Morgunblaðið - 26.08.1992, Page 6

Morgunblaðið - 26.08.1992, Page 6
6 B -ft— MORGUNBLAÐIÐ IVIARKAÐIR MIÐVIKUDAGUR 26. AGUST 1992 ’;!,-f 'w'n'*7'--------------- Fiskverð heima JÚH 29.v.l30.v. Agúst /.I32.V.I33.V.I34JA Samtals fóru 143,7 tonn af þorski um fiskmarkaðina þrjá hér syðra í síðustu viku. Um Fiskmarkað Hafnar- fjarðarfóru 41,6 tonn og meðalverðið 85,03 kr./kg. Um Faxamarkað fóru 61,5 tonn á 85,48 kr./kg og um Fiskmarkað Suðurnesja fóru 40,6 tonn á 93,0 kr./kg. Af karfa voru seld 22,6 tonn, meðalverð í Hafnarfirði var 38,03,32,32 á Faxagarði og 39,74 syðra. Af ufsa voru seld 69,7 tonn, meðalverð í Hafnarfirði var 34,71,40,44 á Faxagarði og 42,32 hvert kíló á Suðurnesjum. Af ýsu voru seld 40,6 tonn á mörkuðunum þremur hér syðra og meðalverðið 109,34 kr./kg. Fiskverð ytra Aðeins var seldur afli úr gámum í Bretlandi í síðustu viku eða 688,4 tonn á 131,69 kr./kg. Þar af voru 317,6tonn af þorski á 143,61 kr./kg, 189,5 tonn af ýsu á 127,14 kr./kg og 60,8 tonn af kolaá 134,23 kr. hvert kíló. Þorskur ...... . Karfi ^........... Ufsi ......... Aðeins eitt skip seldi afla sinn í Þýskalandi í síðustu viku en Vigri RE 71 seldi 253,3 tonn á 97,14 kr./kg. Þar af voru 224,0 tonn af karfa á 93,65 kr./kg og 8,5 tonn af ufsa á 88,64 kr. hvert kiló. Verður reyktur háfur búbót fyrir íslenskan sjávarútveg? Fjárfestingin mjög arðvænleg samkvæmt niðurstöðu tilrauna Á TÍMUM minnkandi kvóta og þrenginga í sjávarútveginum, undir- stöðuatvinnuvegi þjóðarinnar, skiptir miklu, að vel sé farið með hráefnið og jafnan leitað nýrra leiða hvað varðar nýtingu þess og markaðssetningu. Að þessu hefur verið unnið, ekki síst hjá Rikismati sjávarafurða og Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins, og er árangurinn meiri en flesta grunar. Ef vel er á haldið mun þetta starf verða til að stór- auka verðmæti þess afla, sem hér kemur á land. í Háskóla íslands er einnig unnið merkilegt rannsóknarstarf að þessu leyti og hér á eftir verður sagt frá tilraunareykingu á háf. Er þar um að ræða verkefni í matvælaverkfræði II, sem þau Gunnar B. Sigurgeirsson og Lilja B. Arnórsdóttir unnu undir leiðsögn Sigurjóns Arasonar, deildarverkfræðings hjá RF. austanverðu við strendur Vestur- Evrópu og Norður-Afríku, í Mið- jarðarhafi og allt austur í Svarta- haf, og að vestanverðu frá Suður- Grænlandi niður til Flórída. Lík þessu er útbreiðslan í Norður- Kyrrahafí og á suðurhveli er hann að finna við strendur Suður-Afr- íku, Suður-Ameríku, Ástralíu og Nýja Sjálands. Háfurinn, Sualus acanthias, hef- ur lengi verið illa séður hjá íslensk- um sjómönnum enda gerir hann hvorttveggja að skemma veiðarfæri og éta úr þeim fiskinn. Hann líkist hákarli en er þó mjög lítill miðað við aðra háfiska, hrygnan stærri og mest 120 sm en hængurinn lengstur 84 sm. Meðalþyngdin er um 3-5 kg. Liturinn er dökkur að ofan en ljós að neðan og eins og einkennandi er fyrir bijóskfiska ganga tveir gaddar upp úr báðum bakuggum framanverðum. Þá vantar einnig raufaruggann. Vex hægt en lifir iengi Háfurinn vex hægt en lifir lengi, 25-30 ár við eðlilegar aðstæður. Er hann helst að fínna við land- grunn og landgrunnshalla kald- og heittempruðu hafanna, allt niður á 360 metra dýpi, og kjörhitastig hans er um 6-15 gráður. Hann er mikill sundfískur og þegar hann er í fæðuleit fer hann um í stórum og þéttum torfum. Hrygnan gýtur 4-6 og stundum fleiri lifandi af- kvæmum í hveiju goti en með- göngutíminn er langur, 22-24 mán- uðir, og háfurinn verður ekki kyn- þroska fyrr en við 10-20 ára aldur. Háfurinn er líklega algengasta háfiskategund í heimi og fínnst beggja vegna N-Atlantshafsins. Að Veiddur á línu og í troll Háfurinn er eina háfískategund- in, sem veidd er í verulegu magni, og þá helst á línu og í troll en fæst einnig í net. Er línufískurinn bestur þar sem hann næst lifandi en rétt meðhöndlun um borð skipt- ir öllu máli fyrir gæðin. Hún getur þó verið mjög ólík eftir því hvar háfurinn er seldur. Fyrir Bret- landsmarkað er til dæmis beðið um físk, sem er hvorki slægður né blóðgaður en vel ísaður. Er það vegna þess, að í Bretlandi er háfur- inn seldur sem klettalax eins og hann er kallaður, „rock salmon“, og sóst eftir bleikum lit á holdinu, sem fæst með þessari meðferð. Annars staðar er áherslan á, að flökin séu sem hvítust og þá verð- ur að blóðga og slægja fískinn strax. Eins og í öðrum háfískum