Morgunblaðið - 27.08.1992, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 27.08.1992, Blaðsíða 2
2 C MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. ÁGÚST 1992 -i Antti Siivola, framkvæmdastjóri Olympíuleikanna Pólitískt óstand haf öi mikil óhrif á undirbúning Að taka við 178 keppendum frá 37 þjóðum, 99 fararsljór- um og áheyrnarfulltrúum frá 39 þjóðum og sljórna 100 manna starfsliði finnskra verkefnastjóra, leiðsögu- manna, dómnefndarmanna og túlka er ekkert smáverkefni. Þegar þar við bætist að á síð- ustu stundu þarf að breyta dvalarstað allra keppendanna vegna RÖSE-ráðstefnunnar sem haldin var í Helsinki á sama tíma verður verkefnið ekki léttara. Og til að kóróna erfiðleikana sem við var að etja voru breytingar á fjölda og nöfnum þátttökuþjóða allt undirbúningsárið fyrir 23. Ólympíuleikana í eðlisfræði. rátt fyrir allt hefur undir- búningurinn gengið undravel og allt lagst þar á eitt við að hjálpa til,“ segir Antti Siivola, fram- kvæmdastjóri 23. Ólympíuleik- anna. Allir eðlisfræðingamir í starfsliðinu koma frá Eðlisfræði- deild Háskólans í Helsinki án þess að taka nokkra aukaþóknun fyrir. Leiðsögumennirnir koma úr röðum fínnskra keppenda frá fyrri Ólympíuleikum og mála- deildum Háskólans og þiggja þeir aðeins smávægilega dag- peninga þá viku sem Ieikarnir standa. Hótelið þar sem farar- stjórarnir voru hýstir gat tekið við öllum keppendunum og árekstrar við öryggisverði RÖSE-ráðstefnunnar í næsta húsi urðu engir.“ Það er Félag raungreinakenn- ara í Finnlandi sem veg hefur og vanda af framkvæmd 23. Ólympíuleikanna. Félagið hefur leitað til ótal fyrirtækja um styrki í formi gjafa og auglýs- inga og margir eðlisfræðingar hafa gefið kost á sér í sjálfboðal- iðastörf. Af þeim 1,2 milljónum finnskra marka (u.þ.b. 18 millj- ónir íslenskra króna) sem leik- amir líta út fyrir að kosta hefur fínnska menntamálaráðið útveg- að 1 milljón marka. Áheyrnar- fulltrúar þátttökuþjóðanna Antti Siivola í f orsaeti Ólympiuráósins meö hoió- ursboróa sem fararstjór- arnir frá Litháen gáfu hon- um. greiða sjálfir fyrir uppihald sitt svo þeirra kostnaður er alveg fyrir utan fjárhagsáætlun. Eina launaða starfsfólkið eru 2 ritarar og sérlegur skrifstofustjóri leik- anna. Og Antti var ekki bara skipuleggjandi og framkvæmda- stjóri; hann átti aðalheiðurinn af að hanna og prófa verklega verkefnið um Píezo-sívalning- ana. Það var því ekki að furða að Antti var alltaf sjáanlegur mitt í hringiðu viðburða Ólymp- íuleikanna. En undirbúningur 23. Ólympíuleikanna einkenndist meira en nokkru sinni fyrr af ástandinu í alþjóðamálum. Þegar Sovétríkin liðu undir lok óskaði fyrrum sovéska eðlisfræðifélagið að senda keppnislið undir nafni Samveldisríkjanna. Því höfnuðu Finnar á þeirri forsendu að sam- tök sem Samveldisríkin sam- lýmdust ekki reglu Ólympíuleik- anna um þátttöku- þjóðir. Rússar óskuðu þá að keppa undir eigin fána og var það samþykkt en um leið sendu Finnar þátt- tökuboð til Úkraínu- manna sem óskað höfðu eftir að fá að keppa undir eigin fána. Finnar sendu einnig boð til Lett- lands, Litháens og Eistlands sem þáðu boðið nema Lettar. Ástandið í Júgó- slavíu olli Antti einn- ig nokkrum höfuð- verk. Upphaflega hafði hann boðið Júgóslövum að taka þátt og sent boðsbréf til Belgrad. Á sama tima óskuðu Króatar og Slóvenar að taka sjálfstæðan þátt í Ólympíuleik- unum. Málið