Morgunblaðið - 29.01.1993, Side 16
Heild - nýtt
Ca 190 fm atvinnuhúsnæði í Heild 3 sem er fyrirtækja-
kjarni í Súðavogi 1. Hentar mjög vel fyrir heildsölur eða
slíkan rekstur. Öll stæði malbikuð. Góður frágangur.
Laust strax. Verð 10,2 millj.
Laufbrekka - Kóp.
Mjög gott atvinnuhúsnæði ca 300 fm sem er stór salur
með innkeyrsludyrum. Lofthæð ca 5 metrar. Afgreiðslu-
salur. Á millilofti eru góðar skrifstofur og kaffistofur.
FASTEIGNA- OG FIRMASALA
AUSTURSTRÆTI 18, 101 REYKJAVÍK
Opið laugardag
kl. 11-14
2ja herb.
Hverafold — bflskýli
56 fm Ib. á jarðhæð. Sérgaröur. Pvhús og
geymsla innan íb. Verð aðeins 5,9 millj.
Áhv. 3,2 millj.
Vallarás — góð lán
53 fm ib. á 3. hæð í lyftuhúsi. Parket
á gólfum, flisarl. bað, góðar innr.,
suöursvalir og gervihnattasjónvarp.
Frábært útsýnl. Húsið klætt utan nú
þegar. Verð 5,7 mitlj. Áhv. 2,9 millj.
Austurberg — laus
61 fm íb. á jarðhæð. Sérgarður. Snyrtil. og
vel umgengin sameign. Verð 5,5 millj.
Þangbakki — lyftuhús
62 fm íb. á 7. hæð. Parket á stofu, marmari
á baði. Austursv. Góð ib. i næsta nágr. við
Mjóddina. Verð 6,5 m. Áhv. hagst. lán 3 m.
3ja herb.
Austurströnd — bílskýli
87 fm endaíb. á 3. hæð. Stórar suöursv.
Glæsil. útsýni. Laus fljótl. Verð 8,7 millj.
Áhv. 1,7 millj.
Hverafold — góð lán
89 fm falleg íb. á 3. hæð í litlu fjölbhúsi.
Fallegt útsýni. Gervihnattasjónvarp. Áhv.
4,7 millj.
Garöastræti — þakhæð
Falleg og björt 72 fm talsv. endurn. íb. Mik-
ið útsýni m.a. yfir miðbæinn. Verö 6,2 millj.
Áhv. 1,9 millj. hagst. lán.
4ra—5 herb.
Eyrarholt — Hfj.
Glæsileg ný 116 fm endaíb. á 1. hæð. Suð-
ursv. og fráb. útsýni yfir höfnina og flóann.
Verð 9,2 millj.
Flúðasei - bílskýii
Falleg 5 herb. 104 fm Ib. é 2. hæö.
Parket á gólfum. Stórar suðursv.
Verð 8,4 míllj.
Garðhús — „penthouse"
Ný 128 fm íb. á 3. hæð. íbúöin selst í núver-
andi ástandí, tæplega fullb. á 8,7 millj. eða
fullb. á 9,2 millj.
Vesturbaer
Stórgl. 4ra herb. íb. i nýl. húsí við
Neeveg. Ib. er tveimur hæðum.
Massíft parket og marmari 6 gólfum.
Vandaðar Innr. Suöurgaröur. Svalir.
Laus fljótl.
Hlégerði — Kóp.
96 fm 3ja-4ra herb. afri sérhæð á friösælum
stað. Góðar suðursvalir. Gott útsýni. Verð
8,3 millj.
Raö- og parhús
Ásgarður
Snyrtilegt 110 fm raðhús. Anddyri, stofa
og eldhús á miðhæð. Uppi 3 svefnherb. og
baðherb. Geymslf .og þvhús í kj. Verð 8,5
millj. Áhv. 3,2 millj. Hagst. lán.
Huldubraut — Kóp.
232 fm parhús á þremur hæðum.
Sérstök og skemmtileg hönnun. Innb.
bílsk. 32 fm. Eignín er ekki fullb. Verð
14,9 millj. Áhv. 7,6 m, hagst, lán,
mögul. að yfirtaka 9,5 m.
