Morgunblaðið - 25.10.1992, Síða 19

Morgunblaðið - 25.10.1992, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25. OKTÓBER 1992 19 Deir Quanoun an N^hr GHANA- fR- BATT " FUIBATT Naqura Rœh Áhrifasvæði sraelsmanna UNIFIL SVÍLOG FRAKKLC ÍTALAIR OGLog PÓLLOG Nahariyya KÝPUR SYRLAND 1.ÍBANON Beirút • ÍSRAEL • Amman aði í átökum milli 30-40 manna hópa Hezbolla og Suður- Líbanons her- sveita, lokað varðstöðvum sínum og reynt að stöðva flýjandi herflokk meðan SÞ reyndu að stilla til friðar. írsku friðargæsluliðamir voru þó ekki á sama stað. Samkvæmt mínum upplýsingum var Peter Ward, 31 árs gamli írski liðþjálfinn sem lét lífið, margskotinn, m.a. í bakið, þar sem hann stóð vamarlaus upp úr bryn- vörðum bíl Sameinuðu þjóðanna er hafði verið kallaður til aðstoðar. Var einfaldlega sallaður niður. Krafta- verk að ekki féllu fleiri, sagði kunn- ugur maður í stöðvunum. Frá upp- hafi hafa fallið 188 friðagæsluliðar í Líbanon og 260 særst. Á göngu minni um aðalstöðvamar í Naqoura gekk ég fram hjá minningarreitum sveitanna, m.a. stómm reit í stöðv- um Frakkanna, sem eitt sinn misstu marga gæsluliða í einu. Á sl. ári féll friðargæsluliði frá Fiji-eyjum og Ghana-liðið missti einn mann. í höfuðstöðvunum er sjúkrahús með 30-40 rúmum, sem lengst af var rekið af Svíum með aðstoð Norð- manna. En nú hafa Pólveijar tekið þar við. Með sérstöku leyfi fékk ég að heimsækja írska friðargæslulið- ann Neil Cole, sem særst hafði dag- inn áður. Hann er 21 árs gamall. Kvaðst hafa verið í herþjónustu í 3 ár og vera búinn að vera þarna við friðargæslu í næst- um sex mánuði. Ætti bara eftir 10 daga þjónustu, sem hann ætlaði að ljúka á sínum pósti þegar hann kæmist á fætur.„Mér finnst það verðugt verk- efni að leggja frið- argæslunni Iið - fyrir hvem og einn og ekki síst fyrir hermann," sagði hann. Og bætti við að óbreyttu her- mönnunum, sem em við slík störf í sex mánuði í senn, sé það í sjálfsvald sett hvort þeir gefi sig fram til frið- argæslu. Hann sagðist eiga fjöl- skyldu heima, en vera ókvæntur, og hlakka mikið til að komast heim til ír- lands. En hann tók það fram að honum líkaði mjög vel við Líbana, þeir séu iqjög vingjamlegt fólk. Hann var heldur fámáll og þegar ég minnist á félaga hans, áttaði ég mig í tíma, af skelfingarsvipnum á félögum hans sem höfðu vikið frá rúminu meðan ég sat þar, á því að ekki var búið að segja honum að hinn írski friðargæsluliðinn væri látinn. Neil Cole sagði mér hvemig hann hefði særst. „Við vomm á varðstöð við Barasheet þegar Hizbollamir komu alvopnaðir. Við báðum þá um að afhenda okkur vopnin, en þeir neituðu því. Og allt í einu fóru þeir að skjóta og ég fékk skot í kviðinn frá þeim sem stóð næst mér.“ Pólski læknirinn sagði mér að Neil hefði verið einstaklega heppinn, því kúlan hefði farið skáhallt inn í kviðarholið en ekki í gegn og út um bakið, þar sem gatið eftir þessa tegund vopna yrði svo miklu stærra. Þeir náðu kúlunni ósprunginni. En hvað gera friðargæsiusveitim- ar þegar svona kemur fyrir? Ekki mikið, sagði Timu Goksel, talsmaður UNIFIL. Þá fara alls kyns sögusagn- ir af stað, sem blása í glæðumar. Við verðum að hafa snör handtök, leita til foringja Hizbollanna og freista þess að kæla aílt niður. Þarf oft að sækja þá sem völdin hafa um langan veg. I þetta sinn skildu Hiz- bollamir að þarna höfðu þeir gert mistök. Með því að fella friðagæslul- iða frá UNIFIL höfðu þeir snúið heimspressunni gegn sér og fjöl- miðlaskrif skipta þá gífurlegu máli. Friðargæsluliði SÞ var þó ekki sá eini sem féll í þessum átökum í Suð- ur-Líbanon. Frá því var sagt svona rétt eins og neðanmáls í blöðum og bar ekki saman í ísraelskum fréttum og fréttum frá aðilum í Líbanon. Friðargæsluliðar veita fólkinu úr Friðargæsluliðar frá