Morgunblaðið - 19.01.1993, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR ÞRIÐJUDAGUR 19. JANÚAR 1993
B 7
Morgunblaðið/Bjami
Hart barist í Hólminum
ik Snæfells og Tindastóls á sunnudag, enda mikið í húfi; sæti í bikarúrslitaleiknum. Á myndinni beijast þeir um boltann Damon
)ur Tindastóls. Ekki má á milli sjá hvor hefur betur í þetta skipti — uppkast líklega verið dæmt — en Lopez og félagar fögnuðu í lokin.
i beygja Stúdenta
og kláraði leikinn án teljandi mót-
stöðu undir lokin. Leikur HK liðsins
var góður á köflum og leikmenn liðs-
ins börðust gífurlega í lágvörninni en
þeir Vignir Hlöðversson og Einar
Hilmarsson, gerðu það gott í sókn-
inni. Stúdentar voru brokkgengir og
móttakan gekk illa en þó átti Sigfús
Viggósson stórleik í sókninni fyrir
sína menn.
Laufiétt hjá Þrótti
Nýliðar Stjörnunnar mættu hrein-
lega ofjörlum sínum í Ásgarði á laug-
ardaginn þegar liðið tapaði fyrir
Þrótti í þremur hrinum gegn engri.
Þróttarar voru betri á flestum sviðum
leiksins og nýttu sér veiku hliðarnar
á leik Stjömunnar til fullnustu á köfl-
um. Hrinurnar voru keimlíkar, Þrótt-
arar náðu góðu forskoti strax í upp-
hafi en leikmenn Stjörnunnar þurftu
alltaf að sækja á brattann. Það reynd-
ist þeim mjög erfítt og stöðugleikinn
var heldur ekki til staðar hjá þeim
þegar þess þurfti, móttakan var af-
leit og í sóknirnar vantaði þar af leið-
andi allan þunga. Hjá Þrótti var Jón
Árnason mjög sprækur en hjá Stjörn-
unni bar einna mest á Erni Kr. Arnar-
syni.
Stúdínur sannfærandi
Stúdínur áttu heldur náðugan dag
gegn HK á sunnudagskvöldið og þær
þurftu ekki að hafa mikið fyrir sigri
sínum þó svo að HK stúlkumar hafí
náð að krækja sér í sigur í þriðju
hrinunni. Stúdínur byijuðu mun betur
og með sterkum uppgjöfum settu þær
móttöku HK liðsins hreinlega úr
skorðum á köflum. Stúdínur léku við
hvern sinn fíngur í fyrstu tveim hrin-
unum en náðu sér síðan á strik aftur
eftir smá bakslag í þriðju hrinunni
og sigmðu sannfærandi í þeirri fjórðu.
Stúdínur áttu flestar ágætan dag én
þó voru þær Þórey Haraldsdóttir og
Úrsula Junemann áberandi sterkar í
sókninni með Mettu Helgadóttur upp-
spilara röggsama í uppspilinu.
■ Úrslit / B10
NBA-DEILDIN
Góð helgi hjá
Orlando Magic
Liðið vann bæði Boston og Chicago
ÞAÐ dugði ekki Chicago til sig-
urs gegn Orlando að Michael
Jordan gerði 64 stig í leiknum.
Gestirnir höfðu betur, 128:124
eftir framlengingu. Þetta var
annar sigur Orlando um helg-
ina, á föstudaginn vann liðið
Boston, einnig á útivelli, og var
þetta fyrsti sigur þess f Boston
Garden.
Nick Anderson var hetja Orlando.
Hann jafnaði með þriggja
stiga körfu þannig að framlengja
varð. í framlengingunni gerði hann
fimm stig. Þar með tapaði Chicago
fjórða leiknum af síðustu sjö.
Scott Skiles fór fyrir liði Orlando.
Hann gerði 31 stig en sex leikmenn
gerðu fleiri en tíu stig. O’Neal sýndi
hvers vegna hann er talinn arftaki
Jordan sem konungur körfunnar.
Hann gerði 29 stig, tók 24 fráköst
og varði fimm skot.
Chicago hafði 10 stiga forystu í
síðasta leikhluta en gestirnir gáfust
ekki upp og jöfnuðu. Jordan rauf
60 stiga múrinn í fimmta sinn á
ferlinum, gerði 64 stig að þessu
sinni. Hann hefur 31 sinni gert yfir
50 stig í leik.
í Baltimore hélt lið New Jersey
Nets uppteknum hætti og sigrað í
fjórða leiknum í röð. Að þessu sinni
var það Washington sem varð að
játa sig sigrað. Derrick Coleman
gerði 27 stig og Drazen Petrovic 26.
Það hefur gengið vel hjá Nets að
undanförnu og liðið hefur unnið átta
af síðustu 11 leikjum.
Nets nálgast nú New York Knicks
í Atlandshafsriðlinum því síðar-
nefnda liðið tapaði nokkuð óvænt
fyrir Houston. Hakeem Olajuwon
gerði 42 stig og varði sniðskot frá
Greg Anthony á síðustu sekúndunni
þannig að 104:102 sigur var í höfn.
Knicks hefur enn ekki unnið leik ef
mótheijamir hafa náð að gera 100
stig eða meira.
David Robinson gerði 52 stig fyr-
ir San Antonio Spurs þegar liðið
sigraði Charlotte 124:111. Robinson
hefur aldrei gert eins mörg stig í
leik. Þetta var sjötti sigurleikur
Spurs í röð.
LA Lakers gengur vel á móti
sterkum liðum ef marka má árang-
urinn í vetur. Liði hefur unnið Port-,
land þrívegis og Chicago tvisvar, en
þessi lið léku til úrslita í fyrra. La-
kers hefur hins vegar tapað sex leikj-
um gegn neðstu liðunum. Liðið tap-
aði meira að segja fyrir Dallas sem
hefur sigrað í tveimur leikjum af 32
og er á góðri leið með að setja „met“.
RUÐNINGUR / NFL
Buffaloog
Dallas leika
til úrslita
LIÐ Buffalo Bills og Dallas
Cowboys mætast í úrslitaleik
bandaríska fótboltans, „ofur-
skálarleiknum" (Super Bowl),
eftir að liðin sigruðu í undanúr-
siitum um helgina í NFL-deild-
inni. Buffalo leikur nú til úrslita
þriðja árið í röð, en Dalias í
fyrsta skipti síðan 1978.
Gunnar
Valgeirsson
skrifar frá
Bandaríkjunum
Fyrri leikurinn á sunnudag var
viðureign Buffalo og Miami á
heimavelli síðarnefnda liðsins.
Skemmst er frá því
að segja að Buffalo
hafði mikla yfírburði
og sigraði 29:10.
Liðið hafði 13:3 for-
ystu í hálfleik og leikurinn var þá í
járnum en í seinni hálfleik juku leik-
menn Buffalo forystuna jafnt og
þétt og sigruðu örugglega — komust
t.d. í 22:3. Buffalo leikur þar með
þriðja árið í röð í úrslitum; liðið tap-
aði úrslitaleiknum bæði árin, gegn
New York Giants 1991 og gegn
Washington Redskins í fyrra. Buff-
alo komst í úrslit nú með því að vinna
tvo leiki í röð á útivelli. Leikstjórn-
andi liðsins, Jim Kelly, kom inn í
liðið á sunnudag eftir þriggja vikna
fjarveru vegna meiðsla, og þrátt
fyrir að mikil presa væri á þjálfara
liðsins að nota vara-stjórnandann
sem hefur staðið sig geysilega vel
undanfarið, ákvað hann að láta Kelly
spila. Og Kelly brást ekki; átti stór-
leik og stjórnaði liðinu til öruggs
sigurs.
„Vörnin gaf okkur tækifæri til
að vinna leikinn. Við létum fjaðra-
fokið í fjölmiðlum í vikunni ekki
hafa áhrif á okkur í dag,“ sagði
Kelly að leikslokum, en mikið var
rætt um það í fjölmiðlum vestan-
hafs, að ekki væri rétt að láta Kelly
spila. „Við komum með réttu hugar-.
fari í leikinn — það dugði,“ sagði
leikstjórnandinn.
Lið Miami tapaði með því að missa
boltann fímm sinnum í leiknum.
Frábært í San Fransisco
Seinni leikurinn fór fram í San
Fransisco, þar sem lið heimamanna
tók á móti Dallas Cowboys. í vik-
unni fyrir leikinn var völlurinn tyrfð-
ur upp á nýtt; grasið var orðið ónýtt
eftir gífurlegar rigningar í Kalifor-
níu. Kúrekunum frá Dallas líkaði
nýja grasið vel og þeir sigruðu í
hörkuleik, 30:20. Leikurinn var jafn
og iry'ög spennandi. Staðan í hálfleik
var 10:10 og 20:24 fyrir Dallas þeg-
ar fjórar og hálf mín. voru eftir. Og-
kúrekamir rejmdust sterkari á enda-
sprettinum, bættu örlítið við og unnu
30:20.
Lið San Fransisco og Dallas eru
tvö þau lang bestu í deildinni að
áliti flestra sparksérfærðinga, og
þótti viðureign þeirra á sunnudag
mjög vel spiluð. Sigur Dallas var
sanngjarn; liðið var sterkara á enda-
sprettinum. Jimmy Johnson þjálfari
Dallas tók við liðinu fyrir fjórum
árum þegar það var í neðsta sæti í
sínum riðli. Hann sagðist þá skyldu
koma því í úrslit á fímm árum, og
er því einu ári á undan áætlun! „Sig-
ur þessi er árangur af þrotlausu
starfí aðstoðarþjálfara minna. En
enginn ætti að fagna of mikið í dag,
því við eigum einn leik eftir enn,“
sagði Johnson eftir sigurinn.
Ofurskálarleikurinn verður 31.
janúar á Rose-Bowl leikvanginum í
Pasadena, norður af Los Angeles.