Morgunblaðið - 22.12.1992, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ
ÍÞRÓTTIR
ÞRIÐJUDAGUR 22.
DESEMBER 1992
MORGUNBLAÐIÐ
ÍÞRÓTTIR
ÞRIÐJUDAGUR 22. DESEMBER 1992
Eriendu leikmennimir
skemmtu áhorf-
endum konunglega
Nike-liðið lék „háloftakörfuknattleik" gegn landsliðinu
Morgunblaðið/Sverrir
John Taft lék vel með úrvali erlendra leikmanna gegn landsliðinu á sunnuaginn. Hér er hann kominn á skrið og þá reyndist landsliðsmönnunum oft erfitt að stöðva hann.
Valur Ingimundarson gerir þó heiðarlega tilraun og Damon Lopez fylgist með.
Terry Acox sýndi hvemig
troða á knetti í körfu
Terry Acox sýndi einstaklega skemmtileg tilþrif í leik með Nike-liðinu gegn
landsliðinu að Hlíðarenda. Hvað eftir annað tróð hann svo glæsilega að
áhorfendur risu úr sætum. Hann og aðrir í Nike-liðinu voru einnig iðnir við
að „blokka“ skot landsliðsmanna okkar. í leikhléi sýndi Acox ásamt Rondey
Robinson úr Njarðvík og Damon Lopez hjá Snæfelli hvernig á að troða. Acox
bar af þar og sérstaklega var ein troðslan glæsileg.
Þá fékk hann sex unga pilta fram á gólfið, raðaði þeim upp við vítateiginn
og fékk John Rhodes til að halda knettinum í uppréttri hendi yfir fyrsta piltin-
um. Síðan tók hann tilhlaup, stökk upp fyrir framan röðina, greip bojtann og
sveif yfir piltana og tróð með miklum látum. Hann fékk mikið klapp fyrir.
Hann mun væntanlega gera svipað á Akureyri í kvöld nema þá ætlar hann
að stökkva yfir bíl!
Basten tileinkaði
Milan útnefninguna
Marco van Basten tileinkaði félögum sínum hjá AC Milan tilnefninguna
sem besti knattspymumaður Evróðu í þriðja sinn.
M ARCO van Basten fékk 12
stigum meira en Búlgarinn
Hristo Stoichkov og var út-
nefndur knattspyrnumaöur
ársins í París á sunnudag. Hol-
lendingurinn tileinkaði liði sínu,
AC Milan, heiðurinn og sér-
staklega forseta þess. Stoic-
hkov sagði að Basten væri sá
besti en engu að sfður hefði
hann afrekað meira á árinu en
Hollendingurinn, sem var út-
nefndur f þriðja sinn.
Van Basten sagði að ekki færi á
milli mála að Stoichkov væri
frábær leikmaður. „Ég kann vel að
meta hvemig hann leikur, en hegð-
un hans er ekki alltaf til fyrirmynd-
ar og ef til vill hefur hún ráðið
úrslitum.“
Milan er spáð mikilli velgengni í
Evrópukeppninni og ítölsku deild-
inni í vetur, en liðið er taplaust á
tímabilinu. „Það er erfitt að segja
hvort við séum með besta liðið í
heimi, en við erum vissulega með
mjög öflugt lið og það er mikill
heiður að fá að leika með því,“ sagði
Basten, sem verður frá næstu mán-
uði vegna meiðsla.
