Morgunblaðið - 31.01.1993, Blaðsíða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 31. JANÚAR 1993
Giftió ykkur ... var heilræðið sem Poul Schliiter gaf eftirmanni sínum, forsætisráðherranum
Poul Nyrup Rasmussen, og sambýliskonu hans, Lone Dybkjær, sem er frammákona í Róttæka
GIFTINGAR
INNBYRDIS
í DÖNSKUM
STJÓRNMÁLUM
VEKJA ATHYGLI
vinstriflokknum.
Mogens Lykketoft fjármálaráðherra og Jytte Hild-
en menningarráðherra eru hjón. Hann var áður
kvæntur fyrstu konu Nyrups.
eftir Sigrúnu Davíðsdóttur í Kaupmannahöfn
ORÐIN „pólitík“ og „róman-
tík“ virðast við fyrstu sýn
ekki eiga margt sameigin-
legt. En ef hugað er að ásta-
og fjölskyldumálum dan-
skra ráðherra kemur annað
í ljós. Stjómmálamennimir
í nýju stjórainni era í áber-
andi mæli giftir stjórnmála-
mönnum, svo þar fara póli-
tík og rómantík greinilega
saman. Reyndar er pólitíkin
ekki í öllum tilfellum sú
sama hjá báðum, en áhuginn
er alla vega sá sami.
En hverjir eru þá giftir eða
búa með hverjum? Parið,
sem mesta athygli vekur
er óneitanlega forsætis-
ráðherrann, Poul Nyrup
Rasmussen, og sambýlis-
kona hans og fyrrverandi
umhverfisráðherra, Lone
Dybkjær, sem er frammá-
kona í Róttæka vinstriflokknum.
Dybkjær, sem er 52 ára, skildi 1980
eftir sextán ára hjónaband og á
tvær dætur af því hjónabandi. Hún
tók upp nafn mannsins síns og hef-
ur haldið því. Nyrup verður fimm-
tugur á árinu, er tvígiftur og á eina
dóttur bama frá fyrra hjónabandi.
Samband þeirra Nyrups og Dybkjær
hefur staðið í nokkur ár, en farið
leynt. Öllum á óvart birtust þau í
fyrsta skipti saman opinberlega í
ágúst á Pavarotti-tónleikum í Ros-
enborgargarðinum, sem nýlega
voru sýndir í íslenska sjónvarpinu.
Þegar samband þeirra var orðið lýð-
um ljóst skildu menn betur hvað
Niels Helveg Petersen fyrrum for-
maður Róttæka flokksins átti við
þegar hann sagði að með Nyrup sem
formann Jafnaðarmannaflokksins
myndi samband flokkanna tveggja
örugglega verða gott. Þau orð hafa
gengið eftir nú þegar flokkamir
tveir eru komnir í eina sæng, þó
með tveimur öðmm flokkum sé.
Nymp Rasmussen á marga góða
vini innan flokksins og einn þeirra
er Mogens Lykketoft fjármálaráð-
herra. Þeir hafa verið vinir lengi
og em báðir í vinahópi, sem á sum-
arhús í sameiningu. Eftir að Nymp
skildi við fyrstu konu sína giftist
Lykketoft henni, en þau em nú
skilin. Lykketoft, sem er á líku reki
og Nymp, giftist 1987 flokkssystur
sinni Jytte Hilden. Þau höfðu meðal
annars skrifað bók saman. Hilden
er nú menningarráðherra, svo hjón-
in em bæði ráðherrar í stjóm holl-
vinarins Nymps og em þar með
fyrstu ráðherrahjónin í danskri
sögu.
Áðumefndur Niels Helveg Pet-
ersen er rúmlega fímmtugur og
einnig giftur flokkssystur sinni. Þau
giftust 1984. Kona hans heitir
Kirsten Lee, er bamalæknir, sat 1
miðstjórn flokksins þegar þau gift-
ust og var á þingi 1987-1990, en á
þeim ámm var hann ráðherra í
stjórn Pouls Schluters. Hún var á
þeim tíma áberandi í dönskum
stjórnmálum og vakti athygli fyrir
skeleggar skoðanir í heilbrigðismál-
um. Hún hefur síðan dregið sig í
h!é og hefur sig lítt í frammi opin-
berlega. Helveg er reyndar sjálfur
afsprengi stjómmálahjónabands,
því foreldrar hans vom báðir þing-
menn.
