Morgunblaðið - 25.10.1992, Page 12

Morgunblaðið - 25.10.1992, Page 12
12 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25. OKTÓBER 1992 DANSAR VIÐ LÍFIÐ eftir Súsönnu Svavarsdóttur Á yngri árum dansaði hann hjá frægustu ballettflokkum heims, seinna varð hann ballettmeistari hjá þeim, stofnaði eigin bal- lettflokk og -skóla, hefur verið gestaþjálf- ari og dansahöfundur fyrir þessa sömu frægu balletta, dansað og þjálfað frægustu ballettdansarana — og er kominn til íslands sem ballettmeistari Islenska dansfiokksins. Fyrsti karldansari tijá „Ballet Russe de Monte Carlo“ frá 1949 til 1960, utan árið 1953 þegar hann dansaði með „New York City Ballet“. Árið 1960 flutti hann sig yfir á vesturströnd Bandaríkjanna og stofnaði þar „Pacific Ballet of San Francisco", sem var bæði dansflokkur og skóli og hann sljórnaði þar til 1973. Þá hélt hann til Ber- línar og varð ballettmeistari hjá Berlínaró- perunni, auk þess að vinna með „Madrid Ballet". Árið 1973 var hann ráðinn prófess- or þjá „Hannover University of Music and Theater" og gegndi því starfi til 1987. Alan Howard hefur náð því að vera goðsögn í lifanda lífi. Hann var mótdansari kvenna eins og Yvette Chauvire, Nina Nowak, Mme. Dan- ilova og hefur þjálfað Rudolf Nureev, Dame Margot Fonteyn, Galinu Panova, Nadaliu Mak- arovu og Evu Evdokimovu. Þegar hann er spurður hvers vegna hann hafi komið til fs- lands, segir Alan: „Fyrir því eru tvær ástæð- ur. Sú fyrsta er María listdansstjóri, hin ástæð- an er uppbyggingarástríða mín. Ég kynntist Maríu þegar hún var mjög ung prímaballerína hjá Berlínaróperunni og hef fylgst með henni alla tíð síðan. Þegar ég sá auglýsingu frá henni um að hér vantaði ballett- meistara, hringdi ég í hana til að forvitnast um hvað hún væri að gera. Þegar hún sagði að hér væri hópur sem þyrfti að byggja upp nánast frá grunni, sótti ég um. Mér finnst svo gaman að byija á núlli.“ Hvers vegna? „Jú, sjáðu til. Fullkomnun er það sem hver og einn alvöru ballettdansari sækist eftir og sem kennari liggur vinna manns í allra smæstu smáatriðunum, eins og til dæmis að láta dans- arana æfa réttan fót. Maður getur unnið með einn fót vikum saman, þar til dansarinn hefur náð þessu. Mér finnst þessi smáatriði það skemmtilegasta sem ég geri. Þessvegna er það líka að mér fínnst mun skemmtilegra að vinna með kvendönsurum en karldönsurum. Konur eru svo tilbúnar til að vinna smáatriði vel og karlaegóið þvælist ekki fyrir þeim. Þú mátt ekki skilja það sem svo að mér finn- ist ekki gaman að vinna með karldönsurum. Það er einfaldlega öðruvísi. Þegar flokkur hefur náð því sem ég kenni, er kominn tími fyrir mig til að fara eitthvað annað. Verki mínu er lokið. Ég er smáatriða- þjálfari. Þessvegna var líka svo spennandi að koma til íslands. Þótt ég viti ekki hversu lengi ég verð hér, er nóg að starfa meðan á ráðn- ingu minni stendur. Það er líka svo gaman að vinna með Maríu; hún hefur haldið öllum ein- kennum sem hún hafði sem dansari; sjálfstæð- inu, skapfestunni og viljastyrknum. Ef einhver getur gert ballettinn að raunverulegri listgrein hér, er það hún. Þið vitið bara ekki hversu heppin þið eruð að hafa fengið hana heim. Fyrst eftir að ég kom hingað leist mér samt ekki alveg á blikuna. Ég er alltaf að senda póstkort um allan heim og ég skrifaði vinum mínum að ég væri