Morgunblaðið - 03.11.1992, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 03.11.1992, Blaðsíða 2
2 B MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR ÞRIÐJUDAGUR 3. NÓVEMBER 1992 Aðsókn að knattspyrnuleikjum 1989 - Aðsókn að öllum leikjum Meðalaðsókn/leik 1989 1990 1991 1992 ’89 '90 ’91 '92 1. umferð 2.969 3.773 4.437 4.475 594 755 887 895 2. umferð 2.706 3.950 3.753 4.546 541 790 751 909 3. umferð 4.180 2.185 4.424 5.557 836 437 885 1.111 4. umferð 3.313 4.169 4.081 3.322 663 834 816 664 5. umferð 3.834 3.053 3.668 2.627 767 611 734 525 6. umferð 4.126 3.420 4.230 2.573 825 684 846 515 7. umferð 3.684 2.495 3.416 3.190 737 499 683 638 8. umferð 3.890 3.278 4.983 3.803 778 656 997 761 9. umferð 4.403 2.170 3.389 4.152 881 434 677 830 10. umferð 3.192 2.734 3.340 3.622 638 547 668 724 11. umferð 3.541 2.736 4.648 3.688 708 547 929 738 12. umferð 4.483 2.866 3.840 4.197 897 573 768 839 13. umferö 4.736 2.485 3.706 3.069 947 497 741 514 14. umferð 3.835 2.570 2.788 2.060 767 514 558 412 15. umferð 3.614 2.294 3.343 2.772 723 459 668 554 16. umferð 3.610 2.682 3.402 1.928 722 536 680 386 17. umferð 4.204 1.874 3.836 2.697 841 375 767 539 18. umferð 3.1CG 3.546 2.339 2.534 627 709 468 507 Samtals: 67.444 52.280 67.623 60.812 749 581 751 676 JJ M ÞÝSKA dagblaðið Expressen í Köln velti vöngum yfir því í síðustu viku hvaða leikmenn gætu styrkt úrvalsdeildarlið Kölnar, sem gengið hefur afar illa það sem af er vetrar. Einn þeirra sem nefndur var til sög- unnar var Guðni Bergsson hjá Tott- enham. Sagt var að hann myndi • styrk vöm félagsins og birtist mynd af honum með. ■ EJNN forráðamanna Kölnarliðs- ins sagði við Morgunblaðið að þetta væri alfarið hugmynd blaðsins, en vel gæti farið svo að fulltrúi félags- ins færi til Englands og kíkti á Guðna í leik. ■ ANTON Björn Markússon, miðvallarspilari hjá Fram í knatt- spymu, hefur verið á ferð og flugi — þó meira á flugi — síðustu vikur. Anton Björn er í Flórída í Banda- ríkjunum, þar sem hann er í flug- námi. ■ ÞORSTEINN Halldórsson, knattspymumaður hjá FH, þarf að flakka á milli íþróttasvæða. Fyrir utan að leika knattspymu með FH, þjálfar hann sjöunda flokki í hand- knattleik hjá Fylki og þá hefur hann verið ráðinn þjálfari meistaraflokks kvenna í knattspymu hjá Fram. Þorsteinn er trúlofaður Hafdísi Guðjónsdóttur, handknattleikskonu úr Fram. H GYLFI Orrason, milliríkjadóm- ari í knattspymu, fór í gær til Lux- emborgar, þar sem hann verður línuvörður í tveimur leikjum í einum riðli Evrópukeppni landsliða skipuð leikmönnum yngri en 18 ára. Þar keppa Luxemborg, Portúgal og Svíþjóð. Hann mun dæma leik Svía og Portúgala. ■ GYLFI stóð í ströngu í sl. viku er hann dæmdi leik 1. flokks Gróttu og KR í Haustmótinu. Hann rak fjóra leikmenn af leikvelli og sýndi fimm Sla spjaldið. KR vann 8:6. EYSTEINN Hauksson, leik- maður fslenska 18 ára landsliðsins, sem hefur leikið með Hetti á Egils- stöðum, hefur tilkynnt félagaskipti yfir í Keflavfk. Eysteinn stundar nám í Fjölbrautaskóla Suðumesja. Annar leikmaður að austan hefur einnig gengið til liðs við ÍBK. Það er Sigurður Arnar Jónsson, mark- vörður úr Leikni á Fáskrúðsfirði. ■ LEIKMENN Hattar á Egils- stöðum fara í æfíngabúðir til Fær- eyjar fyrir næsta keppnistímabil. Það tekur jafn langan tíma fyrir Egilsstaðarliðið að fara til Færeyja og til Reykjavíkur. ■ EF Luzern nær að komast áfram í UEFA-keppninni, en félagið vann fyrri leikinn gegn Feyenoord, 1:0, aukast líkur á að Arnar Grétarsson landsliðsmaður úr Breiðabliki fari til félagsins. ■ VALDIMAR Kristófersson og Steinar Guðgeirsson, landsliðs- menn í knattspymu úr Fram, hafa gert það gott hjá belgíska 3. deild- arfélaginu Heultje. Þeir félagar fóru til félagsins eftir að hafa leikið með Fram í Kaiserslautern á dögunum. Það var öflug sendinefnd frá Heultje sem kom til Kaiserslautern til að sækja þá - átta broddborgarar bæj- arins. (Ó)LÖGLEGUR Segja má að íslandsmótinu í knattspyrnu hafi lokið formlega_ í síðustu viku er dóm- stóll KSÍ kvað upp úrskurð í áfrýjunarmáli Þróttar frá Nes- kaupstað gegn Völsungi, í fram- haldi af kæru Völsungs gegn Norðfirðingunum vegna leiks lið- anna í 3. deild á Húsavík í ágúst. Þar með er ljóst að Þróttur N. færist upp í 2. deild fyrir næsta keppnistímabil en ekki Grótta. Með þeim fyrir- vara þó að dómstóll ÍSÍ breyti niðurstöðunni, en hugmyndir munu uppi um að áfrýja úr- skurðinum þangað. Málið snýst um að einn leik- manna Þróttar N., Sófus Hákon- arson, kom inn á sem varamað- ur en gleymst hafði að rita nafn hans á leikskýrsluna. Völsungar kærðu og unnu málið heima í héraði en dómstóll KSÍ hnekkti þeirri niðurstöðu. Telur lið Þrótt- ar ekki hafa verið ólöglegt. Úrskurðurinn í síðustu viku kom mörgum á óvart. Til hvers er leikskýrslan? spyija menn. Getur dómstóll KSI leyft sér að gefa fordæmi sem þetta með því að úrskurða á þennan veg? Hvenær drepur maður mann og hvenær drepur maður ekki mann? segir Jón Hreggviðsson í íslandsklukkunni. Hvenær er leikmaður ólöglegur og hvenær er hann ekki ólöglegur? í 6. grein reglugerðar KSÍ um knatt- spyrnumót segir m.a. að á leik- skýrslu eigi að fylla út nöfn þeirra leikmanna „sem leika eiga leik auk varamanna og skal númer hvers og^eins til- greint á skýrslunni." (í nefndri grein segir reyndar einnig að fyrirliðar (leturbreyting undir- ritaðs) skuli afhenda dómara útfyllta leikskýrelu, þannig að ef farið yrði algjörlega eftir bók- stafnum er ekki víst að margir leikir hérlendis yrðu taldir lög- legir!) Niðurstaða dómstóls KSÍ er athygli verð. Mistök voru gerð, um það er ekki ágreiningur. En þegar málið er skoðað ofan í kjölinn er ljóst að hér var ekki um vísvitandi svik eða blekkingu að ræða. Þróttarar gerðu ekkert af óheilindum. Þeir voru ekki að styrkja lið sitt með utanað- komandi manni, heldur er Sófus gamall félagsmaður sem liðs- stjóri gleymdi einfaldlega að skrá á skýrsluna, þrátt fyrir að leikmaðurinn sæti með félögum sínum í rútu á fimmtu klukku- stund frá Norðfirði alla leið til Húsavíkur. Það hefði verið grátlegt fyrir Þróttara að missa af sæti í 2. deild vegna mistakanna sem mál þetta snýst um. Ekki verður lagður dómur á réttmæti niður- stöðu dómstóls KSÍ hér enda hefur undirritaður ekki þekk- ingu í lögum til þess. En ef menn velta fyrir sér mannlega þættinum geta þeir spurt sjálfa sig hvort megi láta ein svona mistök eyðileggja margra mán- aða vinnu hóps manna. Spum- ingin með fordæmisgildið er svo önnur, sem menn geta velt fyrir sér. Skapti Hallgrímsson Hvenær er leikmaður ólöglegur og hvenær er hann ekki ólöglegur? Hver er hann þessi PAGUR SIGURÐSSOIM leikstjórnandinn urtgi hjá Val? Gerði eins og mamma svefni. Borða vel á morgnana og svo kannski pasta eða spaghetti í hádeginu. Annars reyni ég að hafa þetta sem eðlilegast nema hugsa aðeins meira um fæðið á leikdegi. Ég rúlla yfir mótheijana í huganum en reyni að spá sem minnst í markverðina. Tek bara mín skot og svo sér maður til hvort boltinn liggur inni eða ekki.“ DAGUR Sigurðsson er án efa einn efnilegasti handknattleiks- maður landsins og lék fyrsta landsleik sinn, gegn Egyptum, fyrir skömmu. Hann hefur verið leikstjórnandi meistaraflokks Vals síðustu þrjú árin en er þó ekki nema 19 ára gamall. Hann á ekki langt að sækja íþróttahæfileika sína því móðir hans, Ragnheiður Blöndal, var ein fremsta handknattleikskona landsins á sfnum tíma og faðir hans, Sigurður Dagsson, knatt- spyrnumarkvörður í fremstu röð og bæði léku þau með Val eins og sonurinn. Dagur á tvo bræður, sá eldri heitir Lárus og er markvörður í 1. deildarliði Þórs í knattspyrnu og sá yngri, Bjarki 12 ára, er bæði í handbolta og fótbolta. „Já, ég neita því ekki. Þau voru ekíci að ýta mér út í þetta en þeg- ar maður situr fyrir framan sjón- varpið með þeim um hveija helgi kviknar áhugi. Einnig er mikið rætt um íþróttir á heimilinu og þetta hefur allt sitt að segja.“ - Nú hefur þú stjómað sóknarleik Vals. Er það staða sem hentar þér vel? „Þessi staða hentar mér vel í dag. Kannski gæti ég leikið sem skytta í framtíðinni. En þetta er alltaf spuming hvemig þetta þró- ast. Ég tel mig ekki hafa nægileg- an líkamsstyrk til að vera í skyttu- hlutverki. Ætli það vanti ekki svona tíu kíló upp á það.“ - Hvemig undirbýrðu þig fyrir leiki. Spáir þú í mótherjana? „Ég reyni að taka því rólega kvöldið fyrir leik og ná góðum Dagur var jafnhliða í knatt- spymu og handbolta til að byija með og lék með drengja- landsliðum í báð- ValurB. um greinunum. Jónatansson Það kom að því að skrifar hann varð að gera það upp við sig hvora íþróttagreinina hann ætti að velja. Hvað réði því að hand- boltinn varð fyrir valinu? „Ég taldi mig eiga meiri fram- tíð í handboltanum. Og ég held að ég hafí vaiið rétt svona eftir á að hyggja. Það hafði einnig áhrif á ákvörðun mína að Lárus bróðir valdi knattspymuna eins og pabbi og þá varð ég að fara í handbolt- ann eins og mamma!" - Nú voru foreldrar þínir mikið í íþróttum. Hafði það áhrif á að þú fékkst áhuga á íþróttum? - Ertu metnaðargjarn? „Já, ég er metnaðargjarn gagn- vart handboltanum og það kemur að vísu niður á náminu í Verslun- arskólanum. Ég hef ekki getað sinnt náminu eins og ég hefði helst viljað." - Áttu þér einhverja fyrirmynd í handboltanum? „Ég á margar fyrirmyndir og get nefnt í því sambandi leikmenn eins og Sigga Sveins, Júlla Jónas- ar og svo eriendu leikmennina, Pólveijann Bogdan Wenta og Spánveijann Masip.“ - Hver eru framtiðaráform þín í handboltanum? „Það er að tryggja sér ömggt sæti í íslenska landsliðinu. Ég hef einnig áhuga að leika erlendis og þá kannski helst á Spáni. Núna hugsa ég um að reyna að standa mig sem best með Val og lands- liði 21 árs og yngri.“ Dagur sagðist ekki vera nægi- lega ánægður með gengi Valsliðs- ins það sem af er keppnistímabil- inu. „Við höfum spilað langt und- ir getu það sem af er og getum bætt okkur mikið. En það jákvæða er að á sama tíma erum við ekki búnir að tapa leik og erum á toppnum þrátt fyrir allt.“ Morgunblaðið/Kristinn Dagur Slgurðsson segir handboltann gera það að verkum að námið í Verslunarskólanum vilji stundum sitja á hakanum. Hann var þó mættur með skruddumar í skólann í gærmorgun.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.