Morgunblaðið - 07.01.1993, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 07.01.1993, Blaðsíða 4
4 C dagskrá MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. JANÚAR 1993 SJOIMVARPIÐ 9.00 DRDI|1ICCU| ► Morgunsjón- UNHnilLrill varp barnanna — Bakkabræður Sögur af Gísla, Eiríki og Helga í leikflutningi Árna Bland- on. Ævintýrið um kanínuna og Ljónið Bandarísk teiknimynd. Hafið, bláa hafið Mynd um daglegt líf drengs í Bolungarvík. Fjörkálfar í heimi kvikmyndanna Bandarískur teiknimyndaflokkur. Fyrsti þáttur af þrettán. Gamlir kunningjar, Alli og íkomamir, leika í frægum stórmynd- um sem hafa orðið vinsælar í kvik- myndahúsum. Vilhjálmur og Karí- tas 3. þáttur um leiksystkinin eftir Sigurð G. Valgeirsson og Sveinbjöm I. Baldvinsson. Leikendur: Eggert Þorleifsson og Sigrún E. Bjömsdótt- ir. Litli íkorninn Brúskur Þýskur teiknimyndaflokkur um ævintýri Brúsks íkoma og vina hans í skógin- um. Hlöðver grís Fyrsti þáttur af 26 í breskum teiknimyndaflokki. Gamla konan og svinið Börn úr skóla ísaks Jónssonar flytja ævintýri undir stjórn Herdísar Egilsdóttur. 11.00 ►Hlé 14.55 ÍÞROTTIR ► Enska knatt- spyrnan Bein út- sending frá leik Manchester United og Tottenham á Old Trafford í Man- chester í úrvalsdeild ensku knatt- spymunnar. Lýsing: Arnar Björns- 16.45 ►iþróttaþátturinn Umsjón: Samúel Öm Erlingsson. 18.00 ►Bangsi besta skinn (The Advent- ures of Teddy Ruxpin) Breskur teiknimyndaflokkur um Bangsa og vini hans. Þýðandi: Þrándur Thorodd- sen. Leikraddir: Öm Ámason. (24:26) 18.30 ►Skólahurð aftur skellur (School's Out) Kanadískur myndaflokkur um skólasystkinin í Degrassi-skólanum sem margir muna eftir úr fýrri þátta- röðum. Þegar hér er komið sögu em þau að ljúka unglingaskólanum og eiga í vændum ævintýralegt sumar. Leikstjóri: Kit Hood. Aðalhlutverk: Pat Mastroianni, Stacie Mistysyn, Neil Hope og Stefan Brogren. Þýð- andi: Kristrún Þórðardóttir. (1:4) 18.55 ►Táknmálsfréttir 19.00 ►Strandverðir (Baywatch) Banda- rískur myndaflokkur um ævintýri strandvarða í Kalifomíu. Aðalhlut- verk: David Hasselhof. Þýðandi: Ólafur Bjami Guðnason. (18:21) 20.00 ►Fréttir og veður ' 20.35 ►Lottó 20.40 ►Æskuár Indiana Jones (The Young Indiana Jones Chronides) Fjölþjóðlegur myndaflokkur fyrir alla fjölskylduna, sem vafalítið vakti meiri athygli en flest annað sjón- varpsefni árið 1992. Hér segir frá æskuámm ævintýrahetjunnar Indi- ana Jones, ótrúlegum ferðum hans um viða veröld og æsilegum ævintýr- um. Við úthlutun Emmy-verðlaun- anna í ágúst var myndaflokkurinn tilnefndur til átta verðlauna — og hlaut fimm. Leikstjóm: Terry Jones, Bille August og fleiri. Aðalhlutverk: Corey Carrier, Sean Patrick Flanery, George Hall, Margaret Tyzak og fleiri. Þýðandi: Reynir Harðarson. (1:15) 21.30 ►Bláberjahóll (Blueberry Hill) Belgísk bíómynd frá 1989. Myndin gerist á 6. áratugnum og fjallar um uppátæki unglinga í St. Josephs-skól- anum. Það líður að prófum en Robin sýnir einni skólasystur sinni mun meiri áhuga en námsbókunum. Leik- stjóri: Robbe De Hert. Aðalhlutverk: Michael Pas og Babette van Veen. Þýðandi: Ingi Karl Jóhannesson. 