Morgunblaðið - 22.06.1993, Page 5
4 B
MORGUNBLAÐIÐ
ÍÞRÓTTIR
ÞRIÐJUDAGUR 22. JUNI 1993
+,
MORGUNBLAÐIÐ
ÍÞRÓTTIR
ÞRIÐJUDAGUR 22. JUNI 1993
B 5
KNATTSPYRNA
Óásætlanlegt
en sanngjamt
ÞJALFARAR KR og ÍBV voru
báðir mjög óhressir með úrslit-
in í leik liðanna í 1. deiid á
sunnudaginn. Leikurinn endaði
með jafntefli, 2:2, og þrátt fyrir
að hvorugur þjálfaranna væri
sáttur verður að telja þau úr-
slit sanngjörn.
Eg er alls ekki sáttur, úrslitin eru
mikil vonbrigði," sagði Ivan
Sochor þjálfari KR eftir leikinn.
,Vörnin var alltof
Stefán opin, Óskar [Hrafn
Eiríksson Þorvaldsson] er enn
meiddur og við höf-
um enn ekki getað
leyst úr því.“ Jóhannes Atlason
sagðist heldur ekki vera ánægður:
„Nei, ég er ekki ánægður með úr-
skrifar
slitin, ekki miðað við þau færi sem
við fengum í fyrri hálfleik, sem var
sannkallað tækifærasælgæti fyrir
okkur.“
KR-ingar byijuðu betur en Eyja-
menn náðu fljótlega tökum á leikn-
um, og í fjórgang á tuttugu mín-
útna kafla náðu þeir að splundra
flatri vöm KR-inga og gera tvö
mörk. Rúnar minnkaði muninn og
var staðan í hálfleik 1:2.
KR-ingar sóttu stíft í síðari hálf-
leik og voru heldur beittari en í
þeim fyrri. Rúnar jafnaði um miðjan
hálfleikinn og á 81. mínútu fengu
KR-ingar vítaspyrnu, en Izudin
Daði Dervic skaut langt yfir úr
henni. Eyjamenn fengu álíka gott
færi til að gera út um leikinn á 87.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Gfsll Guömundsson kom mikið við sögu í leik Þórs og Fylkis á sunnudag-
inn. Hér vísar hann Asmundi Amarssyni ieikmanni Þórs útaf.
Dauftnyrðra
ÞÓRSARAR nældu í þrjú dýr-
mæt stig er þeir lögðu Fylki
að velli 1:0 á Akureyri á sunnu-
daginn. Það má segja að Fylkis-
menn hafi haft tak á Þór fyrir
leikinn því í síðustu fjórum inn-
byrðis leikjum liðanna hafði
Fylkir sigur og markatalan var
11:4. Þór hafði því harma að
hefna að þessu sinni og það
tókst.
Leikurinn byijaði af krafti og
strax á annari mínútu átti
Salih Heimir Porca skot sem small
í þverslá Þórsmarks-
Reynir ins. Við þetta var
Eyriksson sem allur vindur
skrifar væri báðum liðum
og gerðist lítt mark-
vert þar til á 42. mínútu að Þórsar-
ar skoruðu sigurmarkið og var þar
á ferðinni Páll Gíslason.
í rauninni var þetta eina umtals-
verða marktækifærið sem heimá-
menn fengu en gestirnir áttu tvö
færi á 63. mínútu. Fyrst komst
Ásgeir Ásgeirsson í gegnum vörn
Þórs en Lárus Sigurðsson varði í
hom. Uppúr því upphófst mikill
darraðadans í markteig Þórs sem
endaði með því að Þórsarar náðu
að hreinsa frá marki eftir að hafa
bjargað tvisvar á marklínu.
Fylkismenn voru meira með
knöttinn og voru sprækari en Þórs-
arar náðu að nýta sér það færi sem
gafst í leiknum og það gerði gæfu-
muninn. „Ég er ánægður með stig-
in, það eru þau sem telja. Það er
þó ljóst að við verðum að gera miklu
betur en þetta og næsta skref er
að koma af krafti í næsta leik,“
sagði Júlíus Tryggvason leikmaður
Þórs eftir leikinn.
mínútu, er KR-ingar björguðu í
tvígang á línu frá Steingrími Jó-
hannessyni.
KR-vörnin var mjög opin og
Eyjamenn áttu auðvelt með að
splundra henni með hnitmiðuðum
sendingum. Miðjan var þung lengi
vel, Rúnar var rólegur til að byija
með, en þegar hann fór í gang sýndi
hann frábæra takta. Einar Þór
Daníelsson lék mjög vel og barðist
af miklum krafti. Eyjamenn léku
ágætlega í fyrri hálfleik, en voru
lítt sóknadjarfir í síðari hálfleik.