leystist þegar Samein- uðu þjóðimar bönnuðu Serbum að taka þátt í alþjóðlegum við- burðum undir fána Júgóslavíu svo Antti sendi afboðun til Belgrad um leið og hann sendi boðsbréf til Króatíu og Slóveníu og báðar þjóðirnar Jfáðu boðið. Það varð því friður og eining á Ólympíuleikunum um þau mál sem stundum hafa valdið vand- ræðum og áhyggjum fyrir skipu- leggjendur alþjóðlegra móta sem þessa. „Ég sé fyrir mér að skipu- leggjendur Ólympíuleikanna gætu í framtíðinni þurft að taka tillit til miklu fleiri mála af sama tagi og hér hafa verið að skjóta upp kollinum,“ segir Antti enn- fremur. „Hræringarnar í Tékkó- slóvakíu eru öllum ljósar en það eru einnig annarskonar úrskurð- armál sem liggja í loftinu. Sjálf- stæðisraddir Baska og Kúrda gætu orðið háværari og þeir gætu óskað eftir þátttöku undir eigin fána í framtíðinni. Málefni Suður-Afríku eru einnig sérkap- ítuli sem Ólympíuráðið hefur ekki þurft að taka afstöðu til en gæti þurft á næstu árum.“ Dr. Ari Ólafsson, fyrsti áheyrnarfulltrúi íslands á Ólympiuleik- unum i eölisf rseöi, f ör til Espoo til aö kynnast ff ramkvæmd leik- anna. Hér sést hann milli íslensku fararst jéranna aé vinna aö þýöingu verkefnanna yfir á íslensku. Dr. Ari Olafsson, fyrsti áheyrnarfulltriji Islands Næg þekking og mannaf li til gd halda leikana á íslandi Sumarið 1990 samþykkti íslenska ríkisstjórnin að halda 29. Ólymp- iuleikana í eðlisfræði hér á landi 1998. Síðan hefur verið unnið á ýmsan hátt að undirbúningi leikanna hér á landi. Fyrstu drög að fjárhagsáætlun Ólympíuleikanna hafa verið samin og borin undir menntamálaráðuneytið og þar hafa einnig verið lögð fram drög að framkvæmdaáætlun sem miðar að því að nýta leikana hér á landi raungreinakennslu til framdráttar. Markvisst hefur verið unnið að því að breiða út þekkingu á framkvæmd Ólympíuleikanna meðal þeirra sem líklega munu standa að leikunum hér á landi 1998. Dr. Ari Ólafsson, starfsmaður Raunvísindastofnunár Há- skóla íslands, fór í þessu skyni sem fyrsti áheymar- fulltrúi íslands á Ólympíuleikana í eðlisfræði í Finnlandi. Hann fylgdist með störfum Ólymþíunefndarinnar og tók þátt í störfum fararstjór- anna, jafnt við þýðingar verkefn- anna og yfírferð úrlausna íslensku keppendanna. Hvert er hans mat á getu íslendinga til að vera gestgjaf- ar Ólympíuleikanna í eðlisfræði á íslandi þegar fjöldi keppenda verður orðinn 250, farastjórar verða 100, áheyrnarfulltrúar og aðrir gestir 50 og innlendir starfsmenn 100? „Framkvæmd leikanna hér á landi verður stórt verkefni og flókið en vel gerlegt með samstilltu átaki menntamálaráðuneytis, eðlisfræði- skorar HÍ, Eðlisfræðifélags íslands og Félags raungreinakennara. ís- lendingar em fámennasta þjóðin sem tekið hefur að sér að halda Ólympíuleikana í eðlisfræði en samt tel ég að í landinu sé til næg fagleg þekking og nægur fjöldi eðlisfræð- inga til að ráða við verkefnið svo sómi sé að. Ari telur að 29. Ólympíuleikarnir í eðlisfræði verði góð lyftistöng fyr- ir eðlisfræðikennslu í landinu og gefi íslenskum framhaldsskólakenn- uram tækifæri til að hitta starfs- bræður sína hvaðanæva úr heimin- um. Ólympíuleikar hér á landi munu skilja eftir fróðleik um fyrirkomulag eðlisfræðikennslu erlendis og verða framhaldsskólakennurum mikil hvatning. Tækjum í tugatali, sem þarf fyrir tilraunaverkefnin, verður dreift á skólana að leikunum