Morgunblaðið - 07.01.1993, Qupperneq 2
2 C dagskrá morgunblaðið fimmtudagur i. janúar 1993
Þróun í sjónvarpi
og hljóðvarpi
Ekki er neitt sem
bendir til að
verulegur vöxtur
verði á sviði
innlendrar
dagskrárgerðar fyrir
hljóðvarp og
sjónvarp. Ekki mun
verða þörf fyrir
aukinn starfskraft
frá því sem nú er,
tekjustofnarnir munu
ekki aukast að
raungildi og
tækninýjungar munu
draga til sín stærsta
hluta fjármagnsins
hjá íslensku
stöðvunum
Á síðustu árum hefur róttæk uppstokkun
átt sér stað á sviði ljósvakamiðlunar á Íslandi.
Árið 1982 stýrði ríkisvaldið hljóðvarpi og
sjónvarpi í krafti lagalegrar einokunar. I dag
eru a.m.k. fimm einkareknar hljóðvarpsstöðv-
ar á Stór-Reykjavíkursvæðinu, öflug einka-
sjónvarpsstöð með net sjónvarpsfélaga um
land allt, auk fjölda aðila sem aflað hafa sér
skammtíma- eða tækifærisleyfa til útsending-
ar útvarps.
Árið 1982 mynduðu afnotagjöld og auglýs-
ingar meginuppistöðuna í rekstrartekjum Rík-
isútvarpsins (RÚV), meðan tolltekjur voru
hverfandi. í dag er spumingin hvort til staðar
sér pólitísk samstaða um að tryggja RÚV
næga tekjustofna, þegar sýnt er að Stöð 2
sem áskriftar- og auglýsingasjónvarp hefur
náð að tryggja sér rekstrargrundvöll.
Árið 1982 lagði útvarpslaganefnd fram til-
lögu um afnám einkaréttar RÚV og að veita
skyldi öðrum innlendum aðilum en ríkinu leyfí
til hljóðvarps- og sjónvarpsrekstrar. í dag
hafa alþjóðlegir ljósvakamiðlar sett strik í
reikninginn með útsendingum um gervihnetti
(m.a. Astra 1A og 1B), beint til móttakenda,
án milligöngu íslenska dreifikerfisins.
Það er ástæða til að ætla, að þróunin í ís-
lenskum hljóðvarps- og sjónvarpsmálum muni
á næstu 10-15 árum fela í sér miklar breyting-
ar, þar sem tækni, fjármagn, pólitík og menn-
ing em afgerandi þættir.
Tækni
Á meginlandi Evrópu, m.a. fyrir tilstuðlan
EB, hefur gífurlegum fjármunum verið varið
til tækniþróunar á sviði hljóðvarps- og sjón-
varpsbúnaðar. Markmiðið er að skapa fram-
leiðslu- og markaðssvæði sem geti keppt við
sambærilegan iðnað í Bandaríkjunum og Jap-
an.
Stafrænt hljóðvarp er langt á veg komið
og verður líklega að vemleika um aldamót.
Væntanlegir hlustendur þurfa þá m.a. að fjár-
festa í nýjum móttökutækjum. Slíkt mun, í
krafti fjöldaframleiðslu, verða kleift fyrir flesta
hlustendur. Fyrir íslenskar útvarpsstöðvar, ef
í slíkt verður ráðist, mun það hins vegar verða
fjárfrekt, þar sem í langan aðlögunartíma
þarf að senda út bæði hliðrænt og stafrænt
með ærnum tilkostnaði. Útgjöld sem m.a.
munu verða fjármögnuð með niðurskurði á
útgjöldum til dagskrárgerðar.