Fyrir þá sem muna danska stjóm-
málamenn frá því fyrr á öldinni er
annað kunnuglegt nafn i stjórninni.
Varnarmálaráðherrann heitir Hans
Hækkemp, sonur Pers Hækkemps,
sem var ráðherra á sínum tíma og
bróðir Pers, Hans, var einnig þing-
maður og ráðherra. Hækkemp
yngri er jafnaðarmaður eins og fað-
irinn. Kona varnarmálaráðherrans
er þingmaðurinn Lis Hækkemp.
Sú útnefning sem kom einna
mest á óvart úr röðum jafnaðar-
manna var að embætti félagsmála-
ráðherra skyldi falla í skaut Karen
Jespersen. Illar tungur segja að
hingað til hafí hún aðeins beitt sér
fyrir einu máli á þingi, en það var
fmmvarp um bann við að skottstífa
hunda. Sumir segja að skýringar-
innar á tilnefningunni sé hugsan-
lega að leita í samstarfi og vináttu
manns hennar, Ralf Pittelkov, og
Nymps. Pittelkov hefur undanfarin
ár verið sérlegur ráðgjafí hans og
búist er við að hann verði aðstoðar-
maður forsætisráðherra. Pittelkov
var í þeim þrönga hópi, sem vék
vart frá flokksformanninum alla
stjómarmyndunarvikuna. Hjónin
vom áður í Venstre Sosialisteme,
fóm svo yfír í Sósíalíska þjóðar-
flokkinn, áður en þau gengu í Jafn-
aðarmannaflokkinn.
Pjölskyldumynstur og
sljórnmálahræringar
Kynslóðin á milli fímmtugs og
sextugs hefur gjörbylt dönsku þjóð-
félagi, meðal annars með tíðum
hjónaskilnuðum. Af hjónabands-
sögu sumra danskra stjómmála-
manna og væntanlega annarra hópa
má lesa að fyrsti makinn er skóla-
systkini eða vinur frá námsámnum.
Svo taka við annasöm störf, metn-
aðurinn er í hámarki og sólarhring-
urinn dugir varla til. Eitthvað verð-
ur undan að láta og það er þá gjarn-
an hjónabandið. Nymp er gott dæmi
um þetta.
Svo lifa þeir og hrærast í vinn-
unni, tíminn leyfir ekki annað fé-
lagslíf og það er þá í pólitíkinni, sem
þeir hitta einhvem, sem þeir bæði
hrífast af og sem deilir þá líka með
þeim áköfum pólitískum áhuga og
hefur skilning á að starfíð krefjist
mikils af þeim. En ef marka má
afdrif Kirsten Lee og Lone Dybkj-
ær, þá virðist mega ætla að það sé
frekar konan en karlinn sem dregur
úr stjórnmálaumsvifunum. Báðar
þessar konur hefðu vel getað orðið
ráðherrar, ekki síður en mennimir.
En hjá Jytte Hilden og Mogens
Lykketoft virðist hjónabandið og
stjómmálaframinn ganga upp hjá
báðum.
Vinátta Lykketofts og Nyrups og
konan sem fer frá einum til annars
er gott dæmi um hvemig fyrrver-
andi hjón og nýir makar hér halda
iðulega góðu sambandi. Hér er ekk-
ert óalgengt að fráskilin hjón haldi
áfram að hittast, haldi vináttunni,
þó hún hafí ekki dugað sem hjóna-
bandsgrundvöllur. Fráskilin hjón
velja oft að búa nálægt hvort öðru,
til að auðvelda börnunum að halda
sambandi við báða foreldra og
stundum búa bömin til skiptis hjá
foreldrunum viku í senn. Og vina-
hópurinn skiptist þá ekki á milli
makanna, heldur haldast báðir í
hópnum og þá með nýjum förunaut-