Morgunblaðið - 31.01.1993, Page 6
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUÐAGUR 31. JANÚAR 1993
p FRETTIR/IIMMLEIMt
Á slóðum Corporate Training Unlimited
Með bækistöðvar í hreiðri
sérþiálfaðra ævintýramaiina
Ólíklegar bækistöðvar
HOFUÐSTOÐVAR Corporate Training Unlim-
ited eru við fjölfarna götu í Fayetteville í Norður-
Karólínu. Þegar blaðamaður Morgunblaðsins
knúði þar dyra rétt stungu starfsmenn nefinu í
gættina til að vísa honum á braut. Höfuðstöðv-
arnar láta lítið yfir sér og virðist fráleitt að ætla
að þarna séu skipulagðar aðgerðir til að nema á
brott börn bandarískra foreldra á erlendri grundu.
Fayetteville, Norður-Karólínu. Frá Karli
Blöndal, fréttaritara Morgunblaðsins.
ÞAÐ ER engin tilviljun að
höfuðstöðvar Corporate Tra-
ining Unlimited, fyrirtækisins
að baki brottnámstilraun ís-
lensku stúlknanna tveggja,
skuli vera í borginni Fayette-
ville í Norður-Karólínu. Hér
hafa sveitir úr landhernum
aðsetur, þar á meðal sérsveit-
ir, sem fara eiga svo leynt,
að stjórnvöld viðurkenna ekki
tilvist þeirra þótt þær séu á
allra vörum.
Fayetteville er á stærð við Reykja-
vík að fólksfjölda en þegar nærliggj-
andi bæjarfélög eru talin með nálg-
ast þessi byggðarkjami 200 þúsund
íbúa og er hann sá fjórði stærsti í
ríkinu. Helsta vítamínsprautan hér á
slóðum er herstöðin Fort Bragg. Þar
eru 41 þúsund hermenn og átta þús-
und óbreyttir borgarar við vinnu og
kostar reksturinn 3,2 milljarða doll-
ara á ári. 82. flugdeild landhersins
og fyrsta séraðgerðasveit hans hefur
þar bækistöðvar auk miðstöðvar um
„séraðgerðir" sem kennd er við John
F. Kennedy, fyrrum forseta. Þar er
einnig að fínna hina svokölluðu
Delta-sveit, sem gerð hefur verið
ódauðleg í kvikmyndum ofurhugans
Chucks Norris.
Höfuðstöðvar Delta eru rækilega
faldar, enda hafa bandarísk stjóm-
völd hvorki viljað neita né staðfesta
tilvist sveitarinnar frá því hún var
stofnuð fyrir einum og hálfum ára-
tug.
Kunnugir segja hins vegar að til-
vist Delta fari allt annað en leynt.
Ekki þurfí glöggt auga til að þekkja
félaga sveitarinnar úr. Bæði séu þeir
geislandi af sjálfstrausti og einnig
séu þeir verkefna sinna vegna oft
miður hermanniegir til fara. Það
vekur athygli þegar síðhærðir menn
birtast skyndilega innan um bursta-
klippta hermenn.
En það er hins vegar ekki hægt
að sjá á félögum í Delta hvaða þjálf-
un þeir hafa hlotið. Þeir eru æfðir í
meðferð hvers kyns vopna og
sprengiefna. Samkvæmt lýsingum í
bók Neals Livingstone, Rescue My
Child, sem fjallar um CTU, er fátt
sem sveitarmeðlimir geta ekki gert.
Þeir geta varpað sér út úr flugvélum
í hvaða hæð sem er, klessukeyrt bíla
án þess að fínna fyrir því og kastað
sér inn um glugga án þess að verða
meint af.
Úr Delta í einkarekstur
Donald M. Feeney, sem nú situr
í haldi í Reykjavík fyrir tilraun til
að koma dætrum Emu Eyjólfsdóttur
úr landi, var félagi í Delta.