lokn- um. Þá má minna á að í kjölfar heimsmeistaraeinvígisins í skák í Reykjavík fjölgaði stórmeisturum íslendinga mikið. Ólympíuleikarnir í eðlisfræði hér á landi munu vænt- anlega hafa áhrif í sömu átt og auka áhuga framhaldsskólanema á fræðigreininni. „Það var gagnlegt fyrir mig að fara sem áheyrnarfulltrúi á 23. Ólympíuleikana í eðlisfræði og kynnast kröfunum sem gerðar eru til verkefnanna og höfunda þeirra. Ánægjulegt var að kynnast eldhug- um á borð við formann Ólympíu- ráðsins, Pólveijanum Waldimar Gorzowsky. Þá var fróðlegt að sjá að mest sláandi veikleiki íslensku keppendanna var óöguð framsetn- ing á lausnunum. Þetta verður auð- velt að laga nú þegar við höfum komið auga á vandann," sagði dr. Ari Ólafsson að lokum. Fjórar stúlkur af 1 78 keppendum Eðlisfræöin ÞAÐ HEFUR löngum verið um- hugsunarefni hvers vegna hlut- fall kynjanna er eins ójafnt og raun ber vitni á Ólympíuleikun- um í eðlisfræði. Ástandið virðist vera svipað meðal allra þeirra þjóða sem þátt taka í Ólympíu- leikunum þannig að þegar best lætur eru 10% keppenda í lands- keppnunum stúlkur en síðan týna þær tölunni og fæst keppn- isliðin sem í Finnlandi voru stát- uðu af kvenkynskeppendum. Stundum hefur engin stúlka ver- ið í hópnum en flestar hafa stúlkurnar verið sex af um 150 keppendum og það var í Austur- ríki 1989 þegar tvær íslenskar stúlkur voru með á leikunum. Ólympíuleik- arnir í eðlis- fræði voru engin undantekning á regl- unni. Aðeins fjórar stúlkur vora meðal keppenda. Þær tóku sér tíma frá matnum næstsíðasta daginn til að tala við blaðamann Morg- unblaðsins og stilla sér upp fyrir myndatöku. Atburðurinn vakti svo mikla at- hygli að strákamir hópuðust út til að láta taka af sér mynd með stúlk- unum og allar fengu þær blaða- manninn til að taka af sér myndir á sínar myndavélar. Þær koma hver frá sínu landinu; Marija Ilcie er frá Króatíu, Katalin Varju er frá Ungverjalandi, Ifoeng Chin Joe er frá Súrínam og Christ- ina Koufetta er frá Kýpur. Christ- ina svarar flissandi spurningunni um hvort þær hafi áhuga á eðlis- fræði en hinar með alvörusvip. (1Já, það er gaman að vera á Ólympíuleikunum í eðlisfræði." Stúlkurnar fjórar fyrir utan Servinmökki þar sem kepp- endur mötuöust. frá vinstri: Marija llcic frá Króatiu, Ka- falin Varju frá Ungverja- landi, Ifoeng Chin Joe f rá Súrinam og Christina Kou- fetta frá Kýpur. er hljóölát 23 í heimalöndum allra voru tvær keppnir sem þær þurftu að ganga í gegnum áður en þær komust í Ólympíuliðið, nema í Króatíu þar sem engin tök voru á því að halda landskeppni eins og venjulega. „Ég tók bara þátt í einni keppni áður en ég kom hingað,“ segir Marija. „Meira að segja í Súrínam, þar sem aðeins búa 500 þúsund manns, þurfti ég að taka tvisvar sinnum þátt í eðlisfræðikeppni,“ segir Ifo- eng. „Hvers vegna skyldu svona fáar stúlkur vera duglegar í eðlisfræði?“ spyr blaðamaðurinn. Ekkert svar — svo spyr Katalin á móti „Hvers vegna heldur þú?“ „Kannski vegna þess að stúlkur fá minni hvatningu til að standa sig vel í eðlisfræði en strákar." Þögn. „Ég held að það sé vegna þess að eðlisfræði eru hlutbundin vís- indi. Strákum lætur betur að fást við hlutbundin fræði,“ segir Marija eftir nokkra umhugsun. „Stelpur vilja heldur vinna þar sem þær geta talað saman. Eðlisfræðin er hljóðlát grein.“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.