Morgunblaðið - 18.09.1992, Page 11

Morgunblaðið - 18.09.1992, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. SEPTEMBER 1992 B 11 Eagle Vision frá Chrysler. Eftirspurn eftir Dodge Viper er þegar meiri en verksmiðjurnar fá annað. Bíllinn verður seldur sem Chrysler Viper í Evrópu. Jeep Grand Cherokee er lengri en fyrir- rennararnir. Hann er væntanlegur á markað í Evr- ópu í janúar. Chrysler hefur nýverið sett á markaðinn vestanhafs en þeir hafa hlotið einróma lof reynsluöku- manna sem tala um þá sem bílana sem gera muni Chrysler kleift að bera sig áfram saman við GM og Ford. í Vision þykir hafa tekist að nýta farþegarýmið sérlega vel auk þess sem vel er látið af aksturseig- inleikum þessa framhjóladrifna fímm manna stallbaks með 3,5 lítra, 214 hestafla, 24 ventla V6 vél. Þá eru LH bílar Chrysler enn ein varðan á vegi til hertra ör- yggiskrafna í staðalbúnaði bif- reiða. Þeir verða allir með loftpúð- um fyrir ökumann og farþega í framsæti og ABS hemlakerfi. í Bandaríkjunum kosta Vision nú frá jafnvirði 850 þúsunda til um 1.150 þúsunda króna (17 til 23 þúsund dalir) en það verð veit- ir síður en svo nokkra vísbendingu um hvað bíll þessi muni kosta hér á landi og annars staðar í Evrópu. Þriðja frumsýning Chrysler í París verður á nýrri útgáfu á góð- um kunningja íslendinga: Jeep Grand Cherokee. Hann er 24 cm, lengri en sá Cherokee sem hingað til hefur verið fáanlegur, og fæst með 4 lítra, 190 hestafla, V6 vél eða 5.2 lítra V8 vél. Ný hönnun á ijórhjóladrifi, ABS hemlar, loft- púði fyrir ökumann og fleira verð- ur staðalbúnaður í þessum jeppa sem kemur á markað í Evrópu í janúar 1993. ■ Slasaðir og lótnir í umferðinni 1978-1991 vSnmkvæml skróningu lögreglu BH Litið slasaðir □ Mikið slasaðir ■i Lótnir ----------- h i i n i i i i i i i—i i 1 l_l Iwl_iBlHli 1978 1979 1980 1981 1982 1983 1984 1985 1986 1987 1988 1989 1990 1991 Ökumenn kærðir fyrir meinta ölvun við akstur samkvæmt skróningu lögreglu 1100 1000 900 800 700 600 500 400 300 200 h íoo 0 1981 |l982 i n.iin'n nin 2600 2400 2200 2000 1800 1600 1400 1200 1000 800 600 400 200 0 umferð þarf að ákveða hvor þeirra skuli hafa forganginn og hvemig koma eigi fyrir umferðarljósum og beygjuakreinum á þeirri götu sem ekki nýtur forgangs. Eigi umferð að vera óhindruð kemur helst til greina svonefnd fjögurra blaða smára lausn og var það ein af hugmyndum Gunn- ars. Svonefnd tígulgatnamót gera ráð fyrir óhindraðri umferð á ann- arri götunni, t.d. þeirri neðri, en hin liggi yfir á brú með aðreinum eða römpum sem mynda tígul. Á brúnni er gert ráð fyrir umferðarljósum. Teiknaði Gunnar tvær lausnir á tígul- hugmyndinni. Fjórða hugmynd Gunnars var sú að óhindruð umferð yrði á neðri götunni en byggt yrði hringtorg fyrir efri götuna og að þar yrðu þá ekki umferðarljós. Við skilgreiningu á umræddum gatnamótum er helst til umræðu að umferð verði óhindruð um Miklu- braut. Skoða þarf þá næstu gatna- mót (við Háaleitisbraut, Grensásveg, Réttarholtsveg/Skeiðarvog) og ákveða hvort þau þurfi einnig að vera mislæg til að ekki myndist flöskuhálsar þar. Á sama hátt verður að skoða næstu gatnamót á Kringlu- mýrarbraut. Tillögurnar sem nú er unnið að verða kynntar Vegagerð ríkisins og leitað samþykkis henrtar ásamt því sem um þær verður fjallað í borgarráði. Einnig þarf að koma þessari framkvæmd inn á vegaáætl- un. Ljóst er að sjálf framkvæmdin við þessar breytingar verður erfið enda munu þær taka nokkra mánuði. Sæmilegt rými er þó við gatnamótin þannig að unnt ætti að vera að leiða umferðina framhjá. í þessu sambandi er einnig til skoðunar að ljúka gerð svonefnds Hlíðarfótar sem liggja á i sunnan við kirkjugarðinn í Fossvogi og tengjast Hringbraut við Sóleyjar- götu. Það bíður þó síðari tíma að útfæra sjálfa framkvæmdina. ■ Jóhannes Tómasson - j VIÐHALD OG VIÐGERÐIR Það getur verið dýrt að vanrækja tímareimina BREYTINGAR á bílvélum í timans rás hafa einkum beinst að tvennu: að auka nýtni þeirra og létta þær. Á árum áður var algengt að inn- og útblástursventlum væri komið fyrir í blokkinni sjálfri til hliðar við strokkinn. Ventlarnir voru þá í beinu sambandi við kambásinn svipað og í vélum með yfirliggjandi kambás nú á tímum. Til þess að auka þjöppuhlutfall vélanna varð að breyta lögun