23.00 ►Erfðasyndin (Original Sin) Banda- rísk bíómynd frá 1989. Hamingju- samlega gift kona kemst að því að tengdafaðir hennar er glæpaforingi sem hugsanlega hefur staðið fyrir ráni á syni hennar. Leikstjóri: Ron Satlof. Aðalhlutverk: Ann Jillian, Robert Desiderio og Charlton Hes- ton. Þýðandi: Kristmann Eiðsson. Kvikmyndaeftirlit ríkisins telur myndina ekki hæfa áhorfendum yngri en 16 ára. Maltin gefur miðl- ungseinkunn. 0.35 ►Útvarpsfréttir í dagskrárlok LAUGARPAGUR9I STOÐ TVO 9.00 ►Með afa Afi sýnir teiknimyndir með íslensku tali. 10.30 ►Lísa í Undralandi Teiknimynd gerð eftir sögu Lewis Carroll: 10.55 ►Súper Maríó bræður Teikni- myndaflokkur. 11.15 ►Maggý (Maxie’s World) Teikni- mynd um táningsstelpu. 11.35 ►Ráðagóðir krakkar (Radio Detec- tives) Leikinn spennumyndaflokkur fyrir böm og unglinga. (22:26) 12.00 ►Dýravinurinn Jack Hanna Fylgst með Jack þar sem hann heimsækir viilt dýr í dýragörðum. 12.55 Vlf||f IIVUIIID ► Hlátrasköll Imnminuilt (Punchline) Sally Field leikur húsmóður, sem þráir að slá í gegn sem grínisti, og í óþökk eiginmanns síns, sem er algert karl- rembusvín, stelst hún til að koma fram á áhugamannakvöldi á nætur- klúbbi. Aðalhlutverk: Sally Field, Tom Hanks, John Goodman og Mark Rydell. Leikstjóri. David Seltzer. 1988. Lokasýning. Maltin gefur ★ ★★ Myndbandahandbókin gefur ★ ★‘/2 15.00 ►Þrjúbíó — Vetur konungur Ævin- týramynd fyrir alla fjölskylduna um stúlku sem leitar að hinni einu sönnu ást. 16.30 íkDflTTID ► íslandsmótið í IPRUI IIR 1. deild karla í hand- knattleik. HK - Haukar Bein útsend- ing frá leik í íþróttahúsinu Digranesi. 18.00 ►Popp og kók Tónlistarþáttur í umsjón Lárasar Halldórssonar. 19.00 ►Laugardagssyrpan Teiknimynda- syrpa fyrir alla aldurshópa. 19.19 ►19:19 Fréttir og veður. 20.00 ►Morðgáta (Murder She Wrote) Bandarískur spennumyndaflokkur. 20.50 ►Imbakassinn Grínþáttur. Umsjón: Gysbræður. 21.10 ►Falin myndavél (Candid Camera) 21.35 iruiinivuniD ► Stattu með RTIRmlHUIR mér (Stand by Me) Kvikmynd um vináttu og ævin- týri fjögurra stráka í smábæ í Banda- ríkjunum á sjötta áratugnum. Byggð á smásögunni „The Body“ eftir Stephen King. Strákarnir frétta að unglingspiltur hafí látið lífið í skógin- um og að jarðneskar leifar hans aldr- ei fundist. Þeir leggja upp í leiðangur í leit að líkinu, lenda í margs konar ævintýram og koma mikið breyttir úr svaðilförinni. Aðalhlutverk: Rich- ard Dreyfus, Wil Wheaton, River Phoenix, og Corey Feldman, Jerry O’ConnoII. Leikstjóri: Rob Reiner. 1986. Maltin gefur ★ ★ ★ Mynd- bandahandbókin gefur ★★★ 23.15 ►Góðir gæjar (Goodfellas) Aðal- hlutverk: Robert De Niro, Ray Liotta og Joe Pesci. Leikstjóri: Martin Scor- sese. Efniviðurinn er sönn saga manns sem fæddist í fátækrahverfi New York, ólst upp innan mafíunnar og komst til æðstu metorða í heimi skipulagðrar glæpastarfsemi. Stranglega bönnuð börnum. Maltin gefur ★★★'/2 1.35 ►Einkamál (Personals) Jennifer O’NeilI er hér í hlutverki hversdags- legs bókasafnsfræðings sem lítið berst á í félagslífínu. En ekki er allt sem sýnist því eftir að skyggja tekur breytist hún í drottningu næturinnar og heldur á stefnumót við menn sem hafa auglýst í einkamáladálkum. Enginn þessara manna er til frásagn- ar um stefnumótið því þeir era allir myrtir. Lögreglan stendur ráðþrota þar til eiginkona eins fómarlambsins ákveður að rannsaka morð eigin- manns síns. Aðalhlutverk: Jennifer O’NeilI, Stephanie Zimbalist og Rob- in Thomas. Leikstjóri: Steven Hilliard Stern. 1990. Bönnuð bömum. Malt- in gefur miðlungseinkunn. 