Víðiteigur — Mos.
Snoturt 66 fm endaraðh. á einni hæö. And-
dyri, stofa, svefnherb., eldhús og bað. Góð-
ur suðurgarður. Verð 6,2 millj, Áhv. 2,6
millj. hagst. lán. Mögul. skipti á 2ja herb. íb.
í Rvík.
Einbýlishús
Hæðarsel — góð lán
254 fm einb. á eftirsóttum stað efst í botn-
langa í Seljahv. Vandaðar innr., parket á
gólfum. Lítil séríb. á jarðhæð. Falleg lóð.
Gott útsýni. 30 fm bílsk. Verö 17,0 millj.
Áhv. 4,2 millj. hagst. lán.
Kársnesbraut — Kóp.
Nýl. 157 fm einb. á tveimur hæðum.
Keramikflísar og parket á gólfum. Sam-
byggöur bílsk. 32 fm. Sérst. og skemmtil.
hönnun húss og lóöar. Verö 17,8 millj. Áhv.
4,4 millj. Mögul. skipti á minni eign í Rvík.
Suðurhvammur — Hf.
252 fm einb. á tveimur hæöum. Innb. 50
fm bílsk. m. gryfju. Húsið er í dag m. 2 íb.
Verð 17,8 millj. Áhv. 9,6 millj. hagst. lán.
Skipti mögul.
Háihvammur — Hf.
366 fm vandaö einb. á þremur hæðum m.
innb. bílsk. Vandaðar innr. og gólfefni.
Glæsilegt útsýni. Áhv. 4,0 millj. hagst. lán.
Esjugrund — sjávarlóð
Vorum að fá í einkasölu 180 fm fallegt einb-
hús á stórri sjávarlóð m. fráb. útsýni. Verð
11,5 millj. Makaskipti mögul.
I smíðum
íbúðir:
Nónhæð - Gbæ. 3ja-4ra herb. 107 fm tilb.
u. trév. Verð frá 7950 þús.
Hrísrimi. 2ja herb. 48,4 fm tilb. u. tróv.
Verð 4,2 millj.
2ja herb. 57 fm tilb. u. trév. Verð 4,7 millj.
2ja herb. 63,3 fm tilb. u. trév. Verð 5,1 millj.
3ja herb. 90,6 fm tilb. u. trév. Verð 6350 þús.
Með stæði í bílgeymslu. Verð 6950 þús.
Álfholt - Hfj. 177 fm íb. á tveimur hæðum.
Fullb. u. máln. utan, fokh. innan. V. 7,9 m.
Rað- og parhús:
Hrísrimi - parhús. 193 fm á tveimur hæð-
um. Innb. bílsk. Fokh. innan, frág. utan.
Verð 8,2 millj.
Háhæð - Gbæ. 163 fm raðhús á einni hæð
m. innb. bílsk. Fokh. innan, frág. utan. Verð
8,5 millj.
Baughús - parhús. 202 fm á tveimur hæö-
um m. innb. 38 fm bílsk. m. háum innkdyr-
um. Verö 8,6 millj.
Garðhús - endaraðhús. 147 fm á tveimur
hæðum. Sórstæöur bílsk. 26 fm. V. 7,9 m.
Hamratangi - Mos. 145 fm raðhús á einni
hæö m. innb. bílsk. Skilast fokh. innan, tilb.
u. máln. utan. Verö aðeins 6,9 millj.
Mururimi. 178 fm parhús á tveimur hæðum.
Innb. bílsk. Tvennar svalir. Verö 8,6 millj.
Áhv. 6,0 millj.
Grasarlml. 177 fm parhús á tveimur hæð-
um. Innb. bílsk. Verð 8,1 millj.
Einbýlishús:
Langaflt - Gbæ. 165 fm á einni hæö m.
innb. bílsk. Fullb, utan, fokh. innan. Verð
10,8 m. Mögul. á ýmiskonar eignaskiptum.
Reyrengi. 160 fm á einni hæö auk 34 fm
bílsk. Fokh. innan, fullb. utan.