Feeney fæddist f Brooklyn í New
York og lítur fremur út fyrir að vera
leigubflstjóri en sérþjálfaður ævin-
týramaður. Hann kveðst f bók Li-
vingstone hafa verið skammt frá því
að komast í kast við lögin í Brooklyn
svo hann ákvað að ganga í herinn.
Don Feeney var sjötti maðurinn
sem tekinn var inn í Delta. Hann tók
þátt í tilrauninni til að bjarga banda-
rískum gíslum í Íran árið 1980. Sú
tilraun fór út um þúfur sem frægt
er orðið, en hann slapp lífs. Hann
tók einnig þátt í aðgerð til að bjarga
sex trúboðum í Súdan og innrásinni
í Grenada árið 1983.
Árið 1982 var Feeney sendur til
Beirút í Líbanon til að gæta öryggis
bandaríska sendiherrans þar. Á þess-
um árum var dýrt að lifa í Beirút,
þar sem öll viðskipti fóru fram á
svörtum markaði, og herinn skammt-
aði naumt. Feeney og félagar gerðu
samning við eiganda hótelsins, sem
þeir bjuggu á, um að þeir greiddu
minna fyrir gistingu sína en sendi-
ráðið lét þeim í té. Þetta kölluðu
þeir að bjarga sér við erfiðar aðstæð-
ur, en herinn var ekki á sama máli
þegar upp komst.
Fremur en að sæta refsingu hætti
Feeney í hernum árið 1984. Ári síðar
stofnaði hann ásamt konu sinni Judy,
Corporate Training Unlimited. I
fyrstu var hlutverkið eingöngu að
þjálfa starfsmenn fyrirtækja og
sendiráða til að eiga við hryðjuverka-
menn erlendis og bandarískar lög-
reglusveitir til sérverkefna. Höfuð-
stöðvar CTU eru í látlausu tvílyftu
húsi við fjölfama götu hér í Fayette-
ville og fyrir utan er stórt gult skilti
með stöfum fyrirtækisins og mynd
af erni. Ástæðan fyrir því að Feeney-
hjónin ákváðu þessa staðsetningu er
sú að hér er fjöldi sérsveitarmanna
sem sestur er í helgan stein og er
svo áfjáður í að drýgja eftirlaunin
að ekki þarf nema taka upp síma til
að fá þá til liðs við sig.
Feeney klæjaði alltaf í fíngurna
að komast í ævintýri og fyrsta tæki-
færið gafst í lok árs 1987. Síðan þá
hefur Feeney ásamt samstarfsmönn-
um sínum staðið fyrir aðgerðum í
átta löndum án þess að nokkuð færi
úrskeiðis. Níunda verkefnið fór hins
vegar úr böndum og lét Feeney kló-
festa sig fyrsta sinni er hann lét til
skarar skríða á íslandi.
Neal Livingstone, fréttafulltrúi
CTU, leggur áherslu á að aðgerðir
fyrirtækisins séu hvergi nærri jafn
vi'galegar og athafnir Delta og bætir
við að Feeney og félagar fari aldrei
vopnaðir.
Islensk sljórnvöld mega vara
síg sækí þau okkar menn tíl saka
- segir blaðafulltrúi CTU, fyrirtækisins sem skipulagði brottnám systranna
Fayetteville, Norður-Karólínu. Frá Karli Blöndal, fréttaritara Morgunblaðsins.
NEIL C. Livingstone, blaðafulltrúi fyrirtækisins Corporate
Training Unlimited (CTU) sem reyndi að nema brott tvær ís-
lenskar stúlkur í síðustu viku, segir í viðtali við Morgunblaðið,
að fyrirtækið muni ekki láta kyrrt liggja ef höfðað verði mál
á íslandi gegn Donald Feeney, forsvarsmanni CTU. „íslensk
stjómvöld ættu að vara sig. Við munum þrýsta á bandarísk
sljórnvöld að setja höft á vegabréfsáritanir frá íslandi til
Bandaríkjanna ef reynt verður að sækja okkar menn til saka.“
Engar upplýsingar hefur verið að
fá á skrifstofu CTU hér í Fayette-
ville í Norður-Karólínu frá því að
blaðamann bar að garði.
