Morgunblaðið - 02.02.1993, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 02.02.1993, Blaðsíða 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA B 1993 ÞRIÐJUDAGUR 2. FEBRUAR BLAÐ adidas , Handknattleikslið IR leikur í Adidas KLETTAKLIFUR Bjöm hlaut siHurí Svíþjóð „Ekki óraunhæft að stefna á Vetrarólympíuleik- ana í Lillehammer," segir Björn Baldursson BJÖRM Baldursson og Árni Gunnar Reynisson úr Islenska Alpaklúbbnum stóðu sig vel á BJörn Baldursson hlaut silfurverð- laun á fyrsta klettaklifurmóti sínu á erlendri grund. Opna sænska meistaramótinu í klettaklifri sem fram fór í Östersund í Svíþjóð um síð- ustu helgi. Björn hafnaði í öðru sæti eftir spennandi keppni um gullverðlaunin og Árni Gunnar í 12. sæti af 50 keppendum. Þetta var í fyrsta sinn sem ís- lendingar keppa á erlendu móti i klettaklifri. „Þetta er sannkölluð óskabyrjun," sagði Magnús Tumi Guðmundsson, formaður íslenska Alpaklúbb- sins, um árangurinn. Björn sagði í samtali við Morgun- blaðið að hann hefði ekki búist við svona góðum árangri fyrirfram. „Ég vissi í rauninni ekkert hvar ég stóð. Þessi árangur er mikil hvatn- ing fyrir mig. Svíarnir voru mjög undrandi á frammistöðu minni og sögðu að ég ætti nú að snúa mér að þátttöku í heimsbikarmótum,“ sagði Björn, sem er 24 ára og hef- ur æft klettaklifur í sex ár. Keppt var á tilbúnum klifurvegg inni í íþróttahöll í bænum Öster- sund. Veggurinn var níu metra hár og slútti átta metra fram yfir sig. Keppnin fór þannig fram að allir þátttakendur reyndu við tiltekna leið á veggnum og réði þá hversu hátt menn komust. Að lokinni þess- ari þraut tóku tíu efstu menn þátt í úrslitakeppni og voru Bjöm Bald- ursson og Svíinn Tomas Hanson efstir og jafnir eftir hana. Reyndu þeir þá með sér í þriðju leiðinni og var hún erfíðust. Komst Hansen þá hálfum metra ofar en Björn og hlaut gullið. Björn sagðist nú stefna á þátt- töku í heimsbikarmóti sem fram fer í Lillehammer í Noregi 5. - 7. júlí í sumar en þar verður nýr klifur- veggur prófaður. „Þessi grein verð- ur sýningargrein á Vetrarólympíu- leikunum í Lillehammer 1994 og því ekki óraunhæft að stefna þang- að úr þessu. Hver veit!“ TENNIS / OPNA ÁSTRALSKA MEISTARAMOTIÐ Reuter Þriðji sigur Seles í röð Monica Seles, aðeins 19 ára, sýndi um helgina að staða hennar á toppnum í tennis kvenna er ekki tilviljun. Hún vann Steffí Graf í úrslitum, 2:1, á Opna ástralska meistaramótinu og var þetta þriðji sigur hennar á mótinu í röð. Banda- ríkjamaðurinn Jim Courier sigraði Stefan Edberg frá Svíþjóð í úrslitaleik, 3:1. Leikurinn tók tvær stundir og 32 mínútur og lauk með 3-1 sigri Couriers. Courier endurtók leikinn frá því í fyrra og rauk út að Yarraánni og kastaði sér útí hana. Sales og Courier fengu liðlega 17,1 milljón ísl. kr. í verðlaun. Sjá nánar B8 RUÐIMIIMGUR: DALLAS COWBOYS HAFDIMIKLA YFIRBURÐI / B7

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.