3.05 ►Morðóða vélmennið (Assassin) Henry Stanton er mikilsvirtur fyrram njósnari hjá leyniþjónustu Bandaríkj- anna. Hann er fenginn til liðs við stofnunina á ný til að stöðva Robert, háþróað vélmenni sem við fyrstu sýn virðist mennskt og hefur verið forrit- að til að myrða æðstu menn Banda- ríkjanna. Aðalieikarar: Robert Conrad, Karen Austin og Richard Young. Leikstjóri: Sandor Stem. 1986. Bönnuð bömum. 4.35 ►Dagskrárlok Ástfanginn - Robin má lítíð vera að því að hugsa um prófin því Gathy á hug hans allan. Prófstuldur og ástir í unglingaskóla Robin kann ekki að láta tilfinningar sínar I Ijós SJÓNVARPIÐ Kl. 21.30 Fyrri myndin á laugardagskvöld er belg- ísk, frá árinu 1989 og nefnist Blá- beijahæð. Þetta er ástarsaga frá sjötta áratugnum. Nemendur St. Josephs-skólans bíða þess að kom- ast í sumarfrí. En prófin eru eftir. Robin hefur þó öðrum hnöppum að hneppa, því gamla kærastan hans, Cathy, hefur skotið upp koll- inum á ný og hann er ástfanginn upp fyrir haus. Vandinn er sá að Robin kann ekki að láta tilfinning- ar sínar í ljós. Nokkrir nemendanna reyna að stela prófunum, en skóla- stjórinn stendur einn þeirra að verki og þá dregur heldur til tíð- inda. strákar í ævin- týraleit Klíkan hefur höfuðstöðvar í tréhúsi þar sem strákarnir geta verið út af fyrir sig STÖÐ 2 KL. 21.35. Aðalsögu- hetjurnar í kvikmyndinni Stattu með mér (Stand by Me) eru fjórir strákar í smábæ í Bandaríkjunum á sjötta ára- tugnum. Einn er töffari, annar viðkvæmur, sá þriðji eldhugi og sá fjórði skræfa. A milli þeirra eru sterk vináttubönd og þeir þrá allir að vera eins og hetjur teiknimyndablaðanna í augum hinna. Klíkan hefur höfðustöðvar í tréhúsi þar sem strákarnir geta verið út af fyr- ir sig, púað sígarettur, sagt sögur og skoðað „fullorðins- blöð“. Þegar þeir frétta að ungur maður hafi látið lífið í skóginum og jarðneskar leifar hans séu ófundnar fara þeir í leiðangur í leit að líkinu. Mynd- in er byggð á smásögu Step- hens King „The Body“. Leik- stjóri er Bob Reiner. Með aðal- hlutverk fara Richard Dreyfus, Wil Wheaton, River Phoenix, Corey Feldman og Jerry O’C- onnoll. Ungur nemur - gamall temur - Jimmy Conway (Robert DeNiro) kennir unglingunum Henry (Ray Liotta) og Tommy (Joe Pesci) sitt lítíð af hveiju um „viðskiptí“. í innsta hring mafíunnar Myndin er byggöá frásögn manns sem starfaöi í þrjátíu ár innan mafíunnar í New York STÖÐ 2 KL.23.15 Kvikmyndin Góðir gæjar (Goodfellas) er spennu- mynd frá Martin Scorsese byggð á raunverulegri frásögn manns sem starfaði í þijátíu ár innan mafíunn- ar í New York. Robert DeNiro er í hlutverki Jimmy Conway, vel efn- aðs afbrotamanns sem nýtur mikill- ar virðingar í heimi skipulagðrar glæpastarfsemi og á götum fá- tækrahverfanna. Hann tekur ungan mann, Henry Hill, sem leikinn er af Ray Liotta, upp á arma sína og kennir honum allt sem hann veit um „viðskiptin". Joe Pesci leikur Tommy DeVito, hviklyndan mann sem gengur til liðs við „fjölskyld- una“ á sama tíma og Henry. Góðir gæjar var útnefnd til sex Óskars- verðlauna og Joe Pesci fékk stytt- Robert DeNiro una fyrir bestan leik í aukahlut- verki. Með önnur hlutverk fara Lorraine Bracco og Paul Sorvino. Rolling Stones og George Harrison eru á meðal þeirra sem semja og flytja tónlistina.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.