brunahólfsins og því voru ventlarnir fluttir upp fyrir strokkana en kambásinn var á sínum stað áfram. Þessi breyting krafðist flókins búnaðar til þess að tengja kambás og ventla og á honum voru ýmsir annmarkar. Vélar með hliðarventlum voru smám saman lagðar fyrir róða og svokallaðar toppventlavélar komu í staðinn. Til þess að létta vélarn- ar var kambásinn fluttur upp auk þess sem farið var að smíða ýmsa hluta þeirra úr álblöndu. Að vísu voru yfirliggjandi kambásar engin nýjung en segja má að nú séu þeir alls ráðandi í bílvélum. Til þess að snúa kambásnum er ýmist höfð keðja eða tannreim úr gerviefni, tímareim eins og hún kall- ast. Ókosturinn við keðjurnar er sá að þær lengjast þegar þær slitna og því þarf að strekkja þær sé ekki sjálf- virkur búnaður hafður til þess. Tíma- reimar eru mun algengari en tímak- eðjur ekki síst vegna þess að þær eru fyrirferðarminni og léttari eins og raunar allur búnaður sem þeim fylgir. Þær endast á hinn bóginn skemur en eru ódýrari og auðveldara að skipta um þær. Það láta einmitt margir undir höfuð leggjast að gera, annað hvort af því þeir vita ekki að til þess er ætlast eða að þeir ætla að bíða með það aðeins lengur. Sú vanrækslusynd getur stundum orðið æði dýr ef reimin bilar. í stað þess að kaupa nýja sem kostar kannski 2 til 3 þúsund. kr. og tiltölulega fljót- legt er að skipta um getur synda- kvittunin hljóðað upp á 50 þús. kr. eða jafnvel enn meira. Tímareim endist einungis ákveð- inn kílómetrafjölda. í sumum bílum kviknar viðvörunarljós í mælaborð- inu þegar skipta á um hana. Annars er gefið upp í handbók bílsins hve- nær á að endurnýja hana og er rétt að fletta því upp þegar búið er að aka bílnum 50 þús. km eða hann er orðinn tveggja til þriggja ára gamall. Þegar keyptur er notaður bíll er t.d. mikilvægt að kynna sér hvort búið sé að setja í hann nýja tlmareim. Hún getur nefnilega gefið sig eins og hendi sé veifað. Slíkt gerir yfirleitt engin boð á undan sér, allt er eins og það á að vera og ekkert torkennilegt hljóð heyrist. Vélin drepur skyndilega á sér og tekur ekki við sér meir en auðvitað er reynt til þrautar að koma henni í gang, jafnvel draga bílinn. Til þess að sjá hvort tímareim sé farin eru tvær aðferðir. Stundum má sjá það ef olíulokið er fjarlægt og vélinni snúið. Ef kambásinn snýst ekki þarf tæplega að velkjastn vafa um hvað gerst hefur. Önnur aðferð er að opna kveikjuna ef um bensín- vél er að ræða en ekki er síður al- gengt að dísilvélar hafí tímareim. Ef kveikjan snýst ekki er sama upp á teningnum og áður, tímareimin hefur runnið sitt skeið á enda. í mjög mörgum bílum er því svo varið að einn snúningur vélarinnar eftir að reimin er farin dugar til að beygja nokkra ventla en það kostar að taka verður ofan af vélinni og skipta um þá. í öðrum gerist ekkert hversu oft sem vélinni er snúið. Augljóst er að betra er að skipta um reimina fyrr en síðar eða láta skipta um hana og í sjálfu sér er það ekki mikil framkvæmd eins og áður segir. Þeir sem treysta sér til þess geta haft eftirfarandi leiðbein- ingar til hliðsjónar. Höfuðvandinn getur verið að finna tímamerkin en þau eru þijú eins og sjá má á mynd- inni. Fyrst verður að snúa vélinni svo að tímamerki á trissu og framan á vélinni standist á. Því næst verður að fjarlægja viftureim eða reimar, trissuna sjálfa og hlífar yfir tíma- reim. Auðvelt er að sjá merkin á sjálfum hjólunum eins og myndin sýnir og þá liggur í augum uppi hver hin eru ef reimin er ekki farin. Hjólið, sem ekkert merki er á, er strekkjari til þess að taka slaka af reiminni og verður fyrst að losa upp á honum, spenna hann frá og festa riðan. Þá er auðvelt að smokra reim- inni af. Þegar nýja reimin er komin á sinn stað þarf enn að gæta þess að öll merki standist á og að allur slaki sé á reiminni þeim megin sem strekkjarinn er, ekki hinum megin. Þessu næst er losað upp á strekkjar- anum. Hann tekur slakann af og þá er óhætt að festa hann aftur. Ef öll merki standast enn á er rétt að snúa vélinni nokkra snúninga, huga að merkjunum á ný og fullvissa sig um að ekki skeiki um eina tönn. Að vísu ylli það engum skemmdum á vélinni þó að svo væri. Hins vegar gengi hún ekki sem skyldi. ■ Sveinn Þórðarson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.