Morgunblaðið - 31.10.1992, Síða 4
4 B
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. OKTÓBER 1992
___SKOSK
LISTAHÁTÍÐ
Morgunblaðið/Kristinn
Vitum við meira um skoskar listir en Skotar
um íslenskar? Bergljót Jónsdóttir og Ann
McKay eru höfuðpaurar umfangsmikils sam-
starfs um menningartengsi á milli Skotlands
og fslands.
Einu sinni voru tvö lítil lönd
sem áttu bæði mjög' stóra ná-
granna. I báðum þessum lönd-
um var blómlegt tóniistarlif en
hvorugt vissi af hinu. Þá gerð-
ist það að fulltrúar tónverkam-
iðstöðva beggja landanna hitt-
ust og fóru að tala saman. Það
kom í ljós að löndin tvö áttu
ýmislegt sameiginlegt í tónlist-
armálum; þau voru bæði í
skugga stóru nágrannanna og
gekk hægt að koma tónlist sinni
á framfæri utan landsteina
sinna. Þá kviknaði sú hugmynd
að löndin tvö kynntu tónlistina
hvort fyrir öðru og létu af-
skiptaleysi umheimsins sig
engu skipta. Þetta varð úr og
nú hefur samstarf íslenskrar
og skoskrar tónverkamiðstöðv-
ar borið þann ávöxt að sl. sum-
ar var haldin umfangsmikil
hátíð íslenskra lista í Skot-
landi, Breaking the Ice. Eftir
áramótin verður haldin ámóta
hátíð hér á landi til kynningar
á skoskri list.
annig draga þær saman
á gamansaman hátt,
Bergljót Jónsdóttir,
framkvæmdastjóri ís-
lenskrar Tónverkamið-
stöðvar, og Ann
McKay, framkvæmda-
stjóri Skoskrar tónverkamiðstöðv-
ar, aðdragandann að verkefni sem
tekið hefur nær tvö ár að undirbúa
og bar sinn fyrsta væna ávöxt í
Glasgow og Edinborg í sumar sem
leið. „Þetta hefði samt aldrei verið
framkvæmanlegt án rausnarlegs
stuðnings frá Reykjavíkurborg og
Flugleiðum, sem hafa reynst okkur
traustir bakhjarlar í þessu starfi,“
segir Bergljót.
„Fyrstu hugmyndir okkar að
þessu samstarfi voru ósköp hóg-
værar og snerust eingöngu um sér-
svið okkar, tónlistina," segir Ann.
„Við hugsuðum okkur að hæfileg
skipti væru þrennir tónleikar í
hvoru landi.“ Þær brosa við þessa
upprifjun þar sem reyndin hefur
orðið önnur og íslenska listahátíðin
í Skotlandi er einn hluti af þrí-
þættri ísiensk-skoskri listasam-
vinnu sem nær yfir tímabilið júní
1992 til loka febrúar 1993. Annar
þáttur þessa verkefnis var dvöl
tveggja íslenskra tónskálda, Karól-
ínu Eiríksdóttur og Þorsteins
Haukssonar, við tölvutónlistardeild
Háskólans í Glasgow nú í haust.
Lokakaflinn hefst svo í Reykja-
vík með því að Myrkir músíkdagar
í janúar og febrúar verða helgaðir
skoskri tónlist, en jafnframt verður
þar fleira á boðstólum en því skosk
myndlist, bókmenntir og kvik-
myndir verða einnig kynntar. Líkt
og í Skotlandi í sumar verður öll
áhersla lögð á samtímalist; hvað
verið er að gera í listunum núna,
þótt saga og menning þjóðanna fái
einnig að njóta sín svo samhengi
hlutanna verði ljóst.