Frakkinn Jean-Pierre Papin, sem
var kjörinn sá besti í fyrra, tekur
stöðu Hollendingsins hjá AC Milan,
en honum hefur gengið erfíðlega
að festa sig í sessi hjá liðinu. ;,Hann
þarf tíma,“ sagði Basten. „Eg átti
við vandamál að stríða þegar ég
byijaði að leika á Ítalíu, en hann
er svo hæfileikaríkur að ég er sann-
færður um að hann nær sér á strik.“
Papin óskaði Basten alls hins besta
í endurhæfingunni „og ég get full-
vissað hann um að við verðum
áfram á toppnum, þegar hann byij-
ar aftur.“
Eftirtaldir leikmenn fengu flest
atkvæði í kjörinu:
1. Marco van Basten (Hollandi, AC Milan). 98
2. Hristo Stoichkov (Búlgaríu, Barcelona). 80
3. Dennis Bergkamp (Hollandi, Ajax)......53
4. Thomas Haessler (Þýskalandi, Roma).... 42
5. Peter Schmeichel (Ðanm., Man. Utd.).... 41
6. Brian Laudrup (Danmörku, Fiorentina). 32
7. Miehael Laudrup (Danm., Barcelona).... 22
8. Ronald Koeman (Hollandi, Barcelona)... 14
9. Stephane Chapuisat (Sviss, Dortmund).. 10
10. Frank Rijkaard (Hollandi, AC Milan)....8
10. Enzo Sciío (Belgíu, Torino)............8
í þriggja stiga skotunum sem var
aðall liðsins.
Það er ekki hægt að dæma ís-
lenska landsliðið af þessum leik.
Leikmenn tóku þátt í leiknum til
að hafa gaman af og það tókst,
og ekki höfðu áhorfendur síður
gaman af og klöppuðu leikmönn-
um hvað eftir annað lof í lófa.
„Við fórum í þennan leik til að
hafa gaman af þessu og við höfð-
um það,“ sagði Torfí Magnússon
landsliðsþjálfari eftir leikinn. „Það
var virkilega skemmtilegt að sjá
svona „háloftakörfuknattleik", því
þeir leika hreinlega á annari hæð
en við,“ bætti Torfí við.
- sagði Faldo eftir að hafa sigrað Greg Normann í bráðabana
ÍSLENSKA landsliðið í körfu-
knattleik lék gegn Nike-liðinu,
sem skipað er erlendum leik-
mönnum sem leika hér á
landi, í Valsheimilinu á sunnu-
daginn. Landinn varð að lúta
ílægra haldi, tapaði 108:125,
í bráðskemmtilegum leik þar
sem leikmenn fóru á kostum.
I eikurinn var mjög hraður og
™ fjörugur. Leikmenn íslenska
landsliðsins röðuðu niður þriggja
stiga skotum og
Skúli Unnar gerðu ellefu slíkar
Sveinsson körfur í fyrri hálf-
sknlar leik, eða 33 stig af
54 stigum liðsins. íslenska liðið
gerði 21 þriggja stiga körfu í leikn-
um. Á sama tíma voru erlendu
leikmennimir mun rólegri í þriggja
stiga skotum og gerðu aðeins eina
slíka körfu í fyrri hálfleik og fímm
í þeim síðari.
Þeir voru hins vegar iðnari við
að troða knettinum í íslensku körf-
una og oft með miklum og glæsi-
legum tilþrifum. Þar fór fremstur
í flokki Terry Acox sem leikur
með Skagamönnum. Ótrúlegt
hversu mikinn stökkkraft dreng-
urinn hefur. Erlendu leikmennimir
vora einnig duglegir að stinga sér
í gegnum íslensku vörnina og
skora þannig og þar fór nýji leik-
maður Vals, John Taft, fremstur.
íslenska liðið hélt í við erlendu
leikmennina framan af og síðan
fór að ganga heldur verr. Hittnin
minnkaði enda var mikill hraði í
leiknum og erfítt að einbeita sér
FOLK
■ ERLENDU leikmennimir í
Nike-liðinu léku með sorgarbönd
gegn landsliðinu. Afí Damons
Lopez lést fyrir helgina og heiðr-
uðu þeir minningu hans með þess-
um hætti.
■ GUÐJÓN Skúlason úr ÍBK
var sterkastur í þriggja stiga skot-
keppninni í leikhléi. Hann skoraði
ekki úr fyrstu þremur skotunum
en næstu sjö rötuðu rétta leið.
■ JÓN Arnar Ingvarsson setti
sex þriggja stiga skot niður en
þeir John Taft og David Grissom
Íögur hvor.
