Morgunblaðið - 22.06.1993, Side 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA
fHtfgtmiribiMfr
B
1993
ÞRIÐJUDAGUR 22. JÚNÍ
BLAD
adidas
Kaupf. A-Skaftfellinga
Höfn
selur Adidas
SUND
Morgunblaðið/Kristinn
Amar Freyr kominn heim
Arnar Freyr Ólafsson sundmað-
ur kom óvænt til landsins frá
Bandaríkjunum fyrir helgina og
hefur ákveðið að æfa hér á landi
fyrir Evrópumeistaramótið í ágúst.
Eins og við greindum frá í síðustu
viku hefur hann legið meira og
minna rúmfastur eftir að hann
veiktist á Smáþjóðaleikúnum á
Möltu, en er nú óðum að ná sér.
Arnar sagði að hinn bandaríski
þjálfari hans hefði verið fenginn til
að þjálfa bandaríska landsliðið, og
þar sem hann hefði auk þess lent
í vandræðum með húsnæði hefði
hann ákveðið að koma heim. „Þar
sem ég er að ná mér form eftir
þessi veikindi þá hugsaði ég með
mér að ég gæti alveg eins gert það
hér heima eins og þarna. Það er
alveg ljóst að það gerast engin
kraftaverk á þessum eina og hálfa
mánuði sem er í Evrópumeistara-
mótið. Ég geri kannski ekki meira
en að komast í form og jafna mína
tíma,“ sagði Arnar.
Arnar sagðist myndi æfa með
sundfélaginu Ægi í sumar ef stjóm
félagsins samþykkti það. „Það á
eftir að taka það fyrir en ég vona
það besta.“
FRJALSAR / KRINGLUKAST
Besti árangur Vésteins
Ragnheiður
hættir hjá ÍA
Ragnheiður Runólfsdóttir
hefur ákveðið að láta að
störfum sem þjálfari ÍA. Ragn-
heiður, sem hefur ekki getað
keppt að undanfömu, ætlar að
breyta til og hefur hug á að
þjálfa og keppa áfram.
Vésteinn Hafsteinsson HSK, náði
sínum besta árangri á þessu
ári þegar hann kastaði kringlunni
62,50 metra á alþjóðlegu kringlu-
kastsmóti sem halidð var í Helsing-
borg í Svíþjóð á laugardaginn. Vé-
steinn varð í öðru sæti á mótinu
en Nick Sweenwey frá írlandi sigr-
aði með 63,26 metrum og setti um
leið írskt met.
Véstein vantar nú aðeins 50
sentimetra upp á að ná A-Iágmarki
fyrir Heimsmeistaramótið sem fram
fer í Stuttgart í Þýskalandi í ágúst
nk.
Bryndís og
Amar Freyr
áEMí
Sheffield
Bryndís Ólafsdóttir, sem
hefur náð lágmörkum
fyrir Evrópumeistaramótið í
Sheffield, eins og bróðir henn-
ar Arnar Freyr, setti mótsmet
í Sundlauginni í Laugardal -
í 100 m skriðsundi á einni
mínútu 0,48 sekúndum. Bryn-
dís (mynd) var ánægð með
árangurinn, sagði að tíminn
sem hún hefði náð væri góður
miðað við aðstæður.
■ Umsögn / B3
■ Úrslit / B6
GOLF: LEE JANZEN ÁTTA HÖGGUM UNDIR PARI í SPRINGFIELD / B7