UNIFIL, frá Fiji-eyjum og frá írlandi, í hátíðarbúningum á nýárstónleikum, en nýárið í ísrael var 27. september í ár. Reuters og BBC fréttaritaramir, sem höfðu betri aðstæður en ég að dæma hvað er rétt, töldu átta fallna í árásum þessa dags, fjóra úr liði Hizbollanna og tvo úr liði S- Líbanon hers og að auki féllu tveir óbreyttir borgarar. En eins og einhver sagði: Hér þykir það ekki miklum tíðindum sæta þótt einn og einn skæruliði falli í átökum. Af óbreyttum borgur- um lést 75 ára gamall maður, sem og kona í þorpinu Brashit; alvarlega særð kona var flutt á spítala í Nabtiyeh, þijú hús voru eyðilögð í Hubbush og hús brunnu í Minis og Kufayr Zayt. Óraunverulegt fyrir íslending að vera allt í einu staddur í svo framandi umhverfi og við slík- ar aðstæður, sem fólkið á staðnum kippti sér ekkert upp við. Talsmaður Sameinuðu þjóðanna orðaði það af varfæmi á þann veg að „armed ele- ments“, vopnaðir aðilar, hafi tekist á með eldflaugum, hríðskotabyssum og nýjustu nútímavopnum sem þessi skrifari kann engin skil á. En fsraels- menn töluðu um einhverjar Saggers eldflaugar, sem Hezbollar hefðu ver- ið með í fyrsta skipti og sem þeir sögðu koma frá Sýrlandi. Eg varð að vera komin suður yfir áður en landamærunum var lokað klukkan fjögur þennan dag. Sem ég sat svo daginn eftir uppi á þaki í sólinni í Nahariyya skammt sunnan landamæranna, var ég að hafa orð á þessum tíða flugvélagný sem gæti ekki verið annað en ísraelsþotur og hve miklu oftar en aðra daga varð- bátarnir þeirra sæjust fara hjá þama út af ströndinni. Eitthvað hlyti að vera um að vera. Það kom á daginn undir kvöld. Til andsvars árásum nálægum þorpum í Líbanon ýmsa aðstoð. Þessa stundina víkja fréttimar frá friðargæslunni í Líbanon gjaman fyrir ósköpunum í Júgóslavíu, jafn- vel þegar friðargæsluliðar falla. Ekki er mikilla breytinga að vænta. Verður eflaust óbreytt ástand um langan tíma. Erfiðleikar friðargæsl- unnar stafa m.a. af því að aldrei var við vopnahléið gengið nákvæmlega frá mörkum gæslusvæðisins. Líban- on bað Sameinuðu þjóðirnar um frið- argæslu, en ísraelar féllust aldrei formlega á hvar og hvernig. Þótt það sé í skilyrðum SÞ að allir aðilar verði að fallast á skilmálana, gáfu menn sér þá ekki tíma til að bíða þess að ná þessu saman, m.a. af ótta við að lætin í Líbanon spilltu fyrir eða kæmu í veg fyrir friðar- samninga Egypta og ísraelsmanna í Camp David 1979. PLO, sem þá var ríkjandi afl í Suður-Líbanon, féllst á þetta fyrirkomulag með vondum skilyrðum um sérréttindi á friðargæslusvæðinu. Jafnvel nú gengu þama sögusagnir um að ver- ið væri að gefa út passa til palenstín- skra flóttamanna í Líbanon og Hiz- bollamir gáfu umsvifalaust út mót- mæli gegn því „að Palestínumenn fengju að setjast að í Libanon". Og ekki vilja ísraelsmenn það. ísraels- menn vilja í raun status quo, af Þessi sænska friðargæslukona var að búa sig undir heimför eftir sex mánaða þjónustu í Líbanon. Af 300 sænskum friðargæslumönnum eru 30 konur. Brátt verður ein íslensk stúlka i norska liðinu. Hizbollanna höfðu ísraelskar þyrlur varpað eldflaugum á hús foringja Hizbollanna í þorpinu Deir Quanoun an Nahr, rétt vestan við friðargæslu- svæði Ghana-manna og á Bousouar nálægt Sydon. Sá Hizbolla- eða PLO foringi sem fella átti reyndist víst ekki heima en í árásinni særðust tveir af aðstoðarmönnum hans og efri hæðir tveggja húsa eyðilögðust. Tveimur dögum síðar náðu múslímar sér niðri með því að drepa „alræmd- an suður líbanskan svikara" og að- stoðarmann hans og særðu fleiri. Á þessum friðsamlega stað í sólinni við lygnt Miðjarðarhafið virðist dálít- ið skrýtið að vera í nánd við slíkt átakasvæði sem erfitt er að henda reiður á. Vítahringur með stuðpúða í aðalstöðvum friðargæsluliðsins UNTFIL í Naqoura