Hvað viðvíkur sjónvarpi er ólíklegt að varan-
leg lausn finnist á allra næstu ámm. Á bak
við skerpusjónvarp (HDTV) takast á öflugir
hagsmunir pólitíkur og fjármagns. Það er hins
vegar ljóst að um aldamótin mun verða til
staðar nýtt staðalkerfí fyrir sjónvarp, samhliða
núverandi PAL-kerfi. Slík breyting fyrir RÚV
og Stöð 2 kallar á gífurlega íjármuni, þar sem
endurnýja þarf nær allan tækjabúnað. Slíkt
mun óhjákvæmilega draga til sín fjármagn frá
dagskrárgerðinni.
Fjöldi einkajarðstöðva á íslandi mun vaxa
á allra næstu ámm, en hins vegar er ólíklegt
að notendum kapalkerfa fjölgi frá því sem nú
er. Þar kemur til að lagning utan þéttbýlis-
kjarna er ekki arðbær, en líka ákveðnar hindr-
anir í sjálfum útvarpslögunum.
Fjármagn
Vöxtur og viðgangur íslenskra ljósvaka-
miðla er í nánum tengslum við almennt efna-
hagsástand samfélagsins. Þensla, lægð eða
stöðnun hafa beina þýðingu fyrir mismunandi
þætti hljóðvarps- og sjónvarpsreksturs. Kaup-
máttur almennings, velta auglýsingamarkað-
arins og einkum pólitísk afstaða til afnota-
gjaldsins er afgerandi fyrir RÚV. Samkvæmt
opinberum spám er ekki gert ráð fyrir vemleg-
um vexti í íslensku efnahagslífi á allra næstu
missemm. Þetta hefur m.a. þýðingu fyrir
umfang auglýsingaveltunnar og þróun afnota-
og áskriftargjalda. Áskriftargjald Stöðvar 2
ræðst af lögmálum markaðarins á hveijum
tíma. Hækkun afnotagjalds (a.m.k. 10% árið
1993) er eina raunhæfa leiðin til að tryggja
afkomu RÚV í því formi sem við þekkjum það
í dag. Það er hins vegar engan veginn víst
hvort pólitískur meirihluti sé fyrir því að
hækka afnotagjöldin á komandi árum.
Veltu ljósvakamiðlanna má áætla um 3,3
milljarða á ári. Rekstrargjöld RÚV vom skv.
fjárlögum ársins 1990 2.074 milljónir og
rekstrartekjur íslenska útvarpsfélagsins sama
ár 1.207 milljónir. Ríkissjónvarpið er dýrasti
pósturinn, 61% af ráðstöfunarfénu rann til
þess árið 1990. Auglýsingatekjur ríkissjón-
varpsins hafa verið sveiflukenndar undanfarin
ár, allt frá 20-35% af tekjum þess. Það er í
fljótu bragði erfitt að koma auga á aukna
vaxtarmöguleika í auglýsingatekjum, þannig
að afgerandi fyrir fjárhagsgrundvöll RÚV er
pólitísk samstaða um framtíð afnotagjaldsins.
Pólitík"
Á RÚV hvíla lögbundnar þjónustuskyldur
umfram aðrar hljóðvarps- og sjónvarpsstöðv-
ar. M.a. kveða útvarpsgjöldin á um fjölbreytt
og vandað íslenskt efni. Hins vegar hafa kröf-
ur um jafnvægi í rekstri RÚV sett meiri svip
Morgunblaðið/Emilía
Höfundur - Gísli Friðrik Gislason lauk
kandidatsprófi frá Kaupmannahafnar-
háskóla í haust og starfar hjá TV2 í Dan-
mörku.
á pólitíska umræðu en gæðakrafan. RÚV er
gjarnan skilgreint sem mennta- og menningar-
stofnun. Þar sem afnotagjöldin koma óhjá-
kvæmilega til með að mynda meginuppistöð-
una í fjármögnun RÚV í framtíðinni, er það
dauðadómur fyrir stofnunina ef ekki tekst
pólitísk sannfæring um að hljóðvarp og sjón-
varp í núverandi mynd, og í krafti þjónustu-
skyldna sinna, sé hluti af drífandi og marksæk-
inni íslenskri menningarpólitík.
