Morgunblaðið - 24.09.1992, Blaðsíða 36
36
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. SEPTEMBER 1992
Jónína ÞóraHelga-
dóttír — Minning
Fædd 16. júlí 1946
Dáin 15. september 1992
Ég hef ofurtrú á jákvæðni og
hana lærði ég á Staðarfelli. Nína
var gangandi dæmi um hvað já-
kvæðni getur gert fólk skemmtilegt
og ljúft.
Það eru næstum sjö ár liðin síðan
ég kom vetrarkvöld eitt að Staðar-
felli, fullur af kvíða og ótta. Það
var Nína sem tók á móti mér með
augun full af brosi og hlýju. Sam-
'býlismanni hennar, Guðmundi
Vestmann, var ég kynntur fyrir
daginn eftir og þá .vissi ég að með
svona fólk sem leiðbeinendur mundi
dvölin ekki verða mér svo slæm.
Þær fjórar vikur sem ég dvaldi á
Staðarfelli eru einn besti tími ævi
minnar. Og áttu þau Nína og Guð-
mundur stóran þátt í því að svo
varð.
Það var ekki bara fólk sem laðað-
ist að Nínu, það gerðu kettir líka.
Ég trúi því að kettir velji sér fólk
og heimili en ekki öfugt og það
fólk sem kettir velja sér er fólk
með sérstaka skapgerð og innsæi,
fólk sem geislar. Og Nína hafði
þetta sérstaka, sem erfitt. er að
útskýra, í ríkum mæli. Þegar ég
var á Staðarfelli átti hún bæði
síamskött og norskan fjallakött sem
sló öllum köttum við í fegurð og
atgervi. Það voru fáir og útvaldir
sem fengu að stijúka honum og þá
aðeins samkvæmt beiðni Nínu. Ef
honum var strokið í leyfisleysi var
viðkomandi í vondum málum.
Síðan ég kynntist Nínu og Guð-
mundi hefur mér alltaf fundist í
hjarta mínu að þau væru eitthvað
meira en vinir, því það fólk sem
íærir manni aftur trúna á lífið og
sýnir manni gleðina í hjartanu er
kannski eins og foreldrar á sinn
máta.
Dauðinn er óhjákvæmilegur.
Sumum finnst hann koma of fljótt,
öðrum of seint, og sumir afneita
honum og vilja ekki mæta honum.
Samt er svo, að dauðinn er það eina
sem við vitum með vissu að verður
ekki umflúið. Ég trúi því að lífið
sé meðal annars undirbúningur
undir þann fund. Ef það er rétt er
Nína vel undirbúin undir hvað sem
verður.
Sorgin er bakhlið gleðinnar. Án
sorgarinnar myndum við ekki
þekkja gleðina. Nína er farin, en
ég á minningar, góðar, hlýjar minn-
ingar um konu sem var full af lífi,
gleði og kærleika og síðast en ekki
síst: full af jákvæðni.
Elsku Guðmundur, ég votta þér
og öðrum aðstandendum mína
dýpstu samúð.
Bubbi Morthens.
Mig langar til að minnast hennar
Nínu vinar míns með nokkrum orð-
um. Ég kynntist henni upp í
Reykjadal, en þangað kom hún til
mín í áfengismeðferð. Síðan þá
hefur líf okkar verið meira og minna
samtvinnað. Hún var með mér í
fyrsta hópnum, sem fór að Staðar-
felli og sá um matinn ásamt manni
sínum. Fijótlega vann hún sig þó
upp í að verða ráðgjafi, sem varð
hennar starf upp frá því. Áfengis-
ráðgjafi, hvað er nú það. Hún Nína
var með í að móta þetta starf og
hefja það til vegs og virðingar. Nú,
þegar hún er öll, söknum við
ákveðni hennar, gleði hennar og
ekki síst getu hennar að tala um
sjálfa sig. Kosti sína og galla.
Ég kvep minn kæra vin og veit
að henni gleymi ég aldrei.
Grettir.
f
Það var miðsumar 1984 er ég
kynntist Jónínu Þóru Helgadóttur,
eða Nínu eins og hún var kölluð,
og manni hennar, Guðmundi Vest-
manrn Þau störfuðu bæði sem ráð-
gjafar hjá SÁÁ á Staðarfelli vestur
í Dölum.