staddur í fískiþorpi; öll húsin svo lítil og hvar sem maður er í þessu þorpi finnur maður lyktina af sjónum. En þrátt fyrir stuttar vegalengdir, eru alltaf allir að flýta sér og fólk á erfitt með að mæta á réttum tíma. Ég hafði aldrei verið á svona stað. En smám saman fór mér að líða vel hér. Fólkið er vinalegt, þótt það sé alltaf að flýta sér, og ég held að ég sé búinn að finna ástæðuna fyrir óstundvísinni. Það virðist vera svo að þegar fólk á að mæta einhvers staðar klukkan átta, þá leggi það af stað heiman að frá sér Morgunblaðið/Kristinn Rætt við ballettmeistara ís- lenska dansflokks- ins, Alan Howard klukkan átta, vegna þess að það tekur ekki svo langan tíma að komast á staðinn. Svo er umferðin eitthvað öðruvísi en gert var ráð fyr- ir og fólk kemur alltof seint á staðinn. Ég skil ekki alveg hvers vegna þetta er svona. Hvað dansflokkinn varðar er ég mjög ánægður og ég er ánægðastur með íslensku stúlkumar sem hafa þurft að vera í biðstöðu og búa við ómarkvissar æfingar um tíma. Það var mjög erfítt fyrir þær að byija í haust í ströngum æfíngum, en af þeim dönsurum sem við höfum, hafa þær síst verið til vandræða. Þær hafa lagt verulega hart að sér og leggja sig allar fram. Það er mjög skemmtilegt að sjá árangurinn af þeirri vinnu.“ Alan kemur upphaflega frá Chicago. Þar er hann fæddur og uppalinn. Hann byijaði í ballett um sjÖ ára aldurinn. „Það var engin tilviljun," segir Alan. „Allt frá því ég man eftir mér, vildi ég verða dansari og ég sagði alltaf að ef ég gæti það ekkj, ætlaði ég að minnsta kost að vinna í Ieikhúsi. Mig hefur aldrei langað til að verða neitt annað ein leikhússlistamaður.“ Hann staldrar aðeins við, talar aðeins um hvað loftið sé tært og birtan falleg á íslandi og segir svo af miklum sannfæringarkrafti: „Ég trúi því að ég hafí fæðst til að verða dans- ari. Ég trúi því að maður fæðist til að gera vissa hluti; hvort sem við látum það heita/fyrir- fram ákveðið, forlög eða hvað sem er. Ég var aðeins smágutti þegar ég byijaði að læra að dansa. Ég byijaði í steppinu, sem ég hef alltaf haldið áfram að dansa og hef komið fram í söngleikjum á Broadway sem steppdansari og hef þjálfað slíka dansara meðfram. En þegar ég var sjö ára, benti danskennarinn foreldrum mínum á að setja mig í ballett — og það var gert. Ég var eina bamið þeirra í borginni þar sem karlmenn eru karlmenn, gangsterinn er karlímyndin og strákar eru í íþróttum. Mér var strítt til að byija með af hinum strákun- um, en mér var alveg sama. Þegar ég mætti í fyrsta balletttímann minn, með hóp af stúlk- um og gekk aftastur í röðinni inn í salinn, vissi ég að ég var kominn þangað sem ég vildi vera. Og ég hef aldrei þurft að hugsa um það frekar. Eg var mjög sjálfmiðaður lítill drengur sem þráði athyglina sem maður fær á sviði og ég naut þess að fullu að fá hana.“ Hvenær fórstu frá Chicago? „Þegar ég var 16 ára. Þá hélt ég til New York þar sem ég fór í skóla. Ári seinna fór ég að dansa með Ballet Russe de Monte Carlo, sem er mjög góður ballettflokkur. Hann var stofnaður í Evrópu, en árið 1938, þegar ljóst var að heimsstyijöld var í aðsigi, var hann flutt- ur til New York. Það þýðir ekki að ég hafi verið orðinn fullmótaður dansari og ég hélt áfram í harðri þjálfun. Þetta var á uppbygg- ingarárum ballettsins í Bandaríkjunum og ég var svo heppinn að