Morgunblaðið - 02.02.1993, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ
ÍÞRÓTTIR
ÞRIÐJUDAGUR 2. FEBRUAR 1993
B 3
KNATTSPYRNA / ENGLAND
Norwich gefur ekkert eftir
IPSWICH stöðvaði sigurgöngu Manchester United og Aston Villa
mátti enn einu sinni þola tap í Southampton, en Norwich gerði
góða ferð til Liverpool, sigraði Everton og skaust ítoppsætið í
ensku úrvalsdeildinni á ný eftir leiki heigarinnar.
^ryan Gunn, markvörður
Frá Bob
Hennessy
i Englandi
Norwich, var hetja gestanna
á Goodison Park og sagði ekki rétt
að aðeins tvö lið,
Manchester United
og Aston Villa, væru
að beijast um meist-
aratitilinn. „Fólk
getur afskrifað okkur, en við höfum
gaman af því sem við erum að gera
og verðum bara að halda áfram á
sömu braut.“ Howard Kendall,
stjóri Everton, tók í sama streng.
„Þetta er langt því frá að vera
tveggja liða keppni. Öll meistaralið
verða að vera með frábæran mark-
vörð og vissulega er Norwich með
einn slíkan — það sást gegn okkur.“
Chris Sutton skoraði fyrir
Norwich snemma í leiknum, en
Gunn bjargaði hvað eftir annað
meistaralega, einkum frá Tony
Cottee og sérstaklega á lokasek-
úndunum. „Ég kastaði mér til hægri
og tókst að koma fingrunum á bolt-
ann,“ sagði Gunn um síðustu björg-
Milan i
íerfið-
leikum
AC Milan tapaði sfnu fyrsta
stigi á útivelli á tímabilinu þeg-
ar liðið heimsótti Foggia og
gerði 2:2 jafntefli. Lazio sigr-
aði Sampdoria og skaust i
þriðja sæti deildarinnar.
Leikmenn Foggia tókst hér um
bil það sem engum öðrum
hefur tekist í vetur, að sigra AC
Milan, en það tókst ekki alveg.
Foggia var þó 1:0
yfir í1 leikhléi og
snemma í síðari
hálfleik fékk liðið
vítaspyrnu en Rossi
varði frá Di Baagio. Papin jafnaði
með leglegum skalla eftir fyrirgjöf
Gullit og skömmu síðar kom Rijka-
ard gestunum yfir með glæsilegu
marki. Þrumuskoti frá vítateig.
Seno jafnaði fyrir heimamenn und-
ir lokin.
„Mér hefði ekki litist á blikuna
ef Foggia hefði skorað úr víta-
spyrnunni. Liðið kom mér ekki á
óvart, það kann að halda knettin-
um á jörðinni og spilaði vel,“ sagði
Fabio Capello þjálfari Milan. Leik-
menn Milan voru óhressir með að
í leikhléi var völlurinn bleyttur,
eingöngu til að gera Milan erfiðara
fyrir, töldu þeir.
Rubin Sosa byijar nýtt ár vel
því hann hefur skorað í öllum leikj-
um Inter í deildinni á þessu ári.
Hann kom liði sínu í 2:0 með marki
úr vítaspymu á sunnudaginn en
það dugði ekki því leikmenn Udi-
nese jöfnuðu í síðari hálfleik. „Við
hættum í síðari hálfleik,“ sagði
Berti hjá Inter eftir leikinn.
Lazio skaust í þriðja sætið með
2:1 sigri á Sampdoria. Gascoigne
byijaði vel en lenti í einhveijum
útistöðum við dómarann og eftir
nokkurt þras gaf Bettin dómari
honum tyggjó, eflaust til að þagga
niður í honum. „Það var rétt að
taka mig útaf,“ sagði kappinn.
Birgir
Breiðdal
skrifar frá
Ítalíu
unina. „Boltinn skrúfaðist á stöng-
ina og sem betur fer í fangið á
mér.“ „Hann var frábær — hann
bjargaði öllu frá mér hvernig sem
ég skaut,“ sagði Cottee, sem fékk
fimm gullin marktækifæri.
