Morgunblaðið - 19.01.1993, Síða 9
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR ÞRIÐJUDAGUR 19. JANÚAR 1993
B 9
Svartnætti
hjá Liverpool
LIVERPOOL varð fyrir enn einu
áfallinu um helgina, þegar liðið
varð að sætta sig við 2:0 tap í
Wimbiedon. Eftir nær óslitna
sigurgöngu 129 ár hefur liðið
ekki aðeins misst af lestinni á
öllum vígstöðvum heldur er
það í umræðunni, þegar fallið
ber á góma. Leikmenn Aston
Villa hafa hins vegar byrjað
árið glæsilega; héldu sigur-
göngunni áfram á sunnudaginn
er þeir burstuðu Middlesbro-
ugh 5:1, og komust á topp
deildarinnar (fyrsta skipti síð-
an í mars 1990.
Liverpool, sem hefur aðeins sigr-
að einu sinni á útivelli í vetur,
hafði undirtökin fyrsta hálftímann
en síðan ekki sög-
una meir. „Mótheij-
Hennessy arnir léku okkur
íEnglandi sundur og saman,
en Liverpool er ekki
lengur Liverpool sem var. Samt er
liðið of gott til að falla og það get-
ur betur, en aðeins tíminn leiðir í
ljós hvort það kemst á fyrri stall,“
sagði Joe Kinnear, stjóri Wimble-
don, eftir þriðja heimasigur liðsins
á tímabilinu.
Graeme Souness, stjóri Liver-
pool, neitaði að ræða við blaðamenn
eftir leikinn, en sagði eftir tapið í
bikamum um miðja síðustu viku
að hann væri óánægður með hug-
arfar leikmanna sinna, einkum svo-
nefndra „stjama“. „Mitt er að örva
leikmennina og koma þeim þannig
á sigurbraut. Eg beiti sömu aðferð-
um og vom við líði, þegar ég var
leikmaður félagsins, og veit að þær
em réttar, en það er leikmannanna
að ljúka verkinu inni á vellinum."
Alan Hansen, fyrmrn vamar-
maður Liverpool, lagði sitt til mál-
anna. „Ég hef aldrei séð annað eins
hugarfar hjá liði Liverpool eins og
nú viðgengst."
David James var í marki gest-
anna og átti sök á öðm marki
heimamanna, en bjargaði hvað eftir
annað og forðaði liði sínu frá enn
stærra tapi.
Aston Villa lék mjög vel í stór-
sigrinum á Middlesbrough. Staðan
var orðin 5:0 um miðjan seinni hálf-
leikinn; Garry Parker, Paul
McGrath, Dwight Yorke, Dean
Saunders og Shaun Teale skomðu,
áður en Craig Hignett lagaði stöð-
una fyrir gestina undir lokin.
Norwich, sem hafði ekki skorað
í síðustu fímm leikjum, komst aftur
á blað með marki Chris Sutton og
gerði 1:1 jafntefli við Coventry.
Bryan Gunn, markvörður Norwich,
var heppinn að sleppa við rauða
spjaldið skömmu áður en Coventry
jafnaði. Hann felldi John Williams
innan teigs, en Williams náði að
koma boltanum fyrir og Quinn skor-
aði. Hins vegar dæmdi dómarinn
vítaspyrnu, en Gunn varði skotið
frá Brian Borrows. Quinn fékk bolt-
ann en skaut í slá og Norwich tókst
að bægja hættunni frá.
„í mínum huga var markið gilt,
en fyrst dómarinn dæmdi víta-
spyrnu átti hann að reka Gunn af
velli,“ sagði Bobby Gould, stjóri
Coventry."
Norwich, sem fagnaði síðast sigri
heima í október, vann Chelsea ör-
ugglega, 3:0. Þetta var annar sigur
liðsins í röð, en það vermir samt
enn botnsætið. Ekkert hefur gengið
hjá Chelsea síðustu tvær vikumar,
liðið féll úr deildarbikamum og
ensku bikarkeppninni og var þetta
fjórða tap þess á 11 dögum. „Það
sem er að gerast er ótrúlegt, en
vömin er okkar vandamál," sagði
Ian Porterfield, stjóri Chelsea.