Nína átti stóran þátt í því að líf
ftiitt breyttist úr víti til velferðar. Á
hveijum morgni er ég dvaldi í með-
í ferð á Staðarfelli var hún vön að
segja við okkur er þar dvöldum að
hún væri búinn að leggja inn á
bankareikning lífshamingjunnar
gleði, jákvæðni og hamingju og
væri tilbúin til að takast á við verk-
efni dagsins, hver svo sem þau
væru. Hún var vön að segja við
okkur að þetta væri eini banka-
reikningurinn í heimi sem ávallt
væri tómur að kvöldi, en næg inn-
stæða fyrir að morgni. Það var svo
undir hveijum og einum komið
hvernig hann varði innstæðunni, en
vextimir væru lífshamingja.
Það fór ekki framhjá neinum er
Nínu þekkti hvemig hún varði inn-
stæðu sinni.
Hún var jákvæð, glaðvær og
góður hustandi og var ávallt tilbúin
að aðstoða þá er til hennar leituðu.
Hún var smekkmanneskja mikil á
fatnað og sagði að sjálfstraustið
byijaði á útlitinu og hvatti fólk tií
að horfa ófeimið í spegil til að
þekkja sjálft sig og útlit sitt.
Hún var næm á líðan fólks. Man
ég sérstaklega eftir þrítugsafmæli
mínu á Staðarfelli.
Ég hafði ekki fengið neina af-
mælisgjöf þann daginn og leið bölv-
anlega og fór upp á herbergi miður
mín. Eftir smástund birtist Nína
með klút sem hún hafði keypt á
ferðalagi í Texas og færði mér að
gjöf. Samstundis tók ég gleði mína
og á ég þann klút enn þann dag í
dag.
Upp frá þessari stundu urðum
við miklir vinir fram á síðasta dag.
Eftir að ég útskrifaðist af Staðar-
felli vantaði mig íbúð í Reykjavík
og enn kom Nína til hjálpar og leigði
mér íbúð sína og Guðmundar á
Njálsgötunni og bjó ég þar fyrstu
ijögur árin í edrúmennsku minni
og kom hún oft í heimsókn til mín
og veitti mér holl og góð ráð.
Ári eftir að ég útskrifaðist frá
Staðarfelli var Styrktarfélag Stað-
arfells stofnað að undirlagi Guð-
mundar og Nínu og tóku þau virkan
þátt í starfsemi félagsins.
Ég var fenginn til þess að ann-
ast fyrstu útihátíðirnar sem haldnar
eru einu sinni á ári á Staðarfelli
og voru margar ferðirnar famar
vestur til að undirbúa hveija útihá-
tíð fyrir sig.
Það skemmtilegasta við ferðirnar
var að heimsækja Guðmund og
Nínu. Þá var oft hlegið og spjallað
langt fram eftir nóttu. Guðmundur
var þá forstöðumaður á Staðarfelli
og var fastur fyrir með sínar skoð-
anir á ýmsum hlutum sem ekki féllu
alltaf að okkar hugmyndum og
honum varð ekki haggað hvað svo
sem við sögðum eða reyndum að
rökræða við hann. Þá var ekkert
annað að gera enn að byija að plotta
og alltaf tók Nína þátt í því með
okkur og gafst ekki upp fyrir en
hún hafði sitt í gegn. Oft var svo
komið að vart mæltist manni orð
af munni sökum óstöðvandi hlát-
urskasta.
Styrktarfélag Staðarfells stendur
í mikilli þakkarskuld við Guðmund
og Nínu og verður hennar ávallt
saknað þar sem annars staðar.
En lífshamingjan leikur ekki við
okkur öll til endaloka og það olli
miklum sársauka þegar fréttist að
Nína ætti í stríði við miklu verri
óvin en alkóhólismann og að þessu
sinni var óvinurinn krabbamein.
En hún bar höfuðið hátt og lét
hvergi bilbug á sér finna, svo að
þeir sem ekki þekktu til vissu ekki
að þama gekk kona haldin slíkum
sjúkdómi
Hinn 25. júlí síðastliðinn var mik-
ill gleðidagur hjá mér því þá gekk
ég í hjónaband og kvæntist nöfnu
hennar. Ekki vissi ég fyrr enn um
kvöldið að Nína hafði verið búin að
undirbúa sig í viku með allskonar
lyfjameðferð til að geta komist í
brúðkaupið og enn vakti hún at-
hygli á sér fyrir glæsilegan klæða-
burð og glaðværð þótt hún kenndi
mikils lasleika.