Mike Walker, stjóri Norwich, var
ánægður með gang mála. „Ef fólk
vill halda að tvö lið beijist um titil-
inn þá má það halda það. í síðustu
viku féllum við út úr bikarkeppn-
inni og vorum þar með afskrifaðir.
Síðan kom sigur í miðri viku og nú
erum við í efsta sæti. Hvað segir
liðið við því?“
Ekki maí ennþá
Peter Schmeichel, besti mark-
vörður Evrópu að margra mati,
ætlaði að hreinsa en hitti ekki bolt-
ann og Chris Kiwomya átti ekki í
erfiðleikum með að skora fyrir
Ipswich. Eftir það átti Manchester
United í erfiðleikum og tapaði 2:1,
en Alex Ferguson, stjóri United,
vildi ekki kenna danska markverð-
inum um hvernig fór. „Það er ekk-
ert grín að leika gegn þessu liði,“
sagði Ferguson. „Leikmennirnir eru
seigir og í góðri æfingu og
Kiwomya heldur varnarmönnum við
efnið allan tímann. Þetta er erfið-
asta liðið, sem við höfum leikið
gegn í deildinni og úrslitin ættu að
slá á tal um að titillinn sé þegar
okkar. Það er ekki maí ennþá.“
Kanadadíski landsliðsmaðurinn
Frank Yallop gerði annað mark
Ipswich með þrumuskoti, þegar
tvær mínútur voru liðnar af seinni
hálfleik, en Brian McClair minnkaði
muninn undir lokinn. Ipswich hefur
aðeins tapað einum leik heima á
tímabilinu, en United hafði sigrað
í síðustu sex leikjum og leikið 12
leiki í röð án taps.
Nottingham Forest vann Oldham
2:0 og fór úr neðsta sætinu í fyrsta
sinn í 23 vikur — markatalan er
betri en hjá Oldham.
Blackburn komst í 2:0 á fyrsta
stundarfjórðungnum gegn Manc-
hester City, en heimamenn létu
mótlætið ekki á sig fá og sigruðu
3:2.
Norski miðheijinn Frank Strandli
byijaði vel með Leeds, kom inná
sem varamaður og skoraði 11 mín-
útum síðar. Tvö mörk fylgdu í kjöl-
farið og Leeds fagnaði 3:0 sigri
gegn Middlesbrough.
Crystal Palace átti aldrei mögu-
leika gegn Tottenham, sem vann
3:1. Steve Coppell, stjóri heima-
manna, bað stuðningsmennina af-
sökunar á frammistöðunni. „Þetta
kemur ekki fyrir aftur. Ég ber
ábyrgðina, því ég keypti mennina,
hafði trú á þeim og setti þá í liðið.
En þetta var hörmung."
Mikilvægur sigur Liverpool
John Barnes tryggði Liverpool
1:0 sigur gegn Arsenal, þegar hann
skoraði úr vítaspyrnu um miðjan
seinni hálfleik. Paul Merson fékk
tækifæri til að jafna þremur mínút-
um síðar, en David James varði
vítaspyrnu hans.
Nigel Winterburn fékk að líta
rauða spjaldið undir lokin fyrir gróf-
an leik og lék Arsenal því með 10
menn síðustu þijár mínúturnar.
Þetta var fyrsti sigur Liverpool í
síðustu átta leikjum. Liðið er eiris
og Arsenal um miðja deild, en að-
eins átta stigum fyrir ofan Oldham,
sem vermir nú botnsætið.
P Úrslit / B6
■ Staðan / B6
Emllio Butragueno, sóknarleikmaður Real Madrid (t.v.), í baráttu við Jose María Bakero, leikmenn Barcelona.
Atta bókaðir
íMadrid
ÞAÐ gekk mikið á þegar Real Madrid sigraði Barcelona 2:1 fyrir
framan 96.000 áhorfendur á laugardaginn. Átta leikmenn voru
bókaðir í þessum slag stórveldanna í spænskri knattspyrnu.
ÍMémR
FOLK
■ ARSENAL keypti í gær varn-
armanninn Martin Keown frá
Everton fyrir 2 milljónir punda.
Keown er 26 ára, og er að komá
til Arsenal í annað
sinn. Félagið seldi
hann til Aston Villá
1986 fyrir 200 þús^-
und pund, og þaðai
fór hann til Everton.
