Morgunblaðið - 02.09.1992, Side 5

Morgunblaðið - 02.09.1992, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ AFLABROGÐ; ^MPVIKUDAGUR 2, SEPTEMBER 1992 B 5 * „ Ahugavert starf sem ég hlakka til að takast á við“ Fiskistofa formlega tekin til starfa FISKISTOFA tók formlega til starfa í gær, fyrsta september. Nýráðinn fiskistofustjóri, Þórð- ur Asgeirsson, er því að nokkru leyti kominn á heimaslóðir á ný, en hann var skrifstofustjóri í sjávarútvegsráðuneytinu í 11 ár fyrir um áratug. Mikill áhugi hefur verið á störfum hjá Fiskistof- unni og sóttu um 150 manns um 8 auglýstar stöður þar. Verkefni Fiskistofu verða ærin, enda komajþau frá sjávarútvegsráðuneytinu, Hafrannsóknastofnun, Fiskifélagi Islands og Rikismati sjávarafurða. Verið tók fiskistofustjóra tali og innti hann eftir verkefnum Fiskistof- unnar og hvernig honum litist á framvinduna: „Verkefni hinnar nýju Fiskistofu eru æði mörg. Þau koma frá sjávar- útvegsráðuneytinu, Hafrannsókna- stofnun og Fiskifélaginu og síðan er reiknað með því að hinn opin- beri þáttur ríkismats sjávarafurða komi í Fiskistofu um áramót. Frum- varp þess efnis var lagt fram á Alþingi á mánudag. Frá ráðuneyt- inu kemur fiskveiðistjórnin eins og hún leggur sig, það er útgáfa veiði- leyfa til fískiskipanna, stórra og smárra, og öll meðferð á veiði- heimildum, þar með talin til- færsla aflaheimilda milli skipa og fiskitegunda. Þá kemur eftir- litið með veiðunum, öflun upplýs- inga um veiðar einstakra skipa. Þessa dagana er verið að taka í notkun nýtt kerfl, svokallaðan Lóðs. Upplýsingar frá öllum hafnarvigtum á landinu eiga nú hér eftir að koma beint inn á tölvukerfi Fiskistofu. Vigtar- menn víðs vegar um landið slá upplýsingar um landaðan afla inn á tövlu, sem sendir þær svo inn í höfuðstöðvarnar á hverri nóttu. Þama verður safnað afla- skýrslum og kvótaskýrslum og reynt að fylgjast með veiðum hvers skips allan tíman. Greiðsla fyrir ólöglegan afla, af hvað orsök- um sem það er, farið yfir kvóta eða veitt á annan ólöglegan hátt, verður einnig i Fiskistofu. Þetta úrskurðar- vald verður því fært frá ráðuneyt- inu. Fiskifélagið verður verktaki við öflun upplýsinga Þá fer tölvudeild Hafrannsókna- stofnunar í heilu lagi inn í tölvumið- stöð Fiskistofunnar, en hún á að þjóna sjávarútvegsráðuneytinu, Hafrannsóknastofnun og öllum, sem þurfa á upplýsingum um veið- arnar að halda. Hin opinberu verk- efni, sem Fiskifélag Islands hefur haft undir höndum, fara einnig yfir til okkar. Þar er fyrst og fremst um að ræða öflun gagna frá fisk- Þórður Ásgeirsson. kaupendum og skýrslur frá þeim. Fiskifélagið mun reyndar fyrst í stað annast þessi verkefni áfram sem verktaki á ábyrgð Fiskistofu. Um áramótin verður mikil breyt- ing gerð á Ríkismatinu, hið eigin- lega fískmat verður gert að hlutafé- lagi, sem ríkið á öll bréfin í til að byija með, en selur síðan og vænt- anlega