Morgunblaðið - 31.01.1993, Page 1
72 SIÐUR B
25. tbl. 81. árg.
SUNNUDAGUR 31. JANÚAR 1993
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Tíminn flýgnr
áfram í Berlín
RAFDRIFNAR klukkur í Berlín hafa
gengið skrykkjótt að undanförnu,
aðallega hafa þær þó gengið hraðar
en eðlilegt getur talist. Astæðan er sú
að í desember var Berlín tengd austur-
þýska rafdreifikerfinu. Raforkan sem
leikur um það kemur enn að mestu
leyti frá orkuverum í Rússlandi og
Úkrainu. Straumurinn á það til að
flökta þótt oftast sé hann 51 rið en
íbúar vesturhlutans voru vanir jöfnum
staðalstraumi upp á 50 rið. Breytingin
hefur gert það að verkum að vekjara-
klukkur hringja fyrr en elia og menn
mæta of snemma til vinnu. Þá hefur
hún sömuleiðis ruglað raftæki ýmiss
konar í riminu, svo sem myndbands-
tæki sem stillt hafa verið fyrirfram til
að taka upp sjónvarpsþætti sem staðið
hefur til að horfa á síðar. Kvörtunum
hefur rignt yfir rafmagnsveitu borgar-
innar, ekki síst frá bönkum sem óttast
að rafdrifnar læsingar bankahvelfing-
anna opnist í ótíma.
Drykkjusektín
fjórfölduð
YFIRVÖLD í héraðinu Khmelnísky í
Úkraínu hafa sagt drykkjuskap á al-
mannafæri stríð á hendur. Gjald sem
þeim sem hirtir eru upp af götunni
og látnir eru sofa úr sér í sérstökum
þurrkhúsum er gert að greiða hefur
verið fjórfaldað. Hækkað i 1.000
karbovaneta eða rúmar 50 krónur sem
jafngildir vikulaunum þar um slóðir.
Innifalið í verðinu er ísköld sturta og
svefn á steinbekk. Með tilkomu brenni-
vínssektarinnar verður aflögð sú vepja
að senda viðvörunarbréf til vinnustað-
ar þess blauta en þeim fylgdi jafnan
föðurlegar formælingar frá fulltrúum
flokksins í viðkomandi verksmiðju.
Utvarpaði
áhugamálum
NORSKUM plötusnúði Víkurvarpsins
í Malvik varð heldur betur á í mess-
unni þegar hann útvarpaði eigin sam-
tali við kynlífsþjónustu í Hong Kong.
Eftir að hann hafði sett siðustu plöt-
una á fóninn og kvatt hlustendur
hringdi hann í kynlífsþjónustu í Hong
Kong. Hlustaði hann á opinskáa frá-
sögn af mjólkurpósti sem komst í vin-
fengi við kvenkyns viðskiptavini. Fyrir
slysni útvarpaði maðurinn samtali sínu
þannig að hlustendur urðu vitni að
frásögninni.
Serbar og múslimar
hafna friðaráætlun
Genf, Washington. Reuter.
VIÐRÆÐUR um frið í Bosníu fóru
út um þúfur í Genf í gær og munu
Cyrus Vance og Owen lávarður,
milligöngumenn Sameinuðu þjóð-
anna (SÞ) og Evrópubandalagsins
(EB), nú freista þess að fá öryggis-
ráð SÞ til þess að samþykkja friðar-
áætlun fyrir Bosníu og auka þar
með þrýsting á stríðsaðila þar. Rík-
isstjórn Bills Clintons Bandaríkja-
forseta er sögð vinna að því að fá
ákvörðun um að framfylgja flug-
banni yfir Bosníu hraðað.
Owen lávarður varaði stríðsaðila í Bosn-
íu við er þeir gengu til viðræðna í Genf
í gær og sagði þá mega vænta aðgerða
af hálfu SÞ samþykktu þeir ekki friðará-
ætlun þeirra Vance. Meðal annars gætu
þeir átt von á hemaðaríhlutun.
Fulltrúar Bosníustjómar og fulltrúar
Bosníuserba neituðu að undirrita lykilatr-
iði friðaráætlunarinnar. Mate Boban leið-
togi Bosníukróata undirritaði hins vegar
alla þrjá hluta áætlunarinnar; um vopna-
hlé, framtíðar stjómskipan í Bosníu og
kort um skiptingu landsins í stjómsýslu-
svæði.
Reynt til þrautar að semja
Radovan Karadzic leiðtogi Bosníuserba
undirritaði fyrstu tvo þættina, um vopna-
hlé og stjómskipan, en Alija Izetbegovic
forseti og leitogi múslima undirritaði ein-
ungis kaflann um stjómskipan sem hann
hafði samþykkt fyrr í þessum mánuði.
Sagði hann að friðaráætlunin verðlaúnaði
hernám Serba á stórum svæðum og skipti
Bosníu eftir uppruna þjóðarinnar.
Stjómarerindrekar útilokuðu ekki að
reynt yrði að koma á tvíhliða viðræðum
milli Karadzics og Izetebegovics síðdegis
í gær í þeim tilgangi að auka þrýsting á
þá að fallast á áætlunina. Þá lá fyrir að
reynt yrði að halda samningaviðræðum
áfram þegar öryggisráðið hefði samþykkt
áætlun Vance og Owens.
Aðgerðir yfirvofandi?
„Haldi deiluaðilar, einn eða fleiri, upp-
teknum hætti og hafni áfram friðará-
ætluninni þá vonumst við til að öryggis-
ráðið grípi til nauðsynlegra ráðstafana,
pólitískra, efnahagslegra eða hemaðar-
legra, til þess að hrinda áætluninni í fram-
kvæmd,“ sagði Owen í gær.
10
LEIKFLÉTTA
UM SEÐLA-
BANKASTðL
vimm
GOTT KVÖLD!
18
Bidin
senná
enda?
Manchester
United
gengur allt í
haginn þessa
dagana
38