Morgunblaðið - 05.01.1993, Side 3

Morgunblaðið - 05.01.1993, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR ÞRIÐJUDAGUR 5. JANÚAR 1993 C 3 KNATTSPYRNA / ITALIA Ruud Gullft var hetja Milan og gerði eina mark liðsins. Milan einum færrí en sigraði samt „Uthugsaður sigur sem AC Milan setti enn eitt metið á sunnudaginn þegar liðið vann AS Roma á útivelli 1:0. Þetta var sjöundi sigur Milan á úti- velli í röð og hefur ekkert ít- alskt lið leikið það eftir. Milan hefur nú leikið 49 leiki í röð án þess að tapa og er það einnig met. Það blés ekki byrlega fyrir Milan því auk þess að vera án knatt- spyrnumanns ársins,_ Marco van Basten, sem er Birgir meiddur, var fyrir- Breiðdal liði . þeirra, Franco sknfar Baresi, rekinn af velli eftir aðeins fimm mínútur. Það kom þó ekki að sök því-á 30. mínútu tryggði Ruud FOI_K ■ LUIGI Radice þjálfari Fiorentina var rek- inn frá félaginu á sunnudaginn, eftir að liðið tapaði 1:0 á heimavelli fyrir Atalanta. Liðið var í öðru sæti en datt niður í það sjöunda við tapið. U EFTIR leikinn rifust þjálfarinn og eigendur félagsins hressilega og endaði það með því að þjálfarinn var látinn fara.. Hann tók við liðinu í október 1991 og var þetta 500. leikurinn sem hann stjórnar liði í deildinni. U MARADONA var rekinn af velli þegar lið hans, Sevilla, tapaði 3:0 fyrir Tenerife. Mara- dona fékk tvívegis að sjá gula spjaldið fyrir nöldur, á 12. og 60. mínútu. ■ LANDI hans hjá Tenerife gerði tvö mörk úr vítaspyrnum en var síðan rekin af. velli skömmu á undan Maradona. ■ SEVILLA misti einnig miðjumanninn Marcos de la Fuente útaf vegna tveggja gulra spjalda. ■ JOSE Bebeto frá Brasilíu gerði öll þrjú mörk Coruna þegar liðið sigraði Espanol 3:0. Fyrsta markið gerði hann á fyrstu mínútu leiks- ins úr vítaspyrnu. ■ BEBETO er nú markahæstur ásamt Hristo Stoichkov en þeir hafa gert 15 mörk. ■ FJÓRIR leikmenn voru reknir af velli þeg- ar Benfica og Belenenses mættust í Lissabon í Portúgal. Liðin gerðu 1:1 jafntefli en tveir leikmenn úr hvoru liði voru reknir af velli. vannstmeð höfðinu," Gullit Milan sigur með glæsilegu marki úr þröngu færi. Baresi er ekki óvanur að líta rauða spjaldið þessa dagana því í iandsleik gegn Möltu á dögunum var hann einnig rekinn af velli. „Þetta var úthugsaður sigur, unninn með höfðinu,“ sagði Gullit eftir leikinn. „Ég vona að ég eigi eftir að enda ferilinn hér hjá Milan,“ bætti hann við en á dögunum hafði hann í hyggju að fara frá Milan. Hann er sem sagt hættur við það. Inter, sem er í öðru sæti átta stigum á eftir Milan, vann stórsigur á Genoa, 4:0. Shalimov lék mjög vel, Iagði upp eitt mark og gerði annað sjálfur. Vamarmaðurinn Battistini gerði fyrsta markið og var það 4000. mark Inter frá upp- sagði Gullit, hetja Milan hafi. Bergomi lék 500. leik sinn fyrir Inter og stóð sig vel. Fylgismenn Juventus, sem hefur lengst af verið í baráttunni á toppn- um, voru ekki ánægður með leik liðsins. Liðið gerði 2:2 jafntefli á þeimavelli við Parma. Kohler byij- aði á að gera sjálfsmark og koma gestunum yfir en Baggio jafnaði með glæsilegu marki. Vialli jafnaði síðan metin aftur eftir að hin unga stjarna Parma, Melli, hafði komið gestunum yfir öðru sinni. David Platt lék ekki með Juventus og í hans stað var Vialli fluttur á miðj- una sem leikstjórnandi. Þrátt fyrir að fyrirliði Sampdoria, Roberto Mancini, gerði þrennu gegn Foggia varð