Morgunblaðið - 02.02.1993, Blaðsíða 4
4 B
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR ÞRIÐJUDAGUR 2. FEBRÚAR 1993
KÖRFUKNATTLEIKUR
Mjög mikilvæg stig
til Grindvíkinga
Pálmar Sigurðsson, þjálfari og
leikmaður Grindvíkinga,
hafði ástæðu til að brosa breitt
eftir leik Grindvíkinga og Hauka
þar sem heimamenn lögðu sigur-
■■■■■ sæla Hauka að
Frímann velli, 83:66. „Auð-
Ólafsson vitað get ég ekki
skrífar annað en verið
ánægður með leikinn, hver einasti
leikur er spuming um úrslita-
keppni, sérstaklega eftir þetta
hrikalega áfall gegn Snæfelli um
síðustu helgi, þá varð eitthvað að
gerast. Allt small saman hjá okkur
í kvöld og það er fyrst og fremst
vamarleikurinn sem við vinnum
þetta á. Þeir skomðu einungis 29
stig í fyrri hálfleik. Það var heila
málið. Okkar maður [Jonathan
Roberts] hélt [John] Rhodes vel
niðri í leiknum utan kafla í byijun
seinni hálfleiks. Þessi sigur þjapp-
ar liðinu saman því það er búið
að vera undir pressu að undan-
fömu,“ sagði hann eftir leikinn.
Það sást strax í byijun Íeiksins
að hvomgt liðið ætlaði sér að tapa.
Heimamenn börðust vel í vöminni
og tóku vel á Haukum án þess að
vera grófir. Haukar tóku einnig
vel á móti í vörninni en fengu
margar villur og heimamenn vom
komnir með skotrétt um miðjan
hálfleikinn. Grindvíkingar fóra
með 11 stiga forskot í leikhlé og
höfðu þá skorað 7 stig í röð.
Baráttan var ekki minni í seinni
hálfleik. Á fyrstu fjóram mínútun-
um vora Haukamir búnir að vinna
forskot heimamann upp og kom-
ust yfir, 44:43. John Rhodes og
Bragi Magnússon áttu góðan kafla
og skoruðu samtals 13 stig. Jonat-
han Roberts skoraði næstu 3 stig
með því að skora körfu og fá víta-
stig að auki. Pétur Ingvason jafn-
aði fyrir Hauka 46:46 en þarna
skildu leiðir með liðunum.
Guðmundur Bragason, sem átti
mjög góðan leik með Grindvíking-
um, skoraði þijár körfur í röð og
staðan breyttist í 54:46 og
skömmu seinna skoruðu Grindvík-
ingar 10 stig í röð og tryggðu sig-
urinn endanlega. Haukamir náðu
ekki að vinna upp forskotið en
freistuðu þess að bijóta á heima-
mönnum og fá boltann eftir skot
þar sem heimamenn höfðu fengið
skotrétt skömmu eftir miðjan hálf-
leikinn. Þetta gekk ekki eftir því
vítahittni Grindvíkinga var góð og
þeir skoraðu 24 stig úr vítaskotum
í seinni hálfleik. Haukamir misstu
hins vegar liðsmenn sína hvem
af öðram útaf með 5 villur. Það
vora því heimamenn sem höfðu
ástæðu til að fagna í leikslok.
Guðmundur átti mjög góðan
leik í liði heimamanna og Jonathan
Roberts var mjög góður í vörninni
og hélt vel aftur af John Rhodes.
Hjálmar átti einnig góðan leik,
nýtist vel í baráttuleikjum. Helgi
Jónas, Marel og Pálmar stóðu
einnig vel fyrir sínu og vamarleik-
ur liðsins var vel útfærður. Hauk-
arnir náðu sér ekki á strik í leikn-
um. Bragi Magnússon átti góðan
sprett í byijun seinni hálfleiks en
John Rhodes slapp aldrei úr
strangri gæslu utan kafla í seinni
hálfleik og aðrir náðu sér ekki á
strik. Jón Arnar Ingvason spilaði
lítið í leiknum vegna ökklameiðsla
og munaði um það.
Fimm sigrar í röd
SNÆFELL úr Stykkishólmi
hefur nú sigrað ífimm leikjum
í röð og alla á mjög tvísýnan
en þó glæsilegan hátt. Snæ-
fell sigraði Njarðvík 105:96
eftir framlengdan leik og er
nú með fjögurra stiga forystu
í B-riðlinum og stefnir hrað-
byri i úrlitakeppnina.
Það var fyrram Njarðvíkingur,
Kristinn Eianrsson, sem kom
Snæelfingum á bragðið með
IMaumtá
Nesinu
KR-ingar sigruðu
Breiðablik
BLIKAR náðu ekki að fylgja eft-
ir sigri gegn Njarðvíkingum er
þeir sóttu KR-inga heim á Sel-
tjarnarnesið á sunnudags-
kvöld. Leikurinn var jafn, en
KR-ingar sigruðu 97:90, sem
verða aðteljast sanngjörn úr-
slit.
Bandaríkjamaðurinn Joe Wright,
sem tók þama þátt í fjórða
leiknum með Breiðabliki, hefur vak-
ið mikla athygli og
Skapti gerði 45 stig þrátt
Hallgrímsson fyrir að vera með
skrífar „yfirfrakka“ á sér
allan tímann. Geysi-
lega snjall leikmaður-þar á ferð, en
Keith Nelson, Bandaríkjamaðurinn
hjá KR, var þó besti maður vallar-
ins. Skoraði 37 stig — mörg með
tilþrifum — og tók 25 fráköst.
