Morgunblaðið - 31.01.1993, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 31. JANÚAR 1993
noPTTrr
3
Alla virka daga
frá kl. 7-9
í þætti Þorgeirs
Ástvaldssonar og Eiríks
Hjálmarssonar verður
farið víða um landið
og fjallað um fjölbreytt
málefni
sem öll eiga
það sameiginlegt að varða
íslenskt þjóðlíf. Þorgeir og
Eiríkur setja „tempóið"
fyrir daginn og velta upp
málum sem rædd verða
til hlítar í síðdegisþættinum
á milli kl.15:55 og 18:30.
ISLANDS EINA VON
Alla virka daga
frá kl. 9-12
Siggi Hlöðvers
og Erla Friðgeirsdóttir
eru á léttari nótunum
þar sem þau heimsækja
meðal annars vinnustaði
og spjalla við landann,
og stjórna
„ÍSLANDSLEIKNUM,"
sem verður viðamikill
hlustendaleikur í samstarfi
við nokkra framleiðendur
á íslenskum^vörum.
Hér er á ferðinni
vandaður þáttur í umsjón
fréttastofu Stöðvar 2,
þar sem ný og fersk viðhorf
í atvinnumálum
verða dregin fram í
dagsljósið.
Þáttur þessi verður á
dagskrá
4. febrúar og er í umsjón
Karls Garðarssonar
og Kristjáns Más
Unnarssonar.
Alla virka daga
frá kl. 15:55-18:30
Sigursteinn Másson og
Bjarni Dagur Jónsson
stjórna nýjum útvarpsþætti
sem tekur púlsinn á
þjóðlífinu á róttækan hátt.
Þátturinn verður yfirfullur
af upplýsingum, mikið af
viðtölum og stjórnendur
eru á ferð og flugi
um landið. Á íslenskum
dögum verður lögð áhersla
á gagnrýna umfjöllun
en um leið uppbyggilega,
hvað hefur farið úrskeiðis,
hversvegna
og hvað er vel gert.
íji. rtbKU Al\
Alla virka daga frá kl. 13-16
Ágúst lætur tónlistina ráða ferðinni sem og endranær, en nú er það
:lensk tónlist sem situr í fyrirrúmi. Spjallað verður við nýja og gamla
tónlistarmenn og meðal efnis er þróun íslenskrar tónlistar.
Alla virka daga á meðan á „íslenskum dögum“ stendur,
mun fréttastofa Stöðvar 2 skyggnast inn í íslenska menningu,
listir og iðnað. Hvar er vaxtarbroddurinn, hvar er nýsköpunin,
hver er að brjóta ísinn og hverjir ríða á vaðið?
„ÍSLANDSLEIKURINN" teygir anga sína inn í þátt Ágústs
og allt til kl. 16:00 verða dregin út nöfn heppinna
íslendinga sem hljóta íslenskar vörur í verðlaun.