Morgunblaðið - 24.09.1992, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. SEPTEMBER 1992
15
Sr. Karl Sigurbjörasson
139) og bæn fyrir flugferð (nr. 124).
Hér er ekki verið að predika yfir
fólki í þeirri neikvæðu merkingu sem
oft er talað um, heldur er því fylgt
á vegi trúarinnar og rætt við hvern
og einn þar sem hann er. í eftir-
mála skrifar Karl Sigurbjörnsson:
Þorleifur Oskarsson
við að komast að slíkum niðurstöð-
um.
í öðru lagi eru ýmsar ástæður
til þess að draga í efa þessa niður-
stöðu um réttmæti verka Nýsköp-
unarstjórnarinnar eða hafa fyrir-
vara á henni. Það er ljóst, að allar
aðstæður í lok styijaldarinnar voru
sérstakar, svo ekki sé meira sagt.
Kreppan á fjórða áratugnum olli
efasemdum um, að frjálst framtak
réði fyllilega við úrlausnarefni at-
vinnulífsins, íslenzk velmegun
stríðsáranna virðist hafa dregið úr
átökum í þjóðfélaginu og viðskipti
við önnur lönd virðast hafa verið
háð því, að samið væri við einn
aðila hér, sem eðlilega var þá ríkið.
Við þetta bættist svo striðsgróðinn
og hvemig ætti að verja honum.
Einnig verður að huga að því, að
ekki voru miklir möguleikar á
myndun öðruvísi samsettrar stjóm-
ar á þessum tíma. Það virðist því
allt hafa hnigið að því, að þessi
stjóm myndaðist og hún gripi til
ráða af því tæi, sem hún gerði.
En það er ekki þar með sagt, að
það sé ósatt, að hún hafi verið
eyðslustjórn. Þessu héldu fram-
sóknarmenn fram um Nýsköpunina,
en það er enginn löstur á skoðun,
að framsóknarmenn trúi henni. I
þessari bók er vitnað í ritgerð eftir
Óðinn Jónsson, þar sem hann kemst
að sömu niðurstöðu. Það er engin
mótsögn á milli þess, að kannski
hafi ekkert annað verið mögulegt
en Nýsköpunin og aðgerðir hennar,
og þess, að hún var eyðslustjóm.
Ég hygg, að ein ógæfa eftirstríðsár-
anna sé einmitt víðtæk afskipti
stjómmálamanna af þessum mikil-
vægasta atvinnuvegi þjóðarinnar,
sem við höfum ekki bitið úr nálinni
með enn. Þau hófust með Nýsköp-
uninni.
Um þetta mætti hafa lengra
mál, en aðalatriðið er, að hér er á
ferðinni góð bók um merkilegt efni.
„Ritaðar bænir eru eins og handtak
til stuðnings, hjálpar, hughreysting-
ar. Stundum þurfum við slíkt hand-
tak, stundum ekki. Bæn er trúnaðar-
samtal við Guð. Við megum tala við
hann um allt sem okkur liggur á
hjarta. Mikilvægt er að minnast að
bænin er líf, andans andardráttur,
en ekki reglur og form eða aðferðir
til að virkja máttarvöldin." í þessari
bók finnum við bænir og vers sem
margir kannast við, svo sem: „Vertu
yfir og allt um kring...“ og Vertu
Guð faðir faðir minn ...“. Aftast í
bókinni eru auðar síður ætlaðar fyr-
ir eigin bænir og hugleiðingar.
Víða er leitað fanga í þessa bók
og að því leyti til er hún samkristin,
þ.e.a.s. fer ekki í manngreinarálit
hvað varðar kirkjudeiid. Hún geymir
fjölda bæna frá frumkristni til þessa
dags. Hins vegar er hún að sjálf-
sögðu fyrir íslenska lesendur og því
eðlilegt að vísað sé til sálmabókar
íslensku þjóðkirkjunnar og kirkju-
ársins samkvæmt handbók þeirrar
kirkju. Sigurbjörn Einarsson biskup
leggur töluvert til þessarar bókar,
m.a. formálann og ýmsar bænir. Þar
mætir lesandanum reynsla trú-
mannsins og innsæi fræðimannsins,
en þess má geta að Sigurbjörn ann-
aðist á sínum tíma kennslu í trúar-
lífssálarfræði við guðfræðideild HÍ.
í bókinni eru stuttir fræðslukaflar
og leiðbeiningar um kirkjuárið, helg-
isiði og biblíulestur. Þessir kaflar eru
hnitmiðaðir sem er kostur því fólk
gefur sér ekki tíma til að lesa heilar
ræður eða margra síðna hugvekjur.
Sumt af þessu eru hreinar perlur,
hnitmiðuð speki á kjarnmiklu al-
þýðumáli þannig að hver og einn
getur skilið og margt situr eftir við
lesturinn. Þetta eru hugvekjur í orðs-
ins fyllstu merkingu. Lesandinn er
vakinn til vitundar um eitthvað sem
hann hefur e.t.v. sjálfur verið að
velkjast með innra með sér, hughrif
og kenndir en ekki getað sett þær
fram í ljósri hugsun eða með orðum.
