Morgunblaðið - 19.01.1993, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 19.01.1993, Qupperneq 4
4 B MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR ÞRIÐJUDAGUR 19. JANÚAR 1993 HANDKNATTLEIKUR / EVRÓPUKEPPNI BIKARHAFA Sáttur við leikinn Eg er tiltölulega sáttur við leik- inn, en það var óvænlegur kostur að þurfa að sigra með tíu mörkum," sagði Geir Sveinsson fyrirliði Vals. „Þegar þeir jöfnuðu 20:20 var þetta búið og við ákáð- um þá að einbeita okkur að því að sigra. Það fór mikil orka í að leika 3-3 vöm og okkur skorti úthald til að leika sííka vöm allan leikinn. Það gekk vel að taka Fra- atz en Tútskíjn var allt of sterkur fyrir okkur. Þá misfórst að taka miðjumanninn," sagði Geir. Ivanescu „Við Iékum ágætlega í dag, en það er erfitt að leika gegn svona vöm. En sigurinn var aldrei í hættu. Valsmenn gerðu það sem þeir gátu og hugmyndin hjá þeim var góð og í rauninni það eina sem þeir gátu gert til að freista þess að vinna upp muninn,“ sagði Pe- tre Ivanescu þjálfari Essen. Þorbjöm „Við reyndum að einbeita okk- ur að því að taka þá Fraatz og Tútskíjn úr umferð en miðjumað- urinn þeirra er greinilega enginn auli, enda kæmist hann þá varla í lið Essen. Níu mörk vom of mikið, en ég held við höfum gert heiðarlega tilraun og ég er ágæt- lega sáttur við þennan leik, sem slíkan, þó ég sé ekki ánægður að vera fallinn úr keppni,“ sagði Þorbjöm Jensson þjálfari Vals. Morgunblaðið/Bjarni Tútskíjn erfiður Aleksandr Tútskíjn, hvít-rússneska stórskyttan í liðið Tusem Essen, reyndist Valsmönnum erfiður í Laugardalshöll. Þrátt fyrir að Dagur Sigurðsson og félag- ar hafí reynt af fremsta megni að stöðva leikmanninn gerði hann sjö mörk. Dagur og Tútskíjn eru á myndinni að ofan, en til hliðar er Júlíus Gunnarsson, sem einnig gerði sjö mörk. Júlíus kom skemmtilega á óvart í fyrri hálfleiknum og lék þá mjög vel. Tæpt hjá Val VALS-STÚLKUR tryggðu sér bikarúrslitaleik gegn Stjörnunni með 18:17 sigri á Gróttu að Hlíðarenda á sunnudagskvöld- ið, en tæpt var það. Þrátt fyrir að Völsurum tækist þrívegis að ná góðu forskoti tókst gestun- um oftast að jafna með mikilli baráttu, nema f lokin. Bæði lið byrjuðu af krafti og voru óhrædd við að brjótast í gegn og skjóta. Sóknarleikur Valsstúlkna I var oft vel útfærður Stefán en strandaði oft á stefánsson Fanney Rúnarsdótt- skrifar ur í marki Gróttu. Vöm Vals var sterk og stæðileg en Gróttu-stúlkum tókst nokkuð vel að finna glufur og jöfn- uðu þriggja marka forskot heima- manna á 18. mínútu. Þá gerðu Vals- arar næstu fjögur mörk en Laufey Sigvaldadóttir svaraði fyrir gestina svo jafnt var í leikhléi. Grótta náði forystunni strax í seinni hálfleik og liðin skiptust á að skora þar til Valsstúlkur náðu að gera þrjú mörk í röð undir lokin. Seltirningar gerðu allt hvað þeir gátu til að jafna og gerðu tvö síð- ustu mörkin en það dugði ekki til. „Eftir niðurlæginguna gegn Vík- ingi um daginn, þar sem við skiljum ekki hvað gerðist, var um líf eða dauða að tefla og það var rosalega erfitt að ná saman. Grótta er mjög gott lið og allt getur gerst í bikar- leikjum. Þetta var enginn toppleikur hjá okkur, við náðum þrisvar góðri forystu en misstum hana niður og það var bara Aðalheiður [Hreggviðs- dóttir markvörður] sem hélt okkur á floti. Nú hlakka ég bara til að mæta Stjörnunni í úrslitum," sagði Hanna Katrín Friðriksen sem var markahæst í liði Vals og átti stór- góðan leik ásamt Irinu Skorobo- gatyk. Arnheiður varði mjög vel. Sigríður Snorradóttir og Laufey Sigvaldadóttir voru í aðalhlutverkum hjá Gróttu og Brynhildur Þorgeirs- dóttir átti góða spretti en Fanney í markinu stal senunni með frábærri markvörslu og varði 18 skot, mörg hver úr opnum færum. „Þetta var barátta hjá báðum liðum, vel spilað- ur leikur og dómarar voru mjög góðir þannig að það er ekkert nema gott um leikinn að segja. Við gerðum afdrifarík mistök í lokin en sigur hefði getað fallið á hvorn veginn sem var,“ sagði Haukur Geirmundsson þjálfari Gróttu. Góður sigur en of Irtill ÞRÁTT fyrir góðan leik og sigur gegn TUSEM Essen urðu Vals- menn að sætta sig við að falla út úr Evrópukeppni bikarhafa á laugardaginn. Liðin léku þá sfð- ari leikinn í Laugardalshöll og sigraði Valur 27:25. Það vantaði talsvert uppá að þeir næðu að slá þýska liðið út, en fyrri leikn- um lauk með 23:14 sigri Essen. Það vissu allir sem vildu vita að róðurinn yrði Valsmönnum geysilega erfiður því níu mörk eru ansi mikið. Og það kom á daginn. Vals- menn, þrátt fyrir góðan leik og heið- arlega tilraun réðu ekki við svona mikinn mun. Til þess var lið Essen of sterkt. „Við gerðum heiðarlega tilraun, reyndum að sprengja upp hraðann og það hefði hugsanlega getað tek- ist ef við hefðum nýtt okkur stöðuna í fyrri hálfleik þegar við komumst í 8:4,“ sagði Þorbjöm Jensson þjálfari Vals eftir leikinn. Valsmenn vissu að þeir yrðu að taka áhættu og það gerðu þeir. Með 3-3 vöm hröktu þeir Essen langt út á völlinn en við það losnaði um lín- una, en þaðað gerðu leikmenn Essen sex mörk. Sérstakar gætur voru hafðar á aðalleikmönnum þeirra, Fraatz og Tútskíjn og gekk það vel Skúli Unnar Sveinsson skrifar með þann fyrmefnda en sá rús- sneksi var Valsmönnum erfíður. Eins átti leikstjómandinn, Arens (nr. 2), mjög góðan dag og nýtti sér glufur í vöm Vals vel. Línumaðurinn Röpfer (nr. 4) var einnig dijúgur. Munurinn í leikhléi var aðeins þijú mörk og því ljóst að Valsmenn yrðu að taka enn meiri áhættu í síð- ari hálfleik. Það reyndu þeir en dæmið gekk ekki upp. Munurinn var það mikill að aldrei fór verulega um leikmenn Essen né stuðningsmenn liðsins. „Þetta var góður leikur, en mjög erfiður. Valur hefur sterkt lið og við áttum í miklum erfíðleikum með [Júlíus] Gunnarsson í fyrri hálf- leiknum, en gekk betur gegn honum í síðari hálfleik," sagði Petre Iva- nescu, þjálfari Essen. Hann bætti því við að síðari leikurinn hefði ver- ið betri en sá fyrri og bæði lið hefðu leikið góðan handknattleik. Valur lék vel, sérstaklega í fyrri hálfleik. Leikmenn gerðu fá tækni- leg mistök en fóm ekki nægilega vel með færin sem þeir fengu. Þegar leið á leikinn kom í ljós hversu erf- itt er að leika 3-3 vöm svo vel sé. Valsarar hefðu ef til vill átt að skipta um vamarleik um tíma til að hvíla sig. Allir Valsarar áttu ágætan dag. Júlíus lék mjög vel í fyrri hálfleik en var tekinn af meiri ákveðni í þeim síðari. Valdimar og Jón voru einnig sterkir svo og Geir. FOLX ■ VALSMENN voru með góða nýtingu í leiknum gegn Essen, sér- staklega í fyrri hálfleik. Þá gerðu þeir 14 mörk í 23 sóknum, sem er 60,87% nýting. í seinni hálfleik skor- uðu þeir 13 mörk í 29 sóknum, 44,83% nýting. ■ ESSENgerði 11 mörk í 24 sókn- um í fyrri hálfleik, eða 45,83% nýt- ing. í síðari hálfleik var nýtingin 47,17%, 14 mörk úr 29 sóknum. ■ BERND Ebner annar mark- vörður Essen byijaði í markinu en um miðjan fyrri hálfleik var honum skipt útaf. Hafði þá ekki varið eitt einasta skot. ■ KRISTJÁN Arason, þjálfari og leikmaður FH, var sprautaður fyrir leikinn vegna meiðsla í öxl. Hann treysti sér ekki í sóknina fyrr en um miðjan fyrri hálfleik, en þá var FH tveimur mörkum undir. ■ KRISTJÁN ætlaði að snúa bolt- anum framhjá Hofmann undir lokin, en tókst ekki. „Þetta var búið og það hafði ekkert uppá sig að taka áhættu og skjóta. Öxlin er ekki tilbú- in,“ sagði hann. ■ KRISTJÁN sagði að FH-ingar hefðu verið daufir í fyrri hálfleik eftir góða byijun, en eftir hlé hefði kappið verið meira en forsjáin. ■ HEINER Brand, þjálfari Mass- enheim, sagði sanngjamt að lið sitt væri komið í undanúrslit. Það hefði stjómað leiknum og endurkoma Finnans KMlmans í liðið hefði haft jákvæð áhrif á leikmennina og hald- ið þeim við efnið. ■ BRAND var þjálfari Gumm- ersbach, þegar Kristján Arason Iék með liðinu. „Mér þykir leitt að Krist- ján kemst ekki áfram en það er betra en ef ég hefði setið eftir," sagði þjálfarinn og stráði salti í sár starfsbróður síns. ■ EYJABANDIÐ komst ekki í Kaplakrikann eins og til stóð og var beðist afsökunar á því, en stuðn- ingsmenn voru vandanum vaxnir og ríkti sannkölluð heimaleikjastemmn- ing í húsinu. BIKARKEPPNI KVENNA

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.