Frá Bob
Hennessy
í Englandi
■ DMITRI Kharin lék fyrst;
leikinn sinn með Chelsea um hel,
ina, en Rússinn, sem lék áður mei
ZSKA Moskva og sovéska landsliðj
inu, meiddist og kom ekki inn;
eftir hlé. Jerry Peyton, sem vaf
keyptur s.l. mánudag, fór í markið.
■ KHARIN á heimili í Þýska-
landi og flaug þangað á þriðjudag,
en tvívegis var brotist inn til hans
og eignum, sem metnar eru á um
tvær milljónir kr. stolið.
■ CHRIS Waddle var maður
leiksins og tryggði öðrum fremur
2:0 sigur Sheffield Wednesday.
Hann var spurður hvort hann gæfi
kost á sér í enska landsliðið og
ekki stóð á svarinu. „Já, ef ég verð
valinn.“
I FRANK Yallop hefur verið í
fjögur ár hjá Ipswich, en kana-
díski landsliðsmaðurinn náði ekki
að skora fyrr en í síðustu viku.
Fyrst með þrumuskoti gegn Spurs
á miðvikudag og svo endurtók hann
leikinn gegn Manchester United.
■ LEIKMENN Ipswich voru
keyptir á samtals 100 millj. kr., en
samsvarándi tala fyrir Manchester
United er 1,3 inilljarður.
H ROY Keane verður áfram hjá
Nottingham Forest. Fyrir leik
liðsins gegn Oldham var tilkynnt
að hann ætlaði að gera fjögurra
ára samning.
■ SOUTHAMPTON hefur ekki
gengið vel og stuðningsmenn liðs-
ins hafa gjarnan sungið „Branfoot
í burtu, Branfoot í burtu...“, ep
stjórinn tók gleði sína á ný eftir
sigurinn gegn Aston Villa. „Þettá
var eins og í gamla daga. Nú sungu
menn „When the saints go
marching in...“
■ MEISTARAR MarseiIIe sýndu
gamla takta á laugardaginn, þegar
þeir unnu Auxerre 2:0 í frönsku
1. deildinni í knattspyrnu. Þetta var
fyrsti ósigur Auxerre á heimavelli
síðan í janúar 1991, en Marseille
eygir enn vonina um fimmta meist-
aratitilinn í röð.
rkörf
m D/ÍU3
rkur.l**"
eð sigrinum færist Real upp
fyrir Barcelona í stigatöfl-
unni, er nú komið í annað sætið en
Coruna heldur forystunnu og munar
aðeins tveimur stigum því Coruna
varð að sætta sig við markalaust
jafntefli gegn Celta í slökum leik
þar sem bæði lið lögðu mest uppúr
varnarleiknum.
Það voru Ivan Zamorano og Mic-
hel Gonzalez sem gerðu mörk Re-
al. Það má segja að Zamorano hafi
haldið uppteknum hætti frá síðustu
helgi, en þá gerði hann öll þiju
mörk Real gegn Tenerife. Núna
skoraði hann strax á 10. mínútu
og kom Real yfir.
Sjö mínútum síðar jafnaði Guill-
ermo Amor eftir góða sendingu frá
Michael Laudrup. Stuttu fyrir hlé
var Gonzales felldur í teignum eftir
þríhyrningaspil við Butragueno, og
hann skoraði sjálfur úr vítaspyrn-
unni.
Þrír leikmenn Real voru bókaðir
og fimm hjá Barcelona. Remando
Hierro hjá Real fékk fimmta gula
spjaldið í vetur og verður því ekki
með um næstu helgi þegar Real
mætir Real Burgos.
Maradona tryggði Sevillu 2:1 sig-
ur á Albacete á elleftu stundu. Di-
ego Simeone var rekinn af velli á
77. mínútu en þrátt fyrir að vera
einum færri tókst Sevillu að sigra.
Maradona skoraði beint úr auka-
spyrnu á 83. mínútu.
-T,„ki l>""
Leitaðu upplýsinga hjá íþróttafélaginu þínu. Vmsóknir liggja þar frammi og i næsta banka. sparísjóði
ogafgmiðslu Kmditkorts hf., Ármúla 28.
KREDITKORT HF., ARMULA 28, 108 REYKjAVIK, SIMt 91 - 685T99.