Morgunblaðið - 25.10.1992, Side 14

Morgunblaðið - 25.10.1992, Side 14
14 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25. OKTÓBER 1992 Frá Prag Hradcany- kastali gnæfir yfir miðborg- ina. Í SMÁÍBÚD Síðasti dagur í embætti Vaclav Havel veifar stuðningsmönnum sínum út eftir Rune Bech í Prag MÁLNINGIN er flögnuð í stiga- ganginum í Rasinovogötu í Prag. Rúða í glugga út að bakgarðinum er brotin og enginn hefur gefið sér tíma til að tína upp glerbrot- in. Fyrir framan eina af íbúðum hússins er stafli af gömlum dag- blöðum þar sem meðal annars er að finna The Guardian og tékkneska dagblaðið Lidove Nov- iny. A tvöfaldri hurðinni sem gengið er um inn í íbúðina er ekki lengur neitt skilti með nöfn- um íbúa. En maðurinn innandyra er allt annað en óþekktur. Vaclav Havel er fluttur aftur í gömlu látlausu íbúðina sína í hjarta Prag eftir að hann lét af embætti for- seta Tékkóslóvakíu í júlí. Hann hef- ur kvatt glæsilegu forsetahöllina á hæðinni fyrir ofan Prag og Mold- aufljótið með útsýni yfír tuma og háhýsi borgarinnar. Kvatt tímabil viðhafnarklæða, BMW-embættis- bíla, matsveina og skyndiheim- sókna til Washington, Parísar og Lundúna. Nú taka ekki stjórnmála- leiðtogar á móti honum með rauðum dreglum og homablæstri á flugvöll- unum, heldur Olga, sem býður hann velkominn í anddyrinu með tónlist Frank Zappa á plötuspilaranum og flösku af rauðvíni sem bíður kvöld- verðar hennar á eldhúsborðinu. Fyrir skáldið og hugsuðinn Havel hafa þessar vikur verið uppfullar af vangaveltum: Liggur leið hans á ný til valda í sjálfstæðu tékknesku ríki eftir skiptingu Tékkóslóvakíu? Eða vill hann það ekki? Það eina sem vitað er frá Rasinovo 78 er að honum þykir það freistandi og fínnst hann enn hafa eitthvað nýtt fram að færa í stjórnmálum. Heima og heiman. Uppi hjá höllinni streymir regnið hægt niður eftir hallartorginu. Gulnuð blöðin falla af trjánum við steinlagðar götumar niður að Mala Strana-borgarhverfmu fyrir neðan höllina meðan vaktaskipti eru hjá varðliðunum í bláum, hvítum og rauðum einkennisbúningum með gullnum snúmm. Þeir skipta með sér varðstöðu við mannlausa höll- ina. Tékkóslóvakía hefur engan for- seta haft frá því Havel sagði af sér, vonsvikinn yfír því að ríkjasam- bandið stefndi í aðskilnað í tvö ný sjálfstæð ríki. í dag stendur fyrmm skrifstofa Havels auð og yfirgefín. Fyrir nokkm var flutt burt úr þessu stóra og bjarta herbergi grænu plönturnar, líflegu bámateikning- arnar og litríku afstraktmályerkin sem Havel kom þar fyrir þegar styttur kommúnistanna af Marx og Lenín vom bomar þaðan út eftir stjórnarbyltinguna í nóvember 1989. Ungir og upptendraðir emb- ættismenn með bakpoka, fléttur í hnakka og nýjar hugmyndir vom sendir heim. Það er farið að hausta í tilveru Tékkóslóvakíu sem ríkis á landa- korti Evrópu. Eftir fall kommún- ismans vilja Tékkar og Slóvakar fara hvorir sína leið í umbótum: Tékkar leið frjálslyndis en Slóvakar vilja áframhaldandi ríkisumsjón. Stjómir þessara tveggja lýðvelda eru sammála um að slíta 74 ára hjónabandi sínu, sem hefur verið erfitt, þótt enn séu ljón í veginum varðandi stjómarskrána