I JÓN Kr. Gíslason lék ekki
með landsliðinu. Hann er slæmur
í hásin og lék ekki heldur með ÍBK
Segn Nike-liðinu á laugardaginn.
I EKKI var talið hvernig leik-
menn gerðu körfumar í Valsheim-
ilinu en íslenska liðið gerði 21
þriggja stiga körfu og ætli Nike-
liðið hafi ekki svarað með því að
troða knettinum með tilþrifum
Nlck Faldo sigraði enn eina ferðina um helgina. Að þessu sinni vann hann
á sterku boðsmóti á Jamaika og fékk um 33 milljónir ISK fyrir vikið.
komst í stuð við það og fékk áhug-
ann á golfi aftur, sem er gott,“
sagði Normann. Hann fékk síðan
fugl á 11., 13. og 14. holu og þá
vora þeir jafnir. „Þegar hann fer
að leika vel hef ég á tilfínningunni
að hann geti allt sem hann langar
til,“ sagði Faldo um leik Normanns.
„Þetta var skemmtilegur hring-
ur,“ sagði Faldo um síðasta daginn.
„Það var gott að ná að rífa sig upp
eftir að hann fór að setja þrýsting
á mig. Nú get ég farið að taka því
rólega í nokkrar vikur," sagði Faldo
sem hefur leikið einstaklega vel á
þessu ári.
Morgunblaðið/Sverrir
Að troða!
Terry Acox vann svo sannarlega
hug og hjörtu áhorfenda með glæsi-
legum tilþrifum. Á myndinni hér
að ofan er hann nýbúinn að troða
og hangir í hringnum til að stöðva
sig. Hann stökk upp talsvert fyrir
utan vítateiginn eins og hann gerði
reyndar einnig á myndinni hér til
hliðar. Munurinn er sá að í síðara
skiptið stökk hann yfír sex pilta og
segist ætla að stökkva yfír bíl á
Akureyri í kvöld.
„ÉG þakka guði fyrir að ég
hafði fimm högga forystu fyrir
síðasta hringinn," sagði Nick
Faldo þegar hann tók við ávís-
un uppá 33 milljónir ÍSK fyrir
sigurinn á boðsmóti sem hald-
ið var á Jamaika. Faldo sigraði
Greg Norman á fyrstu holu i
bráðabana.
Lokaspretturinn var skemmtileg-
ur og spennandi. Fyrir síðasta
hring hafði Faldo fímm högga for-
skot en Norman lék vel og saxaði
hægt og bítandi á. Þegar kapparnir
komu á síðustu flötina átti Nor-
mann eitt högg. Faldo setti niður
þriggja metra pútt en Normann
mistókst að setja niður rúmlega
meters pútt og því þurfti bráða-
bana.
„Ég varð að hitta, og hann
skondraðist einhvern vegin í,“ sagði
Faldo um púttið á 18. flötinni.
„Mig langaði mjög mikið til að enda
keppnistímabilið vel. Akkúrat svona
— með sigri hér,“ sagði Faldo.
Norman lék mjög vel síðasta
daginn og kom inn á 63 höggum,
eða sjö undir pari, sem er hreint
frábært á þessum velli, þar sem
aðeins hann og Faldo náðu að vera
undir pari vallarins á holunum 72.
í bráðabananum átti Normann þó
ekki góðan leik þegar hann ætlaði
að vippa inná flötina með fleygjárn-
inu. Hann hitti boltann illa og hann
fór rúmum 100 metram of langt,
yfír flötina. „Þetta var hræðilegt
högg,“ sagði Normann eftir á og
gat ekki annað en brosað að vitleys-
unni sem hann gerði.
Normann fékk um 18 milljónir
ÍSK fyrir annað_ sætið og var tiltölu-
lega sáttur. „Ég byijaði á að fá
fugl á fyrstu þremur holunum og
KORFUKNATTLEIKUR
KNATTSPYRNUMAÐUR ARSINS
GOLF / BOÐSMOT A JAMAIKA
Þakka guði fyrir
fimm högga forystu