Morgunblaðið - 19.01.1993, Side 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA
1993
ÞRIÐJUDAGUR 19. JANÚAR
BLAD
B
adidas
Landslið Noregs
í knattspyrnu
leikur í Adidas
SKIÐAGANGA
X
Besti árangur minn til þessa
- sagði Daníel Jakobsson sem varð annar á sterku bikarmóti í Svíþjóð
Daníel Jakobsson
Daníel Jakobsson, skíðagöngu-
maðurinn ungi frá Isafirði,
náði besta árangri sínum frá upp-
hafi í keppni í Svíþjóð um helgina.
Hann varð annar á eftir heims-
meistara unglinga, Matthiasi Fred-
rikson, í 30 km göngu með frjálsri
aðferð á bikarmóti pilta 19 — 20
ára. Alls voru 100 keppendur sem
tóku þátt í mótinu, sem er í sama
styrkleikaflokki og sænska meist-
aramótið í þessum aldursflokki.
Fredrikson, sem er efnilegasti
göngumaður Svía, gekk vega-
lengdina á 1:13.55 klst. og var
tæpum þremur mínútum á undan
Daníel (1:16.47). Henrik Erikson,
unglingalandsliðsmaður Svía, varð
þriðji á 1:16.58 klst. „Þetta er
besti árangur sem ég hef náð í
keppni og ég er í sjöunda himni.
Ég fór fyrstur af stað í síðasta
ráshópi og því gat ég ekki fylgst
með keppinautum mínum. Ég kom
fyrstur í mark en síðan varð ég
bara að bíða og sjá hvernig hinum
gekk,“ sagði Daníel.
Daníel hefur verið valinn af fé-
lagi sínu, Ásama, til að taka þátt
í sænska meistaramótinu í flokki
fullorðinna sem fram fer um aðra
helgi. „Þetta er mikill heiður fyrir
mig og það verður spennandi að
etja kappi við þá eldri. Ég mun
keppa í 15 kílómetra göngu og
boðgöngu með félagi mínu.“ Hann
hefur einnig verið valinn til að
keppa fyrir Islands hönd á Heims-
meistaramótinu í Falun sem hefst
18. febrúar.
1
KNATTSPYRNA
Helgi Sig-
urðsson
til Fram
Helgi Sigurðsson, unglingalandsl-
iðsmaður úr Víkingi, hefur
gengið til liðs við Fram. Helgi, sem
er 18 ára, er mjög marksækinn mið-
heiji og skoraði hann 10 mörk fyrir
Víkinga í 1. deildarkeppninni sl. sumar.
Guðjón
þjálfar
landslið
kvenna
Guðjön Reynisson hefur verið ráð-
inn þjálfari A-landsliðs kvenna
í knattspyrnu, og landsliðsins skip-
uðu stúlkum 20 ára og yngri.
Guðjón hefur starfað við þjálfun
undanfarin ár, og varð kvennalið
Breiðabliks úr Kópavogi íslands-
meistari undir stjóm hans síðustu tvö
árin.
Helsta verkefni yngra liðsins á
árinu verður Norðurlandamót, sem
fram fer í Danmörku í byijun ágúst.
A-landsliðið leikur tvo vináttuleiki á
heimavelli á árinu og jafnvel einn
heimaleik í undankeppninni Evrópu-
mótsins.
KORFUKNATTLEIKUR
Snæféllingar í fyrsta sinn í bikarúrslit
Morgunblaðið/Bj ami
Snæfellingar úr Stykkishólmi tryggðu sér á sunnudaginn rétt til að leika til úrslita í bikarkeppni Körfuknattleikssambandsins í fyrsta skipti í sögu félagsins.
Hólmarar sigruðu lið Tindastóls frá Sauðárkróki í hörkuleik í Stykkishólmi, 76:64, og var fögnuðurinn mikill í bænum eftir að úrslitin lágu fyrir. Á myndinni
fagna tveir leikmanna Snæfells, Bárður Eyþórsson, til vinstri, og ívar Ásgrímsson, sem jafnframt er þjálfari liðsins. Snæfellingar mæta íslandsmeisturunum
frá Keflavík í úrslitum, en ÍBK sigraði lið Skallagríms úr Borgarnesi í hinum undanúrslitaleiknum í Keflavík. _________________________
■ Leikirnir / B6
KIMATTSPYRIMA: SKULDIR VÍKIIMGA VEL YFIR 20 MILUÓIMIR KRÓIMA / B11