Tony Cottee, sem hafði verið úti
5 kuldanum hjá Everton í tvo mán-
uði, var hetja heimamanna og gerði
bæði mörkin í 2:0 sigri gegn meist-
umm Leeds, sem hafa ekki enn
sigrað á útivelli á tímabilinu. „Ég
sagði Cottee að keyra sig út og
hann gerði það sem fyrir hann var
lagt," sagði Howard Kendall, sem
skipti Cottee útaf.
Ian Wright byrjaði í þriggja leikja
banni, en fjarvera hans dró ekki
úr Arsenal, sem vann Manchester
City 1:0 í Manchester. Þetta var
fyrsti sigur Arsenal í síðustu níu
leikjum og George Graham var
ánægður. „Frammistaða strákanna
var eins og ég vildi sjá.“
Chris Waddle var vel fagnað á
White Hart Lane í fyrstu heimsókn
sinni síðan hann skipti í Marseille
fyrir fjórum ámm. Waddle var allt
í öllu hjá Sheffíeld Wednesday og
tryggði öðmm fremur 2:0 sigur
gegn Tottenham, en miðheijarnir
Mark Bright David Hirst sáu um
að skora í seinni hálfleik.
■ Úrslit / BIO
■ Staðan / B10
Reuter
Tomas Fogdö frá Svíþjóð sigraði í svigi heimsbikarsins í þriðja sinn á þessu keppnistímabili á sunnudaginn. Hann er hér
á fullri ferð í brautinni í Lech í Austurríki.
Þriðji sigur Fogdö
Girardelli á beinu brautinni í átt að fimmta sigrinum í heimsbikamum
SVÍINN Tomas Fogdö sigraði í
svigi heimsbikarsins í þriðja
sinn á þessu keppnistímabili
um helgina. Heimsmeistarinn í
bruni, Franz Heinzer frá Sviss,
vann annað brunmótið á innan
við viku og Marc Girardelii eyk-
ur enn forskotið í heildarstiga-
keppninni og virðist fátt geta
komið í veg fyrir fimmta sigur
hans f heimsbikarnum.
Fogdö, sem er 22 ára og hafði
aðeins unnið eitt heimsbikar-
mót fyrir þetta keppnistímabil,
sigraði í svigi í Lech í Austurríki
á sunnudag. Italinn Alberto Tomba
varð að sætta sig við þriðja sætið
en áður óþekktur Slóveni, Jure
Kosir, varð annar. „Ég hef ekki
aðdáendaklúbb á bak við mig eins
og sumir, en ég kann því vel,“ sagði
Fogdö. „Munurinn á árangri mín-
um nú og í fyrra er sá að ég hef
mun meiri ánægju af því að keppa
í vetur. Það er mikilvægt að hafa
gaman af því sem maður er að
gera.“
Marc Girardelli varð í 12. sæti
í sviginu en náði sjötta sæti í brun-
inu á laugardaginn og vann tví-
keppnina og nældi sér í dýrmæt
stig. Hann hefur nú 875 stig en
Tomba kemur næstur með 532 stig.
„Ég er mjög ánægður með árang-
urinn um helgina. En það er of
snemmt að fagna sigri í stiga-
keppninni — það er langur vegur
eftir enn,“ sagði Girardelli. Helsti
keppinautur hans, Alberto Tomba,
sagði að Girardelli væri svo gott
sem búinn að vinna heimsbikarinn.
„Markmiðið hjá mér núna er að
gera góða hluti á heimsmeistara-
mótinu í Japan sem hefst í næsta
mánuði."
Franz Heinzer frá Sviss sýndi
að hann er ókrýndur konungur
brunsins með því að vinna í annað
sinn á innan við viku og nú í Kanda-
har-brunbrautinni. ítalinn Peter
Runggaldier varð annar, 0,12 sek.
á eftir og heimamaðurinn Gunther
Mader varð þriðji. „Ég náði mér
vel á strik í efri hluta brautarinnar
en var ekki sannfærandi í neðri
hlutanum og gerði mistök. Ég bjóSt
ekki við sigri — hinir hljóta að
hafa gert fleiri mistök en ég,“ sagði
Heinzer.