Blikar höfðu frumkvæðið nánast
allan fyrri hálfleikinn, en heima-
menn höfðu tveggja stiga forskot
í hálfleik. Bamingurinn hélt áfram
eftir hlé, munurinn aldrei mikill og
varð raunar mestur tíu stig skömmu
fyrir leiksiok, og þá var sigur KR
loks í öruggri í höfn.
Morgunblaðið/Bjami
ívar Ásgrímsson er með lið sitt á
toppnum.
Sanngjam sigur Skall
Liðsmenn Skallagríms höfðu undir-
tökin allan leikinn gegn liði
Tindastóls er liðin mættust í Iþrótta-
húsinu í Borgarnsi sl.
Theodór Kr. sunnudag. Munurinn
Þórðarson var þó ekki mikill í
skrífar stigum talið því aðeins
5 stig skildu leiðin að í hálfleik 40:35
og eftir mikla baráttu á lokaminútun-
um sigraðu heimamenn 72:66.
Láðsmenn Skallagríms byijuðu
þennan leik af miklum krafti og ör-
yggi. Þeir tryggðu sér fljótlega 10
stiga forskot og héldu því lengst af
fyrri hálfleiks. Undir lok fyrrihálfleiks
náðu “stólarnir" að saxa á forskot
heimamanna og skildu liðin 40:35 í
hálfleik. Munaði þar mestu um stór-
góðan leik Páls Kolbeinssonar hjá
Tindasól.
Síðari hálfleikur var meira í járnum
en sá fyrri. A fyrstu mínútunum náðu
liðsmenn Tindastóls að jafna 40:40
og síðan að komast 1 stigi yfir í eina
skiptið í leiknum því lengra komust
þeir ekki. Heimamenn sóttu í sig veðr-
ið og náðu að endurheimta forystuna
og halda henni til leiksloka þó munur-
inn hafi ekki alltaf verið mikill. “Stól-
arnir“ náðu að jafna leikinn 63:63 er
5 mínútur voru eftir af leiktímanum
en með harðfylgi tókst heimamönnum
að tryggja sér sigur 72:66.
„Ég er mjög ánægður með þenna
leik, við vorum betri aðilinn allan leik-
inn,“ sagði Birgir Mikaelsson þjálfari
og leikmaður Skallagríms eftir leik-
skoti þegar 7 mín. vora búnar.
Þá hrukku leikmenbn Snæfells í
gang og náðu að saxa á forsktið
og fóru Bárður og Jameson á kost-
um.
Brotið var á Bárði og fengu
Njarvikingar dæmda á sig ásetn-
ingvillu. Bárður var öryggið upp-
málað á vítalínunni, skoraði úr
báðum og staðan allt í einu orðin
77:73. Njarðvík komst fljótlega í
87:83 en Kristinn var sínum fyrri
félögum erfiður og jafnaði þegar
ein og hálf mínúta var eftir en
hvoragu liðinu tókst að bæta við
og því framlengt.
Snæfell náði góðum leikkafla
og börðust mjög vel, jafnt í vöm
sem sókn. Kristinn tryggði Snæ-
fellingum sigurinn þegar hann
fékk tvö vítaskot undir lokin. Skor-
aði úr báðum og staðan 102:96.
Snæfellingar voru ekki hættir og
Jemeson tróð með miklum tilþrif-
um á lokasekúdnunni við gífurleg-
an fögnuð áhorfenda.
Bestur hjá Snæfell var Jameson
og þeir Bárður og Kristinn gerðu
góða hluti á réttum tíma og ívar
var grimmur í vörninni. Hjá Njarð-
vík var Robinson langbestur, Teit-
ur og Ástþór áttu góða spretti en
Teitur var þó fullákafur í fram-
lengingunni.
Bgpg tveimur þriggja
María st‘ga körfum og
Guðnadóttir hafði Snæfell for-
skrífar ystu lengst af fyrri
hálfleik, 2-9 stig.
Njarðvíkingar börðust og minnk-
uðu muninn undir lok fyrri hálf-
leiks en Jameson sá til þess að
heimamenn hefðu forystu í leik-
hléi.
Njarðvík byijaði síðari hálfleik-
inn með látum og hreinlega keyrði
yfir Snæfell og náði 13 stiga for-
Ættl ég að reyna? Albert Óskarsson athugar hvort leiðain að kðrfu Valsmanna sé :
ÍBKábeinubv
Keflvíkingar tóku upp þráðinn á
nýjan leik eftir tapið gegn
Haukum á dögunum. Að þessu sinni
heimsóttu þeir Valsmenn og sigruðu
77:91 í slökum leik. Fyrri hálfleikur-
inn var hræðilega slakur. Reyndar
léku bæði lið þokkalega vörn, en ekki
eins góða og staðan i leikhléi gefur
til kynna, en þá var staðan 34:35. í
seinni hálfleik tóku stuðningsmenn
ÍBK til sinna ráða og hvöttu leikmenn
ákaft til dáða. Við það vöknuðu leik-
menn til lífsins og síðari hálfleikur
var mun skárri.
Það vora miklar sveiflur í síðari
hálfleinum. ÍBK var 41:55 yfir en
Valur gerði 15 stig og komst í 56:55.
Síðar hafði ÍBK 67:68 yfir en þá
gerðu þeir 11 stig í röð og sigur þeirra
var nokkuð öruggur eftir það.
Hjá Val var liðsheildin þokkaleg
og Jóhannes öruggur í vítaskotunum.
Brynjar var einnig sterkur í vörninni
en Magnús var ekki búinn að ná sér