Morgunblaðið - 17.11.1992, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 17.11.1992, Qupperneq 8
HNEFALEIKAR Svíarog Danirí sérflokki á Norður- landa- mótinu SVÍAR og Danir skiptu með sér gullverðlaununum á Norður- landamótinu í badminton, sem fór fram í Malmö í Sviþjóð um heigina. Breyta þurfti niðurröð- un vegna forfalla, en íslensku keppendurnir féllu allir út í 1. umferð, nema Ása Pálsdóttir, sem komst í 2. umferð einliða- leiks kvenna. Næsta Norður- landamót verður á íslandi og hefur verið sett á f nóvember 1994, en hugsanlega verður það ekki fyrr en í apríl 1995. Asa, sem býr og æfír í Danmörku í vetur, vann norsku stúlkuna Olavsen 11-5 og 11-5 í 1. umferð einliðaleiks kvenna, en tapaði síðan í 2. umferð. Bima Petersen stóð sig einnig vel að sögn Sigríðar Jónsdótt- ur, formanns BTÍ, þrátt fyrir 11-6 og 11-7 tap gegn Karólínu Eriksson frá Svíþjóð. „Þetta var mjög góður leikur og Bima spilaði vel,“ sagði Sigríður. Elsa Nielsen tapaði 11-8 og 11-3 fyrir Lotte Andersson frá Svíþjóð, en landa hennar, Christina Magnusson varð Norðurlandameist- ari. * Broddi Kristjánsson mætti Finnanum Larse Lindelöff í einliða- leik karla og tapaði 15-9 og 15-12. Finninn komst í 12-2 í seinni lot- unni, en Broddi náði að jafna 12-12. Þriðja lotan var í augsýn, en Finninn náði sér aftur á strik áður en til hennar kom. Jón Pétur Ziemsen tap- aði 15-3 og 15-1 fyrir Svíanum Christian Ljungwerk. „Þetta var fyrsti leikur okkar í mótinu," sagði Sigríður. „Jón Pétur var tauga- óstyrkur og lék undir getu.“ Daninn Tomas Lauritsen varð Norðurlanda- meistari. Broddi og Jón Pétur töpuðu 15-7 og 15-8 fyrir Svíum í tvíliðaleik. Að sögn Sigríðar var um góða viðureign að ræða. „Þetta var mikið spil og jafnt framan af í seinni lotunni.“ Danirnir Jon Holst Christiansen og Jan Paulsen tryggðu sér Norður- landameistaratitilinn. Ása og Elsa töpuðu 15-5 og 15-2 fyrir Maríu Bengtsson og Maríu Borg í tvíliðaleik kvenna, en sænsku stúlkurnar komust síðan í undanúr- slit. Christina Magnusson og Lim fengu gullverðlaunin, en kínverska stúlkan bjó um hríð á íslandi áður en hún flutti til Svíþjóðar og er nú sænskur ríkisborgari. í tvenndarleik töpuðu Jón Pétur og Elsa 15-8 og 15-4 fyrir sænsku pari, sem tapaði í úrslitum fyrir Per Gunn Jones og Maríu Bengtsson. Síðar nefnda parið byrjaði á því að vinna Brodda og Birnu, 15-2 og 15-6. Sigríður sagði að Danir og Svíar væru í sérflokki í Evrópu og með það í huga væri hún ánægð með árangurinn. „Okkar fólk stóð sig vel og lék af eðlilegri getu. Það stóð í Norðmönnum og Finnum og allir gerðu sitt besta.“ HANDBOLTI FH vann Fylki Kvennalið FH sigraði Fylki í 1. deildinni í handbolta í gær- kvöldi, 21:17. Leikurinn fór fram í Austurbergi í Breiðholti, á heima- velli Fylkisstúlknanna. Frábær bardagi Reuter Keppni áskorandans Riddicks Bowe og heimsmeistarans Evanders Holyfíeld um helgina þótti sú besta sem sést hefur í þungavigt hnefaleika í langan tíma. Hér eigast þeir við í hringnum í Las Vegas. Bowe er til hægri og í þann veginn að veita Holyfield eitt margra þungra högga. Fádæma keppnisharka meistarans nægði ekki Evander Holyfield tapaði fyrir Riddick Bowe í keppni um heimsmeistaratitil- inn í þungavigt. Holyfield íhugarað leggja keppnishanskana á hilluna „ÉG er maðurinn, ég er meist- arinn,“ sagði Riddick Bowe eftir að hafa sigrað Evander Holyfi- eld á stigum í keppni um heims- meistaratitilinn í