var auðvitað mik- ið að gera þennan morgun eftir slíka uppákomu. Yfirmenn sátu á fundum og samráði til New York. Ég notaði tímann með því að rölta niður göt- una og ræða við fólk. Þarna er röð af litlum veitingastofum og smábúð- um, enda friðargæsluliðarnir drjúgir viðskiptavinir. Alltaf að koma nýir, sagði búðarfólkið. Nú voru 100 sænskir friðargæsluliðar á heimleið síðdegis og að kaupa af þeim 18 karata gullfestar handa kærustum sínum og heimafólki. Ég spjallaði við nokkra þeirra, sem voru að ljúka sínum sex mánaða tíma. Ung sænsk stúlka sagði mér að í 300 manna sænska friðargæsluliðinu þama séu tvennu illu vilja þeir heldur missa öðru hveiju nokkra hermenn eða slq'ólstæðinga en að nyrsta byggðin við landamærin hjá þeim liggi undir skothríð leyniskyttna. Þegar ég 1984 kom á samyrkjubúið Kefar Gelati upp undir landamærunum, sá ég steyptu vamarskýlin sem bömunum hafði verið haldið í tímunum saman vegna þess að skotið var á þau ofan úr hlíðunum, áður en ísraelsmenn réðust inn í Líbanon 1982. Með þessu áhrifabelti norðan landamæranna telja ísraelsmenn sig geta forðað því. Friðargæslusveitin situr því í umboði Líbana einna þótt ísraels- menn í raun fallist á fyrirkomulagið eins og það er. En ekki er hægt að benda þeim á og halda þeim við ein- hveija gerða samninga þegar eitt- hvað kemur upp á. Aðilar em þama lokaðir í vítahring, þar sem nærvem friðargæslusveitar SÞ er ætlað að vera stuðpúði. Málið verður þama, eins og viða annars staðar í Miðausturlöndum, mun flóknara þegar maður er kom- inn á staðinn. Einfaldaður frétta- flutningur dugar þá oft skammt til skilnings. En þarna á landamæmm ísraels og Líbanons er friðargæsla UNIFTL gott dæmi um það hve nauðsynlegt og raunar ófrávíkjan- legt það ætti að vera að ganga ná- kvæmlega frá skilmálum, sem sam- þykktir em af öllum aðilum. M.a. vegna þessarar reynslu er Öryggis- ráðið hikandi við friðargæslu án formlegs samþykkis allra aðila í Júgóslavíu. Umboð friðargæslu- sveitarinnar UNIFIL er eins og allr- ar friðargæslu Sameinuðu þjóðanna endumýjað á sex mánaða fresti. Öryggisráðið hefur nýlega endumýj- að umboð UNIFIL til 31. janúar 1993. 30 stúlkur. Þama verður brátt ís- lensk stúlka í sex mánuði, Linda Ósk Wium, sem er í norska hemum og sótti um að vera í norsku friðar- sveitinni, Norbatt. Þetta er ekki svokölluð „family missions" þ.e. að ekki má hafa með sér íjölskyldur. Aðeins sænski yfir- hershöfðingi UNIFIL, Lars-Eric Wahlgren, býr með konu sinni á staðnum, í einbýlishúsi með garði við sjóinn innan girðingar. Fyrir nokkmm ámm var yfirhershöfðingj- anum gert að búa í aðalstöðvunum, eftir að hann hafði verið hindraður í að komast á staðinn í átökum. Annars búa friðargæslusveitimar hver í sínum afmörkuðu búðum með sínum séreinkennum. Frakkamir hafa reist í sínum miðjum líkan af Eiffel-tuminum. Finnamir hafa sína sánu. ítalimir leggja til þyrlumar sem notaðar em til eftirlits o.s.frv. Hver gæslusveit hefur sitt verkefni, ýmist ákveðið svæði eða viðfangs- efni. Libanska verslunarfólkið sat svo snemma morguns fyrir utan búðir sínar og spjallaði fúslega við mig. Kaupmaðurinn býr á bak við búðina og hefur hjá sér hlaðna byssu, enda verða þeir sjálfir að veija eigur sín- ar. Sumir búa þarna alveg með fjöl- skyldu og bömum, aðrir em einir og skreppa heim í þorpin sín endrum og eins. Einn hafði jafnvel komið sinni stóm fjölskyldu fyrir í öryggi á Kýpur og fer þangað einu sinni í mánuði. Þeir sögðu mér að friðar- gæslusveitir SÞ veiti fólki úr þorpun- um heiimikla vinnu og ýmiss konar hjálp við skóla, vatns- og rafmagn- söflun í þorpunum og læknanir á spítalanum þeirra taka upp að vissu marki á móti sjúklingum. Sambúðin sé mjög góð.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.