Hún vissi þá hvað klukkan sló,
því þegar hún kvaddi mig og faðm-
aði sagði hún við mig að þetta
væri stór stund hjá henni og hún
sæi mig ekki aftur. Var ég vantrú-
aður á það og sagði það vera hina
mestu firru. Þess vegna var það
mikið áfall fyrir okkur hjónin, fjór-
um dögum eftir að við komum úr
brúðkaupsferðalagi okkar, að fá
þær fréttir að hún væri öll.
Þar með hafði enn ein stórmann-
eskjan kvatt þetta líf og haldið til
annarra heima. Hún hafði lokað
bankareikningnum sínum endan-
lega og tekið allt út.
Við hjónin vottum manni hennar
og bömum okkar innilegustu samúð
og biðjum Guð að veita fjölskyldu
hennar styrk því mikill er missirinn
og mikið er tómarúmið sem hefur
myndast. Hennar mun verða sárt
saknað.
Kristinn T. Haraldsson, form.
Styrktarfélags Staðarfells,
Jónína Þrastardóttir.
Hún var björt yfirlitum, hún
Nína, og bar með sér birtu hvert
sem hún fór. Hún _kom til starfa
hér í göngudeild SÁÁ fyrir rúmu
ári. Gleðigjafi með hlýtt viðmót,
dillandi hlátur og leiftrandi augu
hafði bæst í starfshópinn og staður-
inn fylltist af sólskini. Er Nína hóf
störf í göngudeildinni hafði hún
veikst af illvígum sjúkdómi. Lífið
hafði fært henni margar þrautir að
kljást við og hún hafði leyst þær.
Nína var kjarkmikil kona, enn var
á brattann að sækja og hún sótti
ótrauð áfram. Hún lifði lífínu lif-
andi, átti fjölda áhugamála, vina-
mörg, mikil flölskyldumanneskja,
ástrík móðir og amma. Ekki hvað
síst naut Nína hamingju í hjóna-
bandi. í maka sínum átti Nína sinn
besta vin.
Nína var heillandi vinnufélagi,
sem var gefandi að vera návistum
við. Hún var gædd mikilli kímni-
gáfu og hlátur hennar smitaði alla
viðstadda. Reisn hennar, kjarkur
og æðruleysi í erfíðleikum vöktu
aðdáunv
Mér verður ógleymanleg síðasta
stundin sem ég átti með Nínu. Hún
var þá enn á ný komin á sjúkra-
hús. Enn hafði sjúkdómurinn illvígi
reitt til höggs. Á Nínu var engan
bilbug að finna. Hún tók á móti
mér, vel til höfð að vanda, með sínu
hlýja bjarta brosi. Ég dvaldi dijúga
stund hjá henni og við spjölluðum
um margt, en hugur minn var full-
ur aðdáunar á þéssari merku, þrek-
miklu konu sem geislaði af lífi þrátt
fyrir þunga sjúkdómsraun.
Baráttunni er lokið. Nína hefur
kvatt. Við samstarfsmenn kveðjum
hana með söknuði og þökk fyrir
dýrmætar samverustundir. Guð-
mundi, börnum Nínu og ástvinum
öllum sendi ég einlægar samúðar-
kveðjur.
Krístín Waage.
Okkur langar að kveðja Nínu
vinkonu okkar með nokkrum orð-
um. Það er alltaf þessi eilífa stóra
spuming af hveiju var hún tekin
svo fljótt frá okkur langt fyrir aldur
fram. Það var mikið áfall þegar hún
sagði okkur að þessi erfiði sjúkdóm-
ur væri farinn að taka sig upp aft-
ur, maður hélt um tíma að hún
væri búin að sigrast á honum, allt
leit svo vel út, Nína var komin aft-
ur til starfa, jákvæð og bjartsýn á
framtíðina, eins og hún var ávallt,
ekki ætlaði hún að gefast upp frek-
ar en fyrri daginn, svo dugleg var
hún í veikindum sínum að undrun
sætti, aldrei heyrðist hún kvarta,
horfði alltaf fram á við. í hvert sinn
og hún kom heim af spítalanum;
gera eitthvað, fara eitthvað, heim-
sækja fólk, vera lifandi, vera til.
Um morguninn 15. september sl.
kom skuggi yfír, fregnin barst til
okkar að Nína væri látin.
Nína og Guðmundur, maður
hennar, voru búin að eignast fallegt
heimili í Kópavoginum, eftir að
hafa veitt meðferðarheimili SÁÁ á
Staðarfelli forstöðu í nokkur ár.
Ég var fyrir nokkrum árum þess
aðnjótandi að dvelja í smátíma á
heimili þeirra hjóna í Dölunum. Það
er mér ógleymanlegur tími, svo
gott var að vera í návist þeirra.