Sölumenn: Agnar Ólafsson, Guðmundur Valdimarsson, Óli Antonsson.
Lögmenn: Sigurbjörn Magnússon hdl. og Gunnar Jóhann Birgisson hdl.
Morgunblaðið/Kristinn
wrrrmTT?rR
29. JANUAR 1993
Jón Jóel Einarsson, verkefnissijóri hjá Iðntæknistofnun
Æ meiri lii'öfiii' ern
gerðar til húsrarða
Rætt viö Jón Jóel Eínarsson, verlt-
efnisstjóra hjá Ióntæknlstofhun
MEÐ sífellt fullkomnari byggingum eru gerðar meiri og meiri
kröfur til húsvarða og það þykir sjálfsagt að kalla þá til, nánast
á hvaða tíma sólarhrings sem er. Það eru jú þeir, sem eiga að sjá
um, að hlutirnir séu í lagi. Ekki er auðvelt að gera sér grein fyr-
ir því, hvað húsverðir eru margir í landinu, en gizkað er á, að
þeir séu um 400. Samt hafa þeir ekki enn stofnað með sér form-
leg stéttarsamtök, enda þótt áhugi á því fari nú vaxandi innan
stéttarinnar. Þeir bera mjög mismunandi starfsheiti. Hjá starfs-
mannafélagi Reykjavíkurborgar heita þeir umsjónarmenn fast-
eigna. Onnur starfsheiti eru einnig til eins og ráðsmaður, staðar-
haldari o. fl.
Mikil ábyrgð
Húsverðir bera oft mikla ábyrgð
og ég hef stundum líkt starfi
þeirra við starf vélstjóra á skipi.
Þeir eiga ekki endilega að kunna
að byggja “skip“, en þeir eiga að
kunna að halda
því gangandi,
sagði Jón Jóel
Einarsson, verk-
efnisstjóri á Iðn-
tæknistofnun í
viðtali við Morg-
unblaðið, en í
næsta mánuði á
að hefjast þar sér-
stakt húsvarða-
námskeið um rekstur húsa.
— Nú á sér stað mikil vakning
varðandi viðhald á húsum. Reynsl-
an hefur kennt okkur, að þau verð-
mæti, sem liggja í byggingum,
geta rýrnað mjög hratt, ef þeirra
er ekki stöðugt gætt og af kunn-
áttu. Það er því eðlilegt, að kröfur
til þeirra, sem sjá um hús, fari
vaxandi, segir Jón Jóel. - Erlendis
þekkist það víða, þegar þyggð eru
stórhýsi, að húsverðir séu ráðnir
strax á hönnunarstigi hússins til
þess að þeir geti fylgzt með frá
byijun. Þeir eiga að sjá til þess,
að húsið þjóni því hlutverki, sem
það er byggt fyrir.
Jón Jóel er fæddur 1951 og al-
inn upp í Reykjavík og Dalasýslu.
Hann gekk í Samvinnuskólann en
fór síðan í háskóla í Osló, þar sem
hann lærði leikhúsfræði og al-
mennar bókmenntir. Hann segist
hafa fengizt við margt á sínum
starfsferli, þar á meðal við húsa-
smíðar, en undanfarin sex ár hefur
hann starfað hjá Iðntæknistofnun
við að skipuleggja námskeið og
námsgagnagerð.
— ímynd húsvarða hefur verið
að breytast, heldur Jón Jóel áfram.
— Nú eru húsverðir ekki lengur
bara lasburða karlar, sem hringla
stórum lyklakippum. Nú eru það
helzt iðnlærðir byggingamenn,
sem gegna þessum störfum, enda
reynir oft á slíka fagkunnáttu í
starfi húsvarða. Starfið reynir líka
mikið á hæfni í mannlegum sam-
skiptum, þegar leysa á vanda
þeirra fjölmörgu, sem ganga um
og nota hús, t. d. skóla.
Fyrirhugað námskeið er skipu-
lagt út frá þeirri miklu breidd, sem
felst í húsvarðarstarfinu. Haft var
náið samráð við hagsmunaaðila
eins og Húseigendafélagið, Bygg-
ingadeild borgarverkfræðings,
Fjárlaga- og hagsýslustofnun,
Samband ísl. sveitarfélaga, Land-
samband iðnaðarmanna o. fl.