Ef það tekst ekki, mun mikilvægi RÚV sem
hljóðvarps- og sjónvarpsstöðvar hverfa á
næstu 10-15 árum. Upp kemur sú staða, að
á markaðinum verður einkavæðing ráðandi,
þar sem áskriftar- og auglýsingatekjur eru
reglan. Slík þróun mun óhjákvæmilega leiða
til verulegs samdráttar í framleiðslu innlends
dagskrárefnis í hljóðvarpi og sjónvarpi.
Menning
Framlag RÚV og Stöðvar 2 til menningar-
innar má m.a. meta í stöðu innlends dagskrár-
gerðarefnis gagnvart alþjóðlegri framleiðslu.
Peningalega séð er íslensk dagskrárgerð
margfalt dýrari. Ef ekki er til staðar pólitísk-
ur og menningarlegur skilningur hjá ákvörð-
unarvaldi og almenningi á þessari staðreynd,
mun innlend dagskrárgerð minnka.
Hljóðvarps- og sjónvarpsnotkun hefur tekið
breytingum undanfarin ár. Þannig má ætla
að útvarpshlustun sem meginiðja sé hverf-
andi, en sú tegund hljóðvarps sem „hlustað“
er á í dag sé tónlistardagskrá. Þetta er til-
hneiging sem endurspeglast í dagskrárformi
ýmissa stöðva.
Sjónvarpsnotkun hefur aftur á móti aukist.
Tilkoma Stöðvar 2, lenging á útsendingartíma
RÚV og loks gervihnattasjónvarp spila hér inn
í. Kannanir Félagsvísindastofnunar benda til
þess að fólk sextíu ára og eldri horfi mun
meira á kvölddagskrár sjónvarpsstöðva en það
yngra.
Framtíðin
Þó móttakendum gervihnattasendinga fjölgi
innanlands, er ólíklegt að stöðvarnar verði
fleiri en nú er. Það eru einfaldlega ekki næg-
ar auglýsingatekjur til reksturs allra þeirra
gervihnattarása sem nú senda. Útbreiðsla
kapalsjónvarps á íslandi mun ekki aukast á
næstu árum. Staðhættir, fjármagn og lagaleg
ákvæði standa þar í veginum. Reksturinn hef-
ur, og mun varla í framtíðinni verða svo arð-
bær að hann gefi möguleika á framfærslu
dagskrárefnis, sérstaklega fyrir kerfið.
Á landsvísu veltur þróunin á þeim pólitísku
ákvörðunum sem teknar verða um afnota-
gjaldið. Ef það fæst tengt vísitölu framfærslu-
kostnaðar, mun RÚV líka næstu árin vera
aðalmenningarstofnunin á íslandi. Líkast til
verður mikil breyting á sviði kostunar- og
útboðsmála, bæði hvað varðar hljóðvarp og
sjónvarp. Stöð 2 eða önnur einkarekin rás
mun verða til staðar, með innlent dagskrár-
framboð sem að gæðum svarar til RÚV, en
ekki að magni. Svæðis- og landshlutaútvarp
mun eiga erfitt uppdráttar framvegis. Það er
ekki möguleiki á að fjármagna það með aug-
lýsingatekjum, hækkun á afnotagjöldum með
skírskotun til þarfa þess, er varla raunsæ.
Þó svo að efnahagurinn taki kipp upp á
við, og pólitísk samstaða n'áist um aðgerðir,
er framtíðin ekki björt fyrir ljósvakamiðlana
á íslandi. Ekki er neitt sem bendir til að veru-
legur vöxtur verði á sviði innlendrar dagskrár-
gerðar fyrir hljóðvarp og sjónvarp. Ekki mun
verða þörf fyrir aukinn starfskraft frá því sem
nú er, tekjustofnarnir munu ekki aukast að
raungildi og tækninýjungar munu draga til
sín stærsta hluta fjármagnsins hjá íslensku
stöðvunum.