fá aðrir leyfi til að meta físk. Fiskistofa verður síðan sá opinberi aðili, sem samþykkir eða samþykk- ir ekki fyrirtæki, sem meta og votta sjávarafurðir og gefur út leyfí til vinnslustöðva að fengum uppfyllt- um skilyrðum og gefur síðan einnig út hin opinberu vottorð, sem hveiju sinni er krafízt og votta að fiskur- inn sé unnin á viðurkenndan hátt af viðurkenndu fyrirtæki með gæða- og framleiðslueftirlit í lagi. Þá kemur veiðaeftirlit sjávarút- vegsráðuneytisins yfír í heilu lagi, rúmlega 20 menn. Þeir starfa aðal- lega á skipunum úti á sjó og gera það í nánu samstarfi við Hafrann- sóknastofnun og munu gera svo áfram. Einstakur upplýsingabanki Þetta eru ærin verkefni og ætlun- in er að með sameiningu allra þess- ara þátta í einni stofnun náist sam- hæfðari og betri árangur. Þarna verður um að ræða upplýsinga- banka um sjávarútveg, sem er nán- ast einstakur í veröldinni, bæði hvað varðar hraða öflun upplýsinga og samtvinnun þeirra. í dag er fyrst og fremst um að ræða öflun gagna og tölvuvinnslu þeirra, þannig að hveiju sinni er hægt að fá upplýs- ingar um landaðan afla hvers ein- asta skips. Þessar upplýsingar verða eftir sem áður grundvöllur ýmissa hagrænna útreikninga og Iíklega mun Fiskistofan ekki láta við gagnasöfnun eina sitja, heldur vinna á vaxandi hátt úr þeim gögn- um, sem hún býr yfír. Þá verður hægt að gefa bæði heilstæðar og sérstræðar upplýsingar um nánast hvað sem er að gerast í veiðum og vinnslu. 150 sóttu um 8 stöður Það er áætlað að 62 stöður verði við Fiskistofu eftir að framleiðslu- eftirlitið kemur inn um áramótin. Nú þegar eru starfsmenn á milli 40 og 50 að meðtöldum 23 veiðaeft- irlitsmönnum og að miklu leyti er um það að ræða að starfsfólk flytj- ist á milli vinnustaða. Þó verður eitthvað um nýráðningar að ræða, þvi ekki koma starfsmenn með öll- um verkefnum, sem hingað koma. Það er verið að ganga frá ráðning- um þessa dagana, en þeim hefur seinkað nokkuð vegna gífurlegs §ölda umsókna. Alls sóttu um 150 manns um 8 auglýstar stöður, þannig að greinilega er mikill áhugi á að starfa hjá þessari stofnun enda áhugavert að byggja upp nýja og mikilvæga stofnun eins og þessa. Mér fínnst gott að koma til starfa innan vébanda sjávarútvegsráðu- neytisins á ný, enda sóttist ég eftir því að fá þetta starf. Ég er því ánægður, enda kunni ég alltaf vel við starf mitt í sjávarútvegsráðu- neytinu, þó ég hafí yfirgefið hinn opinbera geira um standar sakir til að starfa í einkageiranum. Ég tel að það hafí verið til bóta að hafa gert svo, það eykur á víðsýni manns, reynslu og þekkingu. Þetta er áhugavert starf og ég hlakka til að takast á við það,“ segir Þórður Ásgeirsson. RÆKJUBA TAR Nafn StwrA AfU Löndunarst. ÓLAFVR BJARNASON SH 137 104 4.9 1 Ólafsvik GARÐARIISH 142 164 3.2 1 ólafsvík SIGLUNESSH22 101 5.8 2 Grundarfjörflur FANNEY SH 24 103 3,1 1 Grundarfjörður GRUNDFIRÐINGURSH 