hafa risa á borð við Ballanc- hine og Robbins sem kennara. Ég naut þess að vera í New York, því það var svo mikið að gerast þar. Það var ekki nóg með að al- vöru uppbygging hafi átt sér stað í ballettinum á þessu'm tíma, heldur var þetta tími hinna miklu söngleikja. Og ég hafði nóg að gera, því ég gat dansað í þeim líka. Árið sem ég dansaði með New York City Bailet fór ég í dansferð sem stóð frá því í sept- ember og út júní. Við dönsuðum á 120 stöðum á tímaBilinu. Það var mjög lærdómsríkt og það er miður að dansflokkar skuli ekki hafa tæki- færi til að fara í svona ferðalög í dag. Að vísu er gott að það skuli vera til svo mikið af góðum ballett í dag, að það þurfí ekki að ferðast með flokka til að kynna þessa listgrein. Hinsvegar er það svo, að maður iærði agann til fullnustu á þessum ferðalögum. Við dönsuðum hvar sem er, við allar mögulegar aðstæður; í leikhúsum og íþróttahúsum, á fótboltavöllum, utandyra á vemdarsvæðum indíána og svona mætti lengi telja. Oft var þetta erfítt, en við urðum að dansa, hvað sem það kostaði og við gerðum það. Við vorum svo hamingjusöm yfír að fá að dansa og ferðast að við vorum ekkert að kvarta. En ferðalögin höfðu líka sínar góðu hliðar, vegna þess að við fóram til Kalifomíu — til Hollywood og þar hittum við margar stjörnur. Þetta voru dagar glits og glamors í kvikmyndaheiminum og það var ekki lítið upplifelsi að hitta stjömur á borð við Gretu Garbo, Bette Davis, Joan Craw- ford, Marlene Dietrich, Buster Keaton og fleiri. Og ég átti þess kost seinna að vinna með sumu af því fólki sem ég hitti. Það var svo mikill vöxtur í öllu og maður komst í góð sambönd. Ég var til dæmis þjálfari Charltons Heston í líkamsbeitingu í kvikmyndinni Ben Hur. Ég hef alltaf verið með kvikmyndadellu. Alveg frá því ég var krakki hef ég lifað mig svo inn í kvikmyndir að þegar ég kem út, er ég aðalsögupersónan. Ég stend mig að því enn þann dag í dag að hegða mér einkennilega þegar ég kem af kvikmyndasýningu — ég þarf alltaf smátíma til að ná í raunveruleikann aftur, svo þú getur ímyndað þér hvað mér fannst stórkostlegt að komast í snertingu við þennan heim. Ég tala- nú ekki um að fá að vinna þar,“ segir Alan og ljómar. En svo við snúum okkur að ballettinum aft- ur, á hvað leggur þú áherslu í kennslunni? „Ég grundvalla kennsluna á aga. Það þýðir að dansarinn þarf að vera tilbúinn til að vinna að fullkomnun. Það gerist ekki með agaleysi. Það getur verið mjög þreytandi að þurfa að æfa eina hreyfingu, einn fót, nokkra fingur vikum saman, en það er það sem máli skiptir. Ég hef unnið um allan heim, sem eru mikil forréttindi og þetta lögmál gildir alls staðar, meira að segja í frægum balletthúsum þar sem stjörnurnar eru. Þær vita að það má aldrei slaka á og frægð þeirra er ekki það sem máli skiptir. Það sem við fáum að sjá á sviðinu er afrakstur þrotlausra endurtekninga með smá- atriði. Ef ballettdansari skilur þetta ekki, er ferill hans á enda. Vegna uppbyggingaráráttu minnar finnst mér mest gaman að vinna með börnum. Mað- ur fær ómetanlegt tækifæri til að finna fram- tíðarstjörnur, móta þær; kenna þeim að hugsa og tengja hugsunina við líkamann, kenna þeim að gefa, vegna þess að sá listamaður sem ekki gefur er ekki lengi í starfi, hann hefur enga til að þiggja."

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.