Samkvæmt upplýsingum blaða-
manna hér hafa Donald og Judy
Feeney, hjónin sem reka CTU, hing-
að til keppst við að komast í fjöl-
miðla, en nú kveður við annan tón.
Það eina sem blaðamaður fékk í
hendur á skrifstofu CTU var minnis-
blað, sem greinilega hafði verið dreift
til starfsmanna um að „hringi ein-
hveijir blaðamenn í dag vinsámleg-
ast svarið á eftirfarandi hátt: Við
höfum ekkert um málið að segja eins
og stendur. Blaðafulltrúi okkar, Neil
Livingstone, mun með ánægju ræða
við þig“.
Livingstone þessi skrifaði bók um
CTU, sem kom út skömmu fynr jól
undir nafninu Rescue My Child. Þeg-
ar rætt var við hann á fimmtudag
var hann sérfræðingur um CTU en
á föstudag var hann orðinn blaðafull-
trúi fyrirtækisins.
Með Hillary Clinton að vopni?
Livingstone sagði í viðtali við
Morgunblaðið að ákveðið hefði verið
að ná stúlkunum úr landi vegna þsss
að það orð fari af íslenskum stjórn-
völdum að þau séu ósamvinnuþýð í
forræðismálum. Hann vildi hins veg-
ar ekki taka dæmi um slíkt.
Rannsóknarlögreglan kannar mál-
ið nú sem um barnsrán hafí verið
að ræða. Livingstone sagði að íslend-
ingar yrðu beittir þrýstingi ef Don
Feeney og James B. Grayson, faðir
yngri stúlkunnar, yrðu sóttir til saka
á Islandi.
„Hillary Clinton [konu Bandaríkja-
forseta] er umhugað um málefni
barna,“ sagði Livingstone til stuðn-
ings því að sennilegt væri að Banda-
ríkjamenn myndu grípa til refsiað-
gerða. Harin nefndi einnig að Banda-
ríkjamenn væru aðilar að Haag-sátt-
málanum frá árinu 1980 um „borg-
aralegar hliðar alþjóðlegra barnsr-
ána“. Aðeins um tugur ríkja er aðili
að þessum sáttmála.
Vettlingatök
Bandaríkjamanna
Bandaríkjastjórn hefur hins vegar
ætíð tekið mál af þessu tagi vettlin-
gatökum. Gott samband við viðkom-
andi ríki virðist vera í fyrirrúmi, en
örlög bandarískra ríkisborgara er-
lendis sitja á hakanum. CTU bjarg-
aði t.d. barni, sem hafði búið við slæ-
man kost, ásamt bandarískri móður
þess, sem sætt hafði misþyrmingum
af hálfu jórdansks eiginmanns síns,
í Jórdaníu. Sýnt þótti að ekki væri
hægt að fá barnið laust með öðrum
hætti þar sem lög múhameðstrúar-
ríkja kveða á um að faðir fái skilyrð-
islaust forræði yfir barni ef móðir
er erlend. Bandarísk stjórnvöld báð-
ust afsökunar við stjórnvöld í Jórdan-
íu eftir að mæðginin voru numin
brott og vítti CTU.
Alan Dixon, fyrrum þingmaður frá
Illinois, segir að nú séu um 10 þús-
und bandarísk börn í haldi erlendis.
Utanríkisráðuneytið segir hins vegar
að aðeins séu um 600 mál „í gangi“.
Livingstone skýrir þennan mun svo
að í utanríkisráðuneytinu sé máli
aðeins haldið vakandi í 2 ár en síðan
látið fyrnast nema aðstandendur láti
að sér kveða. Fólk gefíst hins vegar
yfírleitt upp á að leita til ráðuneytis-
ins vegna aðgerðaleysis þar á bæ.
Segir hann að Feeney-hjónin hefðu
aldrei farið út í aðgerðir af þessu
tagi ef bandarísk stjómvöld sýndu
fórnarlömbum í svona málum meiri
skilning.