12 103 2.0 1 Grundarfjörflur SÖLEYSH 150 63 1,3 1 Grundarfjörður SVANUHSHll) 88 7,3 2 Stykkíshólmur ÞÓRSNES SH 108 163 6,5 2 Stykkishólmur ÞÖRSNESIISH 109 146 6,5 2 Stykkíshólmur GUNNBJÖRN ÍS 302 57 2.8 1 Bolungarvík FLOStíS IS 204 6,7 1 Bolungarvík SÆBORG RE 20 233 12,5 2 ísafjörflur STEINUNN SH 167 135 7,7 Isafjörflur GÍSU JUL. (S 262 69 1.7 1 ísafjöröur ARNARNES St 70 372 22.8 2 ísafjoröur GEYSlRBA 140 186 8.6 2 ísafjörflur LATRAVlK BA 66 231 6.1 1 Isafjöröur VÍKURBERG GK 1 314 14.1 1 ísafjörður GAUKUR GK 6SO 181 4,3 1 Isafjörður HUGINNVE55 349 13.1 1 ísafjöröur ALBERT GK 31 316 17,9 1 laafjörður KORFÍIs 41 301 14,0 2 Súðavik HAFFARÍIS 430 230 23,0 2 Súðavfk SIGHVA TÚR BJARNAS. VE 81 370 4.0 1 Súðavík GEIRSH217 138 14,2 1 Hvammstangi SIGGISVEINS Is 29 104 8.3 1 Hvammstangi BJARMIHU 13 51 1.0 1 Hvammstangi GISSUR HVÍTt HU 35 165 11. i 1 Blönduós DAGFARIÞH 70 299 18.3 1 Btönduós INGIMUNDÚR GAMLIHU 65 103 4.9 1 Skagaströnd HÖFRUNGURIIGK 37 179 8.8 1 Skagaströnd HELGARE49 199 20,9 1 Siglufjöröur ÖGMUNDUR RE 94 187 20.2 1 Siglufjörtkjr KATRlNVE 47 178 14.2 1 Siglufjörður ARNEYKE50 197 12.6 1 SifllufiortSur BJÖRG JÓNSDÓffÍR IIÞH 320 273 14,6 1 Husavík KRISTEYÞH44 50 4.1 1 Husavík KRISTBJÖRGIIÞH 244 192 19,5 11 Húsavík ISBORGBA 477 65 7,3 1 Húsavik RÆKJUBA TAR Nafn Staard AHI Löndunarst. GUÐRÚN BJÖRG ÞH 60 57 1,3 1 Húsavík ÞORLEIFUR EA 88 51 1.6 1 Húsavík HAFBJÖRG EA 23 87 6.2 1 Húsavík JÓN KJARTANSSON SN 111 775 27 1 Eskifjörður GUÐRÚN ÞORKELSD. SH 211 365 20 1 Eskifjöröur ÞÓRIRSF 77 125 23 1 SfjÖRNÚfÍNDURSU W9 138 11 1 Eskifjörður GUÐFINNURKE 19 30 1.3 2 Sandgarði HAFBORG KE 12 26 0.2 1 Sandgerði SVEINN GUÐMUNDSS GK315 21 0.4 1 Sandgarði ÞORSTEINN KE 10 28 1,3 2 Sandgerði VALAÓF2 30 1.1 2 Sandgerði ERLING KE 140 278 8.0 1 Keflavik JðKUUSH IS _ Kjj 74 4,2 1 Keflavik 1 SKELFISKBÁ TAR Nafa Stanrð AfH SJÓfarAir Löndunarmt. HAUKABERG SH20 104 3$4 6 Grundarftörður FÁRSÆLL SH 30 101 39,4 4 Grundarfjörður A RNFINNUR SH 3 117 50,0 5 Qtyk^í^mir] ARSÆLL SH 88 103 49.5 5 Stykkishólmur [GRETVRSH104 GlSLI GUNNARSSONIISH 85 148 49.0 5 Stykkishólmur 18 9.0 2 Stykkishólmur ARNARSH 157 16 18,7 4 Stykkishólmur ALDAN ÍS47 29 3.1 2 isafjörður I LOÐIMUSKIP Nafn StasrA Afll SJMarAir Löndunarmt. !BERGURVE44 266 510 1 Raufarhöfn SJÁVÁRBÖRG C,K 60 452 649 1 Raufarhöfn ; BÖRKUR NK 122 711 433 1 Naskaupstaður HILMIRSU 171 642 1093 1 Neskaupstaöur ! HÓLMABORG SU 11 937 402.0 1 Eskifjörður MT I fararbroddi í fimmtíu ár Magni Johnsen, sölustjóri Simrad fyrir Norðurlöndin, afhendir Ögmundi og Lindu listaverk i afmælisgjöf. FYRIRTÆKIÐ Friðrik A. Jónsson hf., sem selur siglinga- og fiskileitartæki og er þekktast. fyrir umboð sitt fyrir Simrad, fagnaði hálfarar aldar starfsafmæli á dögunum. Friðrik A. Jóns- son stofnaði fyrirtækið 1942, en núverandi eigendur þess eru sonur hans, Ögmundur Friðriksson og eiginkona