Hjá þeim var hlýja og birta. Nína
var ávallt mjög glaðvær kona og
alltaf var stutt í brosið og átti hún
ávallt auðvelt með að sjá skemmti-
legu hliðarnar á margbrotinni til-
verunni. Gott þótti mér að ræða við
Ninu og alltaf hafði hún tíma til
að hlusta og átti auðvelt með að
gefa af sér, gott þótti mér að leita
til hennar.
Elsku Guðmundur, Harpa, Sig-
urður og Guðmundur, við hjónin
biðjum Guð að styrkja ykkur og
fjölskyldur ykkar í sorginni. Minn-
ingin um góða konu mun lifa, þökk-
um Nínu fyrir það sem hún gaf
okkur.
Munda og Siggi.
Nína mín er dáin og minningarn-
ar hrannast upp. Það var eftirvænt-
ing í lita hópnum sem lagði upp frá
Reykjavík með Akraborginni, ferð-
inni var heitið að Staðarfelli í Dölum
þar sem SÁÁ ætlaði að fara að
setja upp eftirmeðferðarheimili fyr-
ir alkóhólista. Þetta var 29. nóvem-
ber 1980. Ég hafði lítilega kynnst
Nínu áður, en þama hófust raun-
veruleg kynni. Nína var mjög sér-
stæð, hæst bar hennar glaðværð,
góð lund og snyrtimennska svo af
bar. Það var alltaf gleði og hlátur
nálægt Nínu, hún hafði góða frá-
sagnargáfu og ósjálfrátt beindist
athyglin að henni hvar sem hún
var. Eg minnist þess sem oftar, að
við vorum saman á ráðstefnu er-
lendis, þá vék sér að Nínu kona og
sagði: „Ég get ekki orða bundist,
en mikið ert þú falleg klædd og vel
snyrt,“ en þannig var Nína, það var
tekið eftir henni hvar sem hún fór.
Nína og Guðmundur áttu vel
saman og það var yndislegt að fylgj-
ast með þeim byggja upp fallega
heimilið sitt á Þingholtsbrautinni,
þar sem smekkur og snyrtimennska
þeirra beggja nutu sín vel. Ég vil
þakka elsku Nínu allt og allt, sér-
staklega tiyggð hennar og vináttu,
sem aldrei bar skugga á.
Hennar vinkona,
Oddný.
Guð gefi mér æðruleysi til að
sætta mig við það sem ég fæ ekki
breytt, kjark til að breyta því sem
ég fæ breytt og vit tii að greina
þar á milii.
Þessi bæn var ofarlega í huga
mér þegar ég heimsótti Nínu í
hinsta sinni og sá að nú færi að
styttast í að hún fengi hvíldina. Tíu
dögum seinna skildi hún við.
Það er erfitt að trúa að þetta sér
raunveruleikinn, en hvað segir ekki
í bæninni okkar, að sætta sig við
það sem ég fæ ekki breytt. Við
andlát góðrar vinkonu birtast ótal
myndir í huga mínum, og þá fyrst
og fremst samverustundir okkar á
Staðarfelli sumarið 1990. En það
sumar starfaði ég á Staðarfelli.
Samskiptin við Nínu og Gumma
voru einstök og lærði ég mikið af
þeim báðum. Vil ég hér með þakka
þeim báðum fyrir elskulegheitin og
ræktarsemina við mig og dóttur
mína.
Dóttir mín, sem þá var 10 ára,
var fljót að sjá hverskonar mann-
eskja Nína var og urðu þær strax
miklir mátar. Þessi unga dama leit
upp til Nínu og bar mikla virðingu
fyrir henni. Það er erfitt hjá henni-
að skilja af hveiju Guð þurfti að
taka þessa góðu konu svona fljótt.
En minningin um hana Nínu okkar
geymum við í hjarta okkar. Við
mæðgur viljum biðja algóðan Guð
að styrkja Gumma, bömin og aðra
ástvini í sorg þeirra. Að lokum vilj-
um við þakka Guði fyrir að hafa
fengi að kynnast Nínu. Guð geymi
Nínu okkar.
Sigurbjörg og Ása Ninna.
Jónína Þóra Helgadóttir lést úr
krabbameini 15. september 1992
langt fyrir aldur fram aðeins 46 ára
gömuL Hún var einn af máttarstólp-
um SÁÁ og starfsmaður samtak-
anna frá 1980 og til dauðadags.