ísinn brotinn
Til að gefa nokkra hugmynd um
umfang hátíðarinnar í Skotlandi sl.
sumar, má nefna að þar voru flutt
42 íslensk tónverk eftir 22 tón-
skáld, flytjendur voru bæði íslensk-
ir og skoskir, og m.a. tók Breska
ríkisútvarpshljómveitin virkan þátt
í hátíðinni með þrennum tónleikum
sem jafnframt voru teknir upp og
verður útvarpað í Rás-3 BBC nú í
haust. Fjöldi íslenskra tónlistar-
manna tók einnig þátt í hátíðinni,
söngvarar, hljóðfæraleikarar og
tónskáld. Islensk jass- og þjóðlaga-
tónlist átti einnig sína fulltrúa í
Jasskvartett Reykjavíkur og hópn-
um Islandica.
Af öðrum listgreinum má nefna
samsýningu sex ungra myndlistar-
manna, Fígúra- Fígúra, sem Kjarv-
alsstaðir stóðu að og hefur nýlega
verið þar til sýnis í Vestursal. Svava
Björnsdóttir sýndi skúlptúra úr
pappír og fjórar nýlegar íslenskar
kvikmyndir voru einnig á boðstól-
um. Þorkell Sigurbjömsson tón-
skáld dvaldi í Skotlandi meðan á
hátíðinni stóð sem eins konar tón-
skáld hátíðarinnar og Steinunn Sig-
urðardóttir naut sama heiðurs sem
fulltrúi íslenskra rithöfunda. Loks
bauð einn þekktasti veitingastaður
Glasgow-borgar Rúnari Marvins-
syni meistarakokki að matreiða ís-
lenskan físk ofan í skoska sælkera.
Að baki öllu þessu stóðu fjölmargir
aðilar í báðum löndum og lögðu
þar opinberir aðilar og einkafyrir-
tæki sitt af mörkum svo af þessu
gæti orðið. Bergljót segir að án
slíks stuðnings væri til lítils unnið
þó nægur væri áhuginn. „Beinn
fjárstuðningur og framlög af ýms-
um toga eru nauðsynleg svo hægt
sé að hrinda svona fyrirtæki í fram-
kvæmd.“
Titill íslensku listahátíðarinnar í
Skotlandi var vel __ til fundinn;
Breaking the Ice, ísinn brotinn,
vísar að sjálfsögðu til hugmyndar
útlendinga um okkar „ísi lagða
land“, en einnig um það frum-
kvæði sem liggur að baki þessu
starfi og að einhvers staðar varð
að byija á því að bijóta ísinn. Þetta
kemur einnig vel heim við einn
stærsta vanda þeirra sem vinna að
kynningu á íslenskum listum, hér
heima og erlendis að sögn Bergljót-
ar.
„Vandinn sem við eigum við að
glíma er hversu miklu af listum er
stefnt hingað til lands en lítið feng-
ist við að koma íslenskum lista-
mönnum skipulega á framfæri er-
lendis. Einnig hefur vantað tengsl
milli listamannanna sjálfra og þetta
tvennt var haft í huga þegar við
skipulögðum íslensku listahátíðina
í Skotlandi. Annars vegar að kynna
íslenska samtímalist á sem breið-
ustum grundvelli og hins vegar,
að koma listamönnunum sjálfum í
samband við félaga sína í Skot-
landi.“
Sekkjapípur og langspil
Það er kannski ósanngjamt að
stilla þeim Bergljótu og Ann upp
við vegg með spumingu um hvern-
ig til hafi tekist, en þegar gluggað
er í skosk og ensk dagblöð frá júní-
mánuði er greinilegt að þarlendum
hefur líkað vel og jafnvel gætir
nokkurrar furðu að að íslensk list
hafi getað staðið undir svo stórri
og fjölbreyttri hátíð. „Auðvitað
höfðu gagnrýnendur og almenning-
ur ýmsar hugmyndir fyrirfram um
hvernig íslensk list ætti að hljóma
og líta út. Þessar hugmyndir eru
að mestu leyti byggðar á ókunnug-
leika og líka á þeim klisjum sem
haldið er á lofti erlendis um ís-
land,“ segir Ann. „Það tók suma
gagnrýnendur nokkurn tíma að
átta sig og þeir eiga sumir hveijir
óskaplega erfitt með að viðurkenna
það, ef eitthvað kemur þeim algjör-
lega á óvart. Þeir búast við að heyra
og sjá list, sem hægt er að bera
saman við eitthvað annað er þeir
þekkja. Gagnrýni byggist svo mikið
á samanburði."
