Morgunblaðið - 22.12.1992, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 22.12.1992, Blaðsíða 8
BR SKÍÐI / HEIMSBIKARINN Fogdoe skaut afmælis- baminu ref fyrir rass Reuter Alberto Tomba frá Ítalíu á fullri ferð á afmælisdaginn, en hann varð að sætta sig við annað sætið í sviginu. Seizinger vann óvænt TOMAS Fogdoe frá Svíþjóð sigraði í svigkeppni helgarinn- ar sem fram fór í Slóvaníu og var þetta annar sigur hans í svigkeppni heimsbikarkeppn- innar á skíðum. Alberto Tomba hafði vonast eftir sín- um fyrsta sigri á keppnistíma- bilinu, sérstaklega þar sem hann átti afmæli á laugardag- inn, varð 26 ára. Frakkinn Patrice Bianchi var tal- inn líklegastur til sigurs eftir fyrri ferðina en þá hafði hann best- an tíma, rúmlega hálfri sekúndu betri en Fogdoe sem var annar. En Frakkinn fór ekki langt í síðari ferð- inni, sleppti þriðja hliði, misti skíðið og var þar með úr leik. Þessi atburður minnir óneitan- lega á keppnina í Val d’Isere fyrr í mánuðinum þegar hann hafði for- ystu eftir fyrri ferð en datt í þeirri síðari þannig að Fogdoe náði sigri. „Brautinn er eins og skautasvell. Það væri hægur vandi að leika hokkí þama uppi,“ sagði Fogdoe þegar hann kom niður úr fyrri ferð- inni. Bianchi meiddist á hægra hné í Val d’Isere og var mjög vonsvikinn með að missa aftur af sigri. „Ég gat ekki beitt fætinum eins og ég vildi og ég held það sé best að reyna að ná sér alveg áður en lengra er haldið. Vonandi duga hátíðimar til þess,“ sagði Bianchi. Tomba keyrði eins og hann gat í síðari ferðinni, staðráðinn í að sigra. Að venju voru fjölmargir ítal- ir í brekkunum til að hvetja hann en það dugði ekki til og hann varð að sætta sig við annað sætið í þriðja sinn á þessu keppnistímabili. Flestir væru sjálfsagt ánægðir með annað sætið í þremur mótum af sex, en ekki Tomba. Hinn 22ja ára gamli Svíi var ánægður með sigurinn. ^Þetta er mikill sigur fyrir mig. Ég var á eftir Tomba í síðari ferðinni og trúði ekki að ég gæti unnið eftir að ég heyrði hvemig honum gekk. Ég var viss um að Tomba myndi sigra,“ sagði hann. Tomba var hins vegar ekkert of kátur þrátt fyrir að hann yki forystu sína í samanlagðri keppni, en þar er Marc Girardelli í öðm sæti. Hann var meðal kepp- enda en komst ekki í röð þeirra tíu fyrstu, enda hafði hann kvartað mikið undan aðstæðum fyrir keppn- ina, sagði brautina allt of harða. Tomba kom á keppnisstað sama dag ög keppnin fór fram, hann gisti í ítalska bænum Tarvisio nóttina áður. Forráðamenn ítalska liðsins mættu of seint þegar rásnúmer vom dregin út og því var Tomba látinn hafa númer 15, en hann vildi fá númer fjögur. „Þetta gerði mig ef til vill aðeins reiðari en venju- lega, en þetta var allt í lagi, aðstæð- ur vora góðar. Ég fann þegar ég kom í mark að ég hefði getað tekið meiri áhættu, en þá var það auðvit- að of seint,“ sagði afmælisbamið. ÞÝSKA stúlkan Katja Seizinger sigraði í risasvigi í Albertaríki í Kanada á sunnudag, fékk tfm- ann 1.10,93 mfn. en 62 stúlkur tóku þátt. Tatiana Lebedeva frá Rússlandi var óvænt f öðru sæti á 1.11,01 og Regina Ha- eusl frá Þýskalandi fór á 1.11,20 og fékk bronsið. Þetta var í fyrsta sinn sem Lebedeva og Haeusl náðu verðlaunasæti f heimsbikarnum. Tomba gafverð- launaféð Alberto Tomba ákvað á laug- ardaginn, en þá varð hann 26. ára gamall, að gefa verð- launaféð sem hann fékk fyrir annað sætið í svigi karla, rúm- lega 250 þúsund ISK, til bama ( Bosníu. Yfírlýsing Toma kom mörg- um á óvart — svona fyrst í stað því hann sagði við ítalskan blaðamann að hann ætlaði að geía féð bömum í Serbíu. Tomba áttaði sig þó fljótlega á mistökunum og leiðrétti þau hið snarasta. Seizinger, sem er 20 ára og sigraði í brani í fyrra, sagðist hafa komið sjálfri sér á óvart með sigrinum. „Ég missti svo mikið úr vegna meiðsla og jafnvel í síðustu viku átti ég í miklum erfiðleikum. Því átti ég ekki von á að sigra, en aðstæður vora mjög góðar — hörð brautin hentaði mér vel.