðist vera
mjög pólitískt, einnig má það teljast mjög siðferðislega þróað skapnað-
arlega þar sem spjald vex firir bligðun þess mjög sléttfellilega, einna líkast
skírlífisbeltum
ekki verður dírið kingreint af þessum sökum nema með ofbeldi,
ef menn vilja hafa einhveijar nitjar af díri þessu er afskaplega örðugt
að aflífa það snirtilega, þar sem það sökum síns skapnaðarlags fæst hvorki
heingt né skorið skotið eða rotað, því brinja hörð umlikur skepnuna gjörsam-
lega og er lífseigla þessa dírs með ílíkindum, sé það geimt í haldi á þurru
landi mun sultur einn ganga frá því dauðu að því er virðist.
bíður það þá örlaga sinna mjög stillilega en þegar því fer að eimast bið-
in, gefur það frá sér sladdandi hljóð, samskonar sladdandi hljóð mátti heira
í baðstofum hér áður firr einkum firripart nætur þegar griðkonur feitar
voru gnúðar sem ákaflegast til frigðar
Bíldrikkur sá er bensín kallast hefur mér reinst einna bestur tilað aflífa
þessa skepnu óskeminda í þeim tilgangi að þurka hana innvirðulega og
gefa konum í Reylqavík ágætum og ærupríddum, sem ég hef kunningsskap
við utanklæða,
Dægileg krás tilaft selja þjóftum
þær stilla þessari- skepnu upp við hliðina á Hallgrími Péturssyni ellegar
mind af forsetanum og svo innan um plattana
tæplega mun vera vænlegt að veiða skepnu þessa í þeim tilgangi, en ef
takast mætti að veiða hana í stórum stíl og upphugsa þokkalega aðferð
tilað aflífa hana, vaknar sú spurning hvort ekki mætti verka þessa skepnu
í dægilega krás tilað selja þjóðum
er mér fortalið að Job danskir kaupi og eti ólíklegustu kvikindi og borgi
þeim mun meira firir sem skepnan er svipljótari, samkvæmt okkar smekk.
í þessu skini mætti eftil vill biðja dírðarmenn firir sunnan um rannsókn á
þessu díri og fá plögg, með línuritum og prósentum, svo sem í eina stress-
tösku til að biija með Vertu blessaður
Steinólfur Lárusson