og mála- lengingar. » A bak við tjöldin verður æ greini- legra að Havel er í viðbragðsstöðu, reiðubúinn til að gegna aðalhlut- verkinu í nýja tékkneska ríkinu. Hann brosir strákslega þegar hann er spurður hvort hann hafí áhuga. Hann vill ekki neita því. Havel sá fyrir örlög ríkjasam- bandsins þegar í júlí og lét af emb- ætti á réttum tíma, svo hann varð ekki fyrir þeirri niðurlægingu að vera beðinn um að fara. „Eg vil ekki láta minnast mín í sögunni sem forsetans er leiddi landið út í upp- lausn,“ vom röksemdir hans. Mörg þúsund aðdáendur vom grátandi er þeir kvöddu hann á hallartorginu þegar hann yfírgaf höllina í síðasta sinn. í dag vona þeir að fjarvera hans verði aðeins skammvinn. Hvert mannsbarn : Prag þekkir heimilisfang látlausu íbúðarinnar með tveimur og hálfu herbergi, baði og eldhúsi þar sem Havel býr. Og áhuginn og ástúðin í hans garð hefur ekki minnkað frá því hann fór frá — þvert á móti. Innandyra hringir síminn í sífellu með fyrirspurnir og beiðnir um við- töl, boð um heimsóknir til annarra landa, opnun hátíðahalda, bóka- markaða og málþinga. Oftast hefur Havel tekið símann úr sambandi. Úr gluggunum sem snúa út að göt- unni meðfram Moldau-fljótinu get- ur hann séð hvern langferðabílinn á fætur öðrum fullan af ferðamönn- um með andlitin límd við rúðurnar meðan leiðsögumennirnir benda þeim á glugga þjóðsagnapersón- unnar sem er tákn valdatöku hinna kúguðu í Austur-Evrópu. Þegar hann gengur um göturnar í Prag nema vegfarendur staðar og biðja um eiginhandaráritun, ef þeir láta sér ekki nægja að snúa höfuðið nærri úr hálsliðnum. Þegar ásóknin verður yfirþyrmandi flýr hann í útlegð í fjallakofa sinn „Hradecek", Litla-slotið fyrir norðan í bæ- heimsku fjöllunum. Hingað til hefur Vaclav Havel neitað að veita heimspressunni formleg viðtöl og hefur þess í stað slappað af og farið í langar göngu- ferðir eftir tveggja og hálfs árs strit í höllinni. Stundum kemur hann á óformlega fundi með vinúm og blaðamönnum ,gegn því skilyrði að ekki verði skýrt opinberlega frá umræðunum. Hann fer hins vegar ekki dult með nýja viðurkenningu sína á væntanlegri skiptingu Tékkóslóvakíu: „Eins og málin hafa þróast er heppilegast að Tékkóslóvakíu verði skipt. Slóvakar eru ákveðnir í að fá sjálfstæði, og það er óviturlegt um gluggann á forsetahöllinni. Reuter að standa í vegi fyrir því,“ sagði hann nýverið í fámennum hópi blaðamanna. Vaclav Havel, sem fyrir aðeins fáum mánuðum barðist ötullega fyrir áframhaldandi sameiningu landsins, hefur nú í raun afskrifað möguleikana á að bjarga Tékkó- slóvakíu. Og meðan hann stóð áður sem forseti fastur á því að skipting landsins færi ekki fram án undan- genginnar þjóðaratkvæðagreiðslu, þá er borgarinn Havel ekki jafn- ákveðinn: „Landið er í raun nú þegar klof- ið eftir atkvæðagreiðsluna í kosn- ingunum í júní. Þeir kusu þar hvor- ir sína leið og útilokuðu þar með áframhaldandi sambúð," segir Hav- el. í einkaheimsókn nýlega hjá sam- heijum úr Samstöðu í Póllandi full- yrti hann: „Skiptingin þarf hvorki að vera átakanleg né sorgleg svo fremi hún fari virðulega fram í friði og ró og gagnkvæmum