“ Lebedeva var með rásnúmer 55, en var dregin út ásamt fímm öðr- um, sem hófu keppnina. „Ég taldi CHANTAL Bournisse frá Sviss skaut þremur þýskum stúlkum aftur fyrir sig í annarri brun- keppni heimsbikarkeppninnar á laugardaginn. Keppnin fór fram f Lake Louis f Kanada. ÆT Eg var ekki að fela neitt í æf- ingaferðunúm, en þegar ég var kominn niður undir markið hægði ég alltaf á mér, en auðvitað keyrði ég á fullu í keppninni sjálfri,“ sagði Bournisse eftir sigurinn. „Ég held ég hafí skíðað vel í dag. Þetta var ekki fullkomið hjá mér, en gott,“ sagði hún brosandi. Heimamenn höfðu bundið mikl- ar vonir við Kate Pace enda hafði hún fengið besta tímann í síðustu tveimur æfingaferðunum, en hún mig ekki eiga neina möguleika,“ sagði stúlkan, sem fór beint inní hús eftir keppnina. „Ég var hissa, þegar þjálfari minn kom og náði í mig, því ég gerði alls ekki ráð fyrir að ég væri í verðlaunasæti. Aður hafði ég best náð 13 sæti í risasvigi, þannig að þetta var frá- bært. I raun er þetta eitthvað sem átti ekki að geta gerst og ég skil ekki hvað gerðist." brást vonum þeirra og varð í fímmta sæti. Ónnur stúlka frá Kanada stóð ekki undir vænting- um, en það var Ólympíumeistarinn Karrin Lee Gartner. Hún hafnaði í 14. sæti. Þýsku stúlkurnar sem röðuðu sér í þriðja til fimmta sæti yora Katja Seizinger, sem varð aðeins 5/100 úr sekúndu á eftir Bourn- isse. Michaela Gerg Leitner og Katharina Gutensohn. Aðstæður vora gríðarlega erfíð- ar en Boranisse lét það ekki á sig fá og komst klakklaust í gegnum hliðin 34 í rúmlega 2,6 km langri braut. Þetta var sjötti heimsbikar- sigur hennar, áður hafði þessi 25 ára stúlka sigrað fjórum sinnum í brani og einu sinni í risasvigi. „Það Mark Olrardelll fagnar sigrinum. 38. sigur Girar- dellis AUSTURRÍKISMAÐURINN. Marc Girardelli, sem keppir fyrir Lúxemborg, sigraði í stór- svigi á heimsbikarmótinu í Kranjska Gora í Slóveníu á sunnudag. Þetta var 38. sigur Girardellis á heimsbikarmóti og hann er nú í öðru sæti sam- anlagt, aðeins fimm stigum á eftir Alberto Tomba. Girardelli var með næst besta tímann eftir fyrri umferð, en fékk samanlagðan tíma 1.57,48 mín. Norðmaðurinn Lasse Kjus var annar á 1.57,64 og Svíinn Fredrik Nyberg þriðji á 1.58,04. Tomba hrasaði í fyrri ferðinni og fékk sjö- unda besta tímann. Sergio Berga- melli frá Ítalíu, sem sigraði á sama stað í fyrra, var með besta tímann eftir fyrri umferð, en hafnaði í fimmta sæti. Þetta var annar sigur Girardellis f mánuðinum — hann sigraði einnig í Alta Badia á Ítalíu 13. desember. Tomba og Svisslendingurinn Paul Accola kvörtuðu yfir brautinni, sem þjálfari Tomba lagði, en þeim brást bogalistin á sama stað. Tomba sagðist hafa lent á steini átta hlið- um fyrir ofan endamarkið. „Skíðið skemmdist og ég var viss um að ég færi út úr brautinni. Fyrri ferðin var erfið, en sú seinni eðlileg," sagði hann. Girardelli sagðist hafa hugsað um hvort hann ætti að stefna að sigri eða leggja áherslu á gott sæti með stigin í huga. „Ég stefndi á eitt af þremur fyrstu sætunum og hefði alveg sætt mig við að Berga- melli hefði sigrað.“ Hann tók undir óánægjuraddir með brautina. „Að- stæður voru mjög erfíðar og ég er ánægður með að vera á leiðinni til lands þar sem maturinn er góður og brautimar betri.“ var í rauninni ekkert að marka æfingaferðrnar því brautin var miklu hraðari núna og það var mjög erfitt að standa á skíðunum, hvað þá meira,“ sagði Katja Seizin- ger. Brautin var mjög hörð og víða var ís í henni. Merete Fjeldavli frá Noregi datt þegar hún átti aðeins eftir að fara í gegnum þijú hlið og varð að flytja hana með sleða til byggða og talið var að hún hefði fótbrotnað. Seizinger og Gutensohn eru nú jafnar í brankeppninni, báðar hafa fengið 130 stig. ■ Úrslit / B6 Bornisse best í bruni GETRAUNIR: X 1 X 11X 11X 2X11 LOTTO: 2 9 24 27 30 + 29

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.