Tryggvi Guðmundsson byrjaði frá-
bærlega hjá Eyjamönnum en dalaði
er á leið, og Bjarni Sveinbjörnsson
lék vel. Friðrik Friðriksson var
langbestur Eyjamanna, varði oft á
tíðum stórkostlega.
Oa 4 Eyjamenn
■ | skyndisókn á 20.
náðu
skyndisókn
mínútu. Bjami Sveinbjörnsson
stakk boltanum innfyrir vörn
KR á Tryggva Guðmundsson
sem lék upp vinstri kantinn, á
Þormóð Egilsson og inn í teig
og skaut hnitmiðuðu skoti í
markið framhjá Ólafi Gott-
skálkssyni.
OB Anton Bjöm Markús-
■ ■Lison gaf knöttinn á
Bjarna Sveinbjörnsson á 28.
mínútu, sem stakk sér innfyrir
vöm KR-inga og óð alla leið inn
í teig, þar sem Ólafur Gott-
skálksson felldi hann um koll
Og dæmdi dómarinn vítaspyrnu.
Úr henni skoraði Bjami með
heidur einkennilegu skoti sem
hafnaði í netinu rétt fyrir innan
vinstri stöngina.
35. mínútu lék
■ Umm Kúnar Kristinsson
upp allan vallarhelming Eyja-
manna og við vítateigsbogann
skaut hann föstu skoti með
vinstri fæti og söng knötturinn
í netinu rétt fyrir innan vinstri
stöngina.
2.01
■
Einar Þór Daníelsson
igeystist upp vinstri
kantinn á 74. mínútu, gaf fyrir
markið, þar var staddur Ómar
Bendtsen sem gaf knöttinn út
úr teignum á Rúnar Kristms-
son sem þrumaði knettinum, að
þessu sinni með hægri fæti, í
netið, rétt fyrir innan vinstri
stöngina.
1 "Cli
I IVI
0Það var á 42. mínútu
leiksins að Lárus Orri
Sigurðsson fékk sendingu upp
hægri kantinn. Hann lék upp
undir endamörk og sendi knött-
inn fyrir markið. Sendingin fór
beint á kollinn á Páli Gíslasyni
sem var einn og óvaldaður á
markteig og skallaði hann af
öryggi i netið.
Guðmundur Hreiðarsson markvörður Víkings var besti maður liðsins þrátt fyrir að þurfa tíu sinum að ná í knöttinn í netið.
Morgunblaðið/Ástvaldur
Flugeldasýning IA
SKAGAMENN voru með sann-
kallaða flugeldasýningu þegar
þeir mættu Vikingum á Skagan-
um á sunnudagskvöldið og sigr-
uðu 10:1. Skagamenn höfðu fá-
dæma yfirburði í leiknum, auk
þess að skora tíu mörk í leiknum
varði Guðmundur Hreiðarsson
oft meistaralega skot þeirra og
tvívegis björguðu markstangirnar
Víkingum.
Fyrstu mínútur leiksins gáfu ekki
fyrirheit um það sem koma
skyldi, því strax á annarri mínútu kom
Kristján Finnbogason í veg fyrir að
Guðmundur Steinsson skoraði sitt
100. mark í 1. deild
með frábærri mar-
kvörslu. Fyrir utan
mark Víkinga var þetta
þeirra eina færi í öllum
leiknum. Eftir þetta tóku Skagamenn
öll völd, Bibercic fékk tvö dauðafæri
Sigþór
Eiríksson
skrifar
áður en Alexander náði forystunni á
11. mínútu. Skömmu eftir að Skaga-
menn skoruðu fyrsta mark sitt átti
Bibercic skot í neðanverða þverslána.
Eftir að Skagamenn skoruðu fjórða
mark sitt í byijun síðari hálfleiks gátu
þeir gert allt að vild, mótspyrnan var
nánast engin og leikurinn þróaðist út
i létta æfingu fyrir íslandsmeistarana.
Fyrir utan það að skora sjö mörk í
hálfleiknum fengu þeir urmul mark-
tækifæri. Þótt mótspyrnan hefði verið
lítil hjá afspyrnulélegum Víkingum,
þá léku Skagamenn sannkallaða
meistaraknattspyrnu.