liðið að sætta sig við jafntefli. ENGLAND Liverpool slapp fyrir hom HARTLEPOOL, sem er þekkt- ara fyrir að berjast fyrir lífi sínu en ná árangri gerði sér lítið fyrir og sló úrvalsdeildarlið Crystal Palace út úr ensku bik- arkepninni á laugardag. Um- deild vítaspyrna undir lokin tryggði 2. deildarliðinu 1:0 sig- ur gegn úrslitaliðinu frá 1990. Bolton Wanderes var einnig nálægt því að koma rækilega á óvart, komst í 2:0 gegn bikar- meisturum Liverpool, en varð að sætta sig við jafntefli. Andy Saville var hetja Hartle- pool, skoraði úr vítinu átta mínútum fyrir leikslok og Hartle- pool leikur í 4. um- ferð í fjórða sinn í sögu félagsins. Leikmenn Palace, sem höfðu leikið sex leiki í röð án taps, mótmæltu ákvörðun dómarans án árangurs og Saville gerði 17. mark sitt á tímabilinu. Steve Coppell, stjóri Palace, gagnrýndi dóminn. „Ef þetta var víti þá væru sex eða sjö víti í hveij- Frá Bob Hennesssy í Englandi um leik. Ég hélt að dómarinn væri að dæma útspark. Það er sárt að falla úr bikarnum á þennan hátt, en ég óska Hartlepool góðs gengis og vonandi hagnast félagið vel á áframhaldandi þátttöku." Alan Murray, stjóri Hartlepool, tók undir ásakanir Coppells. „Ég hefði verið mjög reiður ef mitt lið hefði fengið svona vítaspyrnu dæmda á sig. En stundum hagnast maður á dómgæslunni og stundum ekki. Hins vegar erum við með betra lið en margir halda og við áttum skilið að sigra. Ég hafði á tilfinning- unni að Palace hefði komið hingað með þvi hugarfari að fá annan leik heima.“ Rush bjargaði Liverpool Ian Rush jafnaði 2:2 fyrir Liverpool gegn Bolton Wanderes, þegar átta mínútur voru til leiks- loka. John McGinlay skoraði fyrir Rovers eftir aðeins átta mínútur og Mark Seagraves bætti öðru marki við um miðjan hálfleikinn. Rovers fékk tvö góð marktækifæri að auki í hálfleiknum. Varamaðurinn Ronnie Rosenthal skaut í stöng á 57. mínútu, en Mark Winstanley tókst ekki að hreinsa og skoraði í eigið mark. Undir lokin komst Steve McMana- man inní sendingu frá Seagraves, markvörðurinn varði, en Rush fylgdi vel og jafnaði með 39. bikar- marki sínu fyrir Liverpool. Meistarar Leeds áttu í erfiðleik- um með Charlton, en gerðu 1:1 jafn- tefli. „Okkur vantar þá trú sem fylgir sjálfstraustinu," sagði How- ard Wilkinson, stjóri Leeds. „Við uppskárum ekki eins og til var sáð.“ Ian Wright gerði öll mörk Arse- nal í 3:1 sigri gegn Yeovil. Áhugamannaliðið Marlow seldi Tottenham heimaleikinn, en átti aldrei möguleika og tapaði 5:1. Adrian Heath var með tvö mörk fyrir 2. deildarlið Burnley, en heimamönnum Sheffield United tókst að jafna á síðustu mínútu. John Áldridge náði forystunni fyrir Tranmere, en var síðar vikið af velli. Oldham náði að rétta úr kútnum og jafna eftir að hafa verið 2:0 undir. Bournemouth komst yfir gegn Blackburn, en varð að sætta sig við 3:1 tap. Neil Cox kom inná sem varamað- ur hjá Aston Villa og kom liðinu á bragðið, en Marcus Browning jafn- - aði fyrir Bristol Rovers. Dean Saunders tókst ekki að skora úr vítaspyrnu, sme Villa fékk í seinni hálfleik. Malcolm Allison, stjóri Rovers, gerði lítið úr Villa fyrir leik- inn. „Sálfræðin hefur mikið að segja í undirbúningnum fyrir svona bikar- leik. Ég sagði leikmönnum mínum að öll þjóðin fyrir utan stuðnings- menn Villa stæði með þeim og vildi að þeir sigruðu. Og við áttum að sigra. Hraðinn var að visu meiri en við eigum að venjast, en strákarnir aðlöguðust fljótt og voru síst verri. Villa mátti þalcka fyrir að við vorum ekki með sterkasta lið okkar.