Gísli Fríðrik Gíslason
Nýr kafli - Jarðstöðin Skyggnir. Með Skyggni hófst nýr kafli í fjarskiptum íslands
við önnur lönd.
Gervihnatta-
stöðvar sækja
í sig veðríð
BRESKA gervihnattastöðin
SKY hefur nú ákveðið að hefja
framleiðslu eigin þátta í stað
þess að sýna nær einungis
bandarískt efni. Norræna
gervihnattastöðin FilmNet
stefnir að breytingum á dag-
skrá sinni og hefur útsendingar
barnaefnis og íþróttaviðburða
auk kvikmynda.
SKY Television hefur eigin dag-
skrárgerð með framleiðslu
spennumyndar eftir sögu Ken Fol-
lett, en nokkrar sögur hans hafa
komið út á íslensku. Sagan sem
kvikmynduð verður heitir á frum-
málinu Spread Eagle og verður
sjónvarpað í fernu lagi. Ekki er
búið að ráða alla leikara en ljóst
er að þar verður valinn maður í
hveiju rúmi. Leikstjórinn heitir
Geoffrey Reeve og hefur hann
meðal annars gert myndirnar The
Far Pavillions og The Shooting
Party. Tökur hefjast í vor og fara
fram í Bretlandi og á meginlandi
Evrópu.
Norræna kvikmyndastöðin
FilmNet heitir nú FilmNet PIus.
Nafnbreytingin fylgir í kjölfar
skipulagsbreytinga á rekstri
stöðvarinnar, sem til þessa hefur
einungis sýnt kvikmyndir. Nú er
ætlunin að taka til sýninga barna-
efni, íþróttaþætti, tónlistarefni og
merka viðburði. Stöðin hefur gert
nýja samninga við kvikmynda-
framleiðendur sem gerir henni
kleift að sýna nýrri myndir en
boðið hefur verið upp á til þessa.
Útvarp Lúx-
emborg hætt
REKSTRI Útvarps Lúxemborg-
ar lauk á slaginu klukkan tólf
á gamlárskvöld. Yfirlýsing þess
efnis í október sl. kom mörgum
á óvart, enda hefur „Radio
Luxembourg" um árabil verið
ein þekktasta útvarpstöðin í
Evrópu.
Þrátt fyrir frægð og vinsældir
segja talsmenn hinnar sextíu ára
útvarpsstöðvar að stöðin hafí ekki
skilað hagnaði. Ekki segjast þeir
þó ætla að selja nafnið fræga í
bráð.
Margar af skærustu útvarps-
stjörnum heims hófu frægðarferil
sinn í Lúxemborg og nægir í því
sambandi að nefna Jimmy Savile,
Noel Edmonds og David „Kid“
Jensen, sem reyndar er einn af
tengdasonum íslands.
Útvarp Lúxemborg hóf útsend-
ingar um gervihnött fyrir ári, en
hafði áður sent út á miðbylgju.
Aðalstöðin hefur frá því í vor ver-
ið með útsendingar á nóttunni frá
Lúxemborg og segir Sigmar Guð-
mundsson dagskrárstjóri að það
hafi mælst vel fyrir hjá hlustend-
um. Ekki segist hann vita hvað
taki við, ýmislegt sé í athugun,
en þangað til hljómar „Voiee of
America“ hjá þeim á Aðalstöðinni.
Klámmyndir
í ársáskríft
MTX heitir sjónvarpsstöð, sem
nýverið var sett á laggirnar í Bret-
landi. Stöð þessi mun eingöngu
sýna klámmyndir og verða útsend-
ingar truflaðar þannig að þeir
áhugasömu þurfa að verða sér úti
um sérstakan útbúnað. Hægt er
að velja um ársáskrift þrjá tíma á
dag fyrir 139 pund (rúmlega 13
þúsund ÍKR) eða ijóra tíma á dag
fyrir 190 pund (rúmlega 18 þús-
und ÍKR).