er um að ræða ammoníaksmyndun í háf- inum fyrir tilstilli örvera en þau Gunnar og Lilja segja, að henni megi halda í lágmarki með miklu hreinlæti á verkunarstað og með því að hafa hitastigið eins lágt og unnt er. Þá nefna þau að margir telji að ammoníaksmyndunina megi hindra með því að blóðga, slægja og ísa fiskinn vel úti á sjó. Erfið- ara er hins vegar að eiga við þránunareinkenni í fískholdinu og eru þau meira vandamál en amm- oníaksmyndunin að þeirra mati. Nýtlng í reykingu um 39% Tilrauninni skipta skýrsluhöf- undar í þijá liði eftir því hvaða aðferð var notuð við að þíða fískinn og reykja en háfana fengu þeir frosna og vissu ekki hve gamlir þeir voru né hvaða meðferð þeir fengu um borð. Hér verður ekki farið nákvæmlega í tilraunina en aðeins nefnt, að þegar háfarnir höfðu verið slægðir og flakaðir voru allir þættir, sem máli þóttu skipta, mældir og vegnir. Fyrir reykingu voru flökin sett í 10% saltpækil, ýmist í 10 eða 20 mínút- ur, og þunnildin í jafn sterkan pækil í átta og 10 mínútur. Sam- kvæmt mælingum eru 39% af físk- inum nýtanleg í reykingu, það er að segja þunnildi og flök. Að lokinni reykingu fór fram svokallað Igeðjunarpróf en þá er kallað til fólk til að bragða á rétt- inum og gefa honum einkunn. Var um að ræða 45 manns og niðurstað- an sú, að fímm voru hlutlausir ef svo má segja, þótti hvorki gott né vont, en 30 líkaði rétturinn vel. Níu sögðu „afskaplega gott“, átta „mjög gott“ og sjö „gott“. í mínus- flokknum lentu 10. Auk þessa lögðu þau Gunnar og Lilja mikla vinnu í að rannsaka arðsemi þessarar vinnslu og var niðurstaðan þar sú, að reyndust útreikningar þeirra réttir, væri hér um mjög gróðavænlega fjárfest- ingu að ræða. FISKKAUPIN ÞYZKALAND Skortur á fiski áberandi 1991 NOKKRAR breytingar eiga sér nú stað á fiskmörkuðum hins sameinaða Þýzkalands. Á síð- asta ári velti fiskiðnaðurinn þar alls um 11,5 milljörðum marka, 426 milþ'örðum íslenzkra króna. Það er athyglisvert í ljósi þess, að árið áður var velta fiskiðnað- arins í Vestur-Þýzkalandi einu 9,9 milljarðar marka, 366 millj- arðar króna. Velta austurhlut- ans er því allmiklu minni en í vesturhlutanum. Fiskskortur setti svip sinn á gang mála í fisk- vinnslunni í fyrra, sem leiddi til mikilla verðhækkana á hráefni og framleiðslukostnaður jókst mikið. Miklar verðhækkanir á hráefni og vinnslukostnaði fóru ekki að fullu út í verð til neytenda, sem hækkaði engu að síður mikið. Þýzkar fískætur héldu þrátt fyrir það sínu striki og voru iðnar við kolann. Frystur fískur var vinsæl- astur í innkaupum með alls 257.760 tonn, sem er rúmlega 2.000 tonnum meira en árið áður. Markaðshlutdeild freðfisksins hef- ur tvöfaldazt á síðustu 10 árum, vaxið úr 12% 1981 í 24% 1991. Á sama tíma hefur markaðshlutdeild fersks fisks fallið úr 17% í 10%. Sala á ferskum físki varð þó alls 107.400 tonn í fyrra, jókst um 5.000 tonn milli ára. Veitingahús hafa haft umtals- verð áhrif á neyzluvenjur Þjóð- veija. Neyzlan færist í auknum mæli yfír í dýrari unnar afurðir en áður. Það sést meðal annars af millineyzlu á reyktum físki, 75.180 tonnum og skelfiski, 204.060 tonnum mikilli í fyrra. Innflutningur Þjóðverja á fiski eftir löndum (miii|. dm)1134 oc 3 O UJ Q s * O -4 292 D 260 Þýzkir kaupa mest af Dönum UM 80% af þeim fiski, sem Þjóðverjar neyta, er fluttur inn. Alls veija þeir 3,2 milljörð- um marka, 118 milljörðum króna til fiskkaupa af öðrum þjóðum. Danir selja Þjóðveij- um langmest af þeim fiski, sem fluttur er inn til Þýzkalands, eða 24% heildarinnar sé miðað við verðmæti. Á síðasta ári seldu Danir Þjóðveijum fisk fyrir 779 milljónir marka, 29 milljarða króna. Hollendingar komu næstir með 10% heildar- innar, Norðmenn voru í þriðja sæti með 9% og í fjórða sæti voru íslendingar með 8%. Við seldu Þjóðveijum því fisk fyrir um 260 miUjónir marka eða 9,6 milljarða króna á síðasta ári. FISKAFLINN FISKAFLI Þjóðveija jókst að sjálfsögðu með sameiningu ríkjanna, en afli Vestur-Þjóð- veija hafði áður dregizt saman milli ára. Árið 1989 var afli vesturhlutans 166.000 tonn, 154.000 árið eftir og sameinað Þýzkaland aflaði alls 203.000 tonna í fyrra. Uppistaðan í afl- anum er síld og þorskur, en kræklingur er þriðja mikilvæg- asta sjávarafurðin. Samdráttur í afla skýrist meðal annars af minnkandi veiðiheimildum inn- an lögsögu annarra ríkja.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.