Morgunblaðið - 22.06.1993, Qupperneq 8
ITALIA
KORFUKNATTLEIKUR / URSLITAKEPPNI NBA
Þrísvar í röð!
X
Otrúleg þriggja stiga karfa John Paxsons á síðustu sek-
úndunum tryggði Chicago þriðja meistaratitilinn í röð
„Air“ Jordan
MICHAEL Jordan hoppaði nánast hæð
sína í loft upp er sigurinn Var í höfn.
John Paxson, nr. 5, og Horace Grant
með gleraugun hvítu fagna einnig
ógurlega en þeir komu báðir við sögu
á lokasekúndunum.
Agassi rauk í gang
Andre Agassi blés á allar þær raddir sem halda því fram að hann eigi
ekki möguleika á að veija Wimbledon meistaratitlinn, þegar hann
sigraði Þjóðaverjann Bemd Karbacher örugglega í fyrstu umferð á
Wimbledon-mótinu í gær. Hann tapaði í fyrstu umferð á tennismóti í
Þýskalandi í síðustu viku, í fyrsta leik sínum í tvo mánuði, en hann hef-
ur verið frá lengi vegna meiðsla. Það var hins vegar ekki að sjá að hann
væri ekki í leikæfingu þegar hann rúllaði Þjóðveijanum upp 3:0. Hann
var reyndar 2-5 undir í fyrstu hrinunni, en skyndilega héldu honum eng-
in bönd og tók hann hrinuna 7-5, og næstu tvær 6-4 og 6-0.
■ Úrslit / B6
Á sídustu stundu
HORACE Grant náði á sfðustu stundu að stöðva skot Kevins Johnsons á loka-
sekúndunni, og endanlega tryggja þar með Chicago sigurinn. Michael Jordan
fylgist spenntur með.
CHICAGO Bulls varð NBA-
meistarií körfuknattleik í þriðja
sinn á jafn mörgum árum þeg-
ar liðið sigraði Phoenix Suns
með einu stigi, 99:98, í sjötta
leik liðanna í úrslitunum að-
faranótt mánudagsins. Það var
John Paxson sem tryggði Bulls
sigurinn með ótrúlegri þriggja
stiga körfu er 3,9 sekúndur
voru eftir af leiknum.
Chicago hafði yfirhöndina í
leiknum lengst af, en í fjórða
leikhluta komust Suns yfir og náði
mest fjögurra stiga forskoti. Mich-
ael Jordan minnkaði muninn niður
í tvö stig þegar hálf mínúta var
eftir, Suns náði ekki að skora í
næstu sókn og Paxson kom þeim
einu stigi yfir með sigurkörfunni
er 3,9 sekúndur voru eftir. Kevin
Johnson fékk boltann en Horace
Grant náði að veija skot hans og
þar með rann leiktíminn út.
„Þetta hlýtur að vera draumur,"
sagði John Paxson eftir leikinn.
„Það voru líklega okkar örlög að
vinna,“ bætti hann við og vísaði til
orða Charles Barkleys eftir fímmta
leikinn. Horace Grant lék afleitlega
í síðustu tveimur leikjunum, gerði
samtals tvö stig, en var gríðarlega
mikilvægur á lokasekúndunum fyrir
Chicago. Fyrst átti hann sending-
una á Paxson þegar hann skoraði
og í bláendann varði hann skot
Kevins Johnsons úr upplögðu færi.
Jordan gerði 33 stig í leiknum
fyrir Chicago, Scottie Pippen 23 og
tók 12 fráköst. Barkley og Dan
Majerle gerðu báðir 21 stig fyrir
Suns.
Jordan stórkostlegur
Michael Jordan var valinn maður
úrslitakeppninnar þriðja árið í röð,
en það hefur engum öðrum leik-
manni tekist, ekki einu sinni tvisvar
í röð. Hann setti líka stigamet í
úrslitakeppninni, gerði samtals 246
stig, að meðaltali 41 stig í leik.