Það var ungur nýliði, Sturlaugur
Haraldsson sem átti hreint frábæran
leik og átti þátt í fimm mörkum
Skagamanna. Þá áttu Alexander
Högnason og Sigurður Jónsson frá-
bæran leik á miðjunni. Um lið Víkings
er óþarfi að fjölyrða, tölurnar tala sínu
máli.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Skammarkrókurinn. Þórhallur Dan Jóhannsson og Ásmundur Arnarsson fylgjast með úr glugga búningsherbergisins.
2:1
1.nSnögg sókn Skagamanna á 11. mínútu endaði
■ \#með skoti Þórðar Guðjónssonar í innanverða
stöngina, þaðan hrökk boltinn fyrir fætur Alexanders
Högnasonar, sem skoraði.
2.^\Sturlaugur Haraldsson átti fallega sendingu inn
■ \#á Alexander Högnason á 33. mínútu. Hann lék
alveg upp að endamörkum og skoraði með föstu skoti í fjær-
homið, undir Guðmund markvörð.
Á 43. mínútu átti Róbert Amþórsson fast skot
fyrir utan vítateig og hafnaði knötturinn í marki
ÍA út við stöng vinstra megin.
3b 4 Mínútu síðar renndi Ólafur Þórðarson sér af miklu
■ I harðfylgi inn í vítateig, og knettinum á Mihsy'Io
Bibercic sem skoraði með föstu skoti upp í þaknetið.
4B d| Á 46. mínútu gaf Sturlaugnr Haraldsson fyrir
m I markið, inn á markteigshornið og þar kom Þórð-
ur Guðjónsson á fullri ferð og sneiddi knöttinn framhjá
Guðmundi í fjærstöng og inn.
5a 4 Sturlaugur Haraldsson fékk laglega sendingu frá
■ I Ólafí Þórðarsyni fram kantinn á 63. mínútu, sendi
hnitmiðaða sendingu fyrir markið, þar kom Haraldur Ing-
ólfsson sem skoraði með þrumuskoti úr miðjum vítateignum.
6b 4 Enn var Sturlaugur á ferðinni á 66. mínútu, óð
■ I upp kantinn og sendi fallegan bolta fyrir markið
þar sem Þórður Guðjónsson skallaði knöttinn í bláhomið.
7« H| Á 75. mínútu komst Haraldur Ingólfsson einn
■ I innfyrir vöra Víkinga og skoraði af öryggi fram-
hjá Guðmundi Hreiðarssyni sem freistaði þess að bjarga
með úthlaupi.
8B 4 Alexander Högnason tók mikla rispu inn í víta-
■ I teig Víkinga á 82. mínútu, renndi sér framhjá
nokkrum varnarmönnum Víkings og vippaði svo knettinum
til Haraldar Hinrikssonar sem var nýkominn inn á sem
varamaður, sem gat ekki annað en skorað fyrir opnu marki.
9b 4 Á 87. mínútu endurtóku þeir félagar leikinn. Alex-
■ I ander vann boltann inn í vítateignum og sendi á
Harald sem skoraði af öryggi.
ISkagamenn biðu með fallegasta markið þar
til á síðustu mínútu leiksins. Þá óð Sigur-
steinn Gíslason upp vinstri kantinn, sendi boltann fyrir og
Alexander Högnason kom á fullri ferð og þrumaði knett-
inum viðstöðulaust upp í þaknetið.
10;
Erfid fæðing hjá KR
KR-stúlkur hefndu ófaranna
gegn Val í bikarleiknum á dög-
unum, þegar þær heimsóttu
Valsstúlkur að Hlíðarenda á
laugardaginn. KR-stúlkur sigr-
uðu 1:2, og gerði Helena Ólafs-
dóttir sigurmark þeirra
skömmu fyrir leikslok.
Leikurinn fór ákaflega rólega af
stað og var jafnræði með liðun-
um. Á 29. mínútu kom fyrsta mark-
ið; - Hrafnhildur
Stefán Gunnlaugsdóttir gaf
Eiríksson fyrir mark Vals á
skrifar Ásthildi Helgadótt-
ur sem skaut af
markteig, Birna Bjömsdóttir í
marki Vals hálfvarði en boltinn lak
yfir línuna; 0:1 fyrir KR.
Síðari hálfleikur var líkt og sá
fyrri rólegur til að byija með, en
fjör átti eftir að færast í hann.
KR-stúlkur fengu þijú ágæt færi
um miðjan hálfleikinn sem þær
náðu ekki að nýta. Valsstúlkurtóku
þá kipp og á 69. mínútu jafnaði
Stella Hjaltadóttir með frábæru
skoti frá vítateig. Það var síðan
Helena Ólafsdóttir sem tryggði KR
sigurinn á 77. mínútu, eftir lagleg-
an undirbúning Guðrúnar Jónu
Kristjánsdóttur.