“ Ron Atkinson, stjóri Villa, var ekki sérlega kátur. „Við gerðum okkur erfitt fyrir með því að fara illa með færin og erum í óþægi- legri stöðu.“ Níu leikjum í 3. umferð var frest- að vegna veðurs. KORFUKNATTLEIKUR / NBA Barkley og félagar töpuðu SAN Antonio stöðvaði sigur- göngu Charles Barkley og fé laga í Phoenix á sunnudags- kvöldið. San Antonio hafði bet- ur, 114:113, eftir franlengdan leik. Phoenix hafði sigrað í fjórt- án leikjum í röð þar til liðið tap- aði í San Antonio. Barkley gerði 31 stig en Robinson 33 fyrir heimamenn. að var hörkuleikur í New York þegar Knicks tók á móti LA Clippers og Knicks tapaði öðrum heimaleik sínum á tímabilinu en lið- ið hefur leikið fimmtán leiki heima. Það var Gary Grant sem gerði sig- urkörfuna með skoti úr horninu á síðustu sekúndu framlengingarinn- ar. Pat Riley, þjálfari Knicks var ekki ánægður með úrslitin. „Það er ferlegt að tapa svona leik,“ sagði hann enda var lið hans yfir lengst af. Ron Harper gerði 20 stig og tók 13 fráköst fyrir Clippers. Patrick Ewing gerði 26 stig fyrir Knicks og tók 17 fráköst. Það var líka jafn og skemmtilegur leikur þegar Charlotte sigraði New Jersey 118:117. Kendall Gill skoraði sigurkörfuna frá endalínu þegar fjórar sekúndur voru eftir. New Jers- ey var með eins stigs forystu og knöttinn þegar 12 sekúndur voru eftir. Þá braut Kenny Anderson af sér og það nýttu heimamenn sér. Larry Johnson gerði ekki stig í síð- asta fjórðungi en 32 í hinum þrem- ur. Hjá New Jersey var Drazen Petrovic með 27 stig, Derrick Cole- man 26 og Chris Morris 24. Joe Dumars gerði 23 stig í síðari hálfleik fyrir Detroit gegn Orlando og alls gerði kappinn 32 stig. Hann nýtti öll fjögur þriggja stiga skot sín í leiknum og leiddi liðið til sigurs þrátt fyrir að heimamenn í Orlando hefðu baft 19 stiga forystu um tíma. Shaquille O’Neal gerði 29 stig fyrir heimamenn og tók 15 fráköst en hann missti knöttinn sjö sinnum en alls missti liðið boltann 25 sinnum í leiknum! Michael Jordan gerði 39 stig fyrir Chicago gegn Indiana sem tapaði sjötta Ieik sínum í röð. Kari Malone gerð 29 stig og tók 13 fráköst. Jeff Malone gerði 21 stig þegar Utah vann sinn fimmta sigur í röð, að þessu sinni í Port- land. Kevin Duckworth gerði 27 stig fyrir heimamenn sem léku án Clyde Drexlers og Jerome Karseys, sem eru meiddir. Cleveland hélt sigurgöngu sinni áfram, vann LA Lakers að þessu sinni og hefur nú sigrað í tíu af ell- efu síðustu leikjum. Sacramento vann sinn næst stærsta sigur frá upphafi þegar liðið fékk Philadelphia 76ers í heimsókn. Nýliðinn Walt Williams gerði 40 stig þegar liðið sigraði 154:98! Stærsti sigur liðsins var á þriðjudaginn gegn Dallas en þá vann það 139:81, eða með 58 stiga mun. Aldrei hafa leik- menn liðsins gert eins mörg stig í einum leik og gegn 76ers. Dallas tapaði þrettánda útileik sínum á tímabilinu og áttunda leikn- um í röð og hefur engu liði gengið eins illa í deildinni. Liðið hefur tapað 23 leikjum en aðeins unnið tvo. Blue Edwards gerði 31 stig fyrir Milwaukee gegn Atlanta og hefur leikmönnum gengið allt í óhag síðan Dominique Wilkins fingurbrotnaði fyrir nokkru. Thompson hjá Indiana í baráttu við Grant og Armstorn hjá Chicago.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.