Útlendingar sem misst hafa for-
ræði yfír bömum sínum reyna oft
að komast með þau til fóstuijarðar
sinnar í þeirri von að á heimavelli
megi knýja fram aðra niðurstöðu
dómstóla en fékkst á útivelli.
A
Arnes hf.
Flutningi
lýkur 1
vikunni
Sclfossi.
FLUTNINGI allrar fisk-
vinnslu Árness hf. til Þorláks-
hafnar verður lokið í fyrstu
viku febrúar. Unnið er að því
að ganga frá vinnslusölum í
Þorlákshöfn. Nú vinna um 30
manns í vinnslunni en þeim
verður fjölgað þegar hún
kemst á fullan skrið í febr-
úar. Helmingur starfsmanna
í vinnslunni er frá Stokks-
eyri. Að sögn Péturs Reimars-
sonar framkvæmdasljóra hef-
ur öllum þeim, sem sagt var
upp þegar flutningur vinnsl-
unnar var í undirbúningi, ver-
ið boðin fastráðning og flestir
hefðu þegið hana en sumir
afþakkað.
Á síðastliðnu ári voru unnin
9-10 þúsund tonn hjá Ámesi í
húsum þess á Stokkseyri og í
Þorlákshöfn. Pétur Reimarsson
framkvæmdastjóri sagði að
stefnt væri að því að vera á svip-
uðu róli á þessu ári en nú færi
vinnslan fram á einum stað.
Vinnslan hefði farið af stað í ár
með svipuðum hætti og í fyrra,
fyrstu 5-6 vikumar væru rólegar
en þess væri að vænta að mikill
gangur yrði í vinnslunni í febrúar
og síðan haldið fullri keyrslu fram
á haust. En þess væri að vænta
að sem fyrr yrðu desember og
janúar erfíðir.
Pétur sagði að erfitt yrði að
reka fyrirtækið þar sem það væri
nokkuð.skuldsett en menn væru
bjartsýnir á að það mætti takast
að bæta reksturinn með því að
fylgja þeirri stefnu sem stjórn
fyrirtækisins hefði markað meðal
annars með flutningi vinnslunnar
á einn stað.
Um gagniýni á stjóm fyrir-
tækisins eftir flutning vinnslunn-
ar á einn stað í Þorlákshöfn,
meðal annars frá stjómarmönn-
um í Byggðastofnun, sagði Pétur
að það væri alveg á hreinu að
það væri ekki hægt að reka hluta-
félag eins og stjómmálabaráttu
á Alþingi. „Við sem sjáum um
reksturinn ætlum að reka öflugt
fyrirtæki í sjávarútvegi á þessu
svæði og ég vona að við fáum
frið til þess,“ sagði Pétur Reim-
arsson. Hann sagði einnig að
þeir hluthafar sem væm óánægð-
ir eftir hluthafafundinn sem hald-
inn var fyrr í mánuðinum yrðu
að gera málin upp sín á milli án
þess að trafla rekstur fyrirtækis-
ins’ - Sig. Jóns.
Þrír karlar
sóttir í Kerl-
ingarskarð
Björgunarsveitin Berserkir í
Stykkishólmi sótti í gær þijá
menn á þrítugsaldri upp í Kerl-
ingarskarð, en þar höfðu þeir
fest fólksbifreið sína. Mönnunum
var komið til Stykkishólms heil-
um á húfi.
Mennirnir þrír höfðu lagt á fjall-
veginn þrátt fyrir að hann hefði
verið auglýstur lokaður. Vegagerð-
armenn gáfust upp á snjómokstri
um hádegi og gekk illa á leið niður
af fjallinu, að sögn lögreglunnar í
Stykkishólmi.
Þremenningarnir gátu gert vart
við sig um bílasíma en ekki var
hægt að ná sambandi við þá aftur.
Sex hjóla trukkur var fenginn að
láni og lagt á honum áleiðis upp í
skarðið, og þaðan ruddi jarðýta á
undan trukknum að bifreið mann-
anna, sem var nærri komin á kaf
í snjó er björgunarsveitarmenn
komu að.