Barídey gerði að meðaltali 27,3 stig
í leikjunum og tók 13 fráköst miðað
við 8,5 hjá Jordan. Barkley átti að
meðaltali 5,5 stoðsendingar í leik
en Jordan setti enn eitt metið í
úrslitakeppninni með að meðaltali
6,3 stoðsendingum. Jordan vildi lít-
ið tala um þessi afrek sín, en sagði
að þriðju sigur sinn í röð með
Chicago skyldi á milli sín og Larry
Bird og Magie Johnson, sem aldrei
hefði tekist þetta.
TENNIS / WIMBLEDON
Tórínó bikar-
meistari
Tórínó varð á laugardaginn ít-
alskur bikarmeistari í knatt-
spyrnu, þrátt fyrir 5:2 tap gegn
Roma í síðari úrslitaleiknum á
heimavelli Roma. Tórínó vann fyrri
ieikinn 3:0, og varð því bikarmeist-
ari á mörkum skoruðum á útivelli.
Fæstir áttu von á því að Roma
ætti einhvem möguleika eftir 3:0
tapið í fyrri leiknum, en það var
engin uppgjöf í þeirra herbúðum.
Roma skoraði fyrsta markið í leikn-
um úr vítaspymu, en Andrea Si-
lenzi jafnaði á síðustu mínútu fyrri
hálfleiks.
Ruggero Rizzitelli skoraði annað
mark Roma snemma í síðari hálfleik
og skömmu síðar bætti Giannini
þriðja markinu við úr vítaspyrnu.
Silenzi minnkaði muninn, en þriðja
mark Giannini og þar með Roma
úr vítaspyma breytti stöðunni í 4:2.
Á 65. mínútu gerði Serbinn Sinisa
Mihailovic fimmta mark Roma úr
aukaspyrnu, en Iengra komst liðið
ekki. Giannini skaut einu sinni í
stöng og undir lokin bjargaði Luca
Marchegiani markvörður Tórínó sín-
um mönnum með undraverðri mar-
kvörslu.
Þetta var í fímmta sinn síðan
1936 sem Tórínó hampaði ítalska
bikarnum.
SPANN
Sagan
endur-
tóksig
- og Barcelona fagn-
aði sigri þriðja árið í röð
Real Madrid sá á eftir meistara-
titlinum til Barcelona annað
ári í röð á Kanaríeyjum. Barcelona
varð meistari þriðja árið í röð með
1:0 sigri á Real Sociedad í lokaum-
ferðinni á meðan Real Madrid varð
að lúta í lægra haldi fyrir Tenerife
á Kanarí 2:0. Fyrir síðustu umferð-
ina hafði Real Madrid eins stigs
forskot á Barcelona.
Stuðningsmenn Barcelona fögn-
uðu meistaratitlinum á götum borg-
arinnar eftir leikinn og sungu
„Tenerife, Tenerife" og vildu þannig
þakka fyrir stuðninginn. í fyrra var
Real Madrid í sömu sporum fyrir
síðustu umferðina, en tapaði þá fyr-
ir Tenerife 3:2, eftir að hafa komist
í 0:2.
„Ég er hamingjusamasti maður í
heimi,“ sagði John Cruyff, þjálfari
Barcelona, er úrslitin voru ljós. „Nú
er stefnan tekin á fjórða meistaratit-
ilinn í röð. En ég er ósáttur við að
hafa ekki getað fagnað þriðja meist-
aratitlinum fyrr en eftir síðustu
umferð.
Barcelona hlaut 58 stig í 38 leikj-
um, einu stigi meira en Real Madrid,
sem átti aldrei möguleika gegn
Tenerife sem gerði bæði mörkin í
fyrri hálfleik. Búlgarinn Hristo Sto-
ichkov gerði eina mark Barcelona
gegn Real Sociedad á 12. mínútu
og það dugði. Deportivo Coruna
hafnaði í þriðja sæti, Valencia í
fjórða og Atletico Madrid í fímmta
sæti og leika þau í UEFA-keppninni
næsta tímabil eins og Tenerife. Real
Madrid leikur til úrslita í spænsku
bikarkeppninni gegn Real Zaragoza
næsta laugardag og ef Real Madrid
vinnur bikarinn fer liðið í Evrópu-
keppni bikarhafa og Sevilla, sem
varð í 7. sæti, í UEFA-keppnina.
GETRAUNIR: 212 111 2X1 121X
LOTTO: 1 21 24 25 36 / 11