„Það var hræðilegt að fá á sig
jöfnunarmarkið, en liðið sýndi mik-
inn karakter með því að komast
aftur inn í leikinn. Góður karakter
er líklega helsti kostur þessa liðs,“
sagði Helena Ólafsdóttir eftir leik-
inn. Hún átti góðan leik sem og
Ásdís Þorgilsdóttir og Ásthildur
Helgadóttir. Guðrún Jóna Krist-
jánsdóttir hefur átt við meiðsli að
stríða og var þess vegna ekki í
byijunarliðinu. Hún var engu að
síður á varamannabekknum og kom
inn á í síðari hálfleik, og var KR-
stúlkum mikilvæg á síðustu mínút-
unum.
Erla Sigurbjartsdóttir barðist vel
í liði Vals og Guðrún Sæmundsdótt-
ir lék vel. Leikurinn var jafn og
hefði jafntefli því verið sanngjörn
úrslit.
Meistarajafntefli
Bikarmeistarar Skagamanna og
íslandsmeistarar Breiðabliks
gerðu 1:1 jafntefli á Akranesi á
laugardaginn, í leik
Sigþór sem Blikastúlkur
Eiríksson voru heppnar að
skrifar hirða eitt stig. Það
var aðeins stórgóð
markvarsla Steindóru Steinsdóttur
í Blikamarkinu sem kom í veg fyrir
sigur Skagastúlkna.
Blikastúlkur byijuðu betur, voru
heldur meira með knöttinn en náðu
ekki ap skapa sér góð marktæki-
færi. Á 23. mínútu komust Blika-
stúlkur í góða sókn og þá skoraði
Ásta B. Gunnlaugsdóttir frá mark-
teigshorni. Það munaði aðeins hárs-
breidd að Blikastúlkur bættu við
marki í upphafí síðari hálfleiks, en
þá átti Ásta skot í stöng Skaga-
marksins eftir slæm varnarmistök.
Morgunblaðið/Kristinn
Þórður B. Bogason um það bil að skora síðara mark sitt í leiknum gegn Fram.
Valsmenn viljugri
VALSMENN voru mun betri en Fram-
arar á sunnudaginn þegar þeir léku
fyrsta heimaleik sinn á Laugardals-
velli í nokkur ár. Leikmenn Vals voru
ákveðnari frá fyrstu mínútu og þeir
höfðu viljann til að sigra en Framarar
náðu sér aldrei á strik og léku trúlega
lélegast leik sinn í langan tíma.
Leikurinn lofaði góðu í upphafi því bæði
lið fengu marktækifæri á fyrstu mín-
útunum en þau fóru forgörðum. Síðan
^■■■1 dofnaði yfir leiknum og
Skúti Unnar baráttan um miðjuna hófst.
Sveinsson hún stóð ekki lengi því
skrifar Valsmenn náðu undirtök-
unum og slepptu þeim ekki.
Eftir að Sævar Jónsson skoraði fyrsta
markið á 25. mínútu réðu Valsmenn gangi
leiksins og fengu nokkur færi til að auka
muninn. Það tókst þó ekki fyrr en á 39.
mínútu.
Eftir aðeins rúmar þijár mínútur í síð-
ari hálfleik komust Valsmenn í 3:0 og
þeir héldu uppteknum hætti, réðu gangi
leiksins. Framarar komust ekkert áleiðis
og leikur þeirra var slakur og má eigin-
lega segja að það hafi verið hátíð ef þeir
náðu að gefa óbrenglaða sendingu. Þeir
minnkuðu þó muninn á 58. mínútu en
Valsmenn áttu síðasta orðið og skoruðu
fjórða markið á 84. mínútu.
Valsliðið lék vel. Vörnin var sterk og
----------
Morgunblaðið/Kristinn
Erla Sigurbjartsdóttlr er hér ágeng við mark KR, en náði þó ekki að skora
að þessu sinni. Sigríður Pálsdóttir í marki KR reynir hvað hún getur til að
stöðva knöttinn en Sigurlín Jónsdóttir KR og Ragnheiður Víkingsdóttir Val,
liggja á jörðinni. Ásta Sóley Haraldsdóttir og Arna Steinsen þjálfari KR fylgj-
ast spenntar með.
Eftir þetta var leikurinn nánanst
eign heimamanna, og varði Steind-
óra í oft glæsilega. Það var ekki
fyrr en á 76. mínútu að Skagastúlk-
um tókst að koma knettinum fram
hjá Steindóru, þegar Magnea Guð-
laugsdóttir slapp inn fyrir Blika-
vörnina og skoraði af öryggi fram-
hjá henni.