Ögmundar, Linda Michelsen. Hjá fyrirtækinu starfa 8 manns í nýlegu hús- næði þess við Fiskislóð í Reykjavík. Friðrik A. Jónsson hóf starfsemi sína fyrst á sviði útvarpsvirkjun- ar og sölu útvarpstækja og kvikmyndasýningavéla. Síðan gerðist það, að Villy Simonsen, (Simrad) þróaði sérstakan sónar fyrir kaf- báta í seinni heimstyijöldinni, en þessi tækni nýttist svo síðar við fískileit. Eggert Gíslason tók fyrstur íslenzkra skipstjóra sónarinn um borð í bát sinn Víði árið 1955, en þá var FAJ komið með um- boð fyrir Simrad, sem framleiddi sónarinn. Síðan hefur framþróunin verið afar ör með Simrad, Friðrik A. Jónsson og íslenzka skipstjóra í fararbroddi. Auk sónarsins framleiðir Simrad nú vandaða dýptar- mæla og höfuðlínusónar, en FAJ er nú með siglinga- og fiskileitar- tæki frá Simrad, Shipmate, Tokimec og JMC, svo og kallkerfi frá Vingtor, svo dæmi séu nefnd. Ógmundur Friðriksson, framkvæmdastjóri FAJ hefur starfað við fyrirtækið frá unga aldri. Hann segir tækninni hafa fleygt mikið fram á þeim tíma, og nú bjóði Simrad upp á fulikomna djúpsjávar- mæla, sem fullnægi þörfum íslenzka flotans vel. Þá séu um 90% þeirra skipa, sem stundi veiðar á úthafskarfa, með höfuðlínusónar frá Sirhrad. „Samkeppnin hefur harðnað mikið á síðustu árum, með fjölgun framleiðenda á siglinga- og fískileitartækjum og umboðs- mönnum þeirra hér heima. Samkeppnin fer þó fram í fyllsta bróð- erni, enda hefur FAJ alið flesta núverandi keppinauta sína upp. Þetta hefur verið áhugaverður tími og maður hefur eignazt marga góða vini meðal útgerðarmanna og sjómanna," segir Ögmundur. Námstefna um gæðamál fiskiðnaðarins 16. til 19. september á Holiday Inn 24 fyrirlestrar á 3 dögum Námstefnunni er ætlaö aö vera vettvangur umræöna um þá erfiðleika sem fylgja síauknum gæðakröfum, en jafriframt þá möguleika sem nýjar aðferðir í gæðamálum hafa opnað. Fyrirlesarar verða frá skólum, stofnunum og sjávarútvegsfyrirtækjum frá fimm löndum. Auk íslenskra fyrirlesara munu sérfræðingar frá Danmörku, Þýskalandi, írlandi, Frakklandi og Portúgal taka þátt í námstefnunni bæði sem fyrirlesarar og þátttakendur. Námstefnan fer fram á ensku. Meðal viðfangsefna: Yfirlit yfir stööu gæöamála í fiskiðnaöi; íslenskt og evrópskt sjónarhorn. Tengsl fiskveiðistjórnunarog skipulags gæðamála. Meöhöndlun afla um borö í frystitogurum. Skráning og úrvinnsla gagna. Gæöaeftirlit viö stjórnun, vinnslu og markaössetningu. Gæöavottunarkerfi; ISO staölar og HACCP greining. Gæöastuölar; ytra og innra gæðaeftirlit. Markaðssetning og vöruþróun í Evrópu. Rannsóknir, þróun og starfsmenntun; kynningar á ýmsum nýjungum í vinnslu og markaðssetningu. Skráning í símum: 91-694920/694940 Nánari upplýsingar í síma: 91-694902 SAMMENNT ☆ Samstarfsnefnd atvinnulífs og skóla um menntun 'w’ og þjálfun í tengslum við COMETT

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.