Þá getur það verið upplifun að finna
að svipaðar ef ekki sömu hugsanir,
þarfir og þrár bærðust með þeim sem
mótuðu kristna arfleifð gegnum ald-
irnar. Til að finna okkur sjálf verðum
við oft að hverfa til baka til þeirra
sem á undan hafa gengið og þá erum
við betur í stakk búin til að mæta
því sem koma skal.
Þessi bók er ekki bara fyrir þann
sem lokað hefur að sér og hugleiðir
lífið og tilverunna með sjálfum sér.
Hún er upplögð fyrir félög, samtök
og samkomur þar sem helgistundum
verður við komið, morgunbænum og
kvöldbænum. Með þessa bók við
hönd ætti hver einn að geta tekið
slíkt að sér. Á sinn hátt má líta á
hana sem framhald fermingarkvers-
ins. Oft hefur verið talað um að það
sé eins og fermingin sé útskrift úr
kirkjunni. Fólk kemur ekki aftur
fyrr en það þarf að gifta, skíra eða
jarða. En það verður ekki sagt um
þann sem heldur áfram með leiðsögn
þessarar bókar.
' Bænabókin er tilbúin að velkjast
og ferðast með lesendum langa leið.
Hún er prentuð á endingargóðan
pappír og fer vel í bijóstvasa og
veski. Ljósmyndirnar eftir Björn
Rúriksson eru líka hugvekjur út af
fyrir sig. Litimir komast vel til skila
og myndefnið talar sterkt á sínu
þögla máli. Skálholtsútgáfan á heið-
ur skilinn fyrir útgáfu þessarar tíma-
bæru bókar.
Ráðstefna um opin keifi
og endurmat á tölvuvalkostum
Fyrirtæki og stofnanir leita nú nýrra leiða til að vera
sveigjanlegri, hafa betri yfirsýn yfir reksturinn og draga úr
kostnaði. Krafan er sú að tölvukerfin séu sveigjanleg, opin
og í takt við breytta tíma.
Þessar breytingar valda því að mörg fyrirtæki eru nú að
leita að heppilegum samstarfsaðilum á þessu sviði.
HP á íslandi er í fararbroddi á sviði opinna kerfa sem
byggjast á stöðlum. HP hefur mjög breiða tölvulínu sem er
samkeppnisfær bæði hvað snertir afköst og verð. HP er í
samstarfi viðfyrirtæki sem eru í fremstu röð á hugbúnað-
arsviðinu og saman er boðin heildarlausn.
Ráðstefna 25. september
Hin öra þróun sem hefur átt sér stað á undanförnum
árum á sviði tölvutækninnar kallar á nýjar lausnir sem
nauðsynlegt er að kynna. Þess vegna efnirHP á íslandi til
ráðstefnu 25. september næstkomandi um opin kerfi
sem valkost við stórtölvur. Með undirtitli
ráðstefnunnar - "Hugsaðu þig um" - er vísað
til þess endurmats á tölvuvalkostum sem
nú á sérstað hjá fyrirtækjum um allan
heim. Ráðstefnan verður haldin
á Hótel Holiday Inn frá
kl. 13.30 -16.30.
Dagskrá
• HP á íslandi hf. Frosti Bergsson, framkvæmdastjórí,
setur ráðstefnuna og ræðir stöðu mála hér á landi.
• Software AG. Jim Holme, framkvæmdastjórí SAG í
Þýskalandi, ræðir um stefnu SAG varðandi opin kerfi og
slík kerfi sem valkost við stórtölvur.
• Andersen Consulting. 0yvind Ottersted, verkráðgjafi
frá A.C., ræðir um undirbúning breytinga úr stórtölvu-
umhverfi í opin kerfi.
• Computer Associates. fan Laugesen, markaðsstjóri C.A.
í Skandinavíu, fjallar um opin kerfi sem valkost við stór-
tölvur. Computer Associates hefurfært mikið afstórtölvu-
búnaði sínum yfirí opið umhverfi.
• Hewlett-Packard. Ole Host, markaðsstjóri HP í
Danmörku, ræðir um
stefnu Hewlett-
Packard.
Flestir
fyrirlestrarnir
verðafluttir
á ensku.
Aðgangur ókeypis.
Vinsamlega tilkynnið
þátttöku til Áslaugar
Kristinsdóttur
ísíma 671000.
OPINKERFIFRA HP SEM VALKOSTUR Vlfí STORTÖLVUR
MflSíil
H|
HEWLETT
PACKARD
UMBOÐIÐ
HP A ISLANDI HF
Höfðabakka 9, Reykjavt'k, sími (91) 671000
Frá möguleika til veruhika