Námskeiðið er byggt upp af 18
ólíkum námsþáttum með þjónustu,
öryggi, skipulag og viðhald bygg-
inga sem sérstök áherzlusvið.
Frá því námskeiðið var fyrst
haldið 1990, hafa um það bil 120
manns sótt það. — Þá var gizkað
á, að á landinu öjlu væru 300-400
manns, sem störfuðu við hús-
vörzlu, segir Jón Jóel. — Ef þessi
ágizkun hefur verið rétt, eiga
margir enn eftir að koma á þessi
námskeið og vonazt er til, að
hægt verði að ná til um 100 manns
til viðbótar. Þeir, sem sótt hafa
þessi námskeið, telja sig yfírleitt
hafa haft mikið gagn af þeim.
Þess hefur líka orðið vart, að hús-
eigendur eru farnir að fara fram
á, þegar þeir auglýsa eftir hús-
vörðum, að umsækjendur hafi sótt
þetta námskeið.
Vantar sameiginleg
hagsmunasamtök
Það stendur húsvörðum nokkuð
fyrir þrifum, að þeir eiga sér ekki
sameiginleg hagsmunasamtök. —
Störf þeirra eru mjög misjafnlega
metin, því að það er ákaflega fátt
til að styðjast við, heldur Jón Jóel
áfram. — Það getur líka komið
niður á vinnuveitendum þeirra,
þegar þeir vita ekki, hvaða kröfur
þeir geta gert til húsvarða. Stund-
um leita húseigendur til okkar hér
á Iðntæknistofnun í vandræðum
sínum og vilja fá upplýsingar um
einhveijar útlínur til að styðjast
við varðandi verksvið húsvarða.
Eg er líka sannfærður um, að
fyrirhugað námskeið geti komið
að gagni við að efla hvers konar
gæðauppbyggingu. Þátttakendur
fá mjög ítarleg námsgögn og hluti
þeirra er svonefnd rekstrardagbók
hússins, sem er verkfæri til dag-
legra nota. í hana eru skráðar
allar upplýsingar, sem skipta máli
fyrir rekstur húseignanna og þar
eru líka ýms verkfyrirmæli og
minnislistar fyrir ólík verk, sem
vinna þarf árið um kring.
Þetta er 60 tíma námskeið og
þátttaka í því kostar nú 35.000
kr. Það er grunnnámskeið og þjálf-
un húsvarða er ekki lokið með því
einu saman. Síðan gætu fylgt
framhaldsnámskeið fyrir þá, sem
það vilja um einstaka þætti t. d.
ræstingar. — Margir húsverðir
annast ræstingar í stórum bygg-
ingum og velta þá mjög háum
upphæðum, segir Jón Jóel. — Þeir
hafa kannski 10-20 manns í vinnu
og þurfa jafnframt einnig að
kaupa inn ræstiefni. Þá skiptir það
máli, að þeir kunni með þessi efni
að fara, þannig að þeir geti leið-
beint öðrum varðandi meðferð
þeirra. Þess eru dæmi, að ræsti-
efni hafi beinlínis eyðilagt flísar
og gólf. Á námskeiðum okkar hef-
ur einnig verið sýnt fram á, að
oft má spara miklar fjárhæðir í
hagræðingu í ræstingum.
Onnur framhaldsnámskeið, sem
drög hafa verið lögð að er t. d.
húsvarsla í skólum. Þar er lögð
áherzla á umgengni við börn og
meðferð kælikerfa fyrir skóla,
leiktækja, útisvæða og gróðurs,
svo að nokkuð sé nefnt.
Enn má nefna húsvörslu í
umönunarstofnunum og umsjón
íþróttamannvirkja, sem oft er
mjög umfangsmikil. Töflugerð
varðandi nýtingu slíkra mann-
virkja getur verið mikið verk, enda
eru þau gjaman notuð af miklum
fjölda fólks. Þá þarf að þjóna þessu
fólki, þannig að vel fari, sem getur
eftir Magnús
Sigurósson