skilningi. Og allt bendir.til þess þótt sjálf skiptingin verði ekki alveg samkvæmt stjórn- arskránni. En lagagreinar geta vart bundið enda á þúsund ára draum Slóvaka um sjálfstæði." Mikið og almennt fytgi er fyrir því í tékkneska lýðveldinu að Havel verði fyrsti forseti nýs sjálfstæðs ríkis Tékka eftir endalok Tékkó- slóvakíu. „Havel na Hrad“ hefur einhver aðdáandi skrifað á húsvegg neðar við götuna, „Havel í höllina“. Hann leynir því ekki að honum finnst hann æ meira knúinn til að setjast aftur í höllina. í einkasam- tölum segir hann hreint út að sér líki vel hlutverk sitt sem boðberi vináttu og siðgæðis. Hann man enn hvernig Prag var skreytt myndum af honum í búða- og íbúðagluggum. Mikill var sá fjöldi borgara sem virti hann og vikuleg útvarpsávörp hans á sunnudögum, þar sem hann með djúpri og rólegri bassarödd sinni teygði sig inn í hjartarætur þjóðarinnar. Hann var vanur að ræða í makindum um vikuna í höll- inni og gera þjóðinni grein fyrir til- finningum sínum og skoðunum. Á tveimur og hálfu ári í forsetaemb- ætti og í 99 útvarpsávörpum varð hann samvizka allrar þjóðarinnar. Þess hlutverks saknar hann. Það voru aðallega Tékkarnir sem elskuðu þennan fyrrum andófs- mann, sem þurfti að eyða mörgum árum í fangelsi fyrir andstöðuna gegn kommúnistum áður en hann, eins og í ævintýri, var útnefndur forseti. Skoðanir um Havel voru blendnari í Slóvakíu, en mörgum Slóvökum fannst hann standa gegn draumi þeirra um sjálfstæði og vilja fyrir hvem mun viðhalda gömlu Tékkóslóvakíu. Það var þá. Stjóm- mál eru stjórnmál og skáldið og heimspekingurinn getur varla neit- að því að hafa mjakast frá húman- isma yfir í raunsæi. Skeið Tékkó- slóvakíu er á enda mnnið, segir raunsæismaðurinn í honum. En Vaclav Havel áskilur sér meiri pólitísk völd eigi hann að taka áskoran þjóðarinnar um að snúa aftur til hallarinnar sem forseti tékkneska ríkisins. Hann vill láta þjóðina greiða atkvæði um sig, ekki vera skipaður af þinginu. Hann vill ekki lengur vera aðeins sýndartákn og móttökustjóri, og telur sig hafa eitthvað nýtt fram að færa í stjórn- málum: „Stjórnmálamaðurinn verður að verða mennskur á ný. Hann má ekki aðeins einblína á þjóðfélagsleg- ar hagtölur, heldur kynnast hugs- unum almennings í landinu. Við verðum að finna nýjar og betri að- ferðir við stjórnun samfélagsins og fjárhagsins. En það er fleira. Við sem förum með stjóm samfélagsins verðum að gjörbreyta afstöðu okk- ar,“ sagði Havel nýlega. Einn af nánustu kunningjum hans segir að sjálfsgagnrýniseðli Vaclavs Havels hafí vakið hjá hon- um sektarkennd fyrir að hafa ekki gert nóg meðan hann var forseti. „Hann vill snúa til baka og láta lífs- draum sinn rætast. Sýna umheimin- um nýtt afbrigði stjórnmálamanns, nýja manngerð með völd, sýna að völdin geta verið til góðs.“ Meðan Havel og umheimurinn bíða endanlegrar skiptingar Tékkó- slóvakíu eru enn vaktaskipti hjá vörðunum framan við mannlausa höllina í Prag í haustrigningunni. Á meðan safnast ný dagblöð í staflann fyrir framan íbúðina á Rasinovo 78. i í I i I t c I i I I I B

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.