Steindóra Steinsdótir var langb-
est í liði Blika, og Vanda Sigurgeirs-
dóttir lék ágætlega. Hjá Skaga-
stúlkum átti Halldóra Gylfadóttir
mjög góðan leik og sömuleiðis Berg-
lind Þráinsdóttir, ungur og efnileg-
ur varaarmaður, sem tókst hvað
eftir annað að stöðva Ástu B. Gunn-
laugsdóttur, og geri aðrir betur.
Yfirburðir Þróttar
Þróttur Neskaupstað sigraði ÍBV
10:0 í 1. deild kvenna um
helgina. Inga Birna Hákonardóttir
gerði sex af mörkum
Þróttar í leiknum.
Yfirburðir Þróttar-
stúlkna voru algjörir
og fengu Eyjastúlk-
ur vart færi í leiknum. Þær mega
þó eiga það að baráttan í liðinu var
Agúst
Blöndal
skrífar frá
Neskaupstaö
sú sama hver sem staðan var. Gerð-
ur Guðmundsdóttir stóð upp úr liði
Þróttar og Jónína Guðjónsdóttir og
Inga Birna Hákonardóttir léku vel.
Sanngjamt á Akureyri
Stjarnan sótti ÍBA heim á Akur-
eyri um helgina og skildu liðin
jöfn 1:1. ÍBA hóf leikinn af krafti
og var hann aðeins
sjö mínútna gamall
þegar þær höfðu
gert mark sitt. Þar
var á ferðinni Amdís
gerði hún markið
Reynir
Eiríksson
skrifar
og
Ölafsdóttir
með skalla.
Leikurinn var nokkuð jafn í fyrri
hálfleik og á 22. mínútu jafnaði
Guðný Guðnadóttir metin fyrir
Stjömuna með góðu skoti eftir að
hún komst í gegnum vörn heima-
stúlkna.
Fátt markvert gerðist í síðari
hálfleik en Stjörnustúlkur voru þó
öllu ágengari við mark ÍBA án þess
þó að koma knettinum rétta boð-
leið. Leikurinn var ágætlega leikinn
af beggja hálfu og úrslitin sann-
gjöm.
gaman að sjá Bjarka því þrátt fyrir að
vera ungur er hann gríðarlega ákveðinn
og harður af sér. Steinar var sterkur sem
aftasti maður og Sævar fyrir framan hann
stóð sig vel. Agúst var þó besti maður
vallarins, hefur mikla yfirferð og reynir
alltaf að leika knettinum. Jón S. og Hörð-
ur voru einnig sprækir og frammi vann
Gunnar mjög vel.
Framarar náðu sér ekki á strik, Valsar-
ar gáfu þeim aldrei tækifæri til þess. Birk-
ir stóð sig ágætlega í markinu nema hvað
hann mætti vanda sig meira þegar hann
þarf að spyrna frá marki. Aðrir leikmenn
léku undir getu nema hvað Ríkharður lék
ágætlega.
1b^\A 25. mínútu fengu Valsmenn innkast á móts við vítatein-
■ \#inn hægra megin. Framarar skölluðu frá en rétt utan við
vítateig kom Sævar Jónsson og sendi knöttinn með fóstu skoti í slánna
og inn. Glæsilegt mark.
2a ^\Þung sókn Vals á 39. mínútu. Framara björguðu á markl-
■ \#ínu, Hörður átti skot 5 stöng og Þórður B. Bogason náði
boltanum og renndi honum í netið.
3«^\Þórður var aftur á ferðinni á 49. mínútu og gerði þá fal-
■ \Jlegt mark. Hörður Már gaf fyrir frá vinstri og Þórður fékk
boltann við vítateigshomið hægra megin. Hann gaf sér góðan tíma,
vippaði laglega yfír Guðmund Gíslason og setti knöttinn í homið fjær.
3a 4 Fram minnkaði muninn á 58. mínútu. Skotið var í vamar-
■ I vegg Vals úr aukaspymu og boltinn hrökk út í vítateiginn
hægra megin. Hann var sendur fyrir markið og þar kom Ríkharður
Daðason og skoraði með föstu skoti úr miðjum teig.
4m <4 Knötturinn barst til Jóns S. Helgasonar á 84. mínútu.
■ I Hann lék í átt að vítateignum og þóttist ætla að skjóta en
vippaði síðann knettinum inn fyrir vörn Fram og stakk sér á eftir
boltanum og skoraði af öryggi. Fellega gert.