Morgunblaðið - 09.12.1992, Síða 8

Morgunblaðið - 09.12.1992, Síða 8
Cíl □ seer aaaMaaaa '.e auoAauaivctiM aiaajai4uohom IÖRUNDUR biarnason MIÐVIKUDAQUR 9. DESEMBER 1992 BOLLANN Morgwiblaðið/Róbert Schmidt RÆKJUVEIÐAR á Arnarfirði hafa gengið vel það, sem af er vertíð. Karl Garðarsson á Jörundi Bjamasyni BA er einn á báti og hefur fengið milli 16 og 20 tonn af rækju af 78 tonna kvóta. Að sögn Karls er rækjan góð. Sterkur stofn af tveggja ára rækju hefur verið áberandi í aflanum, en sú rækja er fremur smá. Karl hefur fengið upp i 2,5 tonn í hali og segir hann það mikið. SÉRBLAÐ (IM SJÁVARÚTVEG Fiskpatévörur þróaðar úr vannýtta hráefninu ÍSLENSKT-FRANSKT eldhús og Rannsókna- stofnun fiskiðnaðarins hafa unnið að því verkefni að þróa úr vannýttu hrá- efni paté-vörur fyrir Hol- landsmarkað, þannig að afurðimar henti til framleiðslu í lítilli verksmiðju og framleiðslan geti skilað hagnaði. Niðurstöður verkefnisins, sem Rannsóknaráð hefur styrkt, benda til að unnt verði að framleiða þessar afurðir á hagkvæman máta. Verkefnisstjóri er Guðmundur Stefánsson hjá Rf. Verögildi mamings úr ý og þorski eykst sexfalt við fiskpaté-framleiðslu Markaður íyrir fiskpaté fer vaxandi vlða erlendis. Fiskpaté-afurðir eru for- réttir eða léttir aðalréttir, sem hafa fal- legt útlit og mikla ferskleikaímynd og þessar afurðir eru sérstaklega vinsælar á veitingahúsum. Afurðirnar líta út eins og þær hafi verið búnar til af mat- reiðslumeistara hússins, enda þótt þær séu í raun oft gerðar af kunnáttumönn- um í verksmiðju. Að uppistöðu til er fiskpaté hakkað fiskhold, t.d. marningur, sem í er bætt stærri hráefnishlutum, svo sem laxi, rækju, humri, krabbakjöti og græn- meti. Hráefnið, sem notað er til fram- leiðslunnar, getur verið af ýmsum toga en verður að vera mjög ferskt. Margs konar aukaafurðir, t.d. afskurður og útlitsgallað hráefni, sem erfitt er að nota í aðra framleiðslu, henta sem hrá- efni til fiskpatégerðar og því getur verð- mæti þess hráefnis, sem notað er til framleiðslunnar, aukist mjög mikið. Sem dæmi má nefna að verðgildi grunn- hráefnisins, ýsu- eða þorskmarnings, eykst sexfalt við fískpaté-framleiðsl- una. FOLK Jósafat Hinriksson Á karfanum við Grænland ■ JÓSAFA T Hinriksson, hlera- og blakkaframleiðandi, hefur margt reynt um ævina og kann frá ýmsu að segja. í nýj- asta tölublaði Poly-Ice frétta segir hann frá karfaveiðum á Grænlands- miðum: „Þetta var í bytjun nóvember- mánaðar 1953. Ég réði mig á skip sem fyrsta vélstjóra einn túr á togskipið Neptúnus. Skipstjóri var toppaflamaður- inn Bjarni Ingimarsson frá Hnífsdal. Aflinn varð óhemju- mikill, gerðum við þrjá túra á nimlega mánuði, um 400 tonn. Ég var ráðinn einn túr, en veiði- ferðunum fjölgaði, ég ílengdist og var þar í tæp 10 ár. Góður skóli það. Veiðarnar frá Juli- aneháb voru sannkallaðar út- hafsveiðar þá og mjög erfítt að sækja. Siglandi fyrir Hvarf oftast í svarta myrkri og innan um ís, skipið takandi sjó fram- an yfír sig á lensi svo að sjór skall aftur á brú. Þá dældaðist keisinn inn á lensinu. Hef ég varla heyrt álíka frásagnir af veiðiferðum á síðari tímum.“ Bullandi atvinna ■ SIGURÞÓR Hreggviðs- son, hafnarstjóri á Eskifirði er brattur þessa dagana. „Það hefur verið bullandi vinna hér á Eskifírði í allt haust. Sfld, loðna og rækja hefur borizt að landi í mikl- um mæli, en þorskfiskiriið er lélegt. Trill- urnar físka svo vel, þegar gefur. Það vantar fólk í vinnu frekar en hitt og í frystihúsinu hafa menn verið að vinna á nóttunni. Nánast öll síld er unnin til manneldis, heilfryst á Japan og flökuð og fryst eða söltuð. Hér var japanskt flutn- ingaskip, 120 metra langt og um 5.000 tonn að stærð að taka sfld og var síld frá Djúpavogi og Höfn keyrt hingað, þar sem skipið var of stórt fyrir hafnimar þar. Allt lýsi er farið, en mjölið bíður og vonast menn eftir því að verð hækki. Það er alls staðar nóg að gera á Austfjörðum, nema kannski á Reyðarfirði, en Reyðfírðingar hafa verið í vinnu hér á Eskifírði og í Neskaupstað er bullandi vinna. Við erum því bara brattir Austfirðingar og at- vinnuleysi þekkjum við varla nema af afspum,“ segir Sigur- þór. Sigurþór Hreggviðsson )•» SIGURÐUR Þ. Sigurðsson, matreiðslumeistari hjá Veislu- eldhúsinu Álfheimum 74, kemur hér með uppskrift að rTTr^TTrTraTTa pömmsteiktum hlýra en einnig má nota steinbít í þessa upp- skrift, sem er fyrir fjóra. Tiiraunaeldi á steinbft og hlýra er nú að nálgast framkvæmdastig, en þessir frændur henta mjög vel í fiskeldi. í uppskriftina þarf: 800 grömm af hlýra 2 egg Ört seasoning salt og pipar hvítlauksduft picanta rauða papriku 1/4 lauk 50 gr. af beikoni blá vínber 3 tómata 1 pela af rjóma Hlýrinn er beinhreinsaður og roðrifinn og velt upp úr hveitikryddblöndu en í henni eru Ört seasoning, salt, pip- ar, hvítlauksduft og picanta. Hlýranum er því næst velt upp úr 2 hrærðum eggjum og steiktur á pönnu. í sósunni eru rauð paprika, fjórðungur úr lauk, hvorttveggja sax- að, um 50 grömm af fíntsöxuðu beikoni, blá, steinhreinsuð vínber skorin í fjóra bita og saxað tómatkjöt úr þremur tómötum. Laukurinn, paprikan og beikonið er látið krauraa á pönnu. Einum pela af ijóma er síðan hellt út í og þetta er soðið niður í 1 til tvær mfnútur. Tómatkjötinu og vínbeijunum er bætt út í og kryddað er með fiski- krafti eftir smekk. Sósunni er skipt á diska, fiskurinn settur ofan á og borið fram með melónubát og sftrónu. mánudag kl.02:00 EIMSKIP VIÐ GREIÐUM RÉR LEIÐ Gámur, 40 fet. +2°C. Perskur lax. Afhending Boulogne. Á

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.