Hún vann lengst af við ráðgjöf og
naut virðingar skjólstæðinga sinna
og var vinsæl. Öllum þótti vænt um
„Nínu á Staðarfelli" eins og við
köljuðum hana okkar á milli.
Ég kynntist henni fyrst á árunum
1979 og 1980 og fékk að fylgjast
með því hvernig hún lifði besta tíma
ævi sinnar. Fyrst þegar ég sá hana
var hún fráskilin þriggja bama
móðir og einhvern veginn lá það í
loftinu að lífið hefði ekki alltaf far-
ið um hana mjúkum höndum. Þau
voru þá að draga sig saman hún
og Guðmundur Vestmann Guð-
björnsson og giftu sig skömmu síð-
ar eða í aprfl 1981. Þau tóku bæði
þátt í að ýta úr vör meðferðinni á
Staðarfelli í Dölum í nóvember 1980
og þegar fram liðu stundir urðu þau
í forsvari fyrir þeim stað. Þar stofn-
uðu þau sitt fyrsta heimili og höfðu
hana Hörpu hjá sér, yngsta barn
Jónínu.
Þessi litla fjölskylda var ham-
ingjusöm og á fyrstu árunum var
hennar veröld Staðarfell. Þar undu
þau sér vel og gott og gaman var
að sækja Nínu heim. Þá var nú
margt skrafað á Staðarfelli og
stundum langt fram á nótt. í við-
ræðunum komst maður fljótlega að
því að þarna var á ferðinni hug-
sjónakona. Hún hafði fundið mál-
stað til að berjast fyrir og ekki
ósjaldan vildi hún ræða málefni
Staðarfells og þeirra sem þar höfðu
dvalið og starfað. Oft lét hún í ljósi
óþolinmæði og vanþóknun ef ein-
hver hallmælti staðnum sem henni
fannst sá besti í heimi hér. Þarna
fór eldhugi og hörð baráttukona
fyrir bættri áfengismeðferð í þessu
landi.
Það var gaman að fylgjast með
því hvernig Nína efldist með hveiju
árinu og naut sín alltaf betur og
betur. Hún átti að vini Guðmund
mann sinn og þau hjónin voru ein-
staklega samstiga og hvöttu hvort
annað til dáða. Þau eignuðust síðar
fallegt heimili í Kópavogi og þar
var gott að koma og gestkvæmt.
Af þeim geislaði lífsgleðin og Nína
hafði einstakt lag á að lífga upp á
umhverfi sitt með hressilegri fram-
komu sinni og góðu skapi. Það var
hvergi ládeyða þar sem hún fór.
Hún lifði fyrir börnin sín og þó
einkum Hörpu og einlæg var gleði
hennar og stolt þegar hún gat veitt
henni það sem hún sjálf hafði farið
á mis við í lífinu. Hún bar mikla
umhyggju fyrir drengjunum sínum
Guðmundi Helga Helgasyni og Sig-
urði Helga Helgasyni og gekkst upp
í því að vera góð amma þegar
bamabörnin fæddust eitt af öðru
og nú eru þau þrjú.
En mitt í erli dagsins þegar eng-
an óraði fyrir, veiktist Jónína af
krabbameini. Hún bugaðist þó ekki
en lagði allt sitt í hendur starfsfólks
Landspítalans og vék oft að því við
mig hversu gott fólk þar væri að
fínna og þakklætið leyndi sér ekki.
Frá því í vor barðist hún hetjuiega
vonlausri baráttu við sjúkdóm sinn .
og vissi sem var að ekkert var eft-
ir nema að deyja með sæmd. Starfs-
fólk SÁÁ og aðrir sem til þekktu
fylgdust með henni og dáðust að
þreki hennar og óbilandi kjarki um
leið og þeir fundu svo tilfinnanlega
fyrir vanmættinum og efasemdun-
um sem sóttu á.
Og nú er þessari baráttu lokið
og sorgin er í huga okkar og hugs-
unin og samúð hjá þeim sem eftir
lifa, einkum hjá börnum hennar og
barnabörnum. Guðmund vin okkar
munum við reyna að styðja og
styrkja af veikum mætti.
Þessi fátæklegu orð geta á engan
hátt lýst þeim söknuði og sorg sem
sækir að okkur hjá SÁÁ. En minn-
ing um góða konu og tryggan vin
mun yija okkur um hjartarætur um
ókomna tíð.
Þórarinn Tyrfingsson,
stjórnarformaður SÁA.
i
i
I