Því má heldur ekki gleyma, eins
og þær Bergljót og Ann benda á,
að eitt af því erfíðasta sem hægt
er að „selja“ almenningi, er sam-
tímatónlist.„Ástæðan er ekki sú
eins og margir viljá halda fram,
að samtímatónlist sé svo erfið og
óaðgengileg áheyrnar, að hún sé
aðeins fyrir tónlistarmennina
sjálfa. Þetta eru aðeins þeir for-
dómar sem þarf að vinna á og með
því að halda hátíðir eins og hér um
ræðir, gefum við fólki tækifæri til
að hlýða á tónlistina og eyðum for-
dómunum um leið,“ segir Ann.
Okkur íslendingum finnst
kannski heldur leitt til þess að vita
að hugmyndir útlendinga um okkur
snúast kannski fyrst og fremst um
ís og eldfjöll, hveri, fornsögur og
hvalkjöt. Þetta er það sem ísland
er þekktast fyrir og það sem mest
áhersla hefur verið lögð á í kynn-
ingum erlendis (að hvalkjötinu
undanskildu), enda spjótunum helst
beint að væntanlegum ferðamönn-
um. Nútímalist á erfiðara uppdrátt-
ar. En um leið og kvartað er yfír
lítilli kynningu erlendis má spyija
hvemig hugmyndum okkar um list-
sköpun nágranna okkar sé háttað?
Hvað vitum við t.d. um samtímalist
í Skotlandi? Skoska samtímatónl-
ist? Skoska samtímamyndlist?
Skoskar samtímabókmenntir? Ef
við erum fullkomlega heiðarleg er
líklegt að svarið verði; „harla lítið“.
Hvað skoska tónlist varðar er hætt
við að hugmyndir okkar nái ekki
lengra en að hefðbundnum sekkja-
pípuleik, sem er álíka rétt og að
ímynda sér að helsta hljóðfæri okk-
ar íslendinga sé langspil.
Myrkir músíkdagar skoskir
Ann McKay tekur í sama streng
og Bergljót hvað varðar einstefnu
í kynningum á list í Skotlandi.
„Þetta er í fyrsta sinn sem við
skipuleggjum svo yfírgripsmikla
kynningu á skoskri list í öðru landi.
Hingað til hefur það tíðkast að fá
listsýningar og listamenn til Skot-
lands; við höfum t.d. á síðustu miss-
erum tekið á móti stórum kynning-
um á pólskri og rússneskri list.
Þetta sameiginlega verkefni ís-
lands og Skotlands er því merkur
áfangi fyrir báða aðila; í Skotlandi
er það okkur mikils virði að litið sé
á innlenda listsköpun sem sjálf-
stæða og þjóðlega. Við teljum að
séreinkenni Skotlands og skoskra
listamanna séu nægilega sterk til
að standa undir sjálfstæðri skoðun
og eigi ekki ávallt að sigla undir
sameiginlegu flaggi Stóra-Bret-
lands."
Eins og gefur að skilja stendur
undirbúningur að skosku listahátíð-
inni eftir áramótin sem hæst og
ekki eru öll smáatriði enn frágeng-
in. Þó er dagskráin efnislega að
mestu tilbúin og gefur góða hug-
mynd um hversu yfírgripsmikil
kynning stendur fyrir dyrum. Þeg-
ar hafa verið ákveðnir 14 tónleikar
á Myrkum músíkdögum og verða
10 þeirra helgaðir skoskri tónlist
eða með skosku ívafí. Sinfóníu-
hljómsveit íslands mun frumflytja
verk eftir Sally Beamish á opnunar-
tónleikum hátíðarinnar, en þetta
verk er pantað sérstaklega af
Reykjavíkurborg af þessu tilefni. Á
sömu tónleikum verður fluttur kon-
sert fyrir tenórsaxófón og hljóm-
sveit eftir William Sweeney.
Aðrir flytjendur verða Auður
Hafsteinsdóttir, Blásarakvintett
Reykjavíkur, Strengjakvartett
Reykjavíkur, Caput, Ýmir, sem er
nýstofnaður kammerhópur. Frá
Skotlandi koma m.a. James Clapp-
erton og Paragon kammerhópur-
inn, sem halda mun tvenna tón-
leika, þá síðari með Caput-hópnum.
í janúar munu nemendur úr Tón-
skóla Sigursveins semja verk í sam-
starfí við skoskt tónskáld, og verð-
ur verkið frumflutt á hátíðinni.
Tónstofa Valgerðar tekur þátt í
þessu verkefni. Á Akureyri verður
sams konar verkefni í gangi, þar
sem Tónlistarskólinn fær til liðs við
sig skoskt tónskáld og verður af-
raksturinn frumfluttur á Akureyri
í byijun febrúar.
Norræna húsið tekur virkan þátt
í hátíðinni, með samstarfi við Tón- I:
listarskólann í Reykjavík, þar sem
haldnir verða tvennir nemendatón-
leikar; einnig tveir fyrirlestrar um
skoska tónlist og opnar æfíngar
þar sem skosk og íslensk tónskáld
ræða verk sín við íslenska tónlistar-
nemendur sem æfa munu valin
skosk og íslensk verk.
Myndlist, matur
og bókmenntir
Skoski jassistinn Tommy Smith
heldur tónleika ásamt Jasskvartett
Reykjavíkur, en Tommy Smith
verður einnig einleikari á tónleikum
Sinfóníuhljómsveitar íslands. .
Skoska þjóðlagahljómsveitin
Whistlebinkies heldur einnig tón-
leika og stendur fyrir einhvers kon-
ar uppákomu eins þeirra er vandi.
Á Kjarvalsstöðum verður sett
upp stór sýning á skoskri samtíma-
list og í Norræna húsinu munu
tveir skoskir rithöfundar dvelja,
flytja fyrirlestra og lesa úr verkum
sínum og annarra skoskra skálda.
í Regnboganum verða sýndar 5
skoskar kvikmyndir og mun skosk-
ur kvikmyndagerðarmaður segja
frá kvikmyndagerð í Skotlandi.
Loks tekur veitingahúsið Við Tjörn-
ina á móti gestakokk frá Rogano
í Glasgow og geta íslenskir mat- .
unnendur þvi kynnst því besta í J
skoskri matargerðarlist meðan á Jj
hátiðinni stendur.
„Þetta er áætlunin í stórum 1
dráttum," segir Bergljót og bætir
því við að ýmislegt geti enn tekið
breytingum, og þá einna helst að
eitthvað bætist við dagskrána.
„Auðvitað væri þetta ekki hægt án s
þess að fjölmargir aðilar hafi lagst I
á eitt og án þess að hægt sé að
tæma listann í svona spjalli langar
mig að nefna Tónskáldafélag ís-
lands, Kjarvalsstaði, Reykjavíkur-
borg, Norræna húsið, Ríkisútvarp-
ið, Sinfóníuhljómsveit íslands, Rit-
höfundasambandið, Tónlistarskól-
ann í Reylqavík, Tónskóla Sigur-
sveins, Tónstofu Valgerðar, Regn-
bogann, Veitingahúsið við Tjörn-
ina, Tónlistarskólann á Akureyri,
Kammersveit Akureyrar."
TEXTI: HÁVAR
SIGURJÓNSSON