Schneider
aðnásér
ástrik
Wachter tryggir
stöðu sína
VRENI Schneider frá Sviss
vann annað svigmótið í röð á
sunnudaginn, en þá kepptu
konurnar í Cortina á Ítalíu.
Heimsmeistarinn Ulrika Maier
frá Austurríki sigraði í risasvigi
á laugardag og landa hennar,
Anita Wachter, er komin með
gott forskot í stigakeppninni
eftir mót helgarinnar.
Schneider hafði mikla yfírburði
í sviginu á sunnudag. Þetta
var 42. sigur hennar í keppninni frá
upphafi og einn sá auðveldasti. Hún
var rúmlega sekúndu á undan Ann-
elisu Coberger frá Nýja Sjálandi,
sem náði besta tímanum í síðari
umferð. Karin Buder frá Austurríki
varð þriðja. „Það var mjög ánægju-
legt að sigra hér. Ég gerði mistök
í síðari umferð en það kom ekki
að sök því fyrri umferðin var mjög
góð,“ sagði Schneider sem er orðin
Reuter
Vrenl Schnelder frá Sviss og Anita Wachter frá Austurríki stóðu sig vel á
skíðamótum helgarinnar í Cortina á Ítalíu. Schneider sigraði með yfirburðum
í svigi og Wachter varð efst i tvíkeppni.
28 ára gömul.
Ulrika Maier, tvöfaldur heims-
meistari í risasvigi, sigraði í sér-
grein sinni á sama stað á laugardag
og vann þar þriðja mótið í vetur.
Carole Merle frá Frakklandi varð
önnur eins og í bruninu á föstudag,
0,20 sek. á eftir Maier. Silvia Eder
nældi í þriðja sætið.
Anita Wachter, sem varð níunda
í bruninu á föstudag, varð sjöunda
í sviginu og vann þar með tvíkeppn-
ina og fékk fyrir það 100 stig. Hún
varð fímmta í sviginu á sunnudag
og því hefur hún nú 158 stiga for-
skot á Corole Merle frá Frakk-
landi, sem varð önnur í bruninu á
föstudaginn og risasviginu á laug-
ardag, en keppti ekki í sviginu.
■ Úrslit/B11
SPANN
Óbreyttstaða
"Tvö efstu lið spænsku 1. deildarinnar, Deportivo frá Coruna og
■ Barcelona, unnu bæði 2:1 á heimavelli á sunnudaginn. Deportivo
er efst með 29 stig eftir 18 leiki, en Barcelona er tveimur stigum á
eftir en á leik til góða.
Barcelona hafði gífurlega yfírburði gegn Osasuna. Liðið átti sjö góð
færi fyrir hlé, og skutu leikmenn liðsins þá m.a. tvívegis í stöng. Fyrsta
markið kom þó ekki fyrr en á 62. mín. en þá skoraöi Jose Bakero
fyrir heimaliðið. Ellefu mín. síðar jafnaði Pólveijinn Roman Kosecki
úr vítaspymu, sem dæmd var eftir að hann var felldur. En réttlætinu
var fullnægt — Juan Goicoechea náði að skora og tryggja Barcelona
sigur á 79. mín. eftir mikil varnarmistök gestanna.
Bebeto heldur sinu strlkl
Brasilíumaðurinn Jose Bebeto styrkti stöðu sína á toppi listans yfír
markahæstu menn á Spáni, er hann gerði fyrra mark Deportivo frá
Coruna gegn Oviedo úr vítaspymu einni mfn. fyrir leikhlé. Þetta var
18. mark hans á tímabilinu. Luis Elcacho, einn varnarmanna gest-
anna, mótmæli vítaspymudómnum kröftuglega, fékk fyrir það gult
spjald en hafði einnig fengið að líta það fyrr í leiknum, þannig að
hann varð að yfirgefa völlinn. Heimamenn voru því einum fleiri allan
seinni hálfleikinn, bættu við marki strax í upphafi hans og sigurinn
var sanngjam. Gestimir löguðu stöðuna ekki fyrr en alveg í lokin.
SKIÐI / HEIMSBIKARINN I ALPAGREINUM
ENGLAND