þungavigt í hnefaleikum. Keppni Banda- ríkjamannanna í Las Vegas um helgina þótti ein sú besta um árabil. Kapparnir gáfu hvergi eftir og barátta Holyfields, eftir að hafa verið sleginn niður í 11. lotu, vakti mikla athygli. „Ég reyndi það sem ég gat, en það nægði ekki,“ sagði meistarinn fyrrverandi. „Þú þarft ekki að skammast þín fyrir neitt,“ sagði Bowe, „enda ertu með Ijóns- hjarta." J Holyfíeld hafði betur til að byija með, en báðir náðu góðum höggum. Eftir fimmtu lotu virtist sem Bowe væri farinn að þreytast, en margir höfðu óttast að það að léttast um 16 kg á síðustu tveimur mánuðum hefði áhrif á úthaldið, þó hann væri 13,6 kg þyngri en meistar- inn. En Bowe sýndi að hávaxinn góður boxari sigrar nánast alltaf minni og léttari mann, þó góður sé. Spennan I hámarki Til tíðinda dró í 10. lotu og stóðu áhorfendur á öndinni. Bowe hrein- lega lúbarði Holyfíeld, en meistarinn sýndi fádæma keppnishörku og í stað þess að falla eins og allt benti til náði hann að svara fyrir sig. Bowe átti samt síðasta orðið í lotunni og lét höggin dynja á mótheijanum, en bjallan kom honum til bjargar. Um 18.000 áhorfendur voru á staðnum og þeir, sem voru ekki þeg- ar risnir úr sætum, stóðu og tóku þátt með hvatningarhrópum í 11. lotu. Bowe nýtti sér yfírburðina og náði tugum góðra högga á mótheija sinn, en Holyfíeld neitaði að gefast upp. Jafnvel eftir að hafa verið sleg- inn niður í fyrsta sinn á ferlinum og úrslitin virtust ráðin, kraup hann á meðan dómarinn taldi upp í átta, en stóð aftur upp og náði að slá frá sér áður en bjallan glumdi. - Baráttan hélt áfram í 12. og síð- ustu lotu og boxaramir voru enn á tánum, þegar slagurinn var úti. Tveir dómaranna dæmdu Bowe 117-110 sigur, en einn 115-112. Þetta var 32. sigur hans, en fyrsti ósigur Ho- lyfíelds eftir 28 sigra í röð. Hættur Holyfíeld hefur sennilega aldrei staðið sig betur, en játaði sig sigrað- an og sagði að nú væri komið að kaflaskiptum. „Ég hafði alltaf á til- finningunni að ég gæti sigrað. Jafn- vel í síðustu lotu. En hann var ákveð- inn og hélt áfram að beijast. Hann tók við höggum og gaf til baka, sem er einkenni meistara. Hann var ein- faldlega betri. Box hefur verið hluti af lífi mínu, en það er leikur, sem ég geri mér grein fyrir að er ekki endalaus. Ég gerði mitt besta,“ sagði fyrrum meistari, sem er 30 ára og fékk um 986 millj. ÍSK fyrir slaginn. „Ef ég held að ég eigi möguleika síðar kem ég aftur," bætti hann við. Holyfield tryggði sér titilinn fyrir tveimur árum, þegar hann sigraði James Douglas og varði meistara- tignina þrisvar áður en hann mætti Bowe. „Ég held að þetta sé búið hjá mér, en ég þarf tíma til að komast að því.“ Hugrekki í stað hugleysis Bowe, sem er 25 ára, fékk um 406 millj. ÍSK fyrir sigurinn. Hann var ásakaður um hugleysi, þegar hann hætti í keppni við Lennox Lewis um gullið á Ólympíuleikunum í Seoul 1988, en hugrekki var aðal hans í Las Vegas um helgina. „Þetta hefur svarað mörgum spurningum um mig. Ég lét hann fínna fyrir mér og sýndi að krafturinn kemur að innan. Ég sagði að tími væri kominn til breyt- inga. George Bush varð að fara og Evander Holyfíeld varð að fara. Ég er slæmur maður.“ Lewis sigraði Donovan Ruddock í London fyrir hálfum mánuði og tryggði sér þar með réttinn sem næsti áskorandi heimsmeistarans. BADMINTON GETRAUNIR: 222 11X